NT - 08.03.1985, Blaðsíða 21
Föstudagur 8. mars 1985
Útlönd
Uruguay:
Allir pólitískir
fangar fá f relsi
Montevideo-Reuter.
■ Neðrideild þingsins í Urug-
uay samþykkti á miðvikudag
almenna sakaruppgjöf fyrir alla
pólitíska fanga þrátt fyrir and-
stöðu forsetans, Julio Sanguin-
etti, sem vildi einungis veita
þeim pólitísku föngum sakar-
uppgjöf sem ekki væru sakaðir
um manndráp.
Stjórnarandstæðingar í
Blanco-flokknum og samfylk-
ingu vinstrimanna knúðu sakar-
uppgjöfina í gegnum þingdeild-
ina en sameinaðir hafa þeir
meirihluta í þinginu. Colorado-
flokkurinn, sem fer^með stjórn
landsins, var á móti svo al-
mennri sakaruppgjöf þar sem
þingmenn hans álitu að þeir,
sem hefðu viðurkennt á sig
morð, ættu ekki að ganga lausir.
Stjórnarandstæðingar sögðu
játningar fanganna gagnslausar
þar sem þær hefðu verið knúðar
fram með pyntingum á tíma
herstjórnarinnar.
■ 7000 námumenn eru enn í verkfalli til stuðnings þeim 700
námumönnum sem var sagt upp störfum í verkfallinu.
Námumenn krefjast endurráðningar þeirra. Thatcher og
stjórn námanna hafna kröfum um endurráðningu enda
líklegt að hinir reknu séu í hópi baráttufúsustu námumann-
anna.
Breska koladeilan:
Sovétmenn byggja
álver fyrir Grikki lYfirvinnu
Aþena-Reuter
■ Grikkir hafa nú endanlega
gengið frá samningum við So-
vétmenn um að þeir aðstoði við
byggingu álvers í Grikklandi.
Að sögn grískra stjórnvalda
mun bygging álversins kosta um
450 milljónir dollara. Fram-
leiðslugeta þess verður um
600.000 tonn á ári. Álverið
verður reist við Vounichora-
þorp um 170 kílómetra fyrir
vestan Aþenu.
Samningaviðræður á milli
Grikkja og Sovétmanna um
byggingu álversins hófust fyrst
fyrir sjö árum. Framkvæmdir
við byggingu þess munu byrja
fyrir lok þessa árs. í Grikklandi
er að finna bauxít, sem er notað
sem hráefni við álframleiðslu.
Grikkir hafa lengi haft áhuga á
að nýta þessa auðlind sína til
álframleiðslu.
bann áfram
Sheffield-Rcutcr
■ Leiðtogar breskra kola-
námumanna hétu því í gær
að halda áfram baráttunni
gegn lokun náma þrátt fyrir
að verkfall þeirra, sem stóð í.
11 mánuði, hafi endað án
samninga.
Framkvæmdanefnd Sam-
bands kolanámumanna
(NUM) samþykkti einróma
að halda áfram yfirvinnu-
banni sem staðið hefur í 16
mánuði og að berjast fyrir
endurráðningu þeirra 700
verkfallsmanna sem var sagt
upp í verkfallinu.
Framkvæmdanefndin
ákvað einnig að stofna sér-
stakan styrktarsjóð fyrir þá
sem sagt var upp.
Arthur Scargill, formaður
NUM, sagði fréttamönnum
að deilan rnyndi halda áfram
svo lengi sem framtíð kola-
iðnaðarins og atvinnuöryggi
námumanna eru ekki tryggo.
7000 námumenn eru enn í
verkfalli til stuðnings þeim
sem sagt var upp störfum.
Ríkisstjórnin og stjórn nám-
anna hefur hafnað kröfum
um endurráðningu mann-
anna.
Sviss:
40 kúrdar
handteknir
Berne, Sviss-Reuter
■ Svissneska lögreglan hand-
tók 40 tvrkneska kúrda í mót-
mælum frammi fyrir þinghúsinu
í Berne í gær.
Að sögn lögreglunnar spraut-
aði hún táragasi úr úðabrúsum
til að dreifa 60 manna hópi
kúrda og reka hann inn í lög-
reglubíla.
Fólkið mótmælti dauðadóm-
um yfir kúrdum í Tyrklandi og
fór fram á við svissnesku stjórn-
ina að hún tæki undir kröfur um
að sérstök nefnd rannsaki
tyrknesk fangelsi.
Banvænar eitur-
tunnur finnast
í þýskum skógi
Lörrach-Reuter.
■ Talsmaður saksóknara í
Vestur-Þýskalandi segir að
fundist hafi tunnur með hættu-
legum eiturefnum í rauslahaugi
í skóglendi nálægt svissnesku
landamærunum.
Eiturtunnurnar fundust í dal-
verpi við Karsau í um 15 kíló-
metra fjarlægð frá svissnesku
borginni Basel. Eitrið er sagt
vera dioxin og svipað því sem
olli efnaslysinu í Seveso á Ítalíu
1976. Þá komust um tvö kíló af
dioxini út í andrúmsloftið eftir
sprengingu í efnaverksmiðju og
það varð að flytja fólk af stóru
svæði vegna eituráhrifanna.
