NT


NT - 11.01.1985, Qupperneq 7

NT - 11.01.1985, Qupperneq 7
Föstudagur 11. janúar 1985 7 - Blað II .. M Aðalgengið í Dynasty þáttunum Joan Collins, John Forysthe og Linda Evans. M JoanCollins heillarjafnt ungasem gamla Dynasty undrið! ■ Hvernig gat það gerst að Dallas vinsælasti framhalds- flokkurinn í Bandaríkjunum lenti allt í einu í öðru sæti á vinsældalista sjónvarpsgláp- ara og berst nú hatrammri baráttu við að ná sæti sínu aftur. Var Pamela ekki nógu sæt? Var Bobby ekki nógu heiðarlegur? Drakk Sue EU- en ekki nógu mikið. Hélt J.R. of sjaldan framhjá. Hvað var það sem á vantaði hjá Dallas sem gaf öðrum þætti með sömu uppbygg- ingu tækifæri á því að ná toppsætinu sem engum hafði dottið í hug að hægt væri að ná frá Dallas? Eflaust margar ástæður, aðalásæðurnar tel ég vera eftirfarandi: Dallas þættirnir voru í upphafi hugs- aðir sem grínþættir en frábær túlkun Larry Hagman á J.R. gerði Dallas að vinsælustu sápuóperu síns tíma. Pví miður fyrir J.R. þá vildi þannig til að flest allir með- leikarar hans eru 3. flokks leikarar, á það einkum við um kvenleikarana. Handrit- ið sjálft er frá upphafi mis- lukkað, við eigum að halda að Ewing sé olíuveldi. Þeim tekst ekki að byggja upp þá trú hjá manni, vegna þess að í ca. fystu 20 þáttunum sá maður ekki þjóna heima hjá Ewing fjölskyldunni og segja má að þau búi í hreysi sé miðað við Carrington fjöl- skylduna. Skrifstofa Ewing- anna í borginni kom mér alltaf til að brosa, tvær stúlk- ur unnu á skrifstofunni hjá hinu gríðastóra olíufyrirtæki og herbergin voru svo lítil að litli barinn hans J.R. komst varla fyrir. Ég veit að sumum finnst ég dæma þættina of hart, það má vel vera. Ég man jú eftir því hversu erfitt var að ná í kunningjana á miðvikudags- kvöldum þegar Dallas var í sjónvarpinu. Hvað um það, víkjum nú að Dynasty. f þeim þáttum er teflt fram mun betri leikurum (samt daprir sumir hverjir) og þar fáum við að kynnast ríkri olíufjölskyldu, sem er svæsn- ari og grófari en Ewing fjöl- skyldan í alla staði og þar af leiðandi eru Dynasty þætt- irnir mun vinsælli. Dynasty hefur upp á að bjóðamiklu fjölbreyttari og flóknari persónur innan síns hóps, þar sem Dallas ein- skorðar sig of mikið við góð- ar persónur og vondar. Per- sónur vantar af milliklassa- gerðinni, alltof skýr skil milli góðra og vondra hjá Dallas. Dynasty þættirnir byrjuðu eins og Dallas með titlum, tónlistarþema og loftmynd- um af umhverfi sögunnar, stórhýsum í borg og sveit, olíuborpöllum o.s.frv. Dyn- asty þættirnir sýna okkur inn í hið stórbrotna líf Carring- ton-fjölskyldunnar, sigra og ósigra hins myndarlega ætt- föðurs Blake Carringtons. Hann er í meðförum John Forsythe ekki aðeins reffilegt íllmenni sem þykir sopinn góður, heldur maður með ekta tilfinningar bak við kænskuna. „Ekki hægt“ þau orð eru ekki til í hans orða- forða né viðskiptalífi, einskis svifist í þeim bransa eins og við verðum jú vör við. Blake á tvö börn, hina kyn- óðu Fallon sem er nánast tilbúin til að gera hvað sem er til að gæta hagsmuna föður síns og þá kemur sér vel fyrir hana að vera fær í því að tæla karlpeninginn í rúmið. Fall- on giftist hinum sæta Jeff Colby gegn því að faðir Jeff hjálpi Blake út úr smá fjár- hagsvandræðum. Jeff stend- ur í þeirri trú fyrst um sinn að um ást hafi verið að ræða hjá Fallon. Nú Steven, sonur Blakes, er hommi og það veldur Blake feikna vonbrigðum. Málin þróast þannig samt að fyrsta ástarævintýri Stevens með konu verður með Claudia Blaisdel, eiginkonu jarðfræðingsins Matthew sem er keppinautur Blakes. Blake drepur ástvin Stevens, Ted, en að sjálfsögðu óvart, • slys! Ekki má gleyma að nefna þær Krystle og Alexis, en frá því Alexis birtist (14. þáttur) hefst heiftarleg bar- átta milli þeirra tveggja sem ekki verður séð fyrir endann á. Linda Evans leikur Krystle sem er sæt, greind, tilfinning- anæm og heiðvirð persóna, en eftir að hafa gifst Blake tekur persóna hennar tal- sverðum breytingum sem nauðsynlegar eru, ætli hún sér á annað borð ekki áð verða undir í valdagræðginni og spillingunni. Joan Collins leikur Alexis, fyrri konu Blakes og það eina sem hún hugsar um er að koma ár sinni vel fyrir borð en oft leynist flagð und- ir fögru skinni. Hún reynist algjör „bitch“ og lætur sig litlu varða þótt hún eyðileggi líf annarra, eins og það að senda Blake í rafmagns- stólinn (smá grín). Þess má geta svona til fróðleiks að Joan Collins sem er orðin 51 árs gömul hefur tilkynnt að 'nún ætli að ganga í það heilaga á næstunni. Sá heppni er enginn annar en hinn 37 ára gamli Peter Holm, sænski kaupsýslu- maðurinn. Þau hafa sést sam- an við hin margvíslegu tæki- færi síðustu tvö árin. Enn er ógetið fjölda persóna sem koma við sögu í Carrington- fjölskyldunnni en þó vil ég geta einnar persónu sem enn er ókomin. Það er læknirinn Nick Toscanni sem Blake fær heim til sín til að annast Claudiu Blaisdel. En læknir- inn hefur því miður meiri áhuga á líðan hennar Krystle, annað morð hver veit? Þeir sem hafa haft gam- an af Dallas, ættu ekki að missa af þessum þáttum. Dynasty og Dallas eru vin- sælustu þættirnir í U.S.A. og undirritaður veit að þær myndbandaleigur sem hér hafa Dynasty á boðstólum segja allar að Dynasty gangi vel. í gær kom út spóla með 2 þáttum (16. og 17.) og er það vafalaust mikil ánægja fyrir aðdáendur Dynasty. í lok hverrar spólu fylgja í kaupbæti nokkur Skon- rokkslög. Myndgæðin á spól- unum eru fyrsta flokks og kápurnar eru vandaðar. Aðr- ir dreifingaraðilar mættu taka Stig hf. sér til fyrirmynd- ar í myndgæðum. J.Þór. V ideoklúbbur inn Stórholti 1. Sími 35450 Allt efnið í nýjasta V.H.S.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.