NT - 11.01.1985, Síða 14

NT - 11.01.1985, Síða 14
- Blað II Myndlist: Holbergshefðin í Norræna húsinu ■ Sunnudaginn 13. janúar kl. 15 veður opnuö sýning í sýn- ingarsöluni Norræna hússins, sem ber heitið „Holbergshefð- in í listum og Ijósmyndum". Sýningin kemur frá Kaup- mannahafnarháskóla og er sett upp í tilefni 300 ára afmælis leikritaskáldsins Ludvigs Hol- bergs (1684-1754). Petta er skermasýning og sýnir þjóðfé- lagiö í tíð Holbergs í teikning- urn, myndskreytingum og ljós- myndum frá leiksýningum á leikritum Holbergs gegnum tíðina. Sýningin verður opin dag- lega kl. 14.00-19.00 til 27. janúar nk. í unddyri Norræna hússins er einnig sýning tengd minn- ingu Holbergs. Þar getur að líta ljósmyndir frá leiksýning- um, sem settar hafa verið upp í Reykjavík og víða um land. Einnig eru á sýningunni hand- rit af þýðingum, ljósrit af blaðadómum og bækur um og eftir Holberg. Sú sýning er opin daglega kl. 9.00-19.00 í janúar. Opnuð sýning í Gallerí Langbrók ■ Laugardaginn 12. janúar kl. 14 verður opnuð í Gallerí Langbrók sýning á vefnaði og textíl eftir nokkrar Langbræk- ur. Galleríið er opið virka daga kl. 12-18 og frá 13 til 18 um helgar. Þær sem sýna eru Aðalheiður Skarphéðinsdótt- ir, Guörún Auöunsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Guð- rún Marínósdóttir. Ragna Ró- bertsdóttir og Þorbjörg Þórð- ardóttir. Skemmtun til styrktar Eþíópíusöfnun ■ Fimmtudagskvöldið 17. janúar kl. 22.00 verður haldin í Háskólabíói fjöl- breytt skemmtun til styrkt- ar Eþíópíusöfnun Hjálpar- stofnunar kirkjunnar. Þeir, sem að skemmtun- inni standa, eru Sinfóníu- hljómsveit íslands, Sigurð- ur Björnsson og Sieglinde Kahmann, Páll P. Pálsson, Karlakór Reykjavíkur, ís- lenski dansflokkurinn, Ómar Ragnarsson, Frið- björn G. Jónsson, Söng- flokkurinn Raddbandið, Jón Kr. Cortes, Kór Mela- skólans, Helga Gunnars- dóttir og Jónas Þórir og síðast en ekki síst Big Band undir stjórn Björns R. Ein- arssonar. Ögmundur Jón- asson verður kynnir. Hljóðfæraverslunin Tón- kvísl sér um hljóðblöndun og lánar tæki, Háskólabíó leggur til húsnæðið endur- gjaldslaust og Gróðrarstöð- in Lambhagi Reykjavík sér um skreytingar í sal. Forsala aðgöngumiða hefst laugardaginn 12. janú- ar í Háskólabíói, ennfrem- ur verður forsala í Kirkju- húsinu Klapparstíg 27. Miðaverð er 500 kr. og rennur það óskert til söfn- unarinnar. ■ Eitt af verkum Fanneyjar Jónsdóttur á sýningunni í Gallerí Borg. Nýsýning í Nýlistasafninu ■ í dag, föstudaginn 11. jan. kl. 20.00 opnar Halldór Ás- geirsson myndlistarsýningu í Nýlistasafninu við Vatnsstíg. • Á sýningunni eru verk unnin í ýmis efni, svo sem á léreft, pappír, tré, Ijósmyndir og iiluti. Á veggjum og á gólfi má sjá myndverk með ýmsum myndtáknum. Dænri um titla á sýningunni má nefna „Dauði menningar- vitanna", „Skógurinn", „Him- inhvolf-hyldýpi" o.fl. Halldór hefur víða dvalið erlendis undanfarin ár, m.a. í Frakklandi og Mexikó. Hann býr og starfar í París um þessar mundir. Þetta er fjórða einkasýning Halldórs á íslandi. Sýningin er opin daglega frá kl. 15-20 og um helgar frá kl. 14-20. Sýn- ingunni lýkur 20. janúar. Dansflokkur JSB. Þrír heimsfrægir söng leikir í Súlnasal ■ Dansflokkur JSB sýnir um þessar mundir frumsaminn dansþátt eftir Báru Magnús- dóttur í Súlnasal Hótel Sögu. Afsláttur á Litla KláusogstóraKláus ■ 1 tilefni af ári æskunnar býður Revíuleikhúsið upp á fimmtíu prósent afslátt af miðaverði á barnaleikritið Litli Kláus og stóri Kláus nk. laugardag og