NT - 01.02.1985, Side 21

NT - 01.02.1985, Side 21
 (W Föstudagur 1. febrúar 1985 21 Ll Útlönd ■ Jóhannes Páll páfi kemur hér til kirkjunnar La Companía í Quito á miðvikudag. Oryggisgæsla hefur verið aukin eftir að páfi átti í nokkrum vandræðum vegna mikils mannfjölda sem sótti að honum á Quito-flugvelli við komuna til Equador. Að undanförnu hefur verið mjög róstusamt í landinu vegna efnahagsstefnu forsetans, Cordero, og Alþjóðagjaldeyrissjóösins. símamynd polfoto Páfinn er andvígur stefnu Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins Krefst breytinga á alþjóðaefnahagskerfinu ■ Carrington lávarður, aðal- ritari NATO, dró í gær í efa mikilvægi áætlana Reagans um varnarkerfi gegn eldflaugum í geimnum. í fyrirlestri sem hann hélt í Churchill-háskólanum í Canr- bridge sagði hann að slík varn- arkerfi yrði að rannsaka en það væri ósannað að þau ykj u öryggi bandalagsríkjanna. „Það verður mjög erfitt að þróa kjarnorkuvarnarkerfi sem eru í samræmi við markmið hernaðarjafnvægis, sem felur í ■ Matvæla- og landbúnaðar- stofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO, hefur lagt fram 126 millj- óna dollara áætlun um það hvernig bjarga megi landbúnaði í Eþíópíu og lífi sjö milljóna manna þar. Framkvæmdastjóri FAO, Adouard Saouma. hefur hvatt þau ríki, sem hafa lofað aðstoð við Eþíópíu vegna þurrkanna þar, til að styðja tillögur FAO sem fyrst með beinum framlög- um. Næstum því engin úrkoma hefur verið í Eþíópíu á síðustu þremur árum og margar millj- sér að hvorugur aðili hafi yfir- burði og minnki stríðshættuna." Carrington sagði mögulegt að ræða samkontulag unt takmörk- un prófana og staðsetningar á eldflaugavarnakerfum en ekki væri hægt að fylgja et'tir sam- komulagi um takmarkanir á rannsóknum á slíkum varnar- kerfunt. Hann lofaði samkomulag Re- agans og Thatchers í desember s.l. um að varnarkerfum í geimnum yrði ekki komið fyrir, nema með samkomulagi við So- vétmenn. ónir manna hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín og fara á vergang eftir að hafa selt eigur sínar. Talsmaður FAO, Richard Lydiker, segir að það sé nauð- synlegt að aðstoða Eþíópíu- menn við að hefja aftur land- búnað eftir þessar hörmungar. í áætlun FAO er gert ráð fyrir 95 milljóna dollara neyðarað- stoð til að kaupa sáðkorn, áburð, tæki dráttardýr og fóður auk þess sem nauðsynlegt sé að byggjaáveiturogvegi. Tillengri tíma yrði lögð áhersla á land- búnaðaráætlanir og að fræða bændur um hvernig bæta megi akuryrkju og kvikfjárrækt sam- tímis því sem skógrækt og fisk- veiðar yrðu efldar. Framkvæmdastjóri FAO seg- ir að í lok mars verði kallaður fundur fulltrúa frá ýmsum ríkj- um til að ræða leiðir til að aðstoða tuttugu önnur Afríku- ríki þar sem þurrkar hafa einnig valdið hungursneyð. ■ JóhannesPállpáfifordæmdi í gær gapið sem ríkir milli ríkra og fátækra þjóða og sagði að aðeins væri hægt að leysa skuldakreppu rómönsku Ame- ríku með breytingum á ríkjandi alþjóða efnahagskerfi. Páfinn hélt ræðu á fundi með verkafólki í Quito í gær, en hávær mótmæli og óeirðir hafa verið í Equador í janúarmánuði vegna sérstakra efnahagsráð- stafana stjórnar landsins. Efna- hagsráðstafanir stjórnarinnar eru runnar undan rifjum Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins, og er ætlað að leysa skuldakreppuna. Páfi lýsti skuldakreppu róm- önsku Ameríku en erlendar skuldir álfunnar eru um 350 milljarðir dollara. Aukin harka hefur færst í stjórnmál Equador og andstaða magnast hröðum skrefum gegn efnahagsstefnu hins hægrisinn- aða forseta landsins Leon Fe- bres Cordero. „Við getum ekki horft fram hjá þeim vandamálum sem land Gleypti 100 smokka af heróíni Hclsinki-Reuter. ■ Finnskir tollverðir handsömuðu í gær konu sem hafi gleypt 100 smokka fyllta 250 grömm- um af heróíni. Konan reyndi að smygla heróín- inu á Helsinki-flugvelli snemma í janúar. Hún var tekin til nánari skoðunar þegar hún neit- aði að veita tollvörðum aðrar upplýsingar um ferðir sínar, en að hún væri í millilendingu. Embættismenn sögðu að Svíi hafi verið hand- samaður í nóvember s.l. og hafi hann ælt 89 smokk- um fylltum með 230 grömmum af heróíni. okkar á við að etja," sagði páfinn, „eins og í öðrum lönd- um rómönsku Ameríku og fleiri löndum heims standa erlendar skuldir ykkur