NT - 19.01.1985, Side 5

NT - 19.01.1985, Side 5
NT hefur borist eftirfarandi athugasemd: „Þess skal getið sem rétt er“ ■ Vegna leiðaraskrifa í NT 10. þ.m. og viðtals við formann Proskahjálpar sem birtist 9. þ.m. vil ég benda á það að það var fyrir tilstuðlan Matthíasar Bjarnasonar heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra, að sett voru heildar- lög um málefni þroska- heftra hér á landi. Þessi mál höfðu verið að velkj- ast í Stjórnarráðinu um árabil þegar Matthías tók af skarið á öndverðu ári 1978 og setti nefnd í málið sem skilaði tillögum í bún- ingi lagafrumvarps í mars 1979. Einnig skal þess getið að það var Magnús H. Magnússon, heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra, sem mælti fyrir frumvarpinu og fylgdi því til laga. Þótt Svavar Gestsson sem fyrrverandi félags- málaráðherra og Alexand- er Stefánsson félagsmála- ráðherra hafi lagt þessu máli mikið og gott lið má ekki gleyma því að fleiri komu við sögu og sá veld- ur miklu sem upphafinu veldur. Ingimar Sigurðsson lög- fræðingur. Alþjóðleg bænavika ■ Alþjóðlegbænavikaumein- ingu kristinna manna verður 18.-25. janúar og sér samstarfs- nefnd kristinna trúfélaga um undirbúning hennar. í frétt frá Biskupsstofu segir að efni bænavikunnar hafi að þessu sinni verið valið af al- kirkjulegum hópi á Jamaica í Vestur-Indíum og er: „Frá dauða til lífs með Kristi.“ Þar er undirstrikað að kristnir menn í heimi erfiðleika og margvís- legra þrenginga eiga nýtt líf og von í samfélagi við Jesúm Krist ogþá jafnframt hver við annan. I bænavikunni bjóða söfnuð- irnir hver öðrum til sameigin- legs guðsþjónustuhalds. 1 Reykjavík verða guðsþjónustur sunnudaginn 20. janúar í Nes- kirkju kl. 14.00imiðvikudag 23. jan. í Dómkirkju Krists kon- ungs kl. 20.30, föstudaginn 25. janúar í Aðventkirkjunni kl. 20.30 oglaugardginn26. janúar í Fíladelfíukirkjunni kl. 20.30. Ný bók um fatasaum ■ Mál og menning sendi nýlega frá sér bók um fatasaum: Föt fyrir alla, eftir Sigrúnu Guðmundsdótt- ur hand- og myndmenntakennara og textílhönnuð. í bókinni eru leiðbciningar um hvernig eigi að búa til flíkur, taka mál, sníða, máta og saurna saman og auk þess fylgja bókinni sníðaarkir. Þá hefur Mál og menning einnig sent frá sér bækurnar Glataða snillinga, eftir William Heinesen í þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar og Ditta mannsbarn eftir Martin Andersen Nexö í þýðingu Einars Braga en þetta er í annað skipti sem sú bók er gefin úr hérlendis. Laugardagur 19. janúar 1985 ■ Anders Josephson í fullum skrúða sem Escamillo nautabani. rætt við ung ■ Annað kvöld þreytir ungur sænskur söngvari frumraun sína á óperusviði með íslensku óper- unni. Og fyrsta óperuhlutverkið hans eru ekki til að skammast sín fyrir, það er hlutverk nauta- banans Escamillo í Carmcn. Þeir sem til þekkja eru ekki í vafa um að þessi ungi söngvari, Anders Josephson, muni koma óperugestum þægilega á óvart. „Ég byrjaði að læra söng strax eftir fermingu, cða þegar ég var 14 ára og bjó í Södertálje rétt sunnan við Stokkhólm," sagði Anders á ágætri íslensku, þegar NT ræddi við hann í gær, cn hann hcfur verið búsettur hérlendis s.l. fjögur árogstund- ar nám við guðfræðideild Hl. Hvernig stóð á því að þú fluttist til fslands? „Það var ástin sem dró niig hingað, ég er giftur íslenskri konu sem ég kynntist í Svíþjóð* Tókstu strax upp þráöinn í söngnáminu, þegar þú varst fluttur hingað upp? „Já, ég" settist í söngdcild Tónlistarskólans í Reykjavík og aðalkennari minn þar hefur ver- ið Elísabet Erlingsdóttir!