sunnudag. í helstu hlutverkum eru Júl- íus Brjánsson og Þórir Stein- grímsson. Leikstjóri er Saga Jónsdóttir og leikmynd gerði Baldvin Björnsson. Ný tónlist var samin fyrir þessa sýningu og er hún eftir Jón Ólafsspn og söngtextar eru eftir Karl Ágúst Úlfsson. Þessar sýningar í tilefni af ári æskunnar verða Iaugardag- inn 12. og sunnudaginn 13. janúar kl. 14.00 í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Miðapantanir eru allan sólarhringinn í síma 46600 og sýningardaga hefst miðasalaíbæjarbíói kl. 12.00. Dansarnir í sýningunni eru byggðir á atriðum úr þremur heimsfrægum söngleikjum sem sýndir eru í London og víðar við miklar vinsældir, en það eru söngleikirnir Chess, On Your Toes og Starlight Express. Hljómsveit Magnúsar Kjart- anssonar leikur lögin úr söng- leikjunum, sem mörg hver hafa verið á vinsældalistum, enda eftir ekki ófrægari menn en Andrew Lloyd-Webber og þá Björn og Benny úr ABBA. Söngvarar hljómsveitarinnar, Ellen Kristj ánsdóttir og Jó- hann Helgason, syngja og taka þátt í dansatriðum. Aðeins verður um fáar sýn- ingar að ræða, og er fólki bent á að panta miða á sýningar næstkomandi laugardagskvöld tímanlega. Gallerí Borg: Sýning Fanneyjar Jónsdóttur á málverkum og vatnslitamyndum ■ Fanney Jónsdóttir sýnir ol- íumálverk og vatnslitamyndir í Gallerí Borg dagana 10.-21. janúar n.k. Fanney hóf ung að teikna og mála. Hún nam fyrst hjá Rík- harði Jónssyni cn sigldi til Kaupmannahafnar árið 1925. Þar stundaði hún frekara nám næstu 5-6 árin, aðallega við Teknisk Selskabs Skole, en lagði stund á málun hjá Rannow. Einnig lauk hún námi við Statens Tegnelærer- kurser. Fanney hefur áður haldið tvær einkasýningar í Reykja- vík og tekið þátt í samsýning- um. Verkin á sýningunni eru unnin á síðasta áratug. Halldór Ásgeirsson Nýlistasafnið, Reykjavík .11/1—20/1 i985.0pið 15—20.Umheigari4— lTht LitlngArl Uusmiml Fyrirlestur um myndlistarkennslu ■ Björg Árnadóttir mynd- menntakennari heldur fyrir- lestur á vegum Félags íslenskra myndmcnntakennara laugar- daginn 12. janúar kl. 15.00 í Myndlistarskólanum í Reykja- vík. Fyrirlesturinn er fluttur með litskyggnum og fjallar um efnið „Hvers vegna þarf ég að læra að teikna, - ég ætla ekki að verða listamaður?“ Fyrir- lesturinn var lluttur á N.K. '84 og vakti þar mikla athygli, en N.K. eru samtök norrænna myndmenntakcnnara. Félag íslenskra niynd- menntakennara hefur þann tilgang, að gæta stéttarhags- muna myndmenntakennara og að stuðla að aukinni mynd- menntun í skólum landsins og meðal þjóðarinnar. Formaður félagsins er Björgvin Björg- vinsson. Allt áhugafólk um myndlist er velkomið á fyrirlesturinn sem félagið stendur að næst- komandi laugardag. Leikklúbbur Skagastrand- ar sýnir í Hafnarfirði ■ Laugardaginn 12. janúar kl. 21.00 sýnir Leikklúbbur Skagastrandar leikritið Sauma- stofuna eftir Kjartan Ragnars- son í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Leikstjóri er Halldór E. Laxness. Leikendur í sýning- unni eru 9, en alls koma um 20 manns við sögu í sýningunni. Saumastofan er 9. verkefni Lcikklúbbsins, en hann verður 10 ára á þessu ári. Sýningin í Hafnarfirði er 7. sýningin á Saumastofunni en hún hefur verið sýnd undanfarið á Skaga- strönd og í nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Miðapantanir á sýninguna í Bæjarbíó eru í síma 50184 frá kl. 18.00 sýningardaginn. ■ Frá lciksýningu hjá Lcikklúhhi Skagastrandar. Föstudagur 11. janúar 1985 14

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.