NT - 11.01.1985, Side 12

NT - 11.01.1985, Side 12
ABOT ■ Offita veldur bæði líkam- legri og andlegri vanlíðan. 12 - Blaðll Föstudagur 11. janúar 1985 Fótamein og fatatíska kvenna ekki myndu taka þægi- iegan skófatnað fram yfir þann skófatnað sem væri í tísku. Til að kanna áhrifamátt sál- rænna lækninga við offitu- vandamálum sendu geðlæknir- inn Colleen Rand og sálfræð- ingurinn Albert Stunkard spurningalista til 69 starfandi sálkönnuða og báðu þá um að gefa upp þyngd sjúklinga, meðferðartíma og lauslega út- tekt á persónugerð sjúkling- anna. Þeir fengu upplýsingar um 80 sjúklinga og fjórum árum seinna fengu þeir mat á niður- stöðu meðferðanna og ásig- komulagi sjúklinganna, bæði líkamlegu og sálarlegu. Af þessum 80 sjúklingum, sem leituðu sér lækninga hjá sálkönnuðunum, voru einung- is 6% sem leituðu til þeirra vegna offitu. Hinir höfðu leit- að til sálkönnuða vegna ann- arra vandamála sem voru á lítinn hátt tengd líkamlegu ástandi. En af þeim 80 sjúk- lingum (sem allir voru meira en 20% yfir kjörþyngd) léttust yfir 60% þeirra um 10 kíló og 25% léttust um meir en 20 kíló. Rand og Stunkard birtu niðurstöðursínaríritinu: „The American Journal of Psychi- atry“ (Vol. 140, No. 9) og bentu í sömu grein á þá stað- reynd að sjúklingarnir bæði léttust og að þeir voru sáttari við líkamlegt ástand sitt. Samkvæmt grein í „The New England Journal of Medicine" þá er sálkönnun einnig beitt við sjúkleikanum anorexia ne- urosa en hann einkennist af lítilli eða engri næringarupp- töku. Hann er algengur meðal unglinga, aðallega stúlkna, sem eru undir þrýstingi um að halda sérgrönnum. Orsakirnar eru yfirleitt sálrænar og ein- kennin þau að einstaklingurinn hættir að taka inn fæðu svo að líkaminn hættir að þroskast sökum næringarskorts. Svo virðist samkvæmt grein- inni að offita og anorexia neur- osa séu á einhvern máta tengdar. Bulima er nefnilega einnig þekkt meðal karlmanna. Hvað er bulima annars? Jú, bulima er hegðunarferli sem einkenn- ist af því að maður etur eitt- hvað þar til að hann stendur á blístri og þvingar sig svo til þess að kasta því upp. Þetta hegðunareinkenni er mikið vandamál meðal hinna sið- menntuðu þjóða sem gera kröfur til þess að líkamlegt útlit fylgi settum reglum. Þ.e.a.s. allir eiga að vera lausir við fitu. Því er það að þeir sem vilja halda sér grönnum taka upp á því að kasta upp öllum matn- um sem þeir telja ofaukið. Hegðun þessi var þekkt meðal Rómverja og þótti það sjálf- sagt að kasta upp mat til þess að geta neytt meiri matar. Nýleg könnun á bulima hjá karlmönnum fór fram á vegum National Institute of Mental Health og fórust einum rann- sakendanna svo orð: „Bulima er væntanlega mikið algengari meðal karlmanna en við héld- um því það er auðvelt að fela sjúkdómseinkennin og karl- menn eru tregir til að fara í meðferð.“ Sálfræðingurinn Craig Johnson, aðstoðarstjórnandi mataræðistruflanalækninga við Northwestern University í Bandaríkjunum segir að áhugi á kvenfólki sem þjáist af þess- um sjúkdómi hafi um leið orð- ið til þess að hrekja karlmenn með þennan sjúkdóm frá því að leita sér lækninga. Hann heldur því einnig fram að það sé aðallega íþróttafólk og fólk, sem þarfnast þess að halda ákveðinni þyngd, sem leiðist út í þetta hegðunarmynstur. Aðalástæðan fyrir því sé sú að fólk borði minna en það í rauninni þarf. Við þetta vakn- ar þörf til að éta því líkaminn telur að um sult sé að ræða, maðurinn étur yfir sig og reynir að kasta upp því sem umfram er og þá er mynstrið komið í gang. ■ Samkvæmt könnun Gall- upstofnunarinnar þjást meira en 75% Bandaríkjamanna af fótverkjum. Könnunin náði til einstaklinga eldri en 18 ára og gerir því ráð fyrir meir en 249.150.000 aumum fótum. Og það sem kom á óvart var að 62% aðspurða töldu eðlilegt að þá verkjaði öðru hverju í fæturna. Helmingur þeirra sem voru spurðir töldu ástæðuna fyrir fótverkjunum vera of miklar stöður. í könnuninni kom það fram að yfir 75% aðspurðra eyddu meira en fjórum klukkutímum á dag í uppréttri stöðu. Blöðrur, siggoglíkþorn voru meðal algengustu fót- meinanna. Kvenfólk átti við meiri fóta- mein að stríða en karlmenn og kom það ekki á óvart að skótískan hafði þar sitt að segja. Þriðjungur aðspurðra kvenna kvað fótverkina stafa af óþægilegum skóbúnaði og 45% kvenna kváðust nota óþægilega skó vegna þess að þeir litu fallega út, afstaða sem minnir á viðhorfin bak við kínversku fótreyringaraðferð- irnar. Kínverjar reyrðu fætur unglingsstúlkna og hindruðu þannig fæturna í að stækka, allt vegna útlitsins. Aðspurð kváðust 22% bandarískra

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.