NT

Ulloq

NT - 19.01.1985, Qupperneq 22

NT - 19.01.1985, Qupperneq 22
■ Joe Montana er dýrlingur í San Francisco. Frábær leikmaður. Lau3a^á5f‘fe 'janúar 1985 22 Úrslitaleikurinn í bandaríska fótboltanum: n SUPERBOWL - er á morgun - öll bandaríska þjóðin fylgist með - Reagan forsetaembætti - peningastreymið gífurlegt ■ Dan Marino segist vera sá besti í fótboltanum í dag og margir eru honuin sammála. Trimmmót í blaki ■ l’róttarar undir óruggri stjórn bltikmannsins kunna. Gunnars Árnasonar. scm nú Itcfur nýlcga lagt kcppnisskóna á hilluna. urðu hlutskarpastir í karlaflokki í Trimmmóti IIK í hlaki scm Italdió var á milli jóla og nýárs í Kópavogi. IIK varð hlutskarpast í kvcnna- flokki. I>cir scm taka þátt í þcssu móti cru iðkcndur scm ckki taka þátt í dcildakcppni Blak- sambandsins. hcldur iðka blak scm trimm og hcilsubót. cn ckki markvisst scm kcppnis- íþrótt. Slíkum ntótum licfur mjóg fjölgað upp á síðkastið. og cr ÍfK í Kópavogi cinn al' brautrvðjcndum þcss að halda slík mót. Á slíkum mótum má sjá fólk allt frá 14 ára aldri til 60 ára lcika scr saman af lífi og sál, og var Trimmmót IIK cngin undantckning þar á. Úrslit urdu þessi: Karlaflokkur: 1. Þróttur Reykjavik, 2. Afturelding Mosfellssveit, 3. Akranes, 4. HK Kópavogi, 5. Höfrungar Reykja- vík, 6. Keflavík, 7. Idnskólinn Roykja- vík. Kvennaflokkur: 1. HK 1 Kópavogi, 2. Vikingur Reykjavik, 3. HK 3 Kópavogi, 4. HK 2 Kópavogi. Frammistaða öldnngaliðs HK í karlaflokki, scm vtirð í 4. sæti. kom á óvart. cn liðið hcfur vcrið afar sigursælt á trimm- og öldungamótum. Kvcnnalið HK bætti þó upp árangur karlanna. cn mikiil fjökli kvcnna iðkar blak scm trimm innan HK. ■ Á morgun sunnudag, verða tveir atburðir í Bandaríkjunum sem enginn Bandaríkjamaður, né stór hluti af heimsbyggðinni, vill missa af. Þá á að setja Ronald Reagan inn í embætti forseta landsins og tvö lið eigast við í úrslitaleiknum í bandaríska fótboltanum (American Foot- ball), svokölluðum „Super- bowl“-leik. Þar sem enginn getur hugsað sér að missa af „superbowl" og ekki forsetinn heldur þá hefur Reagan, sem einu sinni var þulur á hornaboltaleikjum (baseball), þjóðaríþrótt Bandaríkjamanna, ákveðið að fresta setningu sinni í forseta- stól þar til daginn eftir. Þetta gefur honum og þjóðinni tíma til að beina augum og eyrum til Palo Alto í Kaliforníu þar sem leikurinn mikli fer fram. Hann lofar góðu þessi lcikur og er talinn verða sá besti í 19 ára sögu „Superbowl“. Áð þessu sinni mætast þau lið, af þeim 28 sem keppa í NFL (National Football League), sam staðið hafa sig lang-best. San Francisco 49ers og Miami Dolphins. „Höfrung- arnir" töpuðu aðeins tveimur af leikjum sínum 18 á keppnis- tímabilinu og „49urnar" aðeins einum. Aðalstjarnan hjá „Höfr- ungunum" er Dan Marino. sem er aðeins 23 ára en hefur þegar sett met í að hcnda boltanum til annarra leikmanna sem síð- an skora „touchdown". „To- uchdown" gefur sex stig og felst í því að koma boltanúm yfir