NT - 22.12.1984, Blaðsíða 24
Laugardagur 22. desember 1984 24
Útlönd
Sovétríkin:
Ustinov varnarmála-
ráðherra látinn
■ Dimitri Ustinov, varnar-
málaráðherra Sovétríkjanna,
lést í gær 76 ára að aldri. Lát
hans hefur ekki verið staðfest
opinberlega í Sovétríkjunum en
36. einvígisskák Karpovs og
Kasparovs var frcstað í gær
vegna dauða Ustinovs og hæði
Tikhonov forsætisráðherra og
Gorbachev, sem voru í opinber-
um heimsóknum erlendis hafa
snúið heim til Moskvu fyrr cn
áætlað var.
Ustinov komst fyrst til met-
orða í sovéska kommúnista-
flokknum árið 1641, þegar Stal-
in gerði hann að hermálaráð-
herra. Hann vareinn valdamesti
maðurinn í Sovétríkjunum.
Auk þess að vera meölimur í
stjórnarnefnd Sovétríkjanna er
talið að hann hafi mótað utan-
ríkisstefnu landsins ásamt
Gromyko utanríkisráðherra.
Flestir vestrænir stjórnmála-
skýrendur telja að Ustinov og
Gromyko hafi mótað harðlínu-
stcfnu þá sem Sovétríkin hafa
undanfarið fylgt gagnvart Vest-
urveldunum og staðið á bak við
þá ákvörðun að slíta viðræðum
um kjarnorkuvopn cftir að
Bandaríkin byrjuöu að setja
■ Dmitry Ustinov
upp eldflaugar í Evrópu.
Ustinov var skipaður varn-
armálaráðherra árið 1976. og
hann var þá fyrsti óbreytti varn-
armálaráóherra Sovétríkjanna
síðan Trotsky leið.
Ustinov var vinsæll meðal
sovésku þjóðarinnar, enda var
hann mikill ræðumaður og blés
fólki í brjóst sjálfstrausti. Hann
þótti einnig vera óvenjulega
hressilegur og glaðlegur miðað
við félaga sína í stjórnarnefnd-
inni, og stangaðist það nokkuð
á við harða stjórnmálastefnu
hans í samskiptum austurs og
vesturs.
■ Rajiv Gandhi ásamt móður sinni skömmu áður en hún var
myrt. Símamynd-POLFOTO
Kosningafíll
■ Indverjar nota ýmsar aðferðir til að auglýsa þá frambjóðendur
sem þeir styðja í kosningunum sem nú verða um jólin á Indlandi.
Eins og sést á þessari mynd hefur iílaeigandi nokkur ákveðið að
nota fílinn sinn til að útbreiða kosningaáróður. Á horðanum, sem
fílaeigandinn lætur l'ílinn bera um götur í Nýju-Delhi, er lýst yfír
stuðningi við forsætisráðherra Indverja, Kajiv Gandhi, en flestir
spá því að flokkur hans muni vinna yfírburðasigur í kosningunum.
Kannski kosningafíllinn verði líka notaður til að llytja kjósendur á
kjörstað. Símamynd-POI.FOTO
Svör við jólagetraun
1. Arthur Schargill. 10. Herreys-bræður,
2. Bhopal. sænskir.
3. Nektarmyndiraf henni 11. írak.
birtust í kallatímarit- 12. Sikkar.
inu Penthouse. 13. 53 ára.
4. Walter Mondale, Jess- 14. Salvador Dali.
ie Jackson, Gary 15. Minnesota.
Hart. 16. Jaroslav Seifert,
5. Libýskt. tékkneskur.
6. 1997. 17. Að Westmoreland
7. Frá Mexíkó, Indlandi, hefði sagt rangt til um
Tanzaníu, Argent- styrk óvinarins.
ínu, Svíþjóð og 18. Brian Mulroney.
Grikklandi. 19. „Við byrjum að
8. D-dags, innrásar sprengja Rússana eft-
bandamanna í Norm- ir fimm mínútur."
andí árið 1944. 20. Francois Truffaut.
9. Flick-samsteypan.
Indland:
Fær Gandhi-veldið
blessun á jólunum?
■ Fari ^vo sem nú horfir munu
Indverjar lýsa blessun sinni yfir
stjórn Rajiv Gandhis sem erfði
forsætisráðherraembættið eftir
ntóður sína, Indiru Gandhi, eft-
ir að hún var myrt þann 31.
október síðastliðinn.
Allar skoðanakannanir
benda til stórsigurs Kon-
gressflokksins sem hefur stjórn-
að Indlandi allt frá því að Ind-
verjar fengu sjálfstæði frá Bret-
um árið 1947 að þremur árum
undanskyldum.
