NT - 08.03.1985, Blaðsíða 8
Föstudagur 8. mars 1985 8
fa orðið
Dag-
bók
■ Þann 8. mars gangast
undirrituð samtök fyrir bar-
áttufundi í Félagsstofnun stú-
denta undir yfirskriftinni:
Gegn launastefnu ríkisstjórn-
arinnar. Fundurinn hefst kl.
20:30, en húsið verður opnað
kl. 20.00.
Ávörp flytja:
Anni Haugen
Bjarnfríður Léósdóttir
Margrét Pála Ólafsdóttir
Vilborg Porsteinsdóttir
Wincie Jóhannsdóttir
Gladys Baez frá Nicaragua
Ljóðalestur:
Berglind Gunnarsdóttir
Ingibjörg Haraldsdóttir
Sonja B. Jónsdóttir
Tónlist:
Sif Ragnhildardóttir
Abdouhl
Guðmundur Hallvarðsson
Tómas R. Einarsson
Fjóla Ólafsdóttir
Þóra Stefánsdóttir
Kynnir:
Bríet Héðinsdóttir
Kl. 23.00-03 Plötusnúningur
Andreu Jónsdóttur mcð
meiru.
Samtök kvenna á
vinnumarkaði
Kvennaí'rambuðið í Reykjavík
Kvennafylking Alþýðubanda-
lagsins
Kvennalistinn
Samnorræni
Textiltriennalen
■ Samnorræni Textiltrienn-
alen er í undirbúningi og styrk-
ir hafa fengist frá Norræna
menningarmálasjóðnum og frá
menntamálaráðuneyti Islands
og sambærilegum stofnunum í
Finnlandi, Noregi, Svíþjóð,
Danmörku og Færeyjum.
Samnorræni Textiltriennal-
en verður opnaður 8. júní
1985 í Gallerí F I5 í Moss,
Noregi, þaðan kemur sýningin
til íslands í byrjun ágúst I985
og verður á Kjarvalsstöðum.
590 verk bárust til dómnefndar
fyrir 3. Samnorræna Textiltri-
ennalen, 86 verk voru tekin til
sýningar.
Innsendingargögn liggja
frammi í Gallerí Langbrók fyr-
ir 4. Samnorræna Textiltrienn-
alen.
Triennalnefndin.
Neskirkja
■ Föstuguðsþjónusta í kvöld
kl. 20.
Séra Guðmundur Óskar Óla-
son.
Fréttatilkynning
■ Al-Anon fjölskyldudeild-
irnar halda opinn kynningar-
fund laugardaginn 9. mars kl.
14.00 í Langholtskirkju.
Þær eru alþjóðlegur félags-
skapur aðstandenda alkóhó-
lista, sem hefur þróast í Banda-
ríkjunum og víðar síðastliðin
40 ár og hér á landi frá árinu
1972.
Allir þeir sem tengjast alkó-
hólistuin eða öðrum vímuefna-
neytendum á einhvern hátt
eiga kost á betra lífi eftir
Al-Anon leiðinni.
Undirbúningsnefnd.
Endurtakið
tónleikana
Hæ
Væri ekki hægt að sýna lagið
„Save a prayer", þar sem það
er svo geysivinsælt þessa dag-
ana. Þá á ég við að sýna það í
Skonrokki, þar sem þar er svo
mikið um gömul lög. Ég er
alveg viss um að margir taka
undir þetta.
Ég er ein þeirra sem misstu
af tónleikunum með Duran
Duran á milli jóla og nýárs.
Væri ekki möguíeiki að endur-
sýna þessa tónleika?
7128-3129
Ps. Gaman væri ef þið gæt-
um birt mynd af hljómsveitinni
og þá sérstaklega Simon Le
Bon.
■ Er þetta nógu góð mynd af
Simon Le Bon?
þarf betri
Náttúruunnandi skrifar:
■ Að undanförnu hafa birst í
blöðum nokkrar greinar sem
tengjast náttúrugripum og
náttúrugripasafni. í þeim efn-
um er skemmst að minnast
greinar í helgarblaði NT um
gcirfuglinn, sem varla hefur
heyrst minnst á síðan hann kom
hingað til landsins. Það er
hreint óþolandi hversu tak-
markaður áhugi virðist vera
meðal almennings og stjórn-
valda á því að koma upp
mannsæmandi náttúrgripa-
safni, en núverandi safn býr
við aðstöðu sem jaðrar við að
vera móðgandi. í náttúrugripa-
safninu rúmast aðeins lítið brot
allra þeirra áhugaverðu muna
sem safnið hefur umráð yfir,
megnið er geymt í kössum og
handröðum í kjöllurum og
■ Megnið af munum safnsins er geymt í kjöllurum og á háaloftum.
háaloftum þar sem enginn get-
ur notið þeirra.
