NT - 05.03.1985, Qupperneq 23
tæ
Enska knattspyman:
Sunderland vann
Frá Heimi Bergssyni í Englandi:
■ Sunderland sigraði Chelsea
3-2 Stamford Bridge í Chelsea
í gærkvöld í síðari leik liðanna
í undanúrslitum mjólkurbikar-
keppninnar. Þar með er Sund-
erland-komið í úrslit keppninn-
ar (5-2 samanlagt), og leikur
gegn Ipswich eða Norwich á
Wembley. Fjórir leikir voru í
5. umferð ensku bikarkeppn-
innar í gær, og úrslit urðu þau
óvæntust, að Barnsley sigraði
Southampton á útivelli, og leik-
ur gegn Liverpool í 6. umferð.
David Speedie skoraði fyrst
fyrir Chelsea, en Clive Walker
jafnaði. Walker, sem var hetja
Sunderland skoraði 2-1, og
lagði síðan upp þriðja markið
eftir að mikið uppþot áhorf-
enda hafði að mestu verið lægt:
Walker lék þá á lögregluþjón á
kantinum (þjónninn var þar að
koma áhorfanda útaf), gaf fyrir
og Colin West skoraði framhjá
þrem-fjórum lögregluþjónum.
Markið engu að síður löglegt,
og Chelsea niðurbrotið. Pat
Nevin minnkaði muninn í
lokin.
Southampton komst í 1-0
með marki Steve Moran. En
Steve Agnew og Gordon Owen
svöruðu fyrir hlé, og Barnsley
hékk á sigrinum með miklum
varnarleik.
Luton og Watford skildu jöfn
0-0 og mætast á ný. Sama gildir
um Wimbledon og West Ham
sem mættust í Wimbledon. Þar
urðu úrslit 1-1. Stewart Evans
skoraði fyrir Wimbledon og
Tony Cottee fyrir West Ham.
Alan Devonshire lék með West
Ham á ný eftir 14 mánaða hlé
vegna meiðsla og stóð sig vel.
Gordon Lee kominn til að þjálfa KR:
Þriðjudagur 5. mars 1985 23
Úrvalsdeildin í körfu:
Hverjir sigra?
Hverjir falla?
úrslitakeppnin að hefjast
ÍR og ÍS keppa um fallið
Gordon Lee fyrir utan nýjar höfuðstöðvar sínar, Ni-mvnd: Svemr
■ Nú hafa leikir úrslitakeppn-
innar í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik verið settir á. Fyrsti
leikurinn verður milli Vals og
Hauka á heimavelli þeirra
síðarnefndu á miðvikudaginn.
Hefst leikurinn kl. 20.30. Næsti
leikur verður í Njarðvíkum á
föstudaginn kl. 20.00 en þar
eigast við efsta og fjórða lið
deildarkeppninnar, Njarðvík
og KR-strákarnir.
Fallkandidatarnir, gamla
stórveldið ÍR og ÍS, hefja bar-
áttu sína fyrir úrvalsdeildarsæti
„Sigur skiptir öllu máli“
- segir Lee - „Hef prófað flesta hluti í Englandi og því er ég hér “
„í knattspyrnu er aðeins
eitt sem skiptir máli, það er að
vinna. Það er enginn vandi að
verða annar og þriðji, en það
skiptir mestu máli að sigra. Það
má þó ekki skilja orð mín
svoleiðis, að það að ég kem til
KR, geri liðið að meisturum.
Til þess að það mark náist
þurfa allir að vinna saman,
íeikmenn, þjálfarinn, stjórn fé-
lagsins og áhangendur. Það
sem ég get lofað er að allir í
liðinu munu gera það sem þeir
geta, og ég mun gera mitt
besta.“ Það er Englendingur-
inn Gordon Lee sem talar, en
hann mun þjálfa lið KR í 1.
deildinni í knattspyrnu í ár.
Gordon Lee kom til landsins
fyrir helgina, alkominn, og
mun að öllu forfallalausu verða
hér til hausts.
Gordon Lee er stórt nafn úr
enskri knattspyrnu. Hann var
sem leikmaður lengst af hjá
Aston Villa og lék yfir 300 leiki
fyrir félagið. Hann tók til við
þjálfun þegar keppnisferlinum
lauk, tók við botnliði í ensku 4.
deildinni, Port Vale, og kom
því í þriðju deild. Þar stjórnaði
Lee liðinu í toppbaráttu, en ekki
komst liðið ofar. Árið 1974 var
Lee kosinn besti framkvæmda-
stjóri þriðju deildar, er hann
gerði gamla stórveldið Black-
burn Rovers að deildarmeistur-
um. Á miðjum vetri 1974-75,
tók Lee við Newcastle United,
sem þá var í botnbaráttu 1.
deildar. Liðinu tókst að forðast
fall, og árið eftir komst liðið í
úrslit deildarbikarkeppninnar
þar sem það tapaði fyrir Manc-
hester City. Undir vorið flutti
Lee sig um set til Everton.
