NT - 01.02.1985, Blaðsíða 11
Föstudagur 1. febrúar 1985 11
Barneignir í Kína:
Slakað á hörðum kröfu
um eitt barn á hver hj
■ Eftir tveggja ára hörkulega
framfylgd á reglum um barn-
eignir, sem leyfa kínverskum
hjónuin aöeins aö eignast eitt
barn, hafa stjúrnvöld þar í
landi slakaö nokkuö á í þeirn
efnum. Enn sem fyrr verða
Kínverjar þó aö fá leyfi frá
hinu opinbera til að eignast
barn. Nú hefur t.d. stjórnin í
Hunanhéraöi, fæöingarstaö
Maos leyft ákveönum hópum
hjóna að bæta iiöru barni í
fjölskylduna. Þau hjón, sem
uppfylla skilyröi stjórnvalda
vegna annars barns, eru í.d.
hjón í borguin, sem bæöi eru
eina barn sinna foreldra, og
hvaö viðkemur dreifiivlishjón-
um, þá verður annað hvort
þeirra að eiga foreldri, sem er
einhirni ellegar þá aö
hinn væntanlegi faðir veröur
að vera einbirni og hafa aöeins
feörað dóttur. Þaö er því
greinilega ekkert cinfalt mál
aö fá leyfi til að eignast sitt
annaö barn í Kínaveldi.
Meginorsök þessara tilslak-
ana á reglunum um barneignir
er vaxandi andstaða almenn-
ings viö þær. Þessar reglur
voru innleiddar í ársbyrjun
1979 og var þeim ætlað að
stemma stigu við hinni öru
fólksfjölgun og jafnframt að
brjóta niöur hina hefðbundnu
kínversku stórfjölskyldu. enda
fyrirsjáanlegt að auðlindir
Kína stæðu ckki undir slíkum
fjölda. Markmiðið er að fjöldi
kínverskra þegna verði um
700 milljónir cftir 50-60 ár,
sem yrði fækkun upp á 300
milljónir og þá um leið einstak-
ur árangur í takmörkun fólks-
fjölda. Hins vegar mundi íbúa-
fjöldi Kína nema einum og
hálfum milljarði um miðja
næstu öld ef núverandi venja
héldist. en hún er sú að kín-
versk hjón eiga yfirleitt tvö
börn.
Þvinganir og myrkraverk
í árslok 1979 hafði nær
þriðjungur hjóna með eitt barn
lofað stjórnvöldum að eignast
ekki fleiri afkvæmi og tveimur
árum seinna höföu 57% hjóna
gefið slíkt loforð. Þau hjón.
sem gáfu slíkt lieit var síðan
umbunað með peningagreiðsl-
um, betra húsnæði og ókeypis
læknisþjónustu. A sama tíma
fór að korna í Ijós 'að þessi
árangur var að töluverðu leyti
fenginn með ýmis konar þrýst-
ingi og þvingunum, enda voru
embættismenn krafðir um góð-
an árangur. Alls kyns myrkra-
verk voru framin, sumir emb-
ættismenn neyddu konur til
fóstureyðinga á meðan aörir
tóku viö mútum frá hjónum,
sem vonuðust eftir að annað
barn þeirra yrði karlkyns. Auk
þess var þeim, sem brutu heitin
refsað í sívaxandi mæli með
launalækkunum og sviptingu
hvers kyns fríðinda.
■ Kínversk fjölskylda framan við veggspjald, sem á stendur:
Pabbi, marnnia og ég.
Hungursneyð rauf skarð
í mannhafið
Það kom einnig í Ijós að
aðrar skýringar mátti finna á
þessum góða árangri. Til dæm-
is var fjöldi kvenna á barneign-
araldri mun lægri en venjulega
á árunum 1979 til 1981 og var
orsök þess að finna í mikilli
hungursneyð á árunum 1959-
1961, sem varð vegna mis-
heppnaðrar efnahagsstefnu
Maos. Talið er að um 20 míllj-
ónir Kínverja hafi látist af
völdurn þessarar hungursneyð-
ar. Þetta mikla mannfall varð
síðan til'þess að miklu færri
konur komust á barneignaald-
ur tuttugu árum síðar. A árinu
1981, þegar áhrifanna hætti að
■ Það er ekki sársaukalaust fyrir Kínverja aö takinarka barneignir svo mjög sem raun ber vitni.
