NT - 29.01.1985, Blaðsíða 2

NT - 29.01.1985, Blaðsíða 2
„Sænskur hugbúnað- ur á erindi til íslands“, ■ Ólafur á skrifstofunni, sem er til húsa í Síðumúla. ■ Ólafur Ó. Halldórsson er umboðsaðili fyrir sænska hugbúnaðarfyrirtækið Hogia Data AB. Blm. leit við hjá Ólafi og innti hann cftir því hvernig fyrirtækið hefði spjar- að sig. „Þetta byrjaði með því að við ieituðum að heppilegum hugbúnaði fyrir bókhaldsstofu okkar Tölvubókhald á árinu 1982 og eftir nokkra leit völd- um við Hogia hugbúnaðinn. Hogia Data er sænskt hug- búnaðarfyrirtæki með aðsetur í Stenungssundi skammt frá Gautaborg. Fyrirtækið hefur í þjónustu sinni um fimmtíu starfsmenn og sérhæfir sig í bókhaldshugbúnaði. Einnig eru rekin útibú í Noregi, Finn- landi og Danmörku. og er búnaðurinn lagaður að tungu- máli hvers lands. Tölvur og stýrikerfi Hugbúnaðurinn gengur nteö stýrikerfunum CP/M, MP/M, MS-DOS PC-DOS og XEN- IX og er því hægt að afgreiða á flestar einkatölvur. Við leggjum áherslu á að við af- greiðum hvort sem er íyrir disklingaútgáfu eða fyrir harð- an disk. Hogia er algjörlega óháð tölvutegundum og viö höldum því fram að allartölvur séu jafngóðar. Ég hygg að draumur sér- hvers stjórnanda fyrirtækis sé að fá að vita hvernig rekstur fyrirtækisins gengur á hverjum tíma. Þessum óskum hefur Hogia mætt og stöðugt er unn- ið að endurbótum. Fjárhags- bókhaldið með samtengdu launa- eða viðskiptamanna- bókhaldi er mjög gagnlcgt fyrir hvert einstakt fyrirtæki. Strax og færsluskráningu er lokið má fá stöðuna fram á skjá eða prentara, þ.e. rekstrar- og efnahagsreikning rneð saman- burð við fyrra ár eða ætlun. Auk þess má halda utan um t.d. viðskiptakröfur. skuld- heimtumenn og laun sérstak- lega. Hugbúnaðurinn hefur reynst gagnlegur fyrir bók- halds- og endurskoðunarstofur og eru nú 900 kerfi í notkun á Norðurlöndum. Verð og fylgihlutir Fyrir lítið fyrirtæki sem vill hafa bókhaldið sitt á einkatölv- unni, kostar búnaðurinn kr. 28.300 í disklingaútgáfu. Aftur á móti fyrir bókhalds- eöa endurskoðunarstofur sern nota harðdiskaútgáfu er kostnaður- inn kr. 82.000. Þá fylgir sér- stakt skráningarforrit fyrir uppgjörsgerð svo og útskrift ársreiknings. Þetta kerfi getur þjónað allt að 500 umbjóðend- um. Innifalið í þessu verði er hugbúnaðarábyrgð í eitt ár frá kaupdegi. Notendurgetasíðan valið um hvort þeir vilja gerast áskrifendur að ábyrgð og fá þá rétt á nýjum og endurbættum útgáfum. Siík áskrift kostar fimmtán prósent af uppruna- lega kaupverðinu árlega. Ef notandinn skiptir um tölvuteg- und felst einnig í áskriftinni yfirfærsla á gögnunum frá gömlu tölvunni til hinnar nýju, gegn vægu gjaldi. Reynsla hér á landi Eg verð að segja að þetta hefur komið vel út. Annar notandi á eftir okkar var Endurskoðunarstofa Sverris M. Sverrissonar sem hefur að- stoðað okkur vel ogdyggilega með þýðingar og aðlögun