NT - 14.02.1985, Síða 1
Rétthafamál í Bæjarþingi:
Krefst lögbanns
á tölvuforriti
| „Brenr iivínsskattar“ Alberts:
Færa veitinga- —i r-J
i húsi *n i um og þjónum
mill jónir króna
Áfengisverð hækkað 31% um-
fram almennt verðlag á s.l. ári
■ Bæjarþing Reykjavík tekur
væntanlega í dag til dóms lög-
bannsbeiðni Tölvubúðarinnarhf.
á gcrð, notkun og drcifingu ís-
lensku forritaþróunarinnar á
svokölluðum Plús forritum og
hugbúnaði. Telur lögbannsbeið-
andi að forrit þessi hafi verið
unnin í sínu fyrirtæki á þeim tíma
þegar eigendur íslenskrar forrita-
þróunar unnu þar en þeir síðan
numið þau á brott með sér þegar
þeir hættu störfum hjá Tölvubúð-
inni og stofnuðu eigið fyrirtæki.
Er hér um prófmál að ræða því
hliðstætt mál um höfundarétt á
forritum hefur ekki komið upp
áður. Forritin sem hér um ræöir
eru bókhaldsforrit og heita þau
Plús forrit hjá báðum fyrirtækjun-
um.
■ Sú ákvörðun fjármála-
ráðuneytisins að auka tekjur
ríkissjóðs með stóraukinni
skattlagningu á áfengi hefur
um leið fært vínveitingahúsn-
um í landinu og harþjónum
tugi milljóna króna tekjur -
a.m.k. 30-40 milljónir kr. -
umfram það sem aðrar at-
vinnugreinar og aðrir
launþegar hafa fengið í sinn
hlut. Afengi hefur hækkað í
verði um 66% að meðaltali á
s.l. ári, á sama tíma og al-
mennt verðlag hefur að með-
altali hækkað um 26-27% og
almcnn laun álíka mikið.
Samkvæmt upplýsingum
dómsmálaráðuneytisins hef-
ur álagningarprósentu veit-
ingahúsa ekki verið breytt á
þessu tímabili, þannig að
nærri lætur að tekjur veit-
ingahúsa og barþjóna af á-
fengissölu í húsunum hafi
hækkaö um rúm 30% umfram
almennar verðlags- og launa-
hækkanir. Ymis fordæmi eru
fyrir því, við svipaðar að-
stæður, að álagningarpróes-
enta í smásölu hafi verið
lækkuð, cða krónutöluálagn-
ing verið tekin upp í stað
fastrar prósentuhækkunar.
Þetta átti sér m.a. stað við
verðlagningu á mjólk á áruni
áður.
„Hafi álagningarprósenta
vínveitingahúsanna ekki ver-
ið lækkuö og þjónustugjaldið
er óbreytt, þá eru veitinga-
húsin og þjónarnir beinlínis
að hagnast á hinni auknu
skattlagningu ríkisins á
áfengið, sem gerð er til að fá
fleiri krónur í ríkiskassann,"
sagði Jóhannes Gunnarsson.
hjá Verðlagsstofnun m.a.
þegar málið var borið undir
hann.
„Mér vitanlega hefur ekki
verið rætt um breytingu á
álagningarprósentu veitinga-
húsanna." sagði Ólafur W.
Stefánsson, í dómsmálaráðu-
neytinu. - Þessar verðhækk-
anir á áfengi koma í nokkr-
um bylgjum. Ég held að til
lcngri tíma litiö svari þessar
hækkanir nokkurn veginn til
hækkana á kaupgjaldi. Það
kom t.d. fram hjá stóru
áfengismálanefndinni á sín-
um tíma að áfengisverð hafi
- fyrir t.d. 2-3 árum cöa svo
- eitthvað dregist aftur úr í
hlutfalli við annað verðlag,
sagði Ólafur.
Spasský
vann
Hansen
■ Aðeins ein skák
vannst á afinælismóti
Skáksainbandsins í gær-
kvöldi. Iloris Spasský
lagði Curt Hansen lieims-
nieistara unglinga að velli
og er þar mcö í efsta sæti,
þútt það segi rcyndar ekki
stóra sögu svo sncmma
inóts.
Keyrði yfir
á rauðu Ijósi
■ Árekstur varö á mótum Höfða-
bakka og Vesturlandsvegar í gær-
dag þegar saman skullu fólksbifreið
og lítil sendibifreið. Tvennt var í
hvorum bíl. Hhiut ökumaðurfólks-
bifreiðarinnar minni háttar meiðsli
og var fluttur á slysadeild. Að sögn
lögreglu er fullvíst að annar bíllinn
hcfur ekið yfir á rauðu án þess að
hægt sé að íullyrða nánar um
tildrög slyssins.
Skreiðarsölumenn í Nígeríu:
Beðið eftir inn-
flutningsheimild
■ Nígerísk stjórnvöld hafa
enn ekki svarað því, hvort þau
muni heimila innflutning á ís-
lenskri skreiö. Þrír tslcnskir
skrciðarsölumenn hafa verið
þar syðra á fjórðu viku til þess
að þrýsta á nígerísk yfirvöld um
þetta, svo og til aö þrýsla á um
greiðslu á skuldum Nígcríu-
Leigubílstjórar:
Vilja 21% hækkun
■ Leigubílstjórar liafa sent
verðlagsstjóra beiöni um að fá
21% hækkun á töxtum leigu-
bíla. Málið hefur ekki veriö
afgreitt.
■ Mikill vafnselgur varð
á Laugvegi í gær er sfór
vatnsæð rofnaði. Æðina
rauf skurðgrafa er var að
vinna við gröft. Sjá nánar
bls. 2.
NT-mynd: Kóbcrt.
manna við skreiðarfram-
leiðendur hér.
Að sögn Hannesar Hall hjá
Skrciðarsamlaginu er vonast
eftirsvari Nígeríumanna á næst-
unni. Hann sagöi, aö lslending-
ar vildu selja þeim allar birgðir,
sem til væru í landinu, 220-240
þúsund pakka. og nieira til.
Viðbrögð
Treholts
við bók
konu hans
Sjá bls. 21
Heimsmeistaraeinvígmu í skák frestað um óákveðinn tíma
Karpov með taugaáfall?
Moskva-Reuter
■ Heimsmeistaraeinvíginu í
skák hefur verið frestað um
óákveðinn tíma og er heilsufari
Karpovs kennt um.
Kampomanes, ■ forseti
FIDE, gaf fyrirskipun í gær
um að fresta ætti 49. keppnis-
skákinni, sem tefla átti í gær.
Samkvæmt heimildum í
Moskvu er ástæðan fyrir frest-
uninni sú að Karpov er undir
niiklu andlegu álagi og segja
skákskýrendur að tvær síðustu
skákirnar hafi Karpov teflt illa.
Staðan í einvíginu er þannig
að Karpov hefur unnið 5 skákir
og þarf aðeins að vinna eina
enn til að tryggja sér titilinn,
en Kasparov hefur unnið 3,
þar af tvær í síðustu tveimur
skákum.
Embættismenn við einvígið
hafa neitað að staðfesta að
Karpov væri veikur. en næsta
skák einvígisins hefur ekki enn
verið dagsett.
Heimsmeistaraeinvígiö
hófst 10. september og hefur
staðið linnulaust síðan, en fyrir
stuttu var skipt um einvígisstað
- hætt að tefla í glæsilegri 18.
aldar höll, og einvígið flutt í
úthverfahótel. Samkvæmt
heimildum í Moskvu er kostn-
aður við einvígið orðinn ærinn
og farinn að vaxa stjórnvöldum
þar í augum.