NT - 01.03.1985, Blaðsíða 8

NT - 01.03.1985, Blaðsíða 8
 ffT? Föstudagur 1. mars 1985 8 Blað II ull ÁBÓT Skemmtanalífid ■ Umhverfið er hið vistlegasta. Innréttingar eru í kínverskum stíl. NT-imndir: Svcrrir ■ Borðað með prjónum að kínverskum sið. Gestir þurfa að leggja mismikið á sig til þess að halda matnum með prjón- unum. Þessi stúlka virðist vera í miklu stríði við kjúklingabit- ann sem hún er með milli prjónanna. Shanghai - Laugavegi 28 ■ Nýr veitingastaður var opn- aður nú fyrir stuttu. Sérgrein staðarins er kínverskur matur, og er fjölbreytnin í fyrirrúmi. Alls eru 105 aðalréttir á mat- seðlinum og einhver fjöldi af forréttum og eftirréttum. Nafn veitingastaðarins er Shanghai, og er hann til húsa að Laugavegi 28. Kokkarnir eru tveir. Yok Khoo og Pang Cheng Theng, og hafa þeir báðir starf- að við matreiðslu á kínverskum veitingastöðum, í Austurlönd- um og cinnig á Norðurlöndum. Blaðamaður NT ræddi við Yok Khoosem kallar sig Gilbert á íslensku. I viðræðum við Gil- bert kom fram að þrátt fyrir að margir staðir svipaðir Shanghai hefðu sprottið upp nýlega, þá væri engin hætta á því að stað- irnir yrðu keimlíkir. Það stafar af því að kínversk matargerða- list er jafn fjölbreytt og mál- lýskurnar eru margar í Kína. Gilbert sagði aó maturinn væri sérstök list sem bundin væri við sérstök landsvæði sem hvert hefði sína mállýskuna. Staðurinn tekur um þrjátíu manns, og telja eigendur það ■ Kokkar og eigendur kínvcrska staðarins Shanghai. vera æskilegan fjölda, svo hægt sé að veita gestunum sem besta þjónustu. Blm. var boðið á Shanghai til þess að smakka hluta af þeim réttum sem matreiddir eru á staðnum. Fyrst var gestum boð- ið upp á te-grænt eða svart-. í forrétt var Tan Wan súpa með núðlum og rækjum. Síðan tóku við aðalréttirnir sem urðu alls fimm talsins. Djúpsteikt súrsætt svínakjöt, djúpsteiktur smokk- fiskur, nautakjöt með bambus- spjótum, hrísgrjóna spaghetti og kjúklingar. í eftirrétt var sfðan boðið uppá mangó ávöxt. Maturinn og þjónustan var frábær, og umhverfið mjög að- laðandi. Þrisvar unnið til verðlauna á 7 árum Hörður Sigurjónsson formaður Barþjónaklúbbs íslands ■ Hingað til hefur einungis verið fjallað um einstaka drykki, en ekki þá menn sem standa á bak við drykkina, kynntur ferill þeirra og vclgengi í kokkteilkeppnum sem haldnar hafa verið. Nú verður breyt- ing á því. í keppnum sem haldar eru innan ákveðins lokaðs hóps eru allt- af nokkrir einstaklingar sem sér- staka eftirtckt hljóta. Einn þeirra er Hörður Sigurjónsson yfirþjónn á Broadway, og formaður Barþjóna- klúbbs fslands. Fyrsta þátttaka Harðar var í long- drink keppni senr haldin var árið 1977. Hörður hristi þá drykk sinn King Kong. Ekki vann Hörður til verðlauna það árið. í þessari keppni sigraði Hafsteinn Egilsson með drykk sínum Fullt hús, senr birtur var í Hanastéli helgarinnar fyrr í vetur. Hörður tekur næst þátt í kokkteil- keppni árið 1979, og hristir þá kokkteil sinn Flipp sem er að góðu kunnur, því kokkteilinn var valinn sá besti í þeirri keppni. Flipp 3 cl. Bacardi Rom 3 cl. Creme de Caco Bols Skvetta Creme de Bananas Bols (ca 3 dropar) Kokkteillinn er hristur, og skreyt- ingin er rautt kokteilber. Árið 1981 kemur Hörður með kokkteil sem hann nefnir Bright- Lady. Hcfðarfrúin nær ekki tilætl- uðum vinsældum, og hlýtur ekki verðlaun. Bright Lady. 3 cl. Lemon Gin 2 cl. Twenty one cherry 1 cl. Dry Dubonnet 2 stk. olífur. Þessi kokkteill er ekki hristur. heldur hrærður. Kokkteillinn Broadway hlýtur önnur verðlaun í kokkteilkeppni árið 1982. 