NT - 01.03.1985, Blaðsíða 7

NT - 01.03.1985, Blaðsíða 7
Föstudagur 1. mars 1985 7 Blðð II ■ Tekið verður á móti gestum með lúðrablæstri og fordrykk. ■ Skemmtistaðurinn Holly- klukkan níu, og verður tekið á wood á afmæli í dag og verður móti gestum með lúðrablæstri. ýmislegt gert til hátíðabrigða. Þegar inn fyrir þröskuldinn er Húsið opnar stundvíslega komið, verðu'r gestum boðið Húllumhæ í Hollywood - sjö ára afmæli í dag uppá fordrykk, konfekt og Skemmtiatriði verða fjöl- fleira góðgæti. Stúlkur fá blóm breytt, og einkennast af í barminn. Aðgangur verður skemmtikröftum sem hafa ókeypis fram til klukkan 11. skemmt í gegnum tíðina í „Lífsspursmál að hafa fleiri en einn sal“ Tveir nýir sýningarsalir teknir í notkun eftir 5 vikur ■ Laugarásbíó ætlar að taka í notkun tvo nýja sýningarsali um páskana. Salirnir verða fyrir 120 manns sá stærri, og 82 sæti verða í þeim minni. Til viðmiðunar er salurinn sem er í notkun í dag ætlaður fyrir 429 manns. Það nýmæli verður við bygg- ingu saiarins að mun rýmra verður í salnum, en kvik- myndahúsgestir eiga að venj- ast hérlendis. Bilið milli sæta verður 95 sm í stað 85 sm sem er algengt hjá kvikmyndahús- um í dag. Þá verður salurinn brattari en algengt er. 30 sm hækkun verður á milli bekkja, þannig að jafnvel körfuknatt- leiksmenn geta nú farið í kvik- myndahús, án þess að verða fyrir gremju áhorfenda sem sitja fyrir aftan. Sjónlína í íslenskum kvik- myndahúsum hefur vanalega verið miðuð við miðju tjaldsins. Að sögn forráða- manna Laugarásbíós verður sjónlína í hinum nýju sýningar- sölum ekki miðuð við miðju tjaldsins, heldur í texta hæð. í samtali við einn af foráða- mönnum Laugarásbíós kom í ljós að framkvæmdir hafa gengið vonum framar, og allir aðilar sem komu nálægt verk- inu stóðu við sína samninga með sóma. Grétar Hjartarson forstjóri sagði í samtalinu við NT að eins og þróunin hefði verið síðustu ár, þá væri það orðið lífsspursmál fyrir kvikmynda- hús á íslandi að geta boðið upp á fleiri en einn sal, og jafnvel fleiri en tvo. Vel getur farið svo að Laugarásbíó frumsýni fleiri en eina stórmynd um páskana, en of snemmt er að segja um það á þessu stigi málsins hvernig staðið verður að þeim málum, fyrr en nær dregur páskum sagði Grétar að lokum. Hollywood. Sem dæmi má nefna að Halli og Laddi líta inn, Baldur Brjánsson skemmtir, Dansstúdíó Sóleyj- ar sínir listir sínar og Módel 79 sem hafa verið oft í Hollywood verðuruneð uppákomu. Guð- rnundur Guðmundsson eftir- herma kemur og hermir eftir fyrir gesti. Á ntorgún verða gestir Hollywood heiðraðir með nær- veru Evrópumeistarans í húð- flúrun. Kappinn ber nafnið Miky Sharp, og verður hann aðeins þessa einu kvöldstund. Miky ntun taka sjálfboðaliða og sýna íslenskum áhorfendum hvernig húðflúrun er framkvæmd. Leikdeild Skallagríms: Höfudborgarbúum gefinn kostur á leikhúsreisum á leikrit Trausta Jónssonar veðurfræðings ■ Leikdeild Skallagríms frumsýndi um síðastliðna helgi leikritið Ingiríður Óskarsdótt- ir. Hótel Borgarnes hefur á kveðið að gefa höfuðborgarbú- um kost á því að sjá þetta leikrit Trausta Jónssonar veðurfræðings, og er boðið upp á leikhúsreisur á vegum hótelsins og leikdeildar Skalla- gríms. Það er Ferðaskrifstofa ríkisins sem skipuleggur ferð- ina, og innifalið í leikhúspakk- anum er rútuferð frarn og til baka, kvöldverður, morgun- matur og gisting á Hótel Borg- arnesi, að ógleymdum miða á leikritið. Verðið er krónur 17(X) fyrir ferðina. Að sögn Theodórs K. Þórð- arsonar formanns leikdeildar Skallagríms hefur aðsókn á þær sýningar sem yfirstaðnar eru verið mjög góð, og fyllsta ástæða til bjartsýni. „Viö horf- um aðallega til starfsmanna- hópa í Reykjavík þegar við erum að auglýsa leikhúsferð- irnar fyrir höfuðborgarbúa." Einnig korn fram hjá Theodór að þó nokkuð hefði verið um fólk utan Borgarness sem mætti á frumsýninguna síðustu , helgi. Leikhúsferðirnar verða farnar með áætlunarferðum frá BSÍ, en komi til að stórir hópar leggi leið sína til Borg- arness, verða einnig á boð- stólum hópferðir, og verður þá hægt að ákveða farar- og komutíma í samráði við Hótel Borgarnes. ■ Úr gamanleikritinu Ingiríður Óskarsdóttir. Höfundur Trausli Jónsson.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.