NT - 11.01.1985, Blaðsíða 2
um
■ Það hefur verið mikið að
gera við að flytja íslendinga
heim í jólafríið hjá flugfé-
lögunum undanfarið.
Við brugðum undir okkur
betri fætinum á dögunum og
tókum tali nokkra farþega og
flugliða á leiðinni frá London
meðeinni afþotum Flugleiða.
Flugleiðir hafa tekið upp á
þeirri nýbreytni að bjóða uppá
tvö farrými á leiðum sínum,
nýja farrýmið kalla þeir Saga
Class og bjóða farþegum þar
betri eða öllu heldur fljótari
þjónustu.
En hverjir eru það sem ferð-
ast á Saga Class?
Við spurðum Birgi Karlsson
yfirflugþjón að því. Birgir
sagði að það væru þeir sem
færu í ferðir sínar með stuttum
fyrirvara, ættu ekki kost á að
nýta sérfargjöldin og borguðu
þessvegna hæsta verð fyrir
flugfar.
Að hvaða leýti er þjónustan
Föstudagur 11. janúar 1985
> Blaðll
frábrugðin hér frammi í?
„Við afgreiðum Saga Class
farþegana fyrst, t.d. fá þeir
fyrst dagblöðin, matinn,
drykki og þessháttar. Á báðum
farrýmum er alveg sami matur,
en drykkir eru fríir á Saga
Class.“
Hafsteinn Aðalsteinsson,
sem var á ferðinni í viðskipta-
erindum, sagði að hann kynni
vel að meta þjónustuna á Saga
Class, hann þyrfti oft að
ákveða með stuttum fyrirvara
að fara til útlanda og borgaði
því hærra verð fyrir farmiðann
sinn en þorri farþeganna, sem
greiddi apex-gjald.
Steinar Berg hljómplötu-
framleiðandi, var á heimleið
með fjölskylduna fyrir jólin.
Hann sagði að vegna vinnu
sinnar væri hann mikið á ferð-
inni milli London og Keflavík-
ur og sagðist ferðast á venju-
legu farrými nema í undan-
tekningartilvikum. Hann róm-
aði þjónustuna um borð í
Flugleiðavélunum, farþegarnir
á Saga Class gengu fyrir og
fríir drykkir byðust þar, það
væri heísti munurinn.
Guðlaug Þorsteinsdóttir
skákkona var á leið heim frá
Grikklandi, eftir fimm vikna
útivist. Hún tók þar þátt í
tveimur skákmótum, með dá-
góðum árangri, en var óheppin
í lok seinna mótsins.
Gaðlaug sagðist vona að hún
yrði heima á næstunni, það
væri nóg að hafa verið fimm
vikur í burtu, enda nóg að gera
hjá henni í læknisfræðinni.
Það var nóg að gera hjá
flugþjónum og flugfreyjum á
leiðinni og fengu ungir sem
jamlir góða þjónustu.
Það var jólalegt um að litast
á Keflavíkurflugvelli þetta
miðvikudagkvöld fyrir jól,
fannhvít jörð og stjörnubjart
og allir fegnir heimkomunni
eftir ánægjulega ferð.
M Guðlaug Þorsteinsdóttir
skákkona, \ar fegin að vera á
heimleið eftir fímm vikna dvöl
í Grikklandi.
M Starf fíugfreyjunnar getur
verið margbreytilegt, - hér
bregður Christel Þorsteinsson
sér í barnfóstruhlutverkið
meðan mamman bregður sér
frá.
M Hafsteinn Aðalsteinsson
kann vel að meta þá þjónustu
sem hann fær á Saga Class
farrými Flugleiða, þegar hann
fer með stuttum fyrirvara til
útlanda í viðskiptaerindum.
Annríki í millilandaflugi
Heim
hátíðirnar
Beint leiguflug
frönsku Rívieruna
■ Ferðaskrifstofan Úrval
býður viðskiptavinum sínum
upp á þá ný.jung sumarið 1985
að geta ferðast í beinu leigu-
flugi á frönsku Rívieruna. Úr-
val hefur valið tvo staði sem
gististaði við frönsku Rívier-
una. Þessir staðir eru tveir
smábæir, St. Laurent du Var
og Juan Les Pins, sem staðsett-
ir eru mitt á milli stórborganna
Cannes og Nissa. í Juan Pins
eru góðar baðstrendur og bær-
inn er sjálfur samvaxin hinum
fræga ferðamannastað Ant-
ibes.
Hótelið Mas De Tanit sem
er í Juan Les Pins er staðsett
miðsvæðis, og segir í fréttatil-
kynningu frá ferðaskrifstof-
unni að allir helstu og áhuga--
verðustu staðirnir séu í göngu-
færi frá hótelinu.
St. Laurent du Var er lítill
gamall og vinalegur bær um
fjóra kílómetra frá borginni
Nissa. Hótelið sem boðið er
upp á í St. Laurent ber nafnið
Heliotel Marine, og er prýð-
isvel staðsett með tilliti til
skemmtana og skoðunarferða.
Einnig býður Úrval upp á
gistingu í Cap ‘d Agde sem er
sumarleyfisbær skammt frá
borginni Montepellier. Bærinn
hefur einvörðungu verið
byggður upp fyrir orlofsgesti.
Hótel Alhambra er gististaður
f Cap d‘ Agde og er það staðsett
örskammt frá Skemmtigarðin-
um Aqualand.
Brottfarir eru:
25. maí - 17 nætur
12. júni - 21 nótt
og á þriggja vikna fresti til 4.
september
Skíðaferðir til Frakklands
Úrval verður með ferðir til
frönsku alpanna. Eins og í
fyrra verður flogið með áætl-
unarflugi til Genfar og ekið
þaðan til Courchevel.
Brottfarardagar verða 15.
og 29. mars, og standa báðar
ferðirnar í tvær vikur. f báðum
ferðunum verður gist á Hótel
Crystal 2000, sem er staðsett
mjög stutt frá skíðalyftunum,
og því mjög auðvelt að komast
í brekkurnar án þess að bíða
lengi í biðröð.
Áætlað verð: 15. mars kr.
40.754,- per mann í tvíb.
29. mars kr. 42.910,- per mann
í tvíb.
■ í ár gefst íslendingum
kostur á að fljúga með
beinu leiguflugi til frönsku
Ríverunnar.