4 \ Broadway 2cl. Rom Bacardi 1 cl. Amaretto 3 cl. Tropicana Skvetta af banana colata mix Skreyting með tveimur rauðum kokkteilberjum, sítrónusneið og pinna. Þriðji verðlaunakokkteillinn sem Hörður Sigúrjónsson fær verðlaun fyrir er Stripper. Hörður hristir Stripper á 20 ára afmælismóti Bar- þjónaklúbbsins árið 1983. Stripper er long drink kokkteill sem vinnur til fyrstu verðlauna, og með þeim drykk má segja að Hörður Sigur- jónsson hafi unnið sér fastan sess meðal gömlu Ijónanna í bransanum. Því verður ekki neitað að Hörður er ungur í bransanum, og rís stjarna hans ört á himni kokkteilanna hér- lendis. Stripper 3 cl. Vodka Smirnoff f,5 cl. Creme de Cako M. Brizard (Ijóst) 1,5 cl. Coconut M. Brizard 1 barnaskeið flórsykur Fyllt upp með Tropicana. Skreyting: Ferskur ananas, 2 rauð kokkteilber, 1 barskeið Grenadin á toppinn, hræripinni og sogrör. Tvívegis hefur Hörður tekið þátt í keppni erlendis. í Júgóslavíu og Hamborg. í bæði skiptin lenti drykkur Harðar í ellefta sæti af áttatíu drykkjum alls, og er það mjög góður árangur. ™«J|í. ■ ■gi':^TiimVniWr«iÍi Broadway: Ríó-tríó treður upp í Broad- way föstudags- og laugardags- kvöld. Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar leikurog söngvar- ar með hljómsveitinni eru Björgvin Halldórsson, Þuríður Sigurðardóttir og Sverrir Guðjónsson. Á föstudag og laugardagskvöld skemmtir dansflokkur frá dansstúdíó Sól- eyjar um miðnættið. Broad- way er til húsa að Álfabakka 8 og síminn er 77500 Hótel Saga: Súlnasalurinn verður lokað- ur vegna einkasamkvæmis á föstudagskvöld. Á laugardags- kvöld verður almennur dans- leikur, og skemmtiatriði - Söguspaug sem nýlega var hleypt af stokkunum. Sunnu- dag verður lokað vegna einka- samkvæmis. Mímisbar verður opinn alla helgina, ogskemmt- ir dúett Andra og Sigurbergs gestum með léttri tónlist. Hót- el Saga er til húsa við Haga- torg, og síminn er 20221. ið til klukkan þrjú eftir mið- nætti. Á laugardag verður lok- að vegna einkasamkvæmis. Sunnudagskvöld leikur hljóm- sveit Jóns Sigurðssonar fyrir gömlu dönsunum. Hótel Borg er við Pósthússtræti 10, og síminn er 11440. Glæsibær: Almennir dansleikir verða í Glæsibæ bæði föstudags og laugardagskvöld. Hljómsveit- in Glæsir leikur fyrir dansi. Ölverið verður opið alla helg- ina, og geta gestir keypt þar bjórlíki bæði föstudags og laugardagskvöld fram til klukkan 3 eftir nriðnætti. Sunnudagurinn verður einnig 1 með í reikningnum hjá Ölver- inu, og verður þá opið til klukkan eitt eftir miðnætti. Glæsibær er í Álfheimum og síminn er 68566Ö. Skálafell á 9. 82200. hæð. Sínrinn er Leikhús- grillið einnig klukkan tíu og geta gestir glatt innri mann með matföngum. Óðal er við Austurvöll, og síminn er 11630. kjallarinn. Traffic: Leikhúskjallaranum verð- ur diskótek bæði föstudags- og laugardagskvöld. Opið er til klukkan þrjú eftir miðnætti og barinn opinn að venju. Leik- húskjallarinn er við Hverfis- götu og síminn er 19636. Naustið: Almen^ir dansleikur verð- ur á föstudagskvöld á Hótel Borg. Diskótek verður og leik- Östudags og laugardags- kvöld mun dansband Kristjáns leika fyrir dansi. Á sunnudag mætá síðan Guðmundur Haukur og Þröstur og leika létt lög fyrir gesti. Hótel Esja er við Suðurlandsbraut 2, og er David Wilby matreiðslu- maður sem kosinn var besti matreiðslumaður á einunr vinsælasta matsölus, London, af tír Timu Naij ragó atreiH studagskvöld, kvöld og sunnudagskvöld leik- ur Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar fyrir dansi. Naustið er við Vesturgötu 6-8 og síminn er 17759. fyiHwgCsti ostur á að réttum sem af Wilby. laugardags- Diskótekið verður opið frá klukkan tíu bæði