Rajiv Gandhi er aðeins fer-
tugur að aldri. Hann er Iærður
flugmaður og sýndi upphaflega
lítinn áhuga ástjórnmálum. Eft-
ir að eldri bróðir hans lést í
flugslysi tókst móður hans að
sannfæra hann um að hann yrði
að halda merki ættarinnar áfram
á lofti í indverskum stjórnvöld-
um.
Afi Rajiv Gandhis, Jawaharl-
al Nehru, var fyrsti forsætisráð-
herra Indverja eftir aö. þeir
öðluðust sjálfstæði. Að honum
látnum tók dóttir hans, Indira
Gandhi, við forsætisráðherra-
embættinu og nú er röðin komin
að Rajiv. Bæði Nehru og Indira
Gandhi unnu mikið að því að
viðhalda einingu Indlands.
Landið er byggt mjög mismun-
andi þjóðarbrotum sem aðhyll-
ast óskyld trúarbrögö og tala
mörg og ólík tungumál sem
ekki skiljast innbyrðis. Indverj-
ar hafa haft mikla þörf fyrir.
sameiginlegt tákn sem gæti
haldið þeim saman. Margir Ind-
verjar hafa talið sig finna slíkt
tákn í Nehru og Indiru Gandhi
þótt andstæðingar þeirra hafi
einnig verið margir. Nú er eftir
að sjá livort hinum unga syni
Indiru tekst að tryggja sér stöðu
sem sterkur leiðtogi sameinaðs
Indlands. Stór kosningasigur
Kongressflokksins nú um jólin
mun án efa hjálpa honum við að
öðlast slíka íntynd.
Það er greinilegt að Rajiv vill
samt ekki láta líta á sigeingöngu
sem sporgöngumann móður
Friðarferð
barna til
Evrópulanda
San Francisco-Rculer
■ Tíu börn á aldrinum níu til
fjórtán ára lögðu af stað í þess-
ari viku frá Bandaríkjunum til
Evrópu og ætla að ræða um frið
evrópska leiðtoga.
Börnin hafa með sér mörg
þúsund bréf og myndir eftir
börn víðs vegar að í heiminum
þar sem óskað er eftir friði. Þau
munu meðal annars hitta for-
sætisráðherra Póllands Wojc-
iech Jaruzelski, forseta Tékk-
óslavakíu, Gustav Husak og
forseta Ítalíu, Sandro Pertini.
Þau vonast einnig til að fá að
hitta Chernenko, forseta So-
vétríkjanna, en Sovétmennhafa
enn ekki svarað beiðni þeirra
þar að lútandi.
Þetta er fjórða friðarferð
barna á þremur árum. Ferðirnar
eru greiddar af samtökum í San
Francisco.
sinnar. Eitt fyrsta verk hans í
leiðtogasæti Kongrcsstlokksins
var að gera breytingar á forystu
hans í mörgum fylkjum til að
uppræta spillingu sem sagt er að
sé ntikil í sumum einingum
flokksins. Margir fyrrverandi
þingmenn fengu ekki sæti á
framboðslistum Kongress-
flokksins vegna þessara breyt-
inga og ölli það mikilli óánægju
þeirra sem vonlegt er.
Á síðustu stjórnarárum
Indiru Gandhis átti hún líka í
stöðugt meiri erfiðleikum við
að halda landinu saman. Upp-
reisn róttækra Sikka gegn
stjórninni í Delhi nú í sumar er
aðeins eitt dæmið af mörgum
um sjálfstæðiskröfur einstakra
þjóðarbrota á Indlandi. Indira
greip stöðugt meira til beinnar
valdbeitingar til að bæla niður
andstæðinga sína sem hún taldi
að ynnu að því að sundra ríkinu.
Helsti mælikvarðinn á hæfni
Rajiv Gandhis sem þjóðarleið-
toga Indverja hlýtur að vera
hvort honum tekst að treysta
aftur brothætta einingu ind-
verska ríkisins. Kosningarnar
eru fyrsta skrefið á braut hans
til slíkrar stöðu.
Umsjón: Ragnar Baldursson og Egill Helgason
Sovétríkin:
Nýr mennta-
málaráðherra
Moskva-Reuter
■ Menntamálaráðherra
Sovétríkjanna. Mikhail
Pokofyev, sem er 74 ára
að aldri, hefur fengið
lausn frá embætti sínu að
eigin ósk að því er Tass
fréttastofan skýrði frá í
gær.
Nú þegar hefur verið
skipaður nýr menntamála-.
ráðherra í hans stað, Serg-
ey Sherbakov en hann var
áður yfirmaður Vísinda-
og menntastofnunar So-
vétríkjanna.