NT


NT - 11.01.1985, Qupperneq 11

NT - 11.01.1985, Qupperneq 11
■ Hinir viðburðaríku sjón- varpsþættir „Dýrasta djásnið” cru það sem mest er horft á í sjónvarpinu um þessar mundir. Sunnudaginn 13. janú- ar veröur sýndur 9. þátturinn, cn alls eru þeir 14. Dýrasta djásnið heitir á ensku ..The Jewel in the Crown" og er gerð eftir sögu Pauls Scott „The Raj Ouar- tet“. Ken Taylor. senr gerði kvik- myndahandritiö eftir sögunni, stóð frammi fyrir miklum vanda. því að hann þurfti að ná úr fjórum þykkum bindum sögunnar sem greinilegústum söguþræði, en í bókinni er hlaupið nokkuö til í tímanum. Slíkt er ekki svo gott í fram- haldsþáttum, því þá vill sagan ruglast fyrir áhorfandanum. Barry Letts, einn af stjórn- endum BBC, sagði um þetta verk, að það væri engan veginn hægt að koma bókinni á hvíta tjaldið og það væri til of mikils ætlast aö hugsa til að gcra það, - en þetta er okkar túlkun á henni. Stjórnendur og fram- leiðendur þáttanna, þeir Christopher Morahan, Jim O'Brien og Ken Taylor, sem jafnframt vann að handritinu. hafa allir fengið mikið hól fyrir störfsín. Sömuleiðis leikararn- ir. en þarna voru bæði þekktir og reyndir leikarar, eins og til dæmis Peggy Ashcroft sem leikur Barbie Batchelor og líka lítið þekktir, svo sem t.d. Sus- an Wooldridge í hlutverki Daphne Manners, sem lést af barnsförum fyrr í þáttunum. ■ Geraldine James sem Sarah Layton Enn eru 5 þættir eftir laugar í þessu sambandi, voru þær Drífa Viðar og Nína Tryggvadóttir, en báðarvoru þær málarar og báðar fengust þær við ritstörf. Ljóð Drífu, sem Geir- laug les í þættinum, liafa ekki birst á prenti, en handritið fengið að láni hjá ættingjum. Það má því búast við að. þeir séu ekki margir, sem hafa heyrt þau fyrr. Ljóö Nínu aftur á móti birtust í Ijóðabók, sem út kom eftir hana 1982, en handritið og mynd- skreytingarnar með fann dóttir Nínu að móður sinni látinni, en hún dó 1968. Sigríður Björnsdóttir cr fyrst og fremst myndlistarmaður. en hún hefur gefið út Ijóðabók. Steingerður Guðmundsdóttir, leikari og skáld, hcfur að vísu ekki fengist við að setja myndir á blað eða striga, en á þó fyllilega heima í þessum hópi sökum þess hvað Ijóð hennar eru myndræn. Það má eiginlega segja að hún máli í Ijóðum. Ljóðið, sem lesið er eftir hana, er minningarljóð um Nínu Tryggvadóttur, en þær Steingerður voru miklar vinkon- ur. Sömu sögu er að segja um Drífu Viðar og Nínu. Þá tala þær stöllur við Valgerði Hafstað málara, sem búsett er í New York. Valgerður fæst ekki sjálf við yrkingar, en skýrir frá því að hún hafi farið út í mynd- listina mest fyrir áhrif frá ljóðum. Þuríður Guðmundsdóttir legg- ur hins vegar til Ijóð í þáttinn. Hún fæst ekkert við myndlist, en tengist myndlistinni óbeint, eins og Valgerður Ijóðlistinni. Tónlistarkrossgátan ■ Framvegis verður Tónlistarkrossgátan á dagskrá Rásar 2 annan hvern sunnudag. Umsjónarmaður er sem fyrr Jón Gröndal. Töffaramynd bönnuð börnum ■ Seinni myndin á laugar- dagskvöldið er fræg töffara- mynd með Gene Hackman í aðalhlutverki. Hún heitir á ís- lensku Franski fíkniefnasal- inn, en á frummálinu French Connection. Eins og nafnið bendir til snýst hún um eiturlyf og þá auðvitað eiturlyfjasmygl, en eins og allir vita eru höfð- ingjarnir í þeim viðskiptum ekki að setja fyrir sig sntámun- ina, eins og eitt og eitt mannslíf eða svo. Myndin er frá 1971 og hefur verið sýnd hér á landi. Leik- stjóri er William Friedkin. Þýðandi er Bogi Arnar Finn- bogason. Myndin er ekki við hæfi barna. 14.00-16.00 Pósthólfið Stjórnandi: Valdís Gunnarsdóttir. 16.00-17.00 Listapopp Stjórnandi:, Gunnar Salvarsson. 17.00-18.00 Léttir sprettir Stjórn- andi: Jón Ólafsson. Hlé- 23.15-03.00 Næturvaktin Stjórnend- ur: Vignir Sveinsson og Þorgeir Ástvaldsson. Rásirnar samtengd- ar að lokinni dagskrá rásar 1. Laugardagur 12. janúar 14.00-16.00 Léttur laugardagur Stjórnandi: Ásgeir Tómasson. 