Ég er tiltölulega nýkomin úr
utanlandsferð þar sem ég,
heimsótti fjölda náttúrugripa-
safna og það verður að teljast
ótrúlegt hve lífleg og skemmti-
leg slík söfn geta verið. Á
þessu ferðlagi mínu kollsteypt-
ist sú hugmynd mín að söfn
væru dauflegir staðir, þar sem
gamlir munir rykfalla undir
glerjum. Víða voru þetta lif-
andi stofnanir þar sem fólk
kom saman til þess að spjalla,
fræðast, fá sér hressingu, og
skemmta sér, enda var ólíkt
betur að þessum stofnunum
búið en tíðkast hér á landi.
Þarna gat að líta hin ýmsu
fyrirbæri náttúrunnar, dýr,
plöntur, og menn í náttúrulegu
umhverfi og í raun mætti segja
að maður skoðaði ekki söfn af
þessu tagi heldur tæki þátt í
starfsemi þeirra og upplifði
þau.
Það er kominn tími til að
stórátak sé gert í náttúrugripa-
safnsmálum hér á landi og hvet
ég eindregið til þess að al-
menningur leggi þessu máli lið.
■ Skyldi allur þessi póstur
komast til skila?
Hættum að kvarta
. . ................ Öll saman og hjálpum ríkis-
- hjalpum rikisstjormnm i staðinn stjóminni að íeysa þann ema-
hagsvanda sem við okkur
■ Eftir nokkurra ára dvöl á °g ;dlt yfirleitt erfiðara. blasir.
íslandi aftur, eftir áralanga Og nú er mál að við stöndum Ánægður skattgreiðandi.
dvöl erlendis, get égekki orða
bundist lengur. Óánægja og
heimtufrekja sumra hér er
með ólíkindum - og mest
þeirra sem hafa það best.
Lífið hér, samanborið við
víða erlendis þar sem ég þekki
til, er þægilegt, notalegt og
fyrirhafnarlítið. Sjálfur rek ég
litla innflutningsverlsun sem
nægir til að framfleyta mér og
fjölskyldu minni, og hef ég yfir
litlu að kvarta.
Erlendis er algengt að menn
þurfi að ferðast í um klukku-
tíma á dag til og frá vinnu. Þá
er ýmiss kostnaður því samfara
við að búa erlendis sem við
sleppum við.
Þá ríkir í Reykjavík sann-
kölluð hámenning og þarf eng-
inn að kvarta yfir menningar-
skorti sem býr hér. Þá má
nefna aldeilis ágæta sjónvarps-
dagskrá og vil ég færa sjón-
varpinu þakkir fyrir stórgóð-
ann framhaldsþátt, Shogun,
sem öll mín fjölskylda fylgist
með af áhuga og ánægju.
Nei, ég vil hvetja þá sem
mest kvarta og kveina, að
kynna sér lífshætti-erlendis, ■ Shogun er stórgóður framhaldsþáttur, skrifar „ánægður
þar sem glæpir eru mun tíðari skattgreiðandi“.
Misjöfn
póst-
þjón-
usta
■ Ástæðan fyrir því að ég
skrifa eftirfarandi, er sú að
athyglisvert er hversu stíft er
auglýst í ríkisútvarpinu, að
fólk skrifi vel og vandlega utan
á allan póst svo hann komist
örugglega til skila.
Það er mjög gott að minna
fólk á þetta atriði ásamt svo
mörgu öðru, en ég verð að
segja fyrir mína parta, að í
sumum tilfellum dugir ekki til
að merkja póstinn vel. Ég get
bent á að á tæpum tveimur
árum hef ég lent í því að fá
ekki í hendurnar tvo pakka, og
sömuleiðis tvö bréf, sem ég hef
átt von á og vitað af á leiðinni.
Ég spyr hvort þetta sé eitt-
hvert einsdæmi í póstflutninga-
kerfinu og sömuleiðis hvað
verður um þennan póst, sem
ekki kemst á áfangastað.
Rósa Guðmundsdóttir.