NT - 09.02.1985, Page 20
ffi 7 Laugardagur 9. febrúar 1985 20
lil [í Útlönd
Kínverskur f rummaður f undinn?
■ Kínadagblaðiö skýrði frá
því í gær að villtur frummaður
hefði náðst á afskekktu fjalla-
svæði í Hunanfylki í Suður-
Kína.
Fréttir um íurðulegar
mannverur hafa oft borist frá
ýmsum afskekktum stöðum í
Kína og er snjómaðurinn í
Himalaja líklega alþekktastur
þeirra. Það er samt ekki fyrr en
nú á síöustu árum að skipulögð
leit hefur veriö hafin að slíkum
verum.
Lengi vel tóku kínverskir
kommúnistar lítið mark á sög-
um um loðna villimenn sem
rændu jafnvel fólki í mannheim-
um og áttu mök við það. En
fyrir nokkrum árum sáu hátt-
settir félagar í kommúnista-
flokki Kína slíka veru, sem
greinilega var hvorki maður né
api við fjallveg í Sichuan-fylki.
Skömmu áður höfðu kínverskir
vísindamenn einnig fundið fót-
spor og ýmis önnur merki sem
þeir töldu ótvírætt vera eftir
áður óþekkta manntegund eða
mannapategund.
Frátt fyrir allvíðtæka leit hef-
ur samt gengið erfiðlega að ná
þessum furðuverum. í fyrra
voru boðnir 3.500 dollarar í
verðlaun til þeirra sem hand-
sömuðu villimanninn dular-
fulla. Síðan hafa nokkrir leitar-
menn þóst hafa fundið hann en
við nánari athugun hefur komið
í Ijós að þcir höfðu handsamað
fágæta apategund með stutta
rófu.
Kíverskir mannfræðingar í
Peking segjast vantrúaðir á að
„apamaðurinn" sem nú hefur
náðst í Hunan-fylki og er
geymdur í upphitaðri íbúð í
Wuhanborg, sé raunverulega
villimaðurinn sem þeir eru að
leita að. Þeir segjast samt munu
kanna málið betur.
BLAÐBERA VANTAR
Grafarvoginn,
Lerkihlíð,
Beykihlið,
Fiskakvísl
og Granda.
EINNIG VANTAR BLAÐBERA A
BIÐLISTA
Síðumulil 5. Sími 686300
■ Þessi mynd var tekin af Olof Palme forsætisráðherra Svía á
blaðamannafundi í gær eftir að vantrauststillaga stjórnarandstæð-
inga á utanríkisráðherrann, Lennart Bodström, var felld.
Símamynd-POLFOTO
Ðólivía:
Bændur loka vegum
La Paz-Reuter
■ Bændur í Bólivíu lokuðu
fyrr í þessari viku öllum vegum
og járnbrautarlínum til höfuð-
borgarinnar La Paz. Vegirnir
voru ennþá lokaðir í fyrrakvöld
og ekki ljóst hvenær umsátri
bænda myndi ljúka.
Bændur krefjast þess að fá
stuðning við vélakaup auk þess
sem þeir vilja að frjáls landbún-
aðarmarkaður verði opnaður í
La Paz til þess að þeir geti selt
vörur sínar beint til neytenda.
Stöðugt fleiri vandamál
steðja nú að hinni borgaralegu
stjórn í Bólivíu sem tók við af
herstjórninni fyrir tveimur
árum. Fyrir nokkru fóru leigu-
bílstjórar, strætisvagnastjórar
og vörubílaeigendur í verkfall
og bankar í einstaklingseigu
hafa stöðvað starfsemi tíma-
bundið.
Frakkar auka vínútflutning
París-Reutcr
■ Útflutningur Frakka á vín-
um og sterku áfengi jókst um 21
prósent á síðasta ári og hefur
hann aldrei verið meiri.
Mest var útflutningsaukning-
in til Bandaríkjanna þar sem
hátt gengi dollarans varð til þess
að verð á frönskum vínum lækk-
aði. Heildarverðmæti útflutn-
ings var um 21,7 milljarðar
franka (um 92 milljarðar
ísl.kr.).
Mest varð aukningin í útflutn-
ingi á kampavíni og konjaki.
Svíþjóð:
Utanríkis-
ráðherrann
hélt velli
■ Vantrauststillaga
stjórnarandstæðinga á
utanríkisráðherra Svía var
felld í sænska þinginu í
gær eftir harðar umræður.
Utanríkisráðherrann,
Lennart Bodström, var á-
sakaður urn vantrú á kom-
ur erlendra kafbáta inn í
sænska landhelgi á síðustu
árum þótt sænski herinn
telji sig hafa sannað kaf-
bátaferðirnar. Hernum
hefur samt ekki tekist að
ná neinum kafbát þrátt
fyrir mikla leit í landhelg-
inni.
Bodström segist hins
vegar aldrei hafa sagt eða
hugsað neitt sem hægt sé
að túlka sem vantraust á
kafbátakomurnar. Hann
sé jafn trúaður á þær og
aðrir Svíar.
UMBOÐSMENN
Akureyri Soffía Ásgeirsdóttir, Háalundi 7, s. 24582 og
Halldór Ásgeirsson, Hjarðarlundi 4, s. 22594.
Akranes Elsa Sigurðardóttir, Deildartúni 10, s. 93-1602.
Borgarnes Guðný Þorgeirsdóttir, Kveldúlfsgötu 12, s. 93-7226.
