NT - 14.02.1985, Blaðsíða 19
tilkynningar
Jörð óskast
Góð jörð óskast til leigu.
Skipti á 3 herb. íbúð í Kópavogi kemur til
greina. Tilboð sendist á auglýsinqadeild NT
merkt Y-356.
flokksstarf
Hafnfirðingar
Almennur félagsfundur veröur haldinn
í Framsóknarhúsinu,
Hverfisgötu 25, mánudaginn 18. febrúar kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Fjárhagsáætlun Hafnarfjaröar 1985.
2. Önnur mál.
Framsóknarfélögin.
Miðstjórnarfundur
S.U.F.
Miðstjórnarfundur S.U.F.veröur
haldinn laugardaginn 2. mars í
Reykjavík.
Aöalmál fundarins: Fjölskyldu-
pólitík.
Formannafundur F.U.F.
félaga veröur sunnudaginn 3.
mars í Reykjavík.
Nánar auglýst síöar.
Stjórn S.Ú.F.
Endurskinsmerki |^ggna
umferðinni.
Dokkklæddur vegfarandi sóst
ekki fyrr en í 20 — 30 m. fjarlægö en með endurskinsmerki sést
frá lágljósum bifreiöar. hann í 120—130 m. fjarlægö.
t
Þökkum auðsýnda samúö og hlýhug viö fráfall
Gests Jónssonar,
Villingaholti.
Sérstakar þakkir færum viö læknum og öllu starfsfólki á
Sjúkrahúsi Suöurlands.
Systkinabörn og aörir aðstandendur.
Útför mannsins míns
Baldurs Gunnarssonar
fyrrum garðyrkjubónda í Hveragerði,
Engihjalla 1, Kópavogi
veröur gerð frá Hverageröiskirkju laugardaginn 16. febrúar
n.k. kl. 14.00.
Sigríður Ellertsdóttir.
Ástkær eiginmaöur minn - faðir okkar, sonur, bróöir, mágur
og tengdasonur,
Böðvar Pálsson,
matreiðslumeistari, Hvanneyri, Borgarfirði,
sem andaðist 10. febrúar, veröur jarösunginn frá Stykkis-
hólmskirkju laugardaginn 16. febrúar kl. 14.
Minningarathöfn fer fram frá Hvanneyrarkirkju föstudaginn
15. febrúar kl. 15. Þeir sem vilja minnast hans vinsamlegast
látiö Hjartavernd njóta þess.
Rósa Marinósdóttir,
Oddný Eva Böðvarsdóttir,
Sæmunda Þorvaldsdóttir,
Áslaug K. Pálsdóttir,
Sesselja Pálsdóttir,
Ásgerður A. Pálsdóttir,
SigrúnFinnsdóttir,
og aðrir
Særún Ósk Böðvarsdóttir,
Páll Oddsson,
ÓlafurGústafsson,
Þorbergur Bæringsson,
ÞorvaldurÁ. Pálsson,
MarinóTryggvason,
vandamenn.
Fimmtudagur 14. febrúar 1985 19
ýtlönd
Eiturlyfjasalar flytjast frá
Amsterdam til annarra borga
Frá Reyni Þór Finnbogasyni frcttaritara !\T í
Hollandi:
■ Harðar aðgerðir lögregluyf-
irvalda í Amsterdam gegn eitur-
lyfjasölum og neytendum virðist
draga þann dilk á eftir sér að
eiturlyfjasalar og neytendur
hafa fært sig til. Nokkur hluti
heröínverslunarinnar hefur t.d.
flust til Haarlem og Beverwijk í
nágrenni Amsterdam. Hópur
eiturlyfjaneytenda þar hefur
stækkað og hefur það ýntis
vandamál í för með sér. í Haar-
lem hefur skráðum eiturlyfja-
neytendum fjölgað unt helming
á einu ári, upp í 450. Stór hluti
þeirra neytenda. sem handtekn-
ir hafa verið fyrir innbrot.er frá
Amsterdani.
Blaðafulltrúi lögreglunnar í
Haarlent, W. Jansen, sagði að
rnargir eiturlyfjasalanna reyndu
að selja vöru sína í Haarlem þar
sem þeim er gert þaö mjög erfitt
í Amsterdam. „Við höfum ekki
enn lent í stórerfiðleikum vegna
þessa en því er ekki að neita að
þetta er mikið áhyggjuefni hjá
okkur."
Lögreglan í Haarlem reynir
nú að auka eftirlit með þeim
hverfum þar sent grunur leikur
á að eiturlyfjaneytendur dvelji.
Hún reynir líka að koma í veg
fyrir verulega alvarlegt ástand
nreð því að elta uppi stórsalana
en ekki neytendurna sem eru
aðeins með örlítið á sér.
í Beverwijk erenginn heróín-
neytandi á skrá en Ijóst er að
eiturlyfjasala og neysla þar hef-
ur aukist mikið. Sem dæmi má
nefna að glæpum fjölgaði um
30% á síðasta ári. „Hér áður
fyrr fór fólk héðan til Amster-
dam til að kaupa eiturlyf, enda
stutt að fara, en nú hafa málin
snúist við," sagði J.A. Schoen
yfirmaður lögreglunnar í Bever-
wijk. Eins og í Haarlem hefur
lögreglan í Beverwijk hert að-
gerðir sínar verulega.