föstudags- og laugardagskvöld. Þá opnar Það verður mikið að snúast hjá Traffic umhelgina. Föstu- dag verður almennur dansleik- ur frá 10-3, og aldurstakmark er 16 ár. Laugardag verður almennur dansleikur, og einn- ig verður gestum boðið uppá tískusýningu og hárgrej£slu-| sýningu, sem futldin fyrir atbeina ®del*ntáR anna M^%óde% TraTtic og Quatro. A ður endurtekin i fyrir yngri kyn- slóðina sem var síðastliðinn sunnudag frá klukkan 3-6. Um kvöldið á sunnudag verður lokað. Traffic er til húsa að Laugavegi 116, og síminn er 10312. Kópurinn: Hljómsveit Birgis Gunnars- sonar leikur fyrir dansi um helgina. Líf og fjör verður í Kópakránni. Kráin verður einnig opin sunnudag til klukk- an eitt eftir miðnætti. Kópur- inn er við Auðbrekku 12, og síminn er 46244. Þórscafé: Föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld skemmtir Þórskabarett gestum Þórscafé, og kabaretthljómsveitin leikur fyrir dansi Anna Vilhjálms og Einar, úr Pónik og Einar, syngja lög úr þekktum söng- leikjum öll kvöldin. Sunnudaj urinn hefur nokkra sérs* eins og vanalega, þar serrÉe haíið ^^rður í ^fcjfé sunnu^wSSfcild, og h^f gam- ÍTkkaimjö. Þórscafé er ndrolt 20 og síminn Safarí: Það verður diskótek föstu- dags- og laugardagskvöld að venju í Safarí um helgina. Opið frá 10-3 eftir miðnætti. Safarí er við Skúlagötu 30 og síminn er 11555. Hollywood: Hollywood á afmæli á föstu- dag og verður húsið opnað klukkan 9 með lúðrablæstri, og tekið á móti gestui fordrykk og kotr' ' ur verður ókmpis JRáKF u ellefu.wbtt^BLaddi, ánsson^^Teiri góð- Ijár Hollywood mmta gestum. Á laugardag verður diskótek á tveimur hæðum. Gestur kvöldsins verður Miky Sharp Louis en hann er Evrópumeistari.í húð- flúrun. Sunnudagskvöld verð- ur gestum boðið upp á dans- sýningu hjá Hollywoods módels. Sími 81585, *kvöld verða öansalfcir frá klukkan :tir nlfcnætti. Hljóm- Sigurðssonar leikur dansi. Lokað verður vegna einkasamkvæmis á laug- ardag. Sunnudagskvöld verður að venju helgað samkvæmis- dönsum, og er dansskólafólk hvatt til þess að mæta. Ríó er við Smiðjuveg 1 Kópavogi og síminn er 46500. Ypsilon: Sigtún: Opið báða aðaldaga helgar- innar, föstudags- og laugar- dagskvöld frá klukkan 10-3. Grillið verður opið frá klukkan tíu bæði kvöldin. Sigtún er við Suðurlandsbraut og síminn er 685733. Klúbburinn: Opið verður á öllum fjórum hæðum bæði föstudags- og laugardagskvöld í Klúbbnum. Söngsveitin Tvíl leikur föstu- dagskvöld, og diskótek verður á tveimur hæðum. Laugar- dagskvöld verður diskó á þremur hæðunt, og geta gestir slappað af í kjallara. Klúbbur- inn er við Borgartún 32 og síminn er 35355. Diskótekið verður á fullu alla helgina undir stjórn þeirra Krissa Fredd og Móses. Kráin verður opin alla helgina með lifandi músík. Opið verður til klukkan þrjú eftir miðnætti um helgina, en kráin til klukk- an eitt á sunnudagskvöld. Yps- ilon er til húsa við Smiðjuveg 4 og síminn er 72177. Ártún: Föstudagskvöld verða gömlu dansarnir á dagskrá hjá þeim Ártúnsmönnum, og leik- ur hljómsveitin Drekar fyrir dansinum. Laugardag verður lokað vegna einkasamkvæmis. Ártún er til húsa að Vagn- höfða 11 og síminn er 685090. Föstudagur 1. mars 1985 9 Blað II erum búnir að strumpa okkur inné myndbönd. . mgm— -r-rra I 1 LADDI f " 'ZKm hjálpaði okkur að læra J islensku svo að þið £v> getið alveg skillð HyBh' ávT allt sem v'ð segjum, Með íslenskú ’Flutningur ?Laddi. IByym|mmh|{nMím 11 fj I t T T t mm BBI fnWiTnrKiinKirSnuTTMi 1111 wt* LUl bvi strax að fylgjast ævintýrum okkar. [ íslandi: Dreifing: tkoinorhf * * j||

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.