NT - 21.01.1985, Blaðsíða 9
Mánudagur 21. janúar 1984 9
Síðasti
söludagur
liðinn?
■ Lítur þú alltaf og undan-
tekningarlaust á dagsetning-
una fyrir síðasta söludag, þeg-
ar þú kippir einu bréfi af
beikoni eða hangiáleggi niður
af snaganaum t' kjörbúðinni og
leggur það í innkaupakörfuna?
Trúlega ekki - a.m.k. ekki án
undantekninga. Við treystum
því sennilega flest að um þetta
sjái starfsfólkið í versluninni.
Tilfellið er þó, að ef þú vilt
fá virði peninganna sem þú
borgar við kassann, er vissara
fyrir þig að líta á dagsetning-
una - án undanbragða. Örlítil
skyndikönnun sem
Neytaendasíðan gerði á föstu-
daginn leiddi það í ljós.
Við fórum í tíu verslanir og
keyptum nokkur bréf af nið-
ursneiddu kjötmeti., aðallega
ýntiss konar áleggi. Allar dag-
setningar voru skoðaðar vand-
lega áður en kaupin fóru fram,
- munurinn á þessum verslun-
arleiðangri og venjulegri inn-
kaupaferð var hins vegar sá að
við keyptum þau bréf sem
orðin voru of gömul, sam-
kvæmt dagsetningunni.
Nú væri í rauninni of mikið
sagt að algengt sé að varan
sé orðin of gömul. I flestum
tilvikum voru það ekki nema
fáein bréf og hvergi fundum
við fleiri en eina tegund með
liðnum síðasta söludegi.
Engu að síður fundust ein-
hverjir ágallar í annarri hverri
búð að meðatali. Af þeim tíu
verslunum sem við heimsótt-
um voru aðeins fimm sem við
gengum út úr aftur án þess að
sjá ástæðu til að kaupa neitt.
Nokkur munur virðist vera á
verslunum eftir stærð þeirra i
þessu sambandi. Pað er reynd-
ar skiljanlegt. Stærri verslanir
Dalver . .
Grímsbær
Hagkaup
Holtskjör
Matvöruhornið
Mikligarður
Réttarholt
SS Háaleitisbraut
Teigakjör
Vörumarkaðurinn
þurfa ekki að kaupa inn meira
en svo í einu af þessari vöru,
að öruggt sé að hún seljist áður
en síðasti söludagur rennur
upp.
Farið var í þrjá stórmarkaði,
Hagkaup í Skeifunni, Mikla-
garð og Vörumarkaðinn í Ar-
múla. Bæði í Hagkaupum og
Miklagarði var allt í lagi með
allar dagsetningar sem athug-
aðar voru. í Vörumarkaðnum
var hins vegar að finna beikon
sem hefði átt að seljast í síðasta
lagi 12. jan. eða sex dögum
áður en við vorum þar á ferð.
Stærst þeirra matvöruversl-
ana sem við heimsóttum og nú
eru ótaldar, er SS, Háaleitis-
braut og þar reyndist allt í lagi.
Af sex minni verslunum var
aðeins hægt að yfirgefa tvær
aðfinnslulaust. Pað voru Mat-
vöruhornið og Teigakjör. Hin-
ar fjórar höfðu á boðstólum
niðursneidda kjötvöru í loft-
tæmdum umbúðum sem annað
hvort var orðin of gömul sam-
kvæmt dagsetningu, eða þá að
dagsetningar vantaði alveg
sem er eiginlega enn verra.
Kálfarúllupylsan í Réttarholti
var orðin of gömul og sömu-
leiðis hangikjötið í Grímsbæ.
1 Dalveri var malakoffpylsa
án dagsetninga (að vísu aðeins
tvö bréf) og í Holtskjöri virtist
allmörgum tegundum hafa ver-
ið pakkað inn í lofttæmdar
umbúðir á staðnum og á þeim
umbúðum var hvorki getið
um pökkunardag eða síðasta
söludag.
Fað er sem sagt vissara,
neytandi góður, að skoða sjálf-
ur dagsetningarnar á umbúð-
unurn. - kaupmaðurinn ger-
ir það ekki alltaf fyrir þig.
Malakoffpylsa án dagsetninga
Hangiálegg of gamalt
í lagi
Margar tegundir án dagsetninga:
líagi
1 lagi
Kálfarúllupylsa of gömul
I' lagi
I lagi
Bacon of gamalt
Gluggaþvottur
á þriðjudögum
■ Alltaf þegar talað er um
tiltektir og þrifnaö, kemur
mér í hug ein vinkona mín.