Hellissandur Víglundur Höskuldsson, Snæfellsási 15, s. 93-6737.
Rif Snædís Kristinsdóttir, Háarifi 49, s. 93-6629.
Ólafsvík Margrét Skarphéðinsdóttir, Vallarholti 24, s. 93-6306.
Grundarfjöröur Jóhanna Gústafsdóttir, Fagurhólstúni 15, s. 93-8669
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir, Silfurgötu 25, s. 93-84010.
Búðardalur Sólveig Ingvadóttir, Gunnarsbraut 7, s. 93-4142.
Patreksfjörður Ingibjörg Haraldsdóttir, Túngötu 6, s. 94-1353.
Tálknafjörður Níels Ársælsson, Hamraborg, s. 94-2656 (2514).
Bíldudalur Jóna M. Jónsdóttir, Tjarnarbraut 5, s. 94-2206.
Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir, Brimnesvegi 2, s. 94-7673.
Suðureyri Sigrún Edda Edvardsdóttir, Sætúni 2, s. 94-6170.
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir, Hafnargötu 115, s. 94-7366.
ísafjörður Svanfríður G. Bjarnadóttir, Pólsgötu 5, s. 94-3527.
Þingeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54, simi 94-8131
Súðavík Heiðar Guðbrandsson, Neðri Grund, s. 94-4954.
Hólmavík Gu^björg Stefánsdóttir, Bröttugötu 4, s. 95-3149.
Hvammstangi Baldur Jessen, Kirkjuvegi, s. 95-1368.
Blönduós Snorri Bjarnason, Urðarbraut 20, s. 95-4581.
Skagaströnd Ingibjörg Skúladóttir, s. 95-4885.
Sauðárkrókur Guttormur Óskarsson, Skaf.braut 25, s. 95-5200.
Siglufjörður Friðfinna Símonardóttir, Aðalgötu 21, s. 96-71208.
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, s. 96-62308.
Dalvík Brynjar Friðleifsson, Ásvegi 9, s. 96-61214.
Grenivík Ómar Þór Júlíusson, Túngötu 16, s. 96-33142.
Húsavik Hafliði Jósteinsson, Garðarsbraut 53, s. 96-41765.
Kópasker Þórhalla Baldvinsdóttir, Akurgerði 7, s. 96-52151.
Raufarhöfn Ófeigur I. Gylfason, Sólvöllum, s. 96-51258.
Reynihlíð Þuríður Snæbjarnardóttir, Skútahrauni 13, s. 96-44173.
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson, Austurvegi 1, s. 96-81157.
Breiðdalsvík Jóhanna Guðmundsdóttir, Selnesi 36, s. 96-5688.
Borgarfjörður eystri Hallgrímur Vigfússon, Vinaminni.
Vopnafjörður Jóhanna Aðalsteinsdóttir, s. 97-3251.
Egilsstaðir Páll Pétursson, Árskógum 13, s. 97-1350.
Seyðisfjörður Svanur Sigmarsson, Oddagötu 4, s. 97-2360.
Neskaupstaður Marín Árnadóttir, Víðimýri 18, s. 97-7523.
Eskifjörður Jónas Bjarnason, Strandgötu 73, s. 6262.
Reyðarfjörður Marinó Sigurbjörnsson, Heiðavegi 12, s. 97-4119.
Fáskrúðsfjörður Sonja Andrésdóttir, Þingholti, s. 97-5148.
Stöðvarfjörður Stefán Magnússon, Undralandi, s. 97-5839.
Djúpivogur Rúnar Sigurðsson, Garði, s. 97-8820.
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir, Smárabraut 13, s. 97-8255
Hvolsvöllur Bára Sólmundardóttir, Sólheimum, s. 99-8172.
Hella Hrafnhildur Þórarinsdóttir, Geitasandi 3, s. 99-5904
Selfoss Helga Snorradóttir, Tryggvavegi 5, s. 99-1658.
Stokkseyri Sturla G. Pálsson, s. 99-3274.
Eyrarbakki Ragnheiður Marteinsd, Hvammi, s. 99-3402.
Þorlákshöfn Þóra Sigurðardóttir, Sambyggð 4, s. 99-3924.
Hveragerði Sigríður Ósk Einarsdóttir, Heiðabrún 46, s. 99-4665
Vík Guðrún Árnadóttir, Mánabraut 14, s. 99-7233.
Vestmannaeyjar Ingveldur Gísladóttir, Bröttugötu 26, s. 98-2270.
Grindavík Sólveig Valdimarsdóttir, Efsta Hrauni 17, s. 92-8583
Garður Kristjana Óttarsdóttir, Lyngbraut 6, s. 92-7058.
Sandgerði Snjólaug Sigfúsdóttir, Suðurgötu 18, s. 92-7455.
Keflavík Guðríður Waage, Austurbraut 1, s. 2883.
Ingibjörg Einarsdóttir, Suöurgjötu 37, s. 4390.
Ytri Njarðvík Kristinn Ingimundarson, Hafnargata 72, s. 3826.
Innri Njarðvík Guðríður Árnadóttir, Kópabraut 16, s. 92-6074.
Hafnarfjörður María Sigþórsdóttir, Austurgötu 29, B, S. 54476.
Garðabær Sigrún Kristmannsdóttir, Hofslundi 4, s. 43956.
Mosfellssveit Jónina Ármannsdóttir, Arnartanga 57, 666481