En veröi mannfjölguninni ekki haldiö í sketjum veröur ekki hægt aö sjá mergöinni farboröa þegar
frá líður. Myndin er frá barnaheimiii í Peking.
gæta, fór barnsfæðingum fjölg-
andi og að sjálfsögðu óx þá
andstaða forcldra við reglurn-
ar um aðeins eitt barn á hjón
að santa skapi.
í júlí s.l. slakaði áætlunar-
deild ríkisins enn frekar á regl-
unum og þá varðandi konur í
sveitum, því þær höfðu tekið
upp á því að flýja til fjalla og
eiga þar börn sín. A sama tíma
var greint frá að einungis
fimmtungur mæðra á barn-
eignaraldri hefðu haldið í
heiðri regluna um eitt barn á
fjölskyldu. Þverrandi árangur
stefnunnar sýnir að Kínverjar
tclja barneignir vera cinkamál
fjölskyldunnar, en ekki mál
ríkisins, eins og stjórnvöld
hafa lýst yl'ir.
US Mail með Reykjavíkurstimpli
■ Öll fáum við einhvern
póst. þó ekki sé um að ræða
nenia opinberar tilkynningar
og kannske eitthvað af svo-
kölluðum gluggaumslögum.
Auk þess að fá minn daglega
póst heima. fæ ég einnig nokk-
uð af pósti sendan á NT og er
það mest opinber póstur frá
hinum ýmsu löndum er vilja
kynna frímerkjaútgáfu sína.
Því hef ég slíkan inngang, að
oft geta verið skemmtileg bréf,
jafnvel í þessum pósti, sem þó
flestir henda kannske beint í
ruslakörfuna.
Bréf eitt frá bandarísku
póststjórninni hefir þannig
orðið mér tilefni þessa þáttar.
Bréf þetta er sent frá Washing-
ton og í því cr tilkynnt ný
útgáfa af notkunarmerkinu
fyrir almennan innanlands-
póst, nteð mynd af fána
Bandaríkjanna, en merkiö
sjálft ræði égsíðar í þættinum.
Umslagið er eitt af þessum
venjulegu formumslögum sem
notað er fyrir póst þann sem
póstmálastofnunin sendir slík-
ar tilkynningar í og hefir fyrir-
fram greitt burðargjald. Til
marks um það er mynd af-
erninum og áletrunin U.S.
Mail í ramma í efra horni
vinstra megin. Auk þess er
tekið fram fyrir neðan mynd-
ina að 300,00 dala sekt sé við
því að misnota umslagið undir
einkapóst. Nú er áritun um-
slagsins til gamla Tímans,
frímerkjaþáttar og í pósthólf
það sem Tíminn hafði er hann
var í Edduhúsinu. Þessu vill
Póststofan í Reykjavík fá
breytt í rétt póstfang, límir
hún þar af leiðandi bláan miða
á umslagið til áréttingar og
biður um að svo sé gert. Ekki
nægir þetta samt. Merkja þarf
umslagið með stimplun, svo að
sjá megi hver óskar eftir þess-
ari leiðréttingu og hvenær.
Bréfið er því sett í stimpilvél-
ina á R1 eins og um venjulegt
bréf væri að ræða. Því stimpl-
ast þarna merki U.S. Mail með
Reykjavíkurstimpli og umslag-
ið fær á sig venjulegan notkun-
arbrag. nema hvað bandaríska
merkið er stimplað í Reykja-
vík. Útkoman. erlendur
stimpill á bandarísku tnerki.
Auk þess þarf svo að árita
hvert bréfið á að fara. Það er
gert með því að póstmaðurinn
skrifar R.8. á umslagið undir
áritun þess. Þarna cru komin 3
atriði sem gera umslagið
skemmtilcgt og þcss virði að
safna því, til notkunar livort
sem er í íslensku eða banda-
rísku safni. Auk þess er svo
innihaldið, sem staðfestir hve-
nær það var sent frá Bandaríkj-
ununi.