Hún er ein af þeim, sem
sápuþvær desil ítramálið eftir
að hafa mælt vatn í því.
Eittsinn átti ég leið framhjá
heimili hennar og stakk mér
inn til að sníkja kaffisopa.
„Almáttugur, nú sækirðu
að mér. Ég er í gluggaþvotti.
Veistu ekki að það er þriðju-
dagur í dag?
Eg mundi nú ekkert eftir
þriðjudagsskipulaginu
hennar, fullvissaði hana um
að ég myndi bjarga mér sjálf,
nældi mér í kaffibolla áður en
ég settist niður til að horfa á
aðfarirnar.
Þvílíkar aðfarir! Full fata af
sjóðheitu sápuvatni og nudd-
að með mörgum klútum.
Síðan önnur fata með tæru
vatni til að skola sápuna af
og loks rúðuúði úr brúsa og
pússað með eldhúsrúllu.
Sjálf sleppi ég fyrri atriðunum
tveimur og læt mér nægja
rúðuúðann. Svo þvæ ég
heldur ekki gluggana fyrr en
farið er að dimma ískyggi-
lega í ibúðinni, hvort sem er
þriðjudagureðaekki. Þaðer
ekkert varið í að þvo glugga,
nema sjá mun á þeim á eftir.
Annað sinn horfði ég á
hana hamast við að sápuþvo
tóma tómatsósuflösku. Svo
skrúbbaði hún tappann vel
og vandlega, þurrkaði allt
rækilega með tandurhreinni
diskaþurrku, skrúfaði tapp-
ann á og henti flöskunni í
ruslið. Þá ofbauð mér og
spurði hvers vegna í
t
■ Verslanir fylgjast ekki allt-
af með síðasta söludegi vör-
unnar. Það sanna þessi sýnis-
horn sem keypt voru í nokkr-
um verslunum á föstudaginn
(18. jan.). Minni myndin sýnir
elstu dagsetninguna sem við
fundum að þessu sinni.
Kjarn-
fóður-
gjald
neyt-
endum
íóhag
■ í ályktun Neytenda-
samtakanna frá 15. jan. er
nýlegri hækkun kjarnfóð-
urgjalds á svína- og fugla-
fóður harðlega mótmælt,
þar eð hér sé verið að
hækka framleiðslukostnað
ú mikilvægum neytenda-
vörum.
í ályktuninni eru ítrek-
aðar kröfur samtakanna
um að kjarnfóðurgjald
verði afnumið. Gjaldið er
sagt neytendum í óhag og
talið skapa óeðlilegan
mismun milli búgreina.
Gúmíhetta
yfir inn-
stunguna
■ Óvarðar rafmagnsinn-
stungur í vegg geta verið stór-
hættulegar börnum svo sem
kunnugt er. Ónotuðum inn-
stungum má loka með gúmí-
hettu eins og þeirri sem sýnd
er á myndinni.Til að ná hett-
unni af þarf síðan sérstaka
sogskál.
ósköpunum hún væri að þvo
flösku, sem hún ætlaði hvort
eð er að henda.
,.Ég ætla ekki að fá orð á
mig hjá öskukörlunum fyrir
eitthvaðskítarusl. Þeirskulu
sjá, að hér býr þrifið fólk.“
Ég sé nú við þeim leka
með því að binda rækilega
aftur ruslapokana. Ég hef
enga trú á, að önnum kafnir
verkamenn hafi tíma til að
tékka áöllu rusli til að athuga
hvort hér búi þrifið fólk.
Hún hengir líka þvottinn
upp eftir vissum reglum,
sængurföt sér, dúka sér
o.s.frv.
„Þér dettur þó ekki í hug,
Elínóra mín, að hengja dúk
við hliðina á sængurveri?
Það sjá allir, að það passar
ekki.“
„Nei, nei, elskan mín, það
geri ég aldrei. Ég læt bæði
dúka og sængurver í þvotta-
hús..“
Hún varð svo hneyksluð á
þessum ómyndarskap, að
hún gat ekki kvatt mig, þegar
ég fór.
Ef þú ætlar að selja
eða kaupa fasteign,
þá auglýsir þú auðvitað
i Fasteignamarkaði NT.
Auglýsingasími fasteigna
er 62-16-15