NT - 05.03.1985, Síða 1

NT - 05.03.1985, Síða 1
Norrænn þróunarsjóður SIJ fyrir vestursvæðið ■ Ráðherranefndin leggur heimamanna dugi hvergi til að hrinda í framkvæmd nýskopun fram tvær tillögur á Norður- fjármagna endurbætur eða í atvinnulífinu. Er bent á að landaráðsþingi varðandi vest- ursvæðið, Færeyjar, ísland og Grænland sem er stærsti en jafnframt strjálbýlasti hluti Norðurlanda. Er stefnt að efl- ingu svæðisbundis starfs til aukningar fjölbreytni í at-i vinnulífinu og lagt til að stofn-l aður verði norrænn þróunar-i sjóður fyrir vestursvæðið. ] Lagt er til að jafnvægi í atvinnulífi á þessum slóðum verði náð með því að styrkja flutninga og samgöngur, ferða- þjónustu, verslun, iðnað og fleira í stað þess að leggja einhliða kapp á hefðbundnar atvinnugreínar eins og fisk- veiðar og hvers konar sjávar- nytjar. Er bent á að sparnaður grannþjóðirnar gætu orðið að miklu liði með ráðgjöf og fleira á þessu sviði. Ef viljayfirlýsing verður samþykkt á þessu þingi um stofnun sjóðsins verður sérstök tillaga um stofnun sjóðsins lögð fyrir efnahags- málanefndina síðar á árinu svo að sjóðurinn geti tekið til starfa snemma á árinu 1986. ■ Norðurlandaráðsþing, hið 33. í röðinni hófst í Þjóð- leikhúsinu í gær og stendur fram á fóstudag. Margt merkra mála liggur fyrir þinginu og getur það orðið stefnumark- andi fyrir framtíð norrænnar samvinnu. N I-mvnd: Svtrrir Sjá bls. 2,3 og 24 Almenn óánægja meðal sjómanna á fundunum samningurinn felldur á Neskaupsstað ■ Mikil ólga var meðal sjó- manna á kynningarfundum víða um iand í gærkvöld, þar sem nýgerður kjarasamningur sjó- manna og útgerðarmanna var kynntur. Sjómönnum fannst kostnað- arhlutdeildin ekki hafa verið lagfærð sem skyldi, og heyrðust víða miklar óánægjuraddir á fundunum. Á Neskaupsstað hefur þegar farið fram atkvæða- greiðsla um samningana, og féllu atkvæði þannig að tuttugu sögðu nei, en átján sögðu já. Einn seðill var ógildur. Á fundi sem sjómannafélag Reykjavíkur hélt í gær, var auðheyrt á mönnum að þeir töldu samninginn ekki jafn góð- an og vonir stóðu til. í Keflavík, Vestmannaeyjum, Siglufirði, Akureyri og Hornafirði voru uppi almennar óánægju raddir um samninginn, og var að heyra á mönnum áð ekki hefði tekist sem skyldi. Á Siglufirði var atkvæða- greiðslu um samningana frestað þar til í dag. Þá greiddu Siglfirð- ingar atkvæði um hvort verkfalli skyldi frestað á miðnætti, og varð niðurstaða fundarmanna að verkfalli skyldi ekki frestað fyrr en almenn talning atkvæða hefði farið fram hjá ríkissátta- semjara síðar í vikunni. ■ Kristjan Ragnarsson formaður LÍÚ tekur í hendina á Óskari Vigfússyni formanni Sjómannasambandsins. NT-mynd: Robcn Hafrannsóknarstofnun í sam- vinnu við útgerðar- og sjómenn: Togað á 600 stöð- um á fimm togurum ■ Hafrannsóknarstofnun í samvinnu við útgerðarmenn og sjómenn heldur í dag í rúmlega tveggja vikna leiðangur til rann- sókna og mælinga á botnfisk- stofnum umhverfis landið. I leiðangurinn er farið á fimm japönskum skuttogurum með þeim áhöfnum sem á þeim eru ásamt 5 mönnum frá Hafrann- sóknarstofnun á hverju skipi. Ætlunin er að toga með botn- vörpu á alls 600 stöðum