16.00-18.00 Milli mála Stjórnandi: Helgi Már Barðason. Hlé. 24.00-03.00 Næturvaktin Stjórnandi: Margrét Blöndal. Sunnudagur 13. janúar 13.30-15.00 Krydd í tilveruna Stjórnandi: Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir. 15.00-16.00 Tónlistarkrossgátan Hlustendum er gefinn kostur á að svara einföldum spurningum um tónlist og tónlistarmenn og ráða krossgátu um leið. Stjórnandi: Jón Gröndal. 16.00-18.00 Vinsældalisti Rásar 2 20 vinsælustu lögin leikin. Stjórn- andi: Ásgeir Tómasson. ■ Ásgeir Tómasson. Föstudagur 11. janúar 19.15 Á döf inni Umsjónarmaður Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfs- dóttir. 19.25 Krakkarnir í hverfinu 4. Nonni fær sér föt. Kanadískur myndaflokkur í þrettán þáttum, um atvik í lífi nokkurra borgarbama. Þýðandi Kristrún Þóröardóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. Umsjón: Páll Magnússon. 21.10 GrinmyndasafniðSkopmynd- ir frá árum þöglu myndanna. 21.25 Hláturinn lengir lífið. Níundi þáttur. Breskur myndaflokkur í þrettán þáttum um gamansemi og gamanleikara i fjölmiðlum fyrr og síðar. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. '21.55 Kaldhæðni örlaganna (L'iron- ie du sort) Frönsk bíómynd frá 1973. Leikstjóri Edouard Molinaro. Aðalhlutverk: Pierre Clementi, Jacques Spiesser, Jean Desailly, Pierre Vaneck, Hans Verner, Mar- ie-Helen Breillat. Myndin gerist í síðari heimsstyrjöld og er um þrjú ungmenni í frönsku andspyrnu- hreyfingunni. Hún sýnir hvernig lítil atvik ráða örlögum þeirra á einn eða annan veg. Þýðandi Ólöf Pétursdóttir. 23.15 Fréttir f dagskrárlok. Laugardagur 12. janúar 16.30 Iþróttir Umsjónarmaður Ingólf- ur Hannesson. 18.30 Enska knattspyman Umsjón- armaður Bjarni Felixson. 19.25 Kærastan kemur í höfn Sjötti þáttur. Danskur myndaflokkur i sjö þáttum ætlaður börnum. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvis- ion - Danska sjónvarpiö) 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. ■ Bryndís Schram. 20.30 Gestir hjá Bryndísi Bryndis Schram spjallar við fólk i sjón- varpssal. Upptöku stjórnar Tage Ammendrup. 21.10 Gull og grænir skógar (Royal Flash) Bresk gamanmynd frá 1975. Leikstjóri Richard Lester. Aöalhlutverk: Malcolm McDowell, Oliver Reed, Alan Bates, Florida Bolkan, Britt Ekland. Ævintýra- maður tekur að sér hlutverk þýsks þjóðhöfðingja að undirlagi Bis- marks sem vinnur að sameiningu Þýskalands. Stöðunni fylgir bæði ríkidæmi og fögur eiginkona en framtíðin er ótrygg. Þýðandi Jó- hanna Þráinsdóttir. 22.50 Franski fíkniefnasalinn (French Connection) Bandarísk biómynd frá 1971. Leikstjóri Wil- liam Friedkin. Aðalhlutverk: Gene Hackman, Ron Schneider, Fern- ando Rey, Tony Lo Bianco. Tveir ötulir rannsóknarmenn í fikniefna- deild lögreglunnar í New York komast á snoðir um gífurlegt heró- insmygl frá Frakklandi. Þeir hefja þegar leit að eiturefninu og eigend- um þess. Þýðandi Bogi Arnar Finn- bogason. Myndin er ekki við hæfi barna. 00.40 Dagskrárlok. Sunnudagur 13. janúar 16.00 Sunnudagshugvekja. 16.10 Húsið á sléttunni 9. Sá betri sigrar. Bandarískur framhalds- myndaflokkur. Þýðandi Óskar Ingi- marsson. 17.00 Listrænt auga og höndin hög 6. Af eldi og sandi sprettur gler. Kanadiskur myndaflokkur í sjö þáttum um listiðnað og handverk. Þýðandi Þorsteinn Helgason. Þulur Ingi Karl Jóhannesson. 18.00 Stundin okkar Umsjónar- menn: Ása H. Ragnarsdóttir og Þorsteinn Marelsson. Stjórn upp- töku: Valdimar Leifsson. 18.50 Hlé. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Sjónvarp næstu viku Umsjón- armaður Guðmundur Ingi Krist- jánsson. ■ Sveinbjörn I. Baldvinsson. 20.50 Glugginn Þáttur um listir, menningarmál og fleira. Umsjónar- maður Sveinbjörn I. Baldvinsson. Stjórn upptöku Elín Þóra Friðfinns- dóttir. 21.30 Dýrasta djásnið Niundi þáttur. Breskur framhaldsmynda- flokkur í fjórtán þáttum, gerðureftir sögum Pauls Scotts frá síðustu valdaárum Breta á Indlandi. Þýð- andi Veturliði Guðnason. 22.20 Spekingar spjalla Sex nóbels verðlaunahafar f læknisfræði, efna- og eðlisfræði ræða vísindi og heimsmál. Umræðum stýrir Bengt Feldreich. (Nordvision - Sænska sjónvarpið). 23.25 Dagskrárlok.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.