NT - 01.03.1985, Side 5
Föstudagur 1. mars 1985 5 Blðð II
Strumpamir eru
komnir á markað
með íslensku tali
Rascals & Robbers
Leikstjóri: Dick Lowry
Aðalleikarar: Patrick Cre-
adon, Anthony Michael Hall,
Anthony James og Allyn Ann
McLerie
■ Hér er á ferðinni barna-
mynd sem fjallar um unga
stráka, Tom Sawyer og Huck
Finn sem báðir eru eirðarlausir
eins og krakkar eru á þeirra
aldri. I stað þess að mæta í
kirkju er verið að slæpast og
leita eftir ævintýrum. Þeir
lenda líka fljótt í ævintýri er
Tom eltir skuggalegan náunga
að nafni Scree. Tom ríær í
Huck og saman fylgja þeir
Scree leynt eftir og nú er farið
að kvölda; leiðin liggur upp í
kirkjugarð. Scree á stefnumót
við annan þorpara og fyrir
tilviljun heyra þeir Tom og
Huck þegar þessir tveir skúrk-
ar eru að leggja á ráðin um að
svindla á íbúunt bæjarins;
nappa frá þeint 15.000$. Þeir
strákar hafa of hátt og Scree
heyrir í þeim og reynir að elta
þá uppi. Strákarnir rétt ná því
að komast undan á fleka sem
ber þá niður með ánni, en
verða viðskila er flekinn gliðn-
ar í sundur. Scree tekst að
finna Tom og tekur hann til
fanga en Huck tekst fyrir til-
viljun að bjarga honum og þeir
reyna að flýja í burtu en Scree
sér við þeim og nær þeim
báðum. Aftur tekst þeim að
sleppa og nú verður á leið
þeirra sirkus og þeir slást í
hópinn. Einnig slæst svertingi
er verður á vegi þeirra með í
hópinn. Spurningin er bara sú
hvort vondi karlinn Scree nái
að stöðva þá áður en þeir
koma upp um svindlið. Sem
barnamynd held ég að þetta
hljóti að flokkast undir ágætis
efni, ekkert ofbeldi, fyndin á
köflum og spennandi.
J.Þór
★★
■ Nú er kominn á mynd-
bandamarkaðinn teikni-
myndaþáttur með Strumpun-
um þar sem þeir lenda í hinunt
ýmsu ævintýrum. Það sem telj-
ast verður til stórtíðinda er að
inn á þessa spólu talar enginn
annar en Laddi (Þórhallur) og
það er hægt að telja þær spólur
á fingrum annarrar handar sem
komið hafa á markaðinn með
íslensku tali. Ladda tekst væg-
ast sagt alveg frábærlega upp
eins og hans er nú reyndar von
og vísa. Ef ég vissi ekki að
hann væri sá eini sem talaði inn
á hefði ég haldið að leikararnir
væru miklu fleiri, svo ólíkar
eru raddirnar.
Strumparnir, hverjir eru nú
það? Jú, hér eru á ferðinni
bláar skringilegar verur sem
eiga heima í Strumpalandi,
þorpið þeirra heitir auðvitað
Strumpaþorp þar sem yfir-
strumpurinn er æðsti maðurinn
hjá Strumpunum. En þó
Strumparnir séu kátir og hress-
Mest sóttu
kvikmyndir
frá upphafi
Ar Nafn nyndarínnar
1982 EJ.TheExtra-Terrestrial
1977 StarWars
1983 Return of the Jedi
1980 The Empire Strikes Back
1975 Jaws
1984 Ghostbusters
1981 Raiders of the Lost Ark
198* Indiana Jones and ...Doom
1971 Grease
1982 Tootsie
1973 TheExorcist
1972 The Godfather
1978 Superman
1980 Ctose Encounters
1965 THES0UND0FMUSIC
1984 Gremlins
1973 TheStmg
ir þá gildir það ekki urn alla í
þessu ævintýri. í nágrenni við
Strumpana býr vondur galdra-
karl sem heitir Kjartan. Hann
á kött sem heitir Brandur og
saman berjast þeir með kjafti
og klónt gegn Strumpunum.
Af hverju? Vegna [ress að
Kjartani er meinilla við það að
sjá hamingjusama og glaðværa
Strumpa. A þessari spólu sjá-
um við tvö ævintýri þar sem
Strumparnir berjast gegn véla-
brögðum Kjartans og oft má
ekki á milli sjá hvor hefur
betur. En eins og í öllum
góðum ævintýrum sigrar hið
góða í baráttunni við hið illa.
