NT

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 05.03.1985, Qupperneq 12

NT - 05.03.1985, Qupperneq 12
Þriðjudagur 5. mars 1985 12 íslenska hljómsveitin i Laugardalshöll á öskudag Kötturinn sleginn úr tunnunni - botninn féll úr tónleikunum ■ Sverrir GuAjónsson syngur lag án orða. sveiflunnar og blæbrigði kammerhliómsveitar. Laugardalshöllin er lítt að- laðandi staður fyrir tónleika af þcssu tagi og strax og komið var inn í þennan geym var sem áheyrendur týndust, þrátt fyrir að verulega margir væru mætt-. ir til að fylgjast með þessari athyglisveröu tilraun. Siðameistari og kynnir var Jón Múli Árnason og var eins og hann næði sér ekki almenni- lega á strik, frekar en hljóm- sveitin í fyrri hluta dagskrár- innar, og rásaði hann út og suður í kynningunni til að byrja með en var munbeinskeyttari í seinni hálfleik, eins og sagt er í boitanum. íslenska hljómsveitin hóf leikinn undirstjórn Guðmund- ar Emilssonar á Partitettu Li- verpool sem Ríkharður Örn Pálsson hefur sett saman úr lögum þeirra bítla Lennons og McCartneys í barokkstíl 18. aldar. Síðan venti sveitin sínu kvæði í kross í orðsins fyllstu merkingu og lék bjórstofulög frá Vínarborg og þaðan sveifl- aði hún sér yfir í ragtime músík eftir Scott Joplin. A eftir ragginu fylgdi lög eftir Gershwin og Keisler vel flutt af Einari Grétari Sveinbjörns- syni og Önnu Guðnýju Guð- mundsdóttur. Endahnúturinn á fyrri hálfleik var rekinn með syrpu af þekktum dægurlögum úr Broadway söngleikjum í útsetningu Ólafs Gauks. Sann- arlega miklar sveiflur í efnis- vali. Seinni hálfleikur hófst á Karnivalsforleik, tónsmíð eftir Stefán S. Stefánsson og nú fór landið að rísa. Latneskir ryþmar fylltu tómið í Laugar- dalshöllinni og smástund var umhverfið ekki alveg eins kuldalegt. Þórir Baldursson átti næst lag, Ljóð án orða sungið af Sverri Guðjónssyni. Fallegt lag en heldur í lengra lagi. Lokaþátturinn var siðan tónverk eftir Vilhjálm Guð- jónsson sem hann nefndi Konsert fyrir tvo rafmagnsgít- ara og kammerhljómsveit. Með Vilhjálmi annaðist flutn- inginn Björn Thoroddsen og komst hann skemmtilega frá sínu en ekki var þessi sam- tvinnun alveg sannfærandi. Hvað um það, í lokin streymdu börn úr austur og vesturbæ inn í salinn íklædd plastpokum og máluð í framan og settu þann ærslasvip á sam- kunduna sem hefði mátt bregða fyrir miklu fyrr hjá hljómlistarmönnunum. En samt var þetta ágætis skemmt- un og vonandi tekst enn betur til næst! „Kötturinn“ kominn úr tunnunni og eins gott að ná í sinn skerf. „Litli trommuleikarinn“ Ásgeir Steingrímsson trompetleikari í sólói í Karnivalsforleik Stefáns S. Stefánssonar. Þriðjudagur 5. mars 1985 13 herm þ» ■ Margrét Klara Jóhannsdóttir tekur á móti blómum frá sýningafólkinu og öðrum aðstandendum sýningarinnar. ■ ...sést hér vel á þessari mynd. Þetla cr kölluð „Svo- lítið pönkuð daggreiðsla“,. ■ Tverir herrar (jú, jú, þeir eru báðir karlkyns!) málaðir og greiddir af meistarahönd- um. NT-myndir: In^a Císia. ■ Hér sjáum við hvar hárgreiðslukonan er að vanda sig við hina sérstöku vangagreiðslu, sem. Hár • og tískusýning í Vestmannaeyjum ■ Nýlega var háskerá- og hárgreiðslusýning og tískusýn- ing haldin í Vestmannaeyjum. FEDRA-flokkurinn sýndi tískufötin og einnig kom fram jazzballet-flokkur undir stjórn Ingveldar Gyðu, en hún hefur í vetur kennt í Eyjum jazz- ballett og leikfimi. „Mjög skemmtileg leikfimi, og varla aö nokkur sleppi úr tíma. Hún mælir okkur og vigtar og gefur góð ráð um mataræði, - og árangurinn er alveg undra- verður", sagði Inga Gísladótt- ir, fréttaritari NT í Vest- mannaeyjum, en hún tók með- fylgjandi myndir. Hársnyrtistofur í Eyjum og verslanirnar Eyjabær og Apex- búðin stóðu að sýningunni, Margre't Klara Jóhannsdóttir í Eyjabæ stjórnaði henni. Mar- grét Klara hefur verið með FEDRA-sýningarflokkinn, og hún hefur stjórnað flestöllum slíkum sýningum í Eyjum, að sögn fréttaritara NT. ■ Ung samkvæmisklædd dama sýnir kvöld- ■ FEDRA-flokkurinn á fullu. greiðslu. ■ Ungt fólk sýnir tískuföt frá Eyjabæ og Apex-búðinni, en sú verslun er nieð tískuvörur frá „Flónni“.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.