NT - 08.03.1985, Page 7
„Nei!, ég hef ekki trú á því að það
verði gert nema í samráði við mig og
ég mun ekki leggja það til. Málið á
sér fleiri hliðar, sem ég á eftir að
athuga og ekki verða ræddar í fjöl-
miðlum, heldur skoðaðar í víðara
samhengi. Ég tel ekki að neinn hafi
brotið lög í þessu máii vísvitandi.
í einu tilfelli, þ.e.a.s. í sambandi
við myndina Class of 84 (frá Bíóhöll-
inni) á það sér aftur á móti stað að þá
mynd leyfir Kvikmyndaeftirlitið ti!
sýningar en ákveður síðan að endur-
meta þá mynd, (það hefur heimild til
þess sbr. 1. gr. í lögunum nr. 33/
1983). Eftir að hafa horft á þessa
mynd aftur er ákveðið að dæma hana
ósýningarhæfa (þ.e. ólöglega). Þetta
er reyndar eina dæmið sem komið
hefur upp í sambandi við endurskoð-
un á mynd en auðvitað mjög alvarlegt
dæmi. Sumir spyrja hvort Kvikmynda-
eftirlitið dæmi bara eftir eigin geð-
þótta í það og það skiptið og enn aðrir
spyrja hverjir eigi að bera kostnaðinn
myndaeftirlitið birti bannlistann.
Rétthafar munu svo eflaust reyna að
fá skaðabætur frá ríkinu vegna þess
tjóns sem þeir verða vissulega fyrir.
Það skal tekið skýrt fram til að
fyrirbyggja allan misskilning að sam-
starf myndbandaleiga og rétthafa hef-
ur farið fram í rólegheitum í þessu
máli, menn eru sumir hverjir ekki
alveg búnir að átta sig á hlutunum.
Það var auðvitað aldrei ætlun rétthafa
að flytja inn efni sem yrði bannað
(gallað), enda kemur það líka í ljós
að flest allar myndir frá rétthöfunum,
sem eru á bannlistanum, koma hér á
markaðinn áður en lögin voru sett
(21.12.83).
Rétthafar höfðu þannig ekki hug-
ntynd um að þeir væru að setja á
markaðinn myndir er síðar yrðu
bannaðar af Kvikmyndaeftirlitinu því
áður en þesi lög voru sett var ekki
hægt að banna að sýna mynd eins og
áður hefur komið fram.
af að þessar myndir eru gerðar upp-
tækar.“
- Níels, er það komið á hreint
hverjir munu bera skaðann vegna
þess að myndirnar eru bannaðar?
„Nei!, ég geri mér það ekki ljóst á
þessari stundu.“
Á hverjum mun skaðinn bitna?
Níels Árni segist ekki gera sér
grein fyrir því hver þennan skaða
hlýtur en hér er um að ræða 600
spólur. Þar af voru um 300 teknar á
56 leigum í Reykjavík. Ótextuðu
myndirnar eru nú þegar glataðar og
leigurnar munu bera þann skaða, en
af þessum 600 spólum, sem voru
teknar, má gera ráð fyrir því að ca.
400 séu frá rétthöfum hér á íslandi.
Myndbandaleigurnar munu örugg-
lega neita að bera skaðann vegna
þeirra mynda, vegna þess að gölluð
vara er svikin vara. Lítum nánar á
þetta veigamikla atriði. Þegar rétthafi
selur leigunum myndbandsspólur, er
leigunum sagt að þær séu með góða
vöru, leyfilega til útleigu og merkta af
Kvikmyndaeftirlitinu.
En frá og með 18. febrúar eftir að
listinn yfir ólöglegar ofbeldismyndir
birtist, þá er komin upp sú staða að
leigurnar missa fjölmargar myndir,
textaðar, sem þær hafa keypt af
rétthöfum í góðri trú en nú reynast
ólöglegar. Þessar spólur hljóta því að
teljast gallaðar og því mætti ætla að
rétthafar viðkomandi mynda verði að
greiða leigunum til baka eða semja
við þær á einhvern hátt um lausn
þessa vandamáls sem skapast er Kvik-
Við hverju má búast
í framtíðinni?
- Níels, hvaða skyldum hafið þið
að gegna gagnvart innflytjendum
kvikmyndaefnis?
„Okkar skylda er að meta efnið og
merkja.“
- Nú hafa eigendur sumra mynd-
bandaleiga kvartað undan því hvernig
staðið var að þessari rassíu og að ekki
hafi verið hægt að sjá leynilistann
(bannlistann) hjá ykkur. Hvað viltu
segja um þessa gagnrýni?