Everton náð 3. sæti í 1. deild
árið 1976-1977 og náði þar með
Evrópusæti. Árið eftir lenti lið-
ið í 4. sæti og lék til úrslita í
deildarbikarkeppninni gegn
Aston Villa, og tapaði þar í
þriðju atrennu. Veturinn
1979-1980 varð svo Everton
neðarlega í 1. deild, og Gordon
Lee þurfti ða taka pokann sinn.
Síðan hefur Lee ekki fengið
mjög stór tækifæri, var t.d. á
síðasta tímabili hjá Preston
Karate:
Landsliðið
lagði „Pressuna“
- í fjörugri viðureign
■ „Þetta er að mínu mati
besta karatemót sem haldið
hefur verið hérlendis. Það kom
mér mest á óvart hve mikil vídd
er komin í íslenskt karate nú
þegar,“ sagði Hannes Hilmars-
son nýkjörinn formaður ný -
stofnaðs Karatesambands
íslands, eftir Pressumót
Karatesambands íslands og
Samtaka íþróttaféttamanna,
sem haldið var í Digranesi í
Kópavogi á laugardag. „Það
var fín stemmning, það komu á
þriðja hundrað áhorfendur,“
bætti Hannes við.
Keppt var í fimm manna
sveitum, þrjár umferðir.
Landsliðið sigraði pressuliðið
með 9 vinningum gegn 6, og
fékk 56 stig gegn 46 stigum
pressuliðsins. Dómgæsla var í
höndum Karls Gauta Hjalta-
sonar, sem leysti það hlutverk
með prýði.
Besta karatestúlka íslands,
Jónína Olesen sýndi Kata-
karate í keppnishléi undir
stjórn Ólafs Wallevik landsliðs-
þjálfara, og vakti mikla lukku.
I lok mótsins afhenti Sveinn
Björnsson forseti ÍSÍ keppnis-
mönnum fallegan minjagrip um
keppnina.
Bestu menn landsliðsins voru
Atli Erlendsson og Árni Ein-
arsson, en bestu menn pressu-
liðsins voru Ævar Þorsteinsson
og Gísli Klemensson.
Northend, og náði liðið að
halda sér í deildinni, sem var
markmiðið.
„Ég hef prófað flesta hluti í
Englandi, og þess vegna vakti
það áhugaminn að koma til
KR,“ svaraði Gordon Lee
þeirri spurningu NT, hvers
vegna maður með hans feril
væri kominn tií Islands. „KRer
gamalgróið félag, og hér er
markmiðið að vinna, ekki að
halda sér á sínum stað. í Eng-
landi hefur staðallinn verið
heldur á leið niður undanfarin
ár. Einungis fá stór félög standa
vel fjárhagslega, og takmarkið
hjá alltof mörgum er að halda
sér í deildinni, sem er hlutur
sem telst manni ekki sérstak-
lega til tekna þó að takist. Ég
hef heyrt talsvert um íslenska
knattspyrnu, og þekki nokkuð
til hjá KR í gegnum góða vini
mína hjá Liverpool.“
Gordon Lee kemur nú í
annað sinn til íslands, hann
kom hér fyrst í nóvember, leit
á aðstæður hjá KR, og fastréði
sig síðan. „Ég gekk frá mínum
málum og KR í nóvember, og
blaðaskrif í Englandi um að ég
hafi ekki verið búinn að gera
upp hug minn er bara tilbún-
ingur,“ sagði Lee.
Ég hlakka til að vinna með
KR, mér sýnist KR vara ánægt
félag og ánægt félag er gott
félag. Aðstæður hjá félaginu
eru til fyrirmyndar, og mér líst
vel á mannskapinn, svo mikið
sem ég hef séð af honum. Ef
samstarfið gengur vel og KR
vill verð ég hér lengur en þetta
tímabil, en nú er ekki rétti
tíminn til að ákveða það,“
sagði Lee.
Gordon Lee er fjölskyldu-
maður, á konu og þrjú börn.
Kona hans og yngsta barn
koma hingað til lands í sumar,
um leið og skóla lýkur. „Við
erum sterk fjölskylda," sagði
Lee.
* - V &r\
4%*? 1
Wfa - **
næsta keppnistímabil á laugar-
daginn á heimavelli ÍR í Selja-
skóla kl. 14.00.
Seinni leikirnir í fyrri umferð
baráttunnar um íslandsmeist-
aratitilinn verða í Laugardals-
höll á mánudaginn. Valur og
Haukar leika kl. 19.30 og KR
og Njarðvík kl. 21.30. Fimmtu-
daginn 14. mars leika ÍS og ÍR
annan leik sinn um fallið í
Kennaraháskólahúsinu kl.
20.15.
Ef þetta dugar ekki þarf að
leika þriðja leikinn og fá Hauk-
ar þá annan heimaleik gegn
Val í Hafnarfirði miðvikudag-
inn 13. kl. 20.30, Njarðvík fær
KR í heimsókn til Njarðvíkur
fimmtudaginn 14. kl. 20:00 og
ÍR tekur á móti ÍS í Seljaskóla
laugardaginn 16. kl. 14.00.