endalínu andstæðinganna. Annars eru bæði liöin heppin mcð lcikmcnn í stöðu stjórn- anda (Quarterback). Þessi staöa cr svo mikilvæg að leik- menn sem spila hana geta ekki verið þekktir fyrir annað en að krefjast launa sem eru nálægt 1 milljón dollara (40 millj. ísl) á ári. Marino segist vera sá besti en aðdáendur San Francisco eru ekkiásamamáli. Þeirsegja hinn sjálfsörugga Joe Montana vera hinn besta í NFL. Mont- ana er búinn að vera lengur í atvinnumennskunni en Marino og hefur alltaf verið í hópi þeirra bestu. Jafnframt því að hafa góðan stjórnanda þá eru bæði þessi lið þekkt fyrir að vera létt og lipur Íið - þó slíkt sé undarlegur eiginleiki í leik sem virðist ekki vera annað cn slagsmál. Leik- menn cru líka íklæddir allskon- ar hlífðarbúnaði sem gerir þá einna helst líka geimverum í „vísindaskáldsögubíómynd". Þá hafa þessi lið ekki borið við því sem dómarar í leiknum, en þeir eru sex, kalla „unnecess- ary roughness“ eða óþarflcga grófan leik. Þetta orðatiltæki virðist hljóma í eyrum þeirra sem ekkert vit hafa á, sem góð lýsing á lciknum öllum. 49urnar hafa það framyfir Höfrungana á sunnudaginn að vera nánast á heimavelli. Leik- völlur Stanford háskólans í Palo Alto, þar sem leikurinn fer fram, er aðeins fáa kíló- metra frá Candlestick Park heimavelli San Francisco. Borgin, San Francisco, er þekkt fyrir að vera eins konar „fót boltabrjálæðingaborg". Hugsanleg skýring á því er su að hornaboltalið (baseball) borgarinnar er hryllilega lélegt. Að sjálfsögðu eru mörg veðmál í gangi vegna leiksins og er talið að heildarupphæð þeirra sé um 500 milljónir doll- ara. Hér er um bæði lögleg og ólögleg veðmál að ræða. Þá hefur borgarstjóri San Fran- cisco, Dianne Feinstcin veðjað við borgarstjórann í Miami vegna leiksins. Dianne leggur undir krabba, brauð og vín frá Kaliforníu handa tólf manns. Hún veðjaði á svipaðan hátt við borgarstjórana í New York og Chicago og hafði upp- úr því slatta af samlokum og steikum þar sem 49urnar unnu bæði New York Giants (Ris- ana) og Chicago Bears (Birn- ina)áleiðsinni („Superbowl". Eins og við er að búast hafa frestar innsetningu í miðar á hinn 83 þúsund sæta völl við háskólann í Stanford selst eins og heitar lummur. Þeir eru virði margfaldrar þyngdar sinnar í gulli. Svarta- markaðsbraskarar hafa selt miðana á um 1200 dollara sem gerir einar 48 þús. íslenskar álkrónur. Til gamans má geta þess að það er hægt að kaupa miðana með öðrum gjaldmiðli en peningum. John Corazzini frá San Mateo, sem er rétt hjá San Francisco, fékk miða með því að skipta á honum og öllu safni sínu af „kálhausdúkkum" (Cabbage patch dolls). Þá fer ABC sjónvarpsstöðin ekki varhluta af öllu peninga- streyminu sem cr í kringum leikinn. ABC hefur einkarétt á beinni sjónvarpssendingu frá leiknum og selur stöðin auglýs- ingamínútuna á litla 1 milljón dollara (ca 40 millj. ísl). Þess má geta að nær hver einasta mínúta er nú seld. Leiknum ersjónvarpað beint til margra landa m.a. Englands og eitt er víst að athafnalíf í Bandaríkjunum lamast nær al- gjörlega á meðan leikurinn stendur yfir. LUKKUDAGAR Ósóttir vinningar frá janúar til desember 1984. Janúar. Maí. 20. 