NT - 21.01.1985, Side 13
oooooooooooooooooooooooooooooooooo
Wi' Mánudagur 21. janúar 1984 12 \\i' Mánudagur 21. janúar 1984 13
LlL Útlönd HL Útlönd
OOOOOOOOOOOOOOOOQOOOOOOOQOO
o
o
o
o
o
o
o
^annprbaticrsíluntn Crla
Snorrabraut 44 Pósthólf 5249 - Sími 91-14290
Gas-
spreng-
ing
Fjórir létust þar af tíu
mánaða barn í
gassprengingu í gær í
smáborginni Woerden í
Hollandi. Sex heimili
lögðust í rúst en
gassprengingin varð í
húsaröð.
Húsaröðin sem
samanstendur af átta ']
íbúðum skemmdist illa
en flestar íbúðirnar voru
tómar þegar atburðurinn
gerðist.
Þeir sem dóu voru 24
ára maður, 18 ára kona
hans, barn þeirra og
yngri bróðir mannsins. I
Ekkierennljósthvað :
olli sprengingunni en
mögulegt er að gas hafi
lekið úr frosnum i
gasrörum.
Símamynd: -POLFOTO. |
Frakkland:
Mitterrand kominn
Staðan á Nýju-Kaledóníu óbreytt
Paris-Kiuler
■ Francois Mitterrand, for-
seti Frakklands, kom til París
í gær úr ferð sinni til Nýju-
Kaledóníu. Flann var ákaft
gagnrýndur fyrir skyndiför
sína af stjórnarandstöðunni,
en þangað fór hann til stuðn-
ings við áætlun stjórnarinnar
umsjálfstæði Nýju-Kaledóníu.
í ræðu sem hann flutti
skömmu fyrir brottför sína frá
eyjunum á laugardag, hvatti
hann íbúana til að taka þátt í
almennum kosningum um
sjálfstæði evianna.
För hans kom í kjölfarið á
dauða leiðtoga Kanaka, frum-
byggja cyjanna, en hann var
skotinn af lögreglu ásamt
helsta samstarfsmanni sínum.
Mjög róstusamt hefur verið á
eyjunum vegna sjálfstæðisbar-
áttunnar þar og hafa 19 látist í
átökum síöan í nóvember s.l.
Hvítir landnemar eru and-
vígir sjálfstæöi eyjanna og
mótmæltu um 20.()()() þeirra
áætlun stjórnar Mitterrand á
heim
meðan á dvöl forsetans stóð.
Þeir hafa skipulagt mótmæli í
París í dag.
Mitterrand átti viðræður við
fulltrúa beggja deiluaðila en
fréttaskýrendur hafa sagt að í
viðræöum sínum hafi forsetinn
ekki haft neitt nýtt fram að
færa í deilunni.
Líbanon:
ísraelsmenn hefja
brottflutning sinn
Tel Aviv-Reuler:
■ ísraelsher hóf brottflutning
tækja og hergagna frá Suður
Líbanon í gær. Par með er
fyrsta skrefið stigið í áætlun
Israelsmanna um brottflutning
herafla þeirra frá Líbanon.
Vika er liöin síðan ísraels-
menn samþykktu áætlun um
brottflutning herja sinna en
brottflutningunum frá vestur-
hluta Líbanon verður lokið fyrir
sumarbyrjun samkvæmt áætlun
þeirra.
ísraelsmenn hafa sagt að þeir
niuni selja gæslusveitum Sam-
einuðu þjóðanna hergögn sem
of dýrt er að flytja til ísraels.
Forsætisráðherra Líbanon,
Rashid Karami sagði á laugar-
dag að stjórn Líbanon væri
tilbúin til „viðræðna um brott-
flutning og dagsetningar".
ísraelsmenn bundu cnda á
viðræöur þeirra við Líbanon-
mcnn fyrir viku þegar
þeim þótíi sýnt að þeir gætu
ekki komist að samkomulagi
um hlutverk gæslusveita Sam-
einuðu þjóðanna í brottflutn-
ingunum.
Þegar ísraclsmenn hófu flutn-
inga sína í gær frá borginni
Sídon, slökktu þeir öll götuljós
en flestir íbúarnir héldu sig
innandyra af öryggisástæðum.
I gærmorgun átti sér stað
stórskotaliðsbardagi í tvo tíma
á hæðurn austur af Beirút.
Átökin voru sögö milli Drúsa
og líbanska hersins.
ísraelsmenn réðust inn Lí-
banon í júní 1982 en talið er að
um 10.001) ísraleskir hermenn
séu í Líbanon.
