NT - 14.02.1985, Page 23

NT - 14.02.1985, Page 23
■ Brotið var á Þorbirni Jenssyni fyrirliða. Júgóslavar komust upp með að leika mjög grófan varnarleik í gærkvöldi. Ísland-Júgóslavia: W Sagt eftir leikinn ■ Kristján Arason: Ég fann mig alls ekki í þessum leik. Ég var sér- lega slakur í síðari hálf- leik. Það gekk hreinlega ekkert upp og allt sem ég reyndi að gera klúðraðist einhvern veginn. Ég er mjög vonsvikinn en það eru ekki alltaf jól. Bogdan landsliðsþjálfari: Að tapa leiknum í kvöld með 5 mörkum er fullmikið. Júgóslavarnir voru betri og áttu skilið að sigra, en þetta var of stórt. Dönsku dómararn- ir misstu tök á leiknum og leyföu Júgóslövum að komast upp með of gróf- an leik. Við eigum mest- an möguleikann í dag. Bjarni Guðmundsson: Ég er mjög óánægður rneð dómgæslu í þessum leik. Þessir Júgóslavar höguðu sér stórilla og dönsku dómararnir sáu aldrei neitt athugavert við leik þeirra. Júgóslavneski þjálfarinn Zivkovic Zoran: Við stefnum auðvitað að sigri á morgun. Við erum með marga góða leikmenn og ég held að úthaldið hjá okkur sé betra en hjá íslendingum þannig að við eigum meiri möguleika í þriðja leikn- um. í kvöld voru bæði liðin taugatrekkt, og allt lék í lyndi hjá íslending- unurn meðan þeir höfðu úthald og „taktík" en þá skortir greinilega úthald, það sást í síðari hálfleik. Islendingar yf irspilaðir af Júgóslövum í seinni hálfleik - eftir að hafa verið yfir í hálfleik 8-7 ■ Júgósiavar báru sigurorð af íslendingum í landsleik í hand- knattleik sem fram fór í íþrótta- húsinu í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Lokatölur leiksins urðu 20-15, eftir að íslendingar höfðu haft ytír í leikhléi 8-7. Leikurinn var nokkuð tvískipt- ur. Fyrri hálfleikurinn var góð- ur hjá íslenska liðinu. Þeir spiluðu kröftuga sókn, með Sigurð Gunnarsson sem sinn besta mann, og varnarleikurinn var afar sterkur. Júgóslavneska liðið spilaði þófkennt í fyrri hálfleik. og var sóknin hreint og beint léleg. Síðari hálfleikurinn var alger andstæða þess fyrri. Júgóslavar spiluðu rnjög góða vörn, en um leið grófa. og ekki bætti úr skák að dómararnir dönsku voru afar slakir. íslenska liðið átti slæman seinni hálfleik, og sér- staklega var sóknarleikurinn í molum. Gangur leiksins í stuttu máli var þannig: Júgóslavarnir sem hófu leikinn í gær, voru allir frá liðinu Sabac sem FH-ingar mæta í fjögurra liða úrslitum Evrópumeistarakeppninnar. Júgóslavar hófu leikinn, og strax á fyrstu mínútu varði Einar Þorvarðarson glæsilega skot af línu. Vukovic opnar leikinn með ntarki af línu. Sig- urður Gunnarsson jafnar metin. Næsta rnark var júgó- slavneskt að uppruna og átti Vujovié heiðurinn af því. Nú sögðu íslendingarnir stopp og gerðu næstu fjögur mörk. Um miðjan fyrri hálfleik var staðan orðin 5-2 fyrir fslendinga. Und- ir lok leiksins var staðan 8-5 fyrir Island. Þegar þrjár mínút- ur eru til leiksloka taka Júgó- slavar Sigurö Gunnarsson úr umferð, og gafst það vel. Isak- ovic skorar tvö síðustu mörkin í hálfleiknum, og staðan var 8-7 í leikhléi eins og áður segir. Vörn tslenska liösins í fyrri hálfleik var góð, þeir léku framarlega, og börðust vel, með Pál Ölafsson sem „indíána". Sóknin var sterk, með Sigurð Gunnarsson besta mann íslenska liðsins í fararbroddi, ogskoraði hann fjögur mörk í fyrri hálf- leik. íslendingar byrjuðu síðari hálfleikinn vel, og var staðan 12-10, þegarliðið varáhálfleik- in, en þá kom afar slakur kafli hjá íslenska liðinu, og Júgó- slavar komast yfir. Þegarseinni hálfleikur var hálfnaður var staðan 15-13 Júgóslövum íhag. Sigurður Gunnarsson skorar 14. rhark íslands, með upp- stökki. Bjarni Guðmundsson fiskar víti, sem Kristján Arason tók, og ætlaði Kristján að vippa yfir Basié markvörð, en boltinn fór yfir slána. Gott