NT - 01.02.1985, Blaðsíða 24
MbtawiiiiMÍflÉi
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leið ir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónurfyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttarmánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
..............
_ H Bi > -ís l mmk
n 5°c
SE -r1
Frakkar léku grófa vörn
Sagt eftir leikinn:
■ Bogdan landslidsþjálf-
ari sagði: I’að var neikvætt
fyrir okkur að við áttum
sérlega góðan leik í gær og
því vantaði dálítið einheit-
ingu nú.
Við misnotuðum 3 víti
og það er ekki gott.
Frakkar fengu að leika
mjög grófa vörn og þar sem
marga leikmenn íslenska
liðsins vantar frekar tækni
en kraft, kom það niður á
okkur. Frakkar voru á
heimavelli og það er ekki
við íslenska liðið að sakast
að svona fór.
Sigurður Gunnarsson:
Frakkar voru góðir en það
er engin spurning að við
getum unnið þá á góðum
degi. Þeir voru á heimavelli
og það jafnar liðin. Við
lékum flestir undir getu.
Jens Einarsson: Leikur-
inn var jafn. sérstaklega í
fyrri hálflcik. Frakkar
fengu að komast upp með
að vera óvenju grófir í
vörninni og enginn gat skot-
ið án þess að honum væri
hrint, hann barinn eða
kýldur og ekkert dæmt.
Einar Þorvarðarson:
Okkur mistókst alltof oft
að nýta okkur það að vera
einum fleiri. Sóknarleikur-
inn gekk ekki upp, en varn-
irnar voru sterkar. Dómar-
ar voru mjög slæmir.
Páll Ólafsson: Mér gekk
nijög vei framanaf en það
dugir ckki, það þarf að
ganga vcl hjá öllu liðinu.
Það losaði nijög um mig að
Kristján var tekinn svo stíft
og ég var oft síðasti hlekk-
urinn í sóknaraðgerðum.
Þorgils Óttar. Okkur
vantaði í raun mann í hægra
hornið og cg var látinn
leika þar til að koma á fullu
inná línuna en það gckk illa
því Kristján var tekinn úr
umferð og þar með kom
boltinn ekki í hægra hornið.
Ég kann ekki heldur al-
mennilega á þessa stöðu.
Kristján Arason: Þetta
var hrikalega erfitt. Égverð
að segja að dómgæsfán í
þessum leik var ákaflega
skrítin.
Tournoi de France:
Sami gaddurinn
Meðalefnisað þessu sinni:
Ránmorð á íslandi: Á árunum eftirstríð hurfu
fjölmargiríslendingarsporlaust. Síðan tókulíkinað
reka.
Haukur Gunnarsson leikstjóri kemur víða við í
opinskáu viðtali við Kristínu Bjarnadóttur.
íverksmiðjuáhöfuðborgarsvæðinuerugeymdfleiri
þúsund tonn afhættulegum eiturefnum auk
gríðarlegs magns af sprengiefni. Hver erþessi
vinnustaður? Þú lest um það allt í Helgarblaði NT.
dómararnir hlutdrægir og ísland tapaði 19*16
Frá Samúel Krni í Frakklandi:
■ Tap, 16-19, gegn Frökkuni
er óvænt eftir velgengni ís-
lenska landsliðsins í hand-
knattleik að undanförnu.
Hverjar eru orsakirnar? Þær
verða ekki fundnar í vörn cða
inarkvörslu íslenska liðsins.
Það er hinsvegar hægt að finna
þær í sóknarlciknuni og dóin-
gæslu svissnesku dóinaranna
sem dæmdu lcikinn. íslenska
liðið lék góða vörn, Einar
Þorvarðarson lék vel í mark-
inu, varði mjög vel á inikilvæg-
um augnablikum. En sókn ís-
lenska liðsins skilaði ekki sínu,
mest vegna þess að Frakkar
fengu að leika grófa vörn án
þess að dæmt væri á þá.
íslendingar byrjuöu meö
boltann en það voru Frakkar
sent skoruöu fyrsta markið úr
fyrstu sókn sinni. Islendingar
jöfnuðu þcgar Jakob fiskaöi
víti sem Kristján skoraöi ör-
ugglega úr. Frakkar voru fljót-
ir að svara fyrir sig en Alfreö
jafnaði með góöu skoti, 2-2.