* Anders scgist aldrei hafa komiö fram á sviöi áður, og raunar aðeins liafa troðiö upp sem söngvari á samkomum hjá KFUM og mcð Karlakórnum Fóstbræðrum á tvcnnum tón- leikum s.l. vor á kynningu á söngnemendum. „Ég held áfrani hæði í guð- fræðinni og söngnum og ætla að verða prcstur," segir Anders, hvort það veröur hér á íslandi eða í Svíþjóö er ekki ákveðið. Nei, ég hcf engar áætlanir um framhaldsnám í söngnum, það verður bara að koma í I jós. I Málmiðnaðarmenn á Norðurlöndum: Fordæma aðför að jverkalýðsfélögum í Suður-Afríku Formenn sambanda málm- I iðnaðarmanna á Norðurlönd- hafa sent áskorun til I Botha, forseta Suður-Afríku, þess efnis, að Jerry Kau, starfs- maður Renault verksmiðjanna og stjórnarmaður í landssam- bandi starfsmanna í bílaiðnaði verði látinn laus úr fangelsi og að fallið verði frá ákærum á hendur Moses Mayekiso, rit- ara sambands málmiðnaðar- manna í Transvaal. en hann á | yfir höfði sér 25 ára fangavist. Mennirnir tveir voru fang- lelsaðir í nóvember á meðan fram fór tveggja daga friðsam- | leg vinnustöðvun. sem staðið að á lýðræðislegan hátt. Moses Mayekiso hefur nú ver- ið sleppt úr haldi, en ákæran vofir yfir honum. „Óraunhæfar ákærur, sem beitt er til að brjóta niður starfsemi löglegra verkalýðsfé- laga, verða einungis til þess að ýta undir ofbeldi og beina reiði almennings um heim allan gegn því samfélagi, sem for- dæmt hefur verið og áfram mun verða fordæmt fyrirapart- heidstefnu sína," segir í niöur- lagi áskorunarinnar til Botha. Afrit af henni var einnig sent til sendifulltrúa Suður-Afríku í Stokkhólmi, Helsinki og Kaupmannahöfn. FÖTFYRiRAULA Jafnréttis- málastyrkur ■ The Rockefeller Found- ation veitir nú í ár styrk til rannsóknarverkefnis í jafnrétt- ismálum, Sérstök áhersla er lögð á styrki til verkefna um hlutverka- skiptingu kynjanna í atvinnu- og heimilislífi. sálfræðilegan þátt kynhlutverkefna, þjóðfé- lagsbreytingar- o.fl. Nánari upplýsingar eru veitt- ar á skrifstofu Jafnréttisráðs. ■ Ein af myndum Gests Guðmundssonar á sýningunni í Hafnar- borg. Þrjár sýningar í Hafnarborg ■ í dag verða sýningar á verk- um þriggja listamanna í Hafnar- borg, menningar- og listastofn- un Hafnarfjarðar. Gestur Guðinundsson og Sigurbjörn Óskar Kristinsson sýna málverk og Jónína Guðvarðardóttir sýn- ir leirlist. Sýningarnar verða opnar daglega kl. 14.00-19.00 til 17. mars og er aðgangur ókeypis. í frétt frá Hafnarborg segir að starfsemin á síðasta ári hafi verið mjög blómleg og hafi verið haldnar sýningar á verkunt 8 listamanna. Að meðaltali sáu um 500 hverja sýningu. „Það hcfur aftur á móti valdið nokkr- um vonbrigðum, að þeir aðilar, sem um listir fjalla í fjölmiðlum, hafa í litlum mæli heiðrað sýn- ingarnar með nærvcru sinni," segir í fréttinni og er látin í Ijós sú von að þar veröi breyting á á árinu sem nú er nýhafið. Veriö er að undirbúa að stækka húsnæði Hafnarborgar og sömuleiðis standa yfir við- ræður stjórnar Hafnarborgar og samtaka norrænna listamanna um samvinnu um að reka gisti- vinnustofu í húsnæði stofnunar- innar. Brunavarnir Suðurnesja: 16 útköll á síðasta ári ■ Útköll Brunavarna Suðurnesja á síðasta ári voru 16 talsins þar af fjög- ur þar sem mikið eigna- tjón varð. Tvær æfingar voru á vegum Almannavarna, sex útköll í íbúðarhús, þrjú í iðnaðarhúsnæði, þrjú í gömul hús og einu sinni hafði komið upp eldur í bát. Eitt útkaJI var vegna elds í bíl. Hefur útköllum farið fækkandi á sl. árurn og leið oft mánaðartími á milli útkalla á síðasta ári.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.