tækifæri forgörðum þar. Þegar sex mín- útur voru til leiksloka, er stað- an 17-15. Þær sex mínútur sem eftir lifðu af leiktímanum, skor- uðu íslendingar ekkert mark, en Júgóslavar bættu við þremur mörkum. og sigruðu í leiknum með 20 mörkum gegn 15. í síðari hálfleik misstu dönsku dómararnir tökin á lciknunt, og komust Júgóslavar upp með mjög grófa vörn. Mörk Islands gerðu: Siguröur Gunnarsson 6, Kristján Ara- son, Þorbjörn Jensson og Bjarni Guðmundsson 2, Guð- mundur Guðmundsson, Þor- bergur Aðalsteinsson og Páll Ólafsson 1 mark hver. Isakovic skoraði mest þeirra Júgóslava, eða 8 mörk, og var óstöðvandi. Minning: íslendingar léku meðsorgarbönd ■ Karla- og kvenna- landsliðið í blaki léku með sorgarbönd í lands- leikjunum sem fram fóru í gærkvöldi. Minnst var fallins félaga Sigurðar Björnssonar, sem lést af slysförum í Malaysíu síð- astliðinn sunnudag. F.ftir að fyrsta uppgjöf hafði verið gefin upp í leik kvennalandsliðsins, gripu íslensku stúlkurnar boltann, og þögn var í salnum í eina mínútu. Sigurður Björnsson lék og æfði með fyrstudeild- arliði Fram, einnig var hann þekktur dómari, í blakíþróttinni. Sigurður var 25 ára gamall. Mjólkurbikarinn: Sunderland í ■ Tveir leikir voru fyrir- hugaðir í undanúrslitum í gærkvöldi í enska mjólkur- bikarnum, Sunderland lék við Chelsea og Ipswich átti að leika við Norwich. Sund- erland sigraði með tveimur mörkum gegn engu. Colin West skoraði bæði mörk Sunderland, og bæði úr víti. Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Sunderland. Chelsea missti Joe McClougan útaf snemma í leiknum, og Colin Lee meiddist í leiknum, og lék það sem eftir var leiksins hálfmeiddur. Leikmenn Chelsea voru í raun ekki nema tíu þar sem Colin var meidddur. 33.000 áhorfend- úrslit ur komu á leikinn. Fresta varð leik Ipswich og Norwich. þar sem aðstæð- ur voru það slæmar, að ekki var taliö leikhæft. Ekki voru nema þessir tveir leikir fyrirhugaðir, í Milk cup, en einn leikur fór fram í þriðju deild. Bradford sigraði Bristol Rovers 2-0. Blaklandsliðið í Færeyjum: Tvöfaldur sigur yfir Færeyingum Kvennaliðið sigraði 3*0 - Kristján Már Unnarsson maður leiksins ■ Það var tvöfaldur sigur hjá íslensku blaklandsliðunum í Færeyjuin í gærkvöldi. Karla- landsliðið sigraði með þremur hrinum gegn einni, og kven- mennirnir gerðu enn betur og unnu færeysku stúlkurnar 3-0. Kvennaleikurinn var spenn- andi þrátt fyrir að íslensku stúlkurnar hefðu yfirhöndina allan leikinn. Hrinurnar fóru sem hér segir: 15-11, 15-10, og 15-10. Það setti nokkuð svip sinn á leik stúlknanna að minnst var félaga sem fallinn er frá, Sigurðar Björnssonar. sem minnst er hér á síðunni. Karlaliðið sigraði í leik sínum, og var sá leikur einnig æsispennandi og öruggt að áhorfendur fengu mikið fyrir auranasína. Einsogáðursegir endaði leikurinn með 3-1 fyrir ísland. í fyrstu hrinunni byrj- uðu íslendingar með látum og komust í 9-0. Staðan var síðan 14stiggegn3,en ílokhrinunn- ar náðu færeysku strákarnir að bjarga andlitinu og lokatölur hrinunnar urðu 15-6 fyrir ís- lendinga. í næstu hrinu sigruöu færeysku strákarnir. þeir náðu upp góðri baráttu, og urðu lokatölur hrinunnar 10-15 fyrir Færeyinga. Þessi hrina hleypti mikilli spennu í leikinn. Is- lensku strákarnir voru ekki af baki dottnir, og sigruöu næstu hrinu með 15-2. Lokahrinan varaði í hvorki meira né minna en 35 mínútur, og urðu loka- tölur 19-17 fyrir íslendinga. íslenskur sigur í höfn. Maður leiksins var nýliðinn Kristján Már Unnarsson sem lék hreint ótrúlega vel. Krist- ján lék allan leikinn. og áttu færeyskir frændur okkar ekk- ert svar við föstum skell hans. Kristján Már er leikmaður með fyrstudeildarliði Fram, og sá eini þeirrá sem er í landslið- inu.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.