Nú er verið að rannsaka þrjú
fyrirtæki sem hentu úrgangi í
ruslahauginn, þar sem tunnurn-
ar fundust, til þess að skera úr
um það hvort eitthvert þeirra
beri ábyrgð á því að eituréfnun-
um var koniið fyrir á þessum
stað.
Eitrað kossakvendi
handtekið fyrir rán
■ Þessar tíu ungu fegurðardísir komust í úrslit í fyrstu fegurðarsamkeppninni sem haldin hefur verið
í Kína frá því að kommúnistar komust til valda þar fyrir 35 árum. Samtök ungkommúnista í Kanton
stóðu að samkeppninni í samvinnu við bandarískt snyrtivörufyrirtæki.
Ekki eru allir leiðtogar kínverskra kommúnista sagðir jafnánægðir með þetta uppátæki ung-kommún-
istanna og um tíma gekk sá orðrómur að hætt yrði við keppnina en svo fór þó ekki. Samkeppnin var
ekki einskorðuð við kvenfólk heldur fengu karlmenn líka að taka þátt. Rúmlega 650 ungmenni á
aldrinum 18 til 28 sóttu um að fá að taka þátt í keppninni. Auk fegurðar var einnig tekið tillit til
framkomu og almennrar þekkingar.
Atlantic City-Reuter
■ Bandarísku lögreglunni
tókst loksins í þessari viku að
hafa upp á alræmdu kossa-
kvendi sem lögreglan segir að
hafi stolið allt að 50.000 dollur-
um á nótt frá karlmönnum sem
höfðu unnið stórar fjárhæðir í
spilavítum í Atlantic City.
Kossakvendið, Marguerita
De Los Santos, sem er aðeins
tvítug að aldri er frá
Dóminíkanska lýðveldinu. Hún
er ákærð fyrir að eitra fyrir
fórnarlömb sín með því
að fá þau til að gleypa öfluga
svæfingarpillu sem hún laumaði
upp í „heppna“ karlmenn með
ómótstæðilegum kossi.
Pillan var fljót að verka á
fórnarlömbin sem liðu út af í
allt að tíu til 12 klukkustundir.
Stúlkan notaði þá tækifærið og
rændi af þeim peningum og
skartgripum. Kvöld nokkuð í
febrúar tókst henni þannig að
ná samtals 50.000 dollurum frá
þremur karlmönnum sem hún
Evrópsk þingmannasendinefnd:
Stuðningur Bandaríkjamanna við
skæruliða í Nicaragua ólöglegur
Vashington-Reuter
I Þingmenn frá þingum fímm
Svrópuríkja hvöttu Bandaríkja-
itjórn á miðvikudaginn til að
íætta ólöglegri aðstoð stjórnar-
nnar við skæruliða í Nicaragua.
Áskorunin kom fram á fundi
ringmannanna með háttsettum
;mbættismönnum í utanríkis-
áðuneyti Bandaríkjanna.
„Ef ríkistjórnin vill steypa
stjórn Nicaragua af stóli þá get-
um við ekkert við því gert.“
sagði Chitnis lávarður sem á
sæti í mannréttindanefnd
breska þingsins. „En við getum
sagt almenningi að slíkt er ekki
gert í nafni lýðræðis,“ bætti
lávarðurinn.við;
Eveline Herfkens sem er
hollensk þingkona og formaður
sendinefndarinnar, sagði að
þingmennirnir fimm hefðu sagt
bandarísku embættismönnun-
um að stuðningur Bandaríkja-
stjórnar við skæruliða sé brot á
alþjóðalögum og tafarlaust beri
að hætta honum.
Hún sagði einnig að stuðning-
ur Bandaríkjamanna við skæru-
liðana drægi úr stuðningi
Evrópubúa við NATO.
Bernard Allen þingmaður á
írska þinginu sagði að stuðning-
urinn við skæruliðana veikti
stöðu hægfara afla í Nicaragua
í baráttu þeirra við marxista.
Uwe Holtz, frá v-þýska þing-
inu sagði: „Stuðningur Banda-
ríkjamanna kemur Nicaragua í
hendur kommúnista."
Italski þingmaðurinn Stefano
Rodota sagðist vona að hinn
sósíalíski forsætisráðherra
Ítalíu Bettino Craxi, hafi sagt
Reagan að almenningur á ftalíu
sé andvígur stuðningi Banda-
ríkjamanna.
fylgdi til herbergis eftir að þeir
höfðu unnið stóra vinninga í
alþjóðlegu spilavíti.
Lést vegna
misskilnings
Miami-Reuter
■ Læknar í Jackson
Memorial Hospital í
Miami í Bandaríkjunum
eru nú að kanna mistök
við sjúkrahúsið. Mistökin
urðu til þess að skurð-
læknir varð valdur að
dauða 64 ára gamals karl-
manns sem verið var að
skera upp vegna
krabbameins í andliti.
Maðurinn vaknaði ekki
eftir skurðaðgerðina hcld-
ur lá áfram í ólæknandi
dauðadái vegna þess að
læknirinn hafði sprautað
hann með hættulegu lyfi,
| gluteraldehyde, vegna
misskilnings. Flaskan sem
I lyfið var í hafði ekki verið
merkt nægjanlega greini-
lega og læknirinn tók hana
í misgripum fyrir aðra
I flösku.
Nú er verið að kanna
I hvers vegna flaskan var
ekki merkt betur og hvað
I hún var að gera í skurð-
Istofunni.