fyrir þrifum og það gerir einnig veik staða ykk- ar í hinu alþjóðlega efnahags- kerfi." Páfi sagði ennfremur: „Við verðum að hefjast handa og eyða því óþolandi gapi sem er milli hinna fáu vellauðugu og hins mikla fjölda fólks sem lifir í sárri fátækt." Jóhannes Páll páfi lagði áherslu á að vandamál í einstök- um löndum þriðja heimsins ættu rætur sínar að rekja til hins alþjóðlega efnahagskerfis. Hann sagði: „Við vitum öil að orsakir vandamálanna eru flóknar og raunhæf lausn fæst ekki öðruvísi en að samtímis sé hróflað við hinu alþjóðlega efnahagskerfi." í bréfi sem páfa barst í gær frá helstu verkalýðssamtökum Equador segir að efnahagsráð- stafanir Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins sent forseti landsins fylgir, kalli fátækt og örbirgð yfir rómönsku Ameríku. í bréfinu segir að skilyrði Alþjóðagjaldcyrissjóðsins fyrir frekari lánum tii rómönsku Ameríku sé „dauðadómur" yfir álfunni. Stefna Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins er í stuttu máli sú að skuldalöndin leysi kreppu sína með stórauknum útflutningi og strangri aðhaldsstefnu sem m.a. felur í sér niðurskurð á félags- þjónustu og umsvifum hins op- inbera. Verðfall og minnkandi eftirspurn eftir vörum frá skuldalöndunum hefurhinsveg- ar fylgt í kjölfar efnahagskrepp- unnar á Vesturlöndum. Því telja margir vinstrisinnar í Mið- og Suður-Ameríku stefnu Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins óraun- hæfa, jafnframt því sem hún kemur harðast niður á fá- tæklingum vegna hækkandi vöruverðs í skuldalöndununt og niðurskurði á félagsþjónustu. Hinu alþjóðlega efnahagskerfi verður því að breyta. Keutero.n. Breskir hjúkrun- arfræðingar: Vilja banna allarfóstur- rannsóknir London-Reuter. ■ Breskir hjúkrunarfræðingar kröfðust í gær að lög yrðu sett sem banna rannsóknir á mann- legum fóstrum og banna útleigu móðurkviðs. Konunglegi hjúkrunarfræðihá- skólinn hvattiNorman, Fowler, félagsmálaráðherra Breta, til að „tryggja rétt fóstursins með lögum". Talsnrenn háskólans sögðu að aðeins væri réttlætanlegt að leyfa rannsóknir sem tryggðu fullan þroska fóstursins. „Hug- ntyndir um fjöldaframleiðslu fóstra til rannsókna er ógeðfelld og ótæk,“ hafa samtök hjúkrun- arfræðinga lýst yfir. Bresku læknasamtökin, Læknisfræðirannsóknarráðið og Konunglegi kvensjúkdóma- og fæðingalæknaháskólinn telja að fósturrannsóknir geti dregið úr líkum á arfgengum meinum. Afstaða Konunglega hjúkr- unarfræðiháskólans er hins veg- ar sú að hann er „ósammála þeirri skoðun að samfélagið eigi nauðsynlega að eyða arfgengum nteinum". Útleigu móðurkviðs ber að banna að mati hjúkrunar- fræðinganna en þeir eru ekki sammála um hvort banna eigi útlán móðurkviðs. Chernenko stálhraustur - var í fríi Washint>ton-Reuter. ■ Aðstoðarmenn forseta So- vétríkjanna, Konstantins Chernenko, segja Itann vera í starfsleyfi en alls ekki alvarlega veikan. Chernenko sagði í gær í skrif- legum svörum við spurningum frá bandarískum sjónvarps- fréttamanni, að vígbúnaðarvið- ræður risaveldanna gætu hafist nú þegar. Chernenko sagði að eld- flaugavarnakerfi Reagans í geimnum gæti dregið úr líkum á takmörkun vígbúnaðar. Hann sagði einnig að með fundi Gromyko og Shultz í Genf 7. og 8. janúar s.l. hafi forsendur skapast fyrir „alvarlegum og frjósömum samningaviðræð- um". Viðræðufundur risaveldanna hefur verið boðaður 12. mars n.k. EINNSA VERKLEGASTI Willys Jeepster árg. 1967 350 cc. vél, 3ja gíra beinskiptur schat hásingar, 38 tommu mudder. 0ÍLASAU Verð kr. 200.000.- Hyrjarhöfða 2 - Sími 81666 Carrington: Efast um vígvæðingu Reagans í geimnum Cambridge-Reuter Sovéska eldflaugin stefndi á Hamborg ■ Breska blaðið Daily Express sagði frá því í gær að sovéska stýriflaugin, sem rauf norska lofthelgi og „brotlenti“ í Finnlandi fyrir fimm vikum, hafi vegna mistaka verið á leið til Hamborgar. Sovéskum herfiugmönnum hafi hins vegar tekist að granda flauginni og hafi aðeins munað einni mínútu að það tækist ekki. Bandaríkjamönnum hafi verið kunnugt um hvað gerðist en vegna fundar Gromyko og Shultz í Genf hafi málið verið þaggað niður. Símamynd: Polfolo. Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna: Áætlun um að bjarga landbún- aði í Eþíópíu Róm-Reuter.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.