um- hverfis landið - stöðum sem fyrirfram hafa verið ákveðnir af fiskifræðingum í samvinnu við skipstjórnarmenn víðs vegar um landið, enda unnið að þessu öllu í nánu samráði og samvinnu við þá að sögn Ólafs Karvels Pálssonar, fiskifræðings sem verður leiðangursstjóri í þessum leiðangri. Meginmarkmiðiö með leið- angrinum sagði Ólafur það að reyna að mæla stofnstærð okkar helstu botnfiskstofna - aðallega þorsksins. en einnig margra annarra fiskistofna. Ráðgert sé að safna gögnum um rúmlega 20 fiskitegundir sem verða mældar ásamt því að taka margs- konar sýni önnur en varðandi stofnstærðina, svo sem vöxt, kynþroska og annað. Þ.e. að fá fram almennar líffræðilegar upplýsingar um þessa fiski- stofna. Til þessa hefur að sögn Ólafs reynst erfitt að mæla fiskistofna það nákvæmlega að hægt væri að gefa nægilega góða fiskveiði- ráðgjöf. Markmiðið nú sé að fá úr því skorið hvort slík mæling sé möguleg með þessari aðferð, þ.e. svokallaðri mælingu með botnvörpu. Leiðangur svo margra skipa hefði verið ófram- kvæmanlegur öðruvísi en að leita til útvegsmanna og sjó- manna um hjálp. Og á skipum stofnunarinnar yrðu 600 tog ekki tekin nema á óralöngum tíma. Þau skip sem fara í leiðangur- inn eru: Arnar frá Skagaströnd, Drangey frá Sauðárkróki, Hof- fell frá Fáskrúðsfirði, Páll Páls- son frá Hnífsdal og Vest- mannaey. ■ Samninganefnd ríkisins gengur á fund launamálaráðs BHMR um fimmleytið í gxr. Á fundinum hafnaði ráðið tilboði samninganefndar ríkisins, og fór ráðið fram á að nefndin skilaði „alvöru tilboði". Tilboð nefndarínnar var metið á fimm prósent hækkun launa háskólamenntaðra ríkisstarfs- manna. Indriði H. Þorláksson formað- ur samninganefndar ríkisins sagði í samtali við NT að rætt yrði við kennara á sama grund- velli þrátt fyrír það ástand sem ríkti í skóhmam. Guðlaugur Ástgeirsson vara- formaður HÍK taldi að þetta væri ekki svar til lausnar í deilunni Palme deilir á bresku ríkis- stjórnina vegna mengunarmála ■ Olof Palme gagnrýndi' bresku stjórnina harðlega í ræðu sinni á þingi Norðurlanda- ráðs í gær fyrir skort á samstarfs- vilja varðandi umbætur til að sporna við loftmengun. Hann sagði mikið af þeirri loftmengun sem nú herjar á Norðurlöndin eiga rót sína að rekja til bresks iðnaðar. „Loftmengun er að eyði- léggja skóga okkar og vötn,“ sagði Palme. Hann líkti þeirri mengun sem stafarfrá Bretlandi við umhverfisstríð Breta gagn- vart nágrönnum sínum. Bretland hefur neitað að ganga í hinn svokallaða 30% klúbb Evrópuríkja, en svo er nefndur hópur landa sem hafa skuldbundið sig til að vinna að því að minnka loftmengunina um 30%. Öll Norðurlöndin eru þar á meðal. Unnið hefur verið að því að fá A-Evrópulöndin til samstarfs sem og Bretland. Tregða Breta veldur því að mengunarmálin eru að verða að alvarlegu ágreiningsefni Bret- lands og Norðurlandanna. Hundurívarðhaldi ■ Hundur sem gengið hefur laus í Fellahverfi Breiðholts um nokkurt skeið var í gær handsamað- ur af lögreglu eftir ítrekað- ar kvartanir vegna hans. Flutti lögreglan seppa á dýraspítalann þar sem þess er beðið að einhverjir eigendur vitji hans.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.