2001 Október. 3. 33504 9. 21182 23. 5826 2. 48617 12. 12112 12. 21000 30. 12013 6. 5781 Febrúar. 3. 16003 14. 49950 17. 48378 23. 22540 Ágúst. 8. 53877 9. 984 17. 46305 29. 54371 3. 2374 23. 6 11.34160 17. 23190 30. 18212 14. 58611 17. 34657 Júní. 18. 917 21.36735 Nóvember. Mars. 2. 41708 8. 35724 1. 832 4. 43443 8. 11236 12. 10004 September. 7. 18273 10. 16657 ' 17. 42559 3. 4010 10. 51655 11.59395 22.59668 7. 47352 18. 24366 12. 5735 23. 18646 9. 40255 21. 632 14. 7364 30. 38226 11. 3039 25. 12122 21. 49304 13. 37904 26. 20152 22. 3882 27. 12084 Júlí. 15. 33439 16. 3835 Desember. 1.14704 19. 216 2. 41981 9. 48448 25.25894 12. 44689 Apríl. 11. 4603 26. 36118 13. 55742 1.57343 14. 54465 28. 3279 15. 21943 21. 4730 16. 24879 30. 59528 22. 41879 Vinningshafar hringi í síma 20068 (símsvari) og skil ji vinsamlega eftir nafn og símnúmer en hefjið ekki máls fyrr en eftir hljóðmerkið. Blakdeild Víkings og íþróttafélög um land allt þakka landsmönnum stuðninginn á liðnu ári. Blak hjá þeim yngri: Norðfirðingar góðir ■ Norðfirðingar voru mjög atkvæðamiklir á hraðmóti yngri flokka hjá Blaksambandi Islands, scm haldið var fvrir áramót. Þróttarar frá Nes- kaupstað sigruðu í 2. og 3. flokki pilta. og urðu í 2. sæti í 2. flokki stúlkna. Þátttaka í mótinu varallgóð, betri en árið áður. Þaö var haldið í Reykjavík. Úrslit: 2. flokkur pilta: 1. Þróttur, Neskaupstað, 2. HK, Kópavogi, 3. Þróttur Reykjavik, 4. Stjarnan Gardabæ. 3. flokkur pilta: 1. Þróttur Neskaupstað, 2. Þróttur 1 Reykjavik, 3. Þróttur 2 Reykjavik, 4. Stjarnan Garðabæ. 4. flokkur pilta: 1. Stjarnan Garðabæ, 2. HK Kópavogi. 2. flokkur stiilkna: 1. HK 1 Kópavogi, 2. Þróttur Neskaupstað, 3. HK 2 Kópavogi, 4. Fram Reykjavík. 3. flokkur stulkna: 1. HK 1 Kópavogi, 2. HK 2 Kópavogi. Punktar...Punktar... NBA'boltinn ■ Þrir leikir voru í bandaríska körfuboltan- iiiii í fyrrakvöld. Detroit-N.Y Knicks 105-89 S Antonio-Kansas C. Kings 141-130 Chicago-Cleve. Cavaliers 98-93 ...Körfuknuttlciksdeild Yuls hefur ákveðið að gangust fyrir llrmakeppni í körfu- knattlcik sunnudginn 27. janúar. Keppt verður í riðl- um og keinst sigurvegari hvers riöils í úrslitakeppni. Keppt verður í íþróttaliúsi Vais við Hlíðarenda Deildin hefur áður staðið að slíkuin keppnum og vel tckist til. Tekið er við þátttökutil- kynniugum í félagsheimili Vals s. 11134 og fást þar einnig allar frekari upplýs- ingar um keppnina... ...1R inun halda firinakcppni sína í innanhússknattspyrnu dagana 2.-3. og 9.-10. febrú- ar í íþróttahúsi Breiðholts- skóla við Arnarbakka. Þátt- taka skal tilkynnast fyrir 23. janúar í símuni 74248 og 76186 kl. 13-22. Þátttöku- gjald er kr. 2500 - en vegleg verðlaun eru fyrir 3 fyrstu sætin...

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.