Bréf póststjórnar Banda-
ríkjanna er dagsett 13. des. og
er tilkynning um að gefa eigi út
ný merki með rnynd þinghúss-
ins og fánans snemma á næsta
ári. Þar sem burðargjald er að
hækka, en ekki er ennþá vitaö
hve mikið, og einnig á að
stækka rnerkið um helming, er
samt send mynd af því, en í
stað burðargjaldstölu er aðeins
áritað 00 á merkið. Var þctta
gert á nokkrutn myndum
bandarískra merkja sem
ákveðin var útgáfa á á þessu
tímabili. Síðan voru sendar
myndir af sömu merkjum
seinna mcð tölunni 22, cn það
var hið nýja almenna burðar-
gjald, sem ákveðið var eftir
hækkunina, sem nú fyrst er að
koma til framkvæmda. Auk
þess verður svo merkið gefið
út áfram í sömu stærð og áður,
þ.e. lítil merki í heftum.
Allt þetta geröi það að verk-
um að ég fór að athuga þessi
merki nánar er ég var í Banda-
ríkjunum um jól og fram í
janúar. Haföi ég einmitt keypt
hefti með litlu merkjunum sem
þá voru hið almenna burðar-
gjald, eða 20 centa merkjum.
Er ég svo ætlaöi að mæla stærð
þessara merkja komst ég í ekki
svo lítinn vanda. Þau voru
misstór. Vinstri röðin í heftinu
scm ég var með var samsett af
24 mm breiöum merkjum, en
sú hægri af aðeins 20 mm
breiðum merkjum. Einhvers-
staðar frá hafði ég upplýsingar
um að nterkin ættu að vera 22
millimetra breið. Þá var að
heimsækja nokkur pósthús og
skoða slík hefti. Geröi ég það
næstu daga. en fann hvcrgi
nein hefti nenia með 22 mm
breiðum merkjum. Fullviss-
uðu póstmenn mig um annað
fyndist ekki. Þá var þaöcndan-
legt. Ég hafði keypt hefti með
afbrigöum og var því miður
búinn aö nota tvö af þcim á
jólakort innan Bandaríkjanna.
Það sem eftir var af heftinu
held ég fast í.
Ég á þess von að myndin af
safnsíðunni scm hér fylgir
með, prentist vel og þá hefi ég
sett upp þcssa sögu um bréfiö
frá Bandaríkjunum, á svokall-
að Lindner T blað, cn þessi
blöö eru sérstök að því leyti,
að þau eru til í mörgum mis-
munandi gerðum, sem hægt er
aö velja sér nákvæmlega eftir
efni því sem upp á að setja.
Eru tvöfaldir vasar fyrir upp-
setningu efnisins og liægt er að
hafa bakgrunn fyrir plastvas-
ana i hverjum þeim lit sem
viðkomandi vill. Hér er t.d.
notaður svartur bakgrunnur.
Á síðunni getur svo að líta
bréfið með þeim þrem viðbót-
um. sem það fékk eftir að þaö
kom til íslands, efst á síðunni.
Neðan til við það vinstra
megin, eru svo myndirnar tvær
af frímerkinu sem nú er að
koma út og er 22 ccnta merki,
cn neðan þess er svo mynd
merkisins meö tölunni 00,
meðan burðargjald var ekki
ákveöið. Þá eru hægra megin á
síðunni neðantil, tvær fjór-
blokkir með litla merkinu cins
og það var áður, meðan burö-
argjaldið var 20 cent. í efri
blokkinni eru afbrigðin tvö -
24 og 20 mm breið. En íyrir
neðan eru hinsvegar eðlileg
nierki 22 mm breið.
Aö lokum skal svo tekið
fram, að hafi menn áhuga á að
kynna sér hvernig selja á frí-
merki á uppboöum erlendis,
geta þeir sent kr. 25,00 t.d. í
ónotuðum frímerkjum til „ís-
lensk Frímerki s/f. Pósthólf
161,202 - Kópavogi," og fá þá
sent efni á íslensku um það.
Lindner T blöðin, sem lýst
er hér að ofan, fást hjá Frí-
merkjahúsinu, Lækjargötu
6A. 100 Reykjavík.
Sigurður H. Þorsteinsson.