Frakkar léku góða sókn og
íslenska vörnin var ekki alveg
meö á nótunum til að byrja
meðogeftir I2mín. varstaðan
6-3 fyrir Frakka. Frakkar léku
vörnina mjög framarlega og
einbeittu sér að því að taka
Kristján Arason nánast úr um-
ferð og um leið lamaðist hægra
liornið. Góður kafli lagaði
stöðuna mjög og eftir 16 mín.
leik var staðan 8-6 íslandi í
hag. Var það að mestu Páls
kafli Ólafssonar sem skoraði
jafnt úr hraðaupphlaupum,
gegnumbrotum og langskotum
af mikilli list. Frakkar jöfnuðu
9-9 eftir 23 mínútur og næstu
mínútur einkenndust af mikilli
baráttu þar sem vörnin var
aðalatriðið og því lítið skoraö.
Á þessum tíma skutu ís-
lensku leikmennirnir ótal sinn-
um í ramrna franska marksins,
þar af Páll 3 sinnum. Ástæðan
fyrir þcssu var sú að íslensku
leikmennirnir fengu aldrei frið
til að skjóta, alltaf var brotið á
þeirn. án þcss að dæmt væri.
Staöan í hálfleik var 11-10
Frökkum í hag svo íslenska
liðið átti á brattann að sækja í
seinni hálfleik.
Páll jafnaði strax með fal-
legu gegnumbroti 11-11 í upp-
hafi síðari hálfleiks, en stór-
skytta Frakka, Bernard, skor-
aði sitt 3. mark og vörnin átti
lítið svar við þessari stórskyttu
þegar hann reif sig upp. Síðan
var jafnt á öllum tölum þar til
Þorbergur skoraði 14-13 fyrir
ísland með fallegu gegnum-
broti. Frakkar jöfnuðu, en þá
kom dæmigert FH mark,
Kristján gaf snyrtilega send-
ingu á Þorgils sem skoraði af
línunni.
Frakkar jöfnuðu og komust
yfir 16-15 en Kristján jafnaöi
■ Páll Ólafsson lék best íslensku leikniannanna á móti Frökkum í gærkvöldi og skoraði
7 mörk. Hann var tekinn óblíðumtökumogbarinnniðursnemmaíseinnihálfleikogþurfti að
yfirgefa völlinn.
16-16 eftir að Þorgils Óttar
hafði fiskað víti.
Þá kom vafasamasti kafli
dómaranna í lciknum, 22 mín.
eftir og Páll komst í gegn en
var barinn í kviðinn og varð að
yfirgefa völlinn. Það varekkert
dæmt á þetta fólskulega brot
og var það dæmigert fyrir sviss-
nesku dómarana.
Frakkar héldu uppteknum
hætti í vörninni og þrátt fyrir
að íslendingarnir stöðvuðu
sóknir þeirra hetjulega náðu
þeir skyndisóknum og skoruðu
3 síðustu mörkin.
Á síðustu mínútunum héngu
Frakkarnir í tvígang í hendi
Kristjáns þegar hann var að
fara upp í skot, bæði fyrir utan
vörn og eftir að hann var
kominn í gegn, án þess að
nokkuö væri dæmt, en venju-
lega er dæmt á slíkt brottrekst-
ur og jafnvel vítakast.
Það sem skipti sköpum var
dómgæslan. Það var sama
hvernig hangið var í höndum
íslendinganna, sérstaklega
Kristjáns, ekkert var dæmt.
íslendingarnir máttu hinsvegar
ekki hreyfa sig án þess að
flautan gylli.
Páll Ölafsson var langbesti
maður íslenska liðsins og skor-
aði 7 niörk. En vegna þess
hvaö Frakkar fengu að leika
grófa vörn þurfti hann að yfir-
gefa völlinn um tíma í seinni
hálfleik, eftir að hafa verið
barinn niður. Kristján var nán-
ast tekinn úr umferð allan
leikinn og mátti sig lítt hreyfa,
þá var hangið í honum á gróf-
asta hátt. Hann mátti ekkert
gera í vörninni án þess að vera
rekinn útaf eða aðvaraður.
Frakkar hafa gott lið og
verða ekki sakaðir unt að hafa
leikið óheiðarlega því dómar-
arnir hljóta að stjórna dómum.
Mörk (slendinga skoruðu:
Páll 7, Kristján 3(3), Þorberg-
ur 3 (2), Alfreð 1, Jakob 1 og
Þorgils Óttar 1.
Einar Þorvarðarson varði
mjög vel í leiknum.
Það verður sami gaddurinn
áfram um allt land. Norðan
og norðaustan kaldi til
stinningskaldi um allt land.
Él austanlands og með
annnesjum norðanlands.
Sömuleiðis gæti einhverja
élja gætt með suðurströnd-
inni.
Sigurður Gunnarsson
í heimsliðið - bls. 23