Njósnamálið á Indlandi:
Fengu viskí fyrir hernaðarleyndarmál
Nvjá - Dchli
■ Frakkar köllúðu heim
sendiráðsritara í gær eftir að
dagblað í Nýju-Delhí hafði
fullyrt að tveim frönskum
sendiráðsmönnum hefði verið
vísað úr landi.
í síðustu viku voru em-
bættismenn og kaupsýslumenn
handteknir fyrir njósnir cr upp
komst um 12 manna njósna-
hring.
I indversku blöðunum segir
að njósnahringurinn hafi selt
upplýsingar um mikilvæg hern-
aðarleyndamál og látið sér
nægja vískíflösku sem borgun.
Upplýsingarnar sem seldar
voru lutu m.a. að varnarsamn-
ingum Indverja og Sovéf-
manna. Njósnararnir vcittu
upplýsingar um njósna-gerfi-
hnetti. hergagnaframleiðsluog
starfsemi indversku leyniþjón-
ustunnar.
Frakkar sögðust hafa kallað
sendiráðsritarann heim til sér-
fræðilegra viðræðna en maður-
inn er sérfræðingur á sviði
flugvélaiðnaðar. Franska utan-
ríkisráðuneytið sagði að mál
sendiráösritarans og njósna-
málið væru alls óskyld mál, en
inverska dagblaðið „Indian
Express" vakti athygli á því að
frönsk stjórnvöld hcföu ekki
heinlínis neitað fullyrðingum
um þátttöku mannsins í
njósnum.
Bandaríkin:
Alþjóðadómstóllinn
virtur að vettugi
- Nicaragua gegn Bandaríkjunum
VVashinjjloii-Kculer
■ Talsmaður Banda-
ríkjastjórnar sagði um
helgina að Bandaríkja-
menn muni ekki taka þátt
í frekari rannsókn Al-
þjóðadómstólsins á stuðn-
ingi Bandarík jamanna við
skæruliða sem berjast
gegn stjórn sandínista.
Nicaraguamenn hafa
krafist þess að dómurinn
kveði upp úrskurð gegn
stuðningi Bandaríkja-
manna.
Bandaríkjamenn hafa
sagt að það sé ekki á valdi
Alþjóðadómsins að gera
slíka rannsókn og kveða
upp dóm í málinu.
Dómurinn komst að
þeirri niðurstöðu í nóvem-
bcr á síöasta ári að hann
hcfði lögsögu í málinu. í
dómnum sitja 16 dómarar
frá Vesturlöndum, þróun-
arlöndum og verkalýðs-
ríkjunum í austri.
Álþjóðadómstóllinn
felldi bráðabirgðaúrskurö
í maí s.l. þar sem Banda-
ríkjamönnum var fyrir-
skipað aö hætta þegar í •
stað stuðningi sínum viö
skæruliöa.
■ Stjórn Reagans ve-
fengir lögsögu Alþjóöa-
dómstólsins í dómsrann-
sókn á stuðningi Banda-
ríkjamanna viö skæruliða
sem berjast gegn stjórn
Niearagua.
Bandaríkjamenn munu
ekki hlýöa úrskurði dóm-
stólsins, en Alþjóöadóm-
stóllinn starfar á vegum
Sameinuðu þjóðanna.
B a n da r í k j a me n n d rógu
sig út úr Mcnningarmála-
stofnun Sameinuðu þjóð-
iinna um síöustu áramót.
SÝNING
ÁTILLÖGUM ÚR
HUGMYNDASAMKEPPNI
Póstsendum
O
O
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
______________o
oooooooooooooooooooooo ooo
Baðmyndir stærð 12,5 x 12,5 cm.
Harpa
Stærð 44 x 95 cm.
Verð kr. 985.-
hann kr. 139.-
Hún kr. 139
Sri Lanka:
Tamilar
fella 23
hermenn
V-Þýskaland:
Fiji:
Tveir fellibyljir á þremur dögum
Suva-Reuter
■ í gær stefndi annar fellibylurinn á
þrem dögum að Suva, höfuðborg Fiji í
Kyrrahafi.
Að minnsta kosti 14 manns létust og
1.400 misstu heimili sín í fyrradag þegar
fellibylurinn Eric gekk yfir Viti Levu-
eyju sem er stærsta eyjan í Fiji. Nú óttast
menn að fleiri niuni farast í dag þar sem
allt benti til þess í gær aö fellibylurinn
Nigel myndi fara sömu leið og fellibylur-
inn Eric.