Þar sem ég hafði aldrei lesið
Strumpabók þá ákvað ég að
bjóða tveim strákum úr hverf-
inu, þar sem ég bý, til þess að
horfa með mér á Strumpaspól-
una. Annar þeirra er 5 ára en
hinn er 7 ára. Nú á meðan á
sýningunni stóð heyrðist ekki
„múkk“ í þeim og eftir að
spólan var búin spurði ég þá
hvort þeir hefðu haft gaman af
spólunni.
Niðurstaða þeirra var sú að
þeim hefði fundist þetta mjög
skemmtilegt. Dreifingaraðil-
inn Steinar hf., á hrós skilið
fyrir þetta framtak sem teljast
verður nýjung hér á landi.
Sumir ganga svo langt að segja
að hér sé á ferðinni besta
barnaefni sem komið hefur út
hérlendis. Ekki treysti ég mér
til að dæma um það enda horfi
ég ekki á barnaefni að staðaldri
né veit hvað er á boðstólum
hérlendis. Ég vil að lokum
geta þess að nú er að finna
mikið efni á markaðnum sem
höfðar til barna og flest af því
ermjöggott. Leigurogrétthaf-
ar eiga skilið hrós fyrir það að
hafa tekið sig saman í andlitinu
og bætt úr því ástandi sem var
fyrir u.þ.b. 1 ári. Nú er bara að
vona að fleiri rétthafar fari að
láta tala (leika) inn á barnaefni
'í framtíðinni.
J.Þór
MHtj.dalír
209.9
193.5
165.5
141.6
129.9
127,0
115.5
109,0
96,3
95.1
89,0
86.2
82,8
82.7
79.7
78.5
78,1
16. Greystoke...Lord of the Apes 23,0
17. Tightrope 22,5
18.2010 20,0
19. Yentl 19,6
20. Revenge of the Nerds 19,5
21. Bachelor Party 19,1
22. CityHeat 19,0
23. Silkwood 17,8
24. RedDawn 17,0
25. The Terminator 17,0
Það hefði áður fyrr talist til tíðinda að búið væri að sýna yfir
helming þessara mynda hérlendis. Bíóhúsin eiga hrós skilið fyrir
það að þau eru farin að standa sig miklu betur í því að kaupa
inn nýjar myndir, að öðrum bíóum ólöstuðum ber þó helst að
nefna hann Arna í Bíóhöllinni en hann virðist vera langt á undan
öllum bíóunum í því að frumsýna myndir. Hjá honum er oft
heimssýning, þ.e.a.s myndin er sýnd á sama tíma í Bandaríkjun-
um, Bretlandi og litla Islandi meðan hin bíóin státa sig af því að
vera fyrstir í Evróu með myndina (Evrópusýning), sem einnig
verður að teljast góður árangur. Ég held innst inni að bíóin geti
gert betur hér á íslandi, þvíeigendur þeirra flestra eru m iklir
atorkumenn og metnaðargjarnir. Það skal tekið fram að listinn
er tekinn úr blaðinu Variety. J. Þór.
Hf's Tbolsle., .Sht-'s Dastin Hoffman
DesbíérattÉ
tooK
ftTnaie
and
became
..
(SLENSKUR TEXTi
» oníy
becmiKUell
the woman
hekfves,
Breski vinsældalistinn
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
1
2
6
4
9
8
5
10
11
3
13
7
!■)
[20
12
23
[21
19
15
14
Police Academy
Trading Places
Cannonball Run II
EvilthatMando
Scarface
Educating Rita
Sudden Impact
Terms of Endearment
Against all Odds
Supergirl
An Off icer and a Gentleman
The Empire Strikes Back
Firestarter
Greystoke Legend of Tarzan
Tootsie
48 hours
Yentl
Uncommon Valour
Champions
Blame it on Rio
1939 GONEVITHTHEWIND 76,7
1977 Saturday Night Fever 74,1
1978 National... Animal House 70,7
1982 Rockylll 65,8
1981 Superman II 65,1
1981 OnGoldenPond 63,9
1979 Kramer Vs. Kramer 59,9
1977 Smokey and the Bandit 59,8
1980 NmetoFive 59,7
1975 One Flew... Cuckoo’s Nest 59,2
1980 StirCrazy 58,3
1984 Beveriy HiHs Cop 58,0
1979 StarTrek 56,0
1976 Rocky 55,9
1973 Amerícan Graffiti 55,6
1982 An Officer and a Gentleman 55,2
1982 Poríty’s 54,0
1978 Jawsll 52,4
1975 The Towering Infemo 52,0
1978 Every which Way but Loose 51,9
1983 Terms of Enderment 50,2
1970 LoveStoiy 50,5
Vinsælasta myndin er myndin geimálfinn ET, eftir Steven
Spielberg. Framreikni maður hinsvegar upphæðirnir, kemur í
ljós að myndin „Gone with the Wind" er langvinsælasta myndin
sem framleidd hefur verið.
J. Þór