Síðari hluti úrslitakeppninn-
ar, keppnin um íslandsmeist-
aratitilinn fer fram á tímabilinu
16.-22. mars en þann 16. verður
örugglega komið í ljós hvort ÍS
fer beint aftur niður í 1. deild
eða ÍR fellur í fyrsta skipti úr
úrvalsdeildinni.
Undanúrslit í bikarkeppn-
inni verða 23.-26. mars og úr-
slitaleikirnir í Laugardalshöll
28. mars.
" ...............................
: c.
Spánn:
■ Archibald og Venebles
gengur vel.
Frakkland:
ÚR8LIT:
Nantes Metz .... 1-0
Brest-Auxerre .... 2-0
Toulon-Lons .... 1-0
Lille-Sochaux .... 1-1
Monaco-Strasborg ... .... 3-0
ParÍB S.G.-Tours .... 2-0
Toulouse-Racing C.P. .... 1-3
Nancy-Rouen .... 2-2
Laval-Marseillos .... .... 4-2
STAÐA:
Leikir:
Stig:
Bordeaux .27-45
Nantes . 26-38
Toulon .27-33
Auxerre .26-32
Monaco
Brest
Metz .26-29
Lens
Paris S.G .26-26
Bara kraftaverk
fellir Barcelona
■ Atli Erlendsson hefur hér náð tökum á Sigurjóni Gunnsteins-
syni í „Pressuleiknum“ NT-mynd: Ámi Bjama
- úr meistarasætinu -
■ Þegar aðeins sjö umferðir
eru eftir þá hefur Barcelona
náð 11 stiga forystu í deildar-
keppninni og virðist ekkert
nema kraftaverk geta komið í
vegfyrir sigur liðsins þetta árið.
A sunnudaginn þá fóru þeir
Barcelónumenn til Valencia og
Zico heim til Flamengo?
■ Brasilíski knattspyrnu-
snillingurinn Zico neitaði að
svara því á blaðamannafundi
í Rio De Janeiro í gær. hvort
hann væri á leið til síns
gamla félags í Brasilíu, Fla-
mengo. En Zico staðfesti að
hann mundi ekki leika annað
keppnistímabil með Udien-
ese. Um leið var staðfest að
Paolo Roberto Falcao, félagi
Zicos í brasilíska landslið-
inu, sem einnig leikur á ítal-
íu, verður ekki með Roma
næstu þrjá mánuðina.
Zico sagðist ekki vilja
leika með liði sem ekki hefur
möguleika á meistaratign, og
hann fari annað hvort lieim
til Falmengo, eða til ítalsks
toppliðs.
Falcao hefur ekki enn
jafnað sig á uppskurði í hné
sem hann gekkst undir.
Archibald skorar stöðugt
rústuðu heimamönnum með 5
mörkum gegn tveimur. Þrátt
fyrir að Valencia hafi náð for-
ystu í leiknum með marki Ro-
berto Fernandez gat ekkert
stöðvað Barcelona. Þrjú mörk
á aðeins 8 mínútum gerðu út
um leikinn. Fyrst skoraði
skoski landsliðsmaðurinn Steve
Archibald sitt 15. rnark á keppnis-
tímabilinu og er hann marka-
hæsti leikmaðurinn á Spáni,
Schuster bætti við marki og
Francisco Clos gerði svo þriðja
markið. Rétt fyrir leikhlé skor-
aði Rojo og staðan orðin 4-1.
Valencia minnkaði muninn
með marki frá Tendillo en
Alonso fullkomnaði stórsigur-
inn með fallegu marki í lokin á
leiknum.
Real Madrid tapaði fyrir
Espanol 0-2 og var það Pineda
sem gerði bæði mörkin í þeim
leik. Real á að spila í Evrópu-
keppni félagsliða á móti Tott-
enham í London á morgun og
tók því enga áhættu í leiknum.
ÚRSLIT:
Malaga-Hercules .................l-l
Valencia-Barcelona...............2-5
Murcia-Valladolid ...............1-2
AT. Madrid-Sporting..............0-0
R. Sociedad-Sevilla .............5-1
Osasuna-Racing...................0-0
Elche-Zaragoza ..................0-0
Real Betis-Bilbao................0-2
Espanol-Real Madrid..............2-0
STAÐA EFSTU LIÐA:
Barcelona ..... 27 18
AT. Madrid .... 26 12
Sporting ...... 27 9
Real Madrid ... 27 10
R. Sociedad .... 27 9
Bilbao ........ 27 8
Valencia ...... 27 8
Zaragoza...... 27 9
8 1 62 21 44
9 5 39 23 33
14 4 24 19 32
10 7 35 27 30
11 7 35 24 29
13 6 27 22 29
12 7 34 28 28
10 8 29 28 28