„Ég hef ekki heyrt um þessar
kvartanir, heldur þveröfugt. Eflaust
má finna galla á öllum framkvæmd-
um, og kerfið okkar er enn í mótun.
í Englandi var t.d. gert ráð fyrir því í
lagasetningu um ofbeldismyndir að
fyrsta árið væri aðlögunartímabik"
Hvað er svo á döfinni hjá Kvik-
myndaeftirlitinu á næstunni?
„Við erum að reyna að komast í
betra húsnæði, fá betri tæki, hugsan-
lega meiri mannskap og reyna að
koma upp einhverskonar kerfi til að
koma upplýsingum á framfæri til
þeirra sem málið varðar. Við munum
senda út lista yfir bannmyndir með
reglulegu millibili og gefa leigunum
þannig kost á að fjarlægja ólöglegt
efni.“
Að lokum vildi Níels að það kæmi
fram að myndbandaleigur hafi verið
mjög fúsar til samstarfs við Kvik-
myndaeftirlitið í þessu og ekki talið
sig missa neitt, svo fremi sem myndir
af þessu tæi væru fjarlægðar úr öllum
myndbandaleigum hérlendis.
J.Þór.
Skákskólinn:
Margeir Pétursson
með fyrirlestur
■ Fyrirlestur og um-
ræður verða um afmælis-
mót Skáksambands
íslands, sem nýlega lauk
á Hótel Loftlciðum. Það
er Skákskólinn sem
gengst fyrir untræðun-
um, sem haldnar verða í
ráðstefnusal Hótels Loft-
lciða í kvöld, og hefjast
umræðurnar klukkan 20.
Margeir Pétursson mun
flytja fyrirlesturinn, og
er vonast til að margir af
þekktustu skákmönnum
landsins, og aðrir þeir
sem fylgdust með mótinu
leggi leið sína í ráð-
stefnusalinn í kvöld, og
hlýði á fyrirlestur Mar-
geirs, og gagnrýni tafl-
mennsku hans og ann-
ara þátttakenda í afmælis-
móti skáksambandsins.
Fyrirlestur á borð við
þann sem haldinn verður
í kvöld, er nýjung í starf-
semi Skákskólans, og er
markmiðið með honum
að nemendur skólans og
aðrir geti dregið sem
mestan lærdóm af mót-
inu, um leið og menn fá
svör við þeim fjölmörgu
spurningum sem vökn-
uðu þegar mótið stóö
yfir.
Heiðursgestir Skákskól-
ans í kvöld verða þeir
Albert Guðmundsson
skákáhugamaður, Frið-
rik Ólafsson stórmeist-
ari, skákjöfurinn Jóhann
Þórir Jónsson ritstjóri
tímaritsins Skákar og
forseti skáksambandsins
Þorsteinn Þorsteinsson.
Aðgangur er ókeypis
fyrir klúbbfélaga Skák-
skólans, en 100 krónur
fyrir aðra.
■ Margeir Pétursson flytur fyrirlestur um afmælisskákmót skáksambandsins í kvöld,
og eftir á gefst mönnum kostur á aö gagnrýna og leita svara viö spurningum.
N’l'-mynd: Kóbcrl
LAUGARDAGSKVOLD
. Grínarar hringsviösins tóku spaugiö með trompi í fyrra og slógu
■ • ■ í gegn um allt sem fyrir varö. Én nú er komið að söguspaugi
'85 - léttgeggjaðri og hættulega fyndinni stórsýningu þeirra
félaga Ladda, Jörundar, Pálma og Arnar. Þeir hafa aldrei
verið betri - enda með ósvikið stólpagrin I hverju pokahorni.
Mætið - sjáið - hlæið - hlæið - og hlæið.
Leikstjóri: Gfsli Rúnar Jónsson.
Lýsing og hljóðstjóm: Gisli Sveinn Loftsson.
Kabaretthljómsveit Vilhjálms Guðjónssonar annast undirleik.
Sérstakur Kabarettmatseðill
í tileíni sýningarinnar:
Glæsileg þríréttuð máltið + Söguspaug og dansleikur með
hinni sprellfjörugu Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar og
söngvurunum Ellen Kristjánsdóttur og Jóhanni Helgasyni fyrir
aðeins kr. 1.100.
Borðapantanir í sima 20221 eftir kl. 16.00.
Eftir kl. 23.30 - þegar Söguspaugi er lokið - kostar kr. 190
inn i húsið.
GILDIHF