Þessi þróun vekur litla undr-
un lögreglunnar í Amsterdam.
Átti forsvarsmaður hennar von
á að eiturlyfjamarkaðurinn
myndi aftur færast til ef lög-
regluyfirvöld í Haarlcnt og
Beverwijk tækju söniu stefnu
og gert var í Amsterdam.
Ljós
lækna
þung*
lyndi
New York-Reuler.
■ Bandarískir vísindamenn
við Geðheilbrigðisstofnun
Bandaríkjanna hafa komist að
þeirri niðurstöðu að björt Ijós
geti læknað skammdegisþung-
lyndi.
Dr. Norman Rosenthal og
samstarfsmenn hans hjá Geð-
heilbrigðisstofnuninni hafa
komist að því að fólki, sem
þjáðist af þunglyndi yfir vetrar-
mánuðina, leið yfirleitt betur ef
það var látið vera í björtum
ijósum daglega í allt að. sex
klukkustundir. Efþessumgervi-
sólskinsstundum var hætt, varð
fólkið aftur þunglynt nokkrum
dögum síðar.
Rosenthal segir að í skamnr-
deginu þjáist sumir einstakling-
ar af þunglyndi sem leiði til þess
að þeir sofa of mikið, borða of
mikið og hægja á allri líkams-
starfseminni. En á sumrin hverf-
ur þetta þunglyndi þeirra yfirleit
aftur.
í grein sem birtist í banda-
ríska læknatímaritinu „Americ-
an Journal of Psychiatry" veltir
Rosenthal því fyrir sér hvort
íjósameðferðin hafi ekki dregið
úr framleiðslu á melatonin sem
er eitt margra hormóna sem
tengjast þunglyndi.
kjör fyrir háskólaborgara
Kína:
Betri
■ Nú í janúar komu aftur upp veggblöð í Pekingháskóla. Yfirskrift veggblaðsins sem þessi nemandi
er að lesa er „Hvenær kemur vorregnið?“ simmnvnd: Poiroto.
■ Menntamálaráðherra Kín-
verja, He Dongchang, hefur
viðurkennt að kröfur háskóla-
nemenda um bættan aðbúnað
séu réttmætar. Hann hefur lofað
því að komið verði til móts við
kröfur þeirra þótt mótmælaað-
gerðir stúdenta að undanförnu
hafi strangt tekið ekki verið
löglegar.
Allt frá því að kínverskir
leiðtogar sögðu skilið við ofur-
róttækni menningarbyltingar-
innar í lok síðasta áratugar hafa
þeir öðru hverju gefið út yfirlýs-
ingar um mikilvægi menntunar
og menntamanna. í raun og
veru hafa kjör menntamanna
samt batnað mun hægar en kjör
bænda og verkamanna að
undanförnu.
Menntamenn eru margir
mjög óánægður yfir því að fá
ekki efnalega umbun í samræmi
við allt lofið sem ráðamenn
landsins og fjölmiðlar hafa látið
frá sér fara um menntun. Há-
skólaborgarar hafa verið sér-
staklega harðorðir í gagnrýni
sinni á slæman aðbúnað í kín-
verskum menntastofnunum.
Þeir hafa meira að segja gripið
til ólöglegra mótmælaaðgerða
eins og veggblaðaskrifa og farið
í mótmælagöngur til að leggja
áherslu á kröfur sínar.
Upp úr sauð fyrir nokkru í
Pekingháskóla þegar ákveðið
var að taka rafmagn af skólan-
um seint á kvöldin til þess að
spara rafmagn. Þetta varð til
þess að öll óánægja nemenda og
margra kennara við skólann
braust fram í veggblaðaskrifum
og mótmælagöngum. Nemend-
ur kvörtuðu yfir lélegu fæði í
mötuneyti skólans sem færi
stöðugt versnandi á sama tíma
og verðið á því hækkaði. Þeir
kvörtuðu einnig yfir lélegri
kennslu í mörgum greinum og
kröfðust meira valfrelsis við
námið.
Margir kennarar tóku líka und-
ir kröfur nemenda um bætta
náms- og rannsóknaraðstöðu;
bæði kennarar og nemendur
sögðust margoft hafa kvartað
yfir þessum atriðum eftir venju-
legum leiðum en seinagangur í
stjórnkerfinu væri svo mikill að
þeir hefðu séð sig nauðbeygða
til að grípa til opinberra mót-
mælaaðgerða til að vekja athygli
yfir\'alda á því ófremdarástandi
sem ríkti í niálefnum háskólans.
Pekingháskóli er einn stærsti
og virtasti háskóli Kínverja og
líta margir á hann sem fyrir-
mynd annarra skóla. Kröfur
nemenda þar eru taldar eiga sér
hljómgrun meðal nemenda í
öðrum menntastofnunum út um
allt Kína.
Kínadagblaðið skýrði frá því
í seinustu viku að á ráðstefnu
skólastjóra æðri menntastofn-
ana Kína hefði menntamála-
ráðherra Kínverja He Dongc-'
hang m.a. sagt að það sé nauð-
synlegt að taka tillit til krafna
ncmenda um betri mat í mötu-
neytunum, meira valfrelsi við
nám og bætta kennslu. En hann
sagði að jafnframt því sem tekið
yrði tillit til þessara krafna yrði
að auka uppfræðslu meðal nem-
cnda til að leiðrétta rangar og
einhliða hugmyndir þeirra.