NT - 01.03.1985, Síða 3
■ Brynja Runólfsdóttir
er í forsvari fyrir ferða-
skrifstofuna Polaris. Hún
hefur umsjón með dagleg-
um rekstri hennar, en for-
stjóri er Páll G. Jónsson.
Við slógum á þráðinn til
Brynju til að forvitnast um
starfsemi Polaris.
♦
Hún fræddi okkur um það,
að Polaris hefði fengið ferða-
skrifstofuleyfi árið 1978, en
áður hefði fyrirtækið rekið um-
boðsskrifstofu fyrir Pan
American, bandaríska flugfé-
lagið, frá árinu 1976. Polaris er
enn aðalumboðsskrifstofa
PanAm á íslandi.
- Hvernig ferðir hafið þið á
boðstólum?
-Við bjóðum hvað sem er,
hvert sem er, sagði Brynja. -
En á svona lítilli ferðaskrif-
stofu verður þjónustan mun
persónulegri en hjá hinum
stóru. Hér starfa þrír menn, og
allir eru vel inni í öllum málum
sem við erum að fást við. Við
höfum lagt aðaláherslu á við-
skiptaferðir, og okkar helstu
viðskiptavinir eru athafna-
menn, sem þurfa að ferðast oft
til útlanda starfs síns vegna.
En að sjálfsögðu reynum við
að þóknast öllum ferðamönn-
um, og til dæmis erum við með
skíðaferð í vetur. Hún verður
Föstudagur 1. mars 1985 3 Blaðll
Hvað sem er
hvertsemer
undir stjórn Valdimars Örn-
ólfssonar, frá 9. til 23. mars.
Staðurinm heitir Sahnbach og
er skammt frá Salzburg. Þátt-
taka í ferðinn er góð.
- Fleiri liópferðir áætlaðar
hjá ykkur?
- Nei, við erum ekki með
sólarlandaferðir í beinu leigu-
flugi eins og aðrir, heldur fara
okkar sólarferðir í gegnum er-
lendar ferðaskrifstofur. Við
höfum lagt áherslu á, að ná
sambandi við góðar ferðaskrif-
stofur, bæði í Bretlandi og
Hollandi. Sumum hentar þetta
betur, því að þegar út er komið
má fá ýmist sjö eða fjórtán
daga ferðir.
■ Skíðaferð til Sviss með
Valdimar Örnólfssyni er næst
á dagskrá, sagði Brynja Run-
ólfsdóttir hjá Pólaris.
Við höfum lagt mikla
áherslu á að hafa alltaf til reiðu
sem mestar og bestar upplýs-
ingar um fargjöld innan
Bandaríkjanna, og jafnframt
höfum við leitast við að hafa
alltaf nýjustu upplýsingar um :
þessa svokölluðu Ameríku-
passa.
- Hvað eru Ameríkupassar?
- Það eru fargjöld innan
Bandaríkjanna, þar sem mað-
ur er að vísu bundinn einu
flugfélagi, en getur flogið á
milli þriggja og allt upp í ellefu
staða á landinu, - fyrir afskap-
lega hagstætt verð. En aðsjálf-
sögðu er verðið alltaf að breyt-
ast, og það er mismunandi
milli flugfclaga.
- Hafið þið kannski sérhæft
ykkur að einhverju leyti í
Bandaríkjaferðum?
- Ég veit ekki hvað skal
segja um það, en líklega hefur
þetta kontið til vegna tengsla
okkar við Pan American. Fólk
hringir hingað oft til að spyrj-
ast fyrir um ýmislegt á vegum
Pan Ameriean. En við erum
að sjálfsögðu ekkert bundin
PanAm eingöngu. Við reynum
að sníða vinnu okkar eftir
þörfum viökomandi ferða-
manns.
- í hverju eru umboösstörf
fyrir PanAm helst fólgin?
- Við höfum allar handbæk-
ur flugfélagsins, viö eigum að
hafa verö á öllum leiðum sent
það flýgur á, og samskipti við
félagið ganga mjög greitt, ef
einhverjar upplýsingar vantar.
Við sjáum auðvitaö um
farseðlaútgáfu á þcirra leiöum,
og höfum meöal annars verið
með „Around the World" -
miða.
- Hvað kostar að fara um-
hverfis jörðina?
- Það kostar rúmar 55 þús-
und krónur, frá Lundúnum til
Lundúna. Þá er ekki innilalið
'verðiö héöan til Lundúna.
rÖSTUDAGUR
LAUGARDAGUR
SUNNUDAGUR
Diskotek — Glæsileg tískusyning frá flónni
í höndum The fashion force.
Opið frá kl. 21—03.
Kráin — fdda og Steinunn veröa á sínum
eina og sanna staö. finnig spilar Þórarinn
Gíslason á píanó.
Opiö frá kl. 18—03.
Diskótek — Moses Crasy fred veröa í diskó-
tekinu. Opiö frá kl. 21—03.
Kráin — Þórarinn Gíslason spilar á píanó fyr-
ir matergesti. finnig veröur fdda og Stein-
unn Djelly á staönum.
Opiö í hádeginu og frá kl. 18—03.
Diskótek — The fashion force meö enn eina
stórglæsilega tískusýningu frá flónni.
Kokteill borinn fram kl. 22—23.
Opiö frá kl. 21—01.
Kráin — f dda og Steinunn Djelly og Þórar-
inn Gíslason skemmta hjá okkur í kvöld.
Opiö í hádeginu og frá kl. 18—01.
Sælgætiskynning frá GÓIJ hf.
w »■■ »« n
... * * »« , !' i OPI \LLAR 1 IÐ l/ETUF l
smitffukafl li