Öll fjarskipti milii eyja rofnuðu í
óveðrinu í fyrradag en Ijóst er að miklar
skemmdir hafa orðið á mörgum eyjum
öðrum en Viti Levu. Stjórnvöld segja að
það taki að minnsta kosti viku að korna
fjarskiptum á að nýju við aðrar eyjur og
að þangað til verði líka rafmagnslaust.
■ Pershing II eldflaugar. Deil-
urnar um þessar vítisvélar
NATO hafa magnast að nýju
eftir slysið í síðustu viku.
LANDSBANKANS
21. -25. j anúar er haldin sýning á tillögum sem
bárust í hugmyndasamkeppni Landsbankans.
Sýningin er opin á venjulegum afgreiðslutíma í
afgreiðslusal aðalbankans.
LANDSBANKINN
Banki allra landsmaima
( olomho-Kcutcr
■ Að minnsni kosti 23 hermenn
fcllu og 11 óbreyttir horgararlétust
aöfaranótt sunnudags í spreng-
ingu. Skæruliöasveitir Tamila
höföu komiö sprengju lyrir undir
lest i Noröur-Sri Lanka. Hal't var
cftir emhættismönnum að um 25
nranns hafi særst að auki.
í lestinni voru um 201) hermenn
og fjöldi óbreyttra horgiira á leiö
til Colomho.
Talsmenn hersins sögöu aö
skæruliöar hali hafiö skothríö aö
lcstinni cftir sprenginguna. Skæru-
liöarnir bcrjast fyrir stofnun sjálf-
stæös ríkis Tamila. en þeir eru unr
IS% íhúa Sri Lanka.
Járnhrautaslarfsmenn sögöu aö
átta járnbrautarvagnar heföu
skemmst af cllcfu.
■ Francois Mitterrand, forseti Frakklands, er hér í hópi
kvenna af þjóðflokki frumbyggja Nýju-Kaledóníu. Myndin
var tekin á laugardag þegar hann átti viðræður við fulltrúa
Kanaka. Símamynd-POLFOTO
Gagnrýnin á Per
shing II blossar
upp að nýju
Bonn-DN
■ Hversu örugg er Pershing
II eldflaugin. Einu ári eftirað
V-Þjóðverjar samþykktu að
NATO staðsetti meðaldræg-
ar eldflaugar í landinu hafa
deilur un. eldflaugarnar
blossað upp aftur.
Fyrir rúmri viku létust þrír
hermenn við bandarísku her-
stöðina við Heilbronn.
Kviknað hafði í eldflauginni
en hún hafði ekki enn verið
hlaðin kjarnaoddi.
Á ntánudag s.l. krafðist
stjórnarandstaðan þess að
staðsetning eldflauganna yrði
þegar í stað stöðvuð.
„Við stofnun lífi fólks í
hættu með staðsetningu eld-
flauganna í Þýskalandi. þær
hafa margsinnis reynst óör-
uggar". sagði einn þingmaður
sósíaldemókrata í v-þýska
þinginu.
Andstæðingar eldflaug-
anna sögðu að við prófanir á
þeim hefði marg oft komið í
ljós að þær spryngju á röng-
unt stöðum, llygju í vitlausa
átt eða flygju alis ekki. Sov-
éska fréttastofan Tass varaði
í fréttaskeyti viö slíkum
óhöppunt og sagði þau geta
leitt til þriöju heimsstyrjald-
arinnar.
Talasmaður flokks græn-
ingja sagði að Þjóðverjar
Itefðu byggt varnarkerfi sitt á
vopnum sem virkuðu ekki.
Hann sagði öruggast að hætta
algerlega við staðsetningu
eldflauganna.
V-þýska ríkisstjórnin hefur
verið gagnrýnd m.a. af Was-
hington Post, fyrir að hafa
ekki gefið út yfirlýsingar þeg-
ar eftir slysið og dregið úr
ótta fólks.
Fórmaður varnamála-
nefndar v-þýska þingsins var-
aði við almennri skelfingu
vegna slyssins og sagði að
nokkurt öryggi fælist í því að
kjarnaoddarnir eru settir í
eldflaugarnar eftir að þeim
hefur verið komið fyrir.
Talsmaður ríkisstjórnar-
innar sagði að hún myndi
ekki senda frá sér yfirlýsingu
fyrr en hún hefði fulivissu um
hvað hefði raunverulega
gerst.
Gagnrýnin á eldflaugarnar
snúast einkum um hversu lít-
ið Þjóðverjar vita um þær.
Upplýsingar um hvar eld-
flaugarnar erú staðsettar,
hversu margar þær eru og
hvenær þær eru prófaðar eru
af skornum skammti.