NT - 08.03.1985, Side 13
Föstudagur 8. mars 1985 13 — Blflð II
Jóhanna Marín Jónsdóttir
Kvennaskólanum í Reykjavík:
Já, ég myndi segja það. Ég er búin að missa 40 tíma af 42
á viku. Kannski má segja að þetta sé ágætt að sumu leyti,
maður notar tímann á meðan í ólesið efni og ritgerðir
sem maður hefur trassað. Ég vona sem styst en ég styð
kennara fyllilega, þeir eru nú heldur ekki að gera þetta til
að hefna sín á okkur heldur til að reyna að leiðrétta sin
kjör sem eru til háborinnar skammar eins og hjá fleirum.
Elísabet Rolandsdóttir
Kvennaskólanum I Reykjavík:
Já, það gerir það. Það er enginn skóli hjá mér og þetta
á eftir að standa lengi enn. Kennarar gefa sig ekki og ríkið
gerir ekkert. Það trúir þessu ekki. Já, fullkomlega, þetta
er hámenntað fólk sem hefur ekki efni á hugsjónum.
Helga Bryndís Jónsdóttir
Menntaskólanum I Reykjavík:
Já. Ég er búin að missa fjögur fög af tíu og það er ansi
hart. Ég veit ekki hvað þetta stendur lengi, vona bara sem
styst. Já, að vissu leyti
Menntaskólinn við Hamrahlíd:
Jóhannesarvaka byrjar í dag
■ NemenduríMenntaskólanumvið
Hamrahlíð halda vökudaga á vor-
misseri nú á næstu dögum, og hefst
dagskráin sem er fjölbreytt, í dag
klukkan 15. Viðstaddir setningarat-
höfnina verða Davíð Odsson borgar-
stjóri og Þórarinn Eldjárn ásamt
þeim nemendum sem sjá sér fært að
niæta.
í dagskrárkynningu Jóhannesarvöku
segir að nú sé aftur vakinn upp gamall
siður, að halda vökudaga á vormiss-
eri. Einnig segir að nafnið sé til
komið vegna húsvarðar sem starfaði
við skólann, og bar þetta sama nafn.
í niðurlagi kynningarinnar segir að
nemendur séu hvattir til þess að
mæta, og hjálpast að við að gera
þessa Jóhannesarvöku sem
eftirminnilegasta. „Pað getunr við
með sameiginlegu átaki, sania hvað
kennaradeilum líður."
Það verður margt fróðiegt sem
nemendur taka sér fyrir hendur dag-
ana 8.-13. mars á rneðan Jóhannesar-
vakan stendur. Sem dæmi má nefna
útvarp M.H. sem starfrækt verður frá
klukkan 13-18 á daginn, og útsend-
ingar hefjast síðan urn kvöldið klukk-
an 20 og standa eitthvað fram eftir
nóttu.
Veitingahús verður starfrækt í
Norðurkjallara, og verður boðið uppá
pizzur og „léttar" veitingar. Til mót-
vægis við veitingahúsið verður testofa
fyrir gesti í Búlagaríu, sem er einn af
húsakostum skólans.
Tölvuvædd hjónabandsmiðlun
verður rekin eins og í fyrra, en hún
fékk nijög góðan hljómgrunn meðal
nemenda, hver svo sem niðurstaðan
var, í makavali.
Ncmendur ljúka síðan vökudögun-
um með hressilegri gleði í Broadway
miðvikudagskvöldið 13. mars, og
verður það urn leið árshátíð M.H.
Dagskráin er mjög fjölbreytt. í
viðtali við nokkra af þeini nemend-
um, sent starfa í undirbúningsnefnd
Jóhannesarvöku, kom fram að allir
ættu að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi og nefndu krakkarnir leikrit,
vídeósýningar, djassleik, umræður
um þjóðmál og ýmislegt annað for-
vitnilegt, scm enn er ekki tímabært
að skýra frá.
■ Jóhannesarvaka hefst í dag í Menntaskólanum við Hamrahlíð, og lýkur síðan á miðvikudag með árshátíð nemenda.
NT-mynd: Ari.
ftarandi
Vesturgötu 4, sími 17445
Á þessum tíma fyllast tónlistarhallir Vínarborgar
af perlum listasögunnar. Óperur á borð við Boris
Godunow, Aida og Cavalleria Rusticana, margir
ballettar, þ.á m. Rómeó og Júlfa og stórhljómsveitir
undir stjórn frægra hljómsveitarstjóra.
Nccr hálfnuð er saga ...
Þú getur gengið um sögusvið miðalda í þessari
töfrandi borg, sótt fjölda leiksýninga, notið
veitinga- og kaffihúsa heimsborgarinnar, teygað
eðalvín með vínbændum Grinzing, trallað með
jassgeggjurum og verslað fyrir verð sem kemur þér
þægilega á óvart.
Spennandi skoðunarferðir um
Austurríki, Ungverjaland og Tékkóslóvakíu
Frá Vínarborg gefstþér tækifæritil aðheimsækja
og skoða fjölda heillandi staða. Litið er inn í hús
meistara Haydn í dagsferð til Burgenland og
Rohrau. Siglt á Dóná í dagsferð til Wachau. í 2ja
daga ferðum gefst tækifæri til að sjá hinar
einstæðu borgir Budapest og Prag.
Komið við í Zell am See og Salzburg
Síðustu fimm dagana njóta gestirnir lífsins í
hinum fræga ferðamannabæ í Ölpunum, Zell am
See, og í Salzburg, sem sannarlega erein fallegasta
borg álfunnar. Ekið er til staðanna í mjög
þægiiegum langferðabíl. Heim erflogiðþ. 12. júní
frá Salzburg.