fyrir -segirÓlafurÓ. Halldórsson hjá Tölvu- bókhaldinu íslenskar aðstæður og kröfur. Það er vissulega góð tilfinning að hugbúnaðurinn hefur vetið í þróun frá árinu 1978 og nú eru yfir 50.000 fyrirtæki á Norðurlöndum sem nota hann í einhverri mynd. Nýjungar Við erum að vinna við að þýða ýmiskonar tengibúnað og samræma hann íslenskum að- stæðum. Bráðlega mun liggja fyrir búnaður fyrir pantanir. lager, sölunótur og viðskipta- rnenn sem er samtengdur. Við erum einnig að ganga frá verk- bókhaldi svo og kennitölvuút- reikningum sem er í samræmi við ritpakka sem Vinnuveit- endasamband íslands gaf út á árinu 1972. Hér er um að ræða mjög öflugan tengibúnað til þess að meta stöðu fyrirtækja svo sem sjálfsfjármögnunar- stig. fjárhagslegt jafnvægi, nýt- ingu fjármagns og arðsemi. Þessi búnaður er hentugur fyrir fyrirtæki og nýtur m.a. mikilla vinsælda hjá hagdeildum banka á Norðurlöndum." PRECISION FLEXIBLE DISKS NÁKVÆMIMIS DISKLINGAR ♦YFIR200 BESTU HUGBÚNAÐARFRAMLEIÐENDUR HEIMS NOTA XIDEX •VANDAÐRI UMBÚÐIR ÖFLUGRI VÖRN *100% VILLULAUSAR VERIÐ ÖRUGG VELJIÐ XIDEX Skrefi framar TT TÆKNI / VA L SÍÐUMÚLA 27, 108 REYKJAVlK, SlMI 91-81665, BOX 8294 w ■ Ekki virðast neinar alvarlegar hættur samfara því að vinna við tölvuskjái. NT-mynd: Svemr Tölvuskjáir: Engin hættuleg efni eða geislun ■ Á undanförnum áruni hafa vaknað um það spurn- ingar. hvort konum sem vinna við tölvuskjái sé hætt- ara við fósturláti en öðrum og hvort fósturskaðar meðal barna þeirra séu algengari en almennt gerist. í maí í fyrra kom út bækl- ingur á vegum Vinnueftirlits ríkisins um vinnu við tölvu- skjái. í honum segir að ekki hafi konrið fram rannsóknir og niðurstöður sem gefa til- efni til aðgerða eða viðvar- ana. að mati Vinnueftirlitsins og að ekki sé kunnugt um áhrif frá tölvuskjám, sern líkleg væru til að valda slík- um skaða. Þar segir einnig að gert sé ráð fyrir umfangs- mikium rannsóknum á þessu sviði í náinni framtíð. Til þess að forvitnast um hvort eitthvað nýtt hefði komið fram í þessu máli hafði blaðamaður samband við Vilhjálm Rafnsson yfir- lækni hjá Vinnueftirlitinu. Grunsemdir gengið tilbaka Vilhjálmur sagði að þessi ntál hefðu verið í athugun og að nrenn hefðu ekki getað fundið eða ímyndað sér nein hættuleg efni eða geislun sem kæmi frá tölvuskjám. Grun- semdir hefðu því helst gengið til baka og ekki víst að af nokkrum rannsóknum yrði. Engin jónandi geislun hefði mælst frá tölvuskjám og skoðanir manna væru að fær- ast í þá átt að mun öruggara væri að sitja inni fyrir framan sjónvarp eða tölvuskjá held- ur en að sitja úti í sólskini. Þar sem menn verða stöðugt fyrir geislun úr geimnum. Vilhjálmur sagði jafnframt að ekki hefði orðið vart við nieiri tíðni fósturláta eða vanskapnaða hjá konum sem vinna við tölvuskjái en hjá öðrum konum.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.