NT - 23.03.1985, Blaðsíða 4
n
7. tbl. mars 1985 4 — Blað II
ÁBÓT
Mataruppskriflir fyrir hrútsmerkið
21.mars-20. apríl
■ Hrúturinn er fyrsta merkið
í stjörnumerkjahringnum. Þeir
sem fæddir eru undir hrúts-
merkinu þjást oft af höfuð-
verk, andleysi og taugakrampa
í höfði. Þeir geta líka haft
maga- og nýrnavandamál. En
að öllu jöfnu eru þeir heil-
brigðir og kraftmiklir einstakl-
ingar en geta samt verið fljótir
að skipta skapi.
Fæðingasalt hrútsins er fos-
fór og þurfa þeir að huga að
vöntun á því. Vöntun á fosfór
getur leitt til þess að sá sem
þjáist af henni geti orðið upp-
stökkur og andlaus.
Matur sem er ríkur af fosfór
er fyrst og fremst tómatar,
rauðrófur, selleri, grapeávöxt-
ur og epli.
Hrútarnir kunna venjulega
best við einfaldan mat. Öðru
hverju hafa þeir þörf fyrir að
narta í mat allan daginn og til
þcss að reyna að hamla gegn
þessu þurfa þeir góðan morg-
unmat og hitaeiningasnautt
mataræði. Aspargus, blómkál,
hvítkál, gulrætur og jarðarber
eru mjög góðar matartegundir
fyrir hrútinn og mjög vinsælar
af þeim.
Eins og að ofan er skráð er
auðséð að hrútar ættu ekki að
fá fitandi mat þar sem þeir eiga
á hættu að fitna. Nokkrir hrút-
ar eru þó þekktir fyrir að vera
öfgafullir í líkamsþjálfun og
halda sér í mjög ströngum
matarkúr.
Maðurinn í þessu merki get-
ur verið mjög ákveðinn í sam-
bandi við mat, til dæmis vill
hann venjulegasafaríkar steik-
ur. Menn og konur í þessu
merki vilja blóðsteikt kjöt og
helst grillað ef hægt er.
Hrútasalat
1 epli
1 selleri
1 tómatur
Vt hvítkálshöfuð
3 msk sólblómaolía
1 msk eplaedik
-safi úr Vi sítrónu
salt og pipar
Blandið olíu, ediki, sítrónu-
safa og kryddi vel saman í
salatskálinni. Rífið hvítkálið
gróft,skerið selleríið í þunnar
sneiðar, skerið eplið í litla
teninga og blandið þessu öllu
vel saman. Skreytið með tó-
matbátum og persillu ef hún er
til.
Rækjur og aspargus í
hvítri sósu
120 gr. rækjur
1 lítil dós aspargus
ögn af múskati, salt, pipar
60. gr. smjör
4 dl. mjólk
2 msk. rjómi
paprika
Látið renna af rækjunum og
aspargusnum og leggiö í lög í
ofnfast mót og þekið með ál-
pappír og látið í meðalheitan
ofn. Bræðið smjörið í litlum
potti, bætið út í hveiti, sjóðið
í 2 mínútur, hrærið vel í á
meðan.
Látið pottinn aftur á hitann,
hrærið stöðugt í, látið suðuna
koma upp og sjóðið í 4-5
mínútur. Bætið út í rjómanum
og kryddið. Takið rækjurnar
og aspagusinn út úr ofninum
hellið sósunni yfir og straíð
yfir með papriku.
Berið fram heitt. Það má
nota safann af aspargusnum út
í sósuna ef vill.
Grænmetissúpa
2 msk sólblómaolía
1 meðal gulrót
1 msk kurluð bygggrjón (eða
hrísgrjón)
1 selleri
1 meðalrófa
1 stór tómatur
vöndur með kryddjurtum
(timian, persillukvistur og lár-
viðarlauf)
1 laukur
1 líter kjötsoð
salt, pipar
rifinn ostur
Saxið laukinn frekar gróft
og brúnið í fáeinar mínútur í
súpupotti við meðalhita. Sker-
ið niður gulrætur, selleri, tó-
mat og blandið saman við lauk-
inn. Bætið útí soði, kryddvendi
og byggi. Látið suðuna koma
upp og látið malla í % klst.
Fjarlægið kryddvöndulinn,
kryddið eftir smekk og berið
fram með rifnum osti.
Grilluð steik á
steiktu brauði
4 sneiðar nauakjöt 5 cm, þykk-
ar
250 gr gulrætur
250 gr sveppir
120 gr smjör
4 tómatar.
4 kringlóttar brauðsneiðar 2
cm, þykkar
Snyrtið til kjötsneiðarnar ef
með þarf og penslið. með olíu
áður en þið grillið. Skrapið og
skerið gulræturnar langsum og
sjóðið í söltuðu vatni. Þvoið
og þurrkið sveppina en afhýðið
þá ekki, skerið aðeins af það
neðsta af stilkunum. Steikið
þá síðan í smjöri þangað til
þeir eru mevrir. kryddið þá
eftir smekk. Gerið kross með
litlum hníf neðan í hvern
tómat. Leggið þá uiulir grillið
5 mínútum áður en bvrjað er
að grilla kjötið. Látið aðeins
brætt smjör á hvcrn tómat.
Grillið tómatana þangað til
þcir eru meyrir. Grillið kjöt-
sneiðarnar í 6 mínútur á hvorri
Marengs-ánægja
9 marengskökur
250 gr frosin hindber eða jarð-
arber
1 lítil dós ananashringir
V* I rjómi
safí úr Vi sítrónu
appelsínuhlaup úr ‘AI af safa
1 msk matarlímsduft
Skerið 5 marengskökur í
litla bita. Látið til hliðar 4 góð
ber til að skreyta með, skerið
ananasinn í smábita, þeytið
rjómann. Látiðlagaf hindberj-
um í glerskál eða falleg vínglös
og hellið yfir aðeins sítrónu-
safa. Látið síðan lag af mar-
engs og að síðustu lag af anan-
as, ýrið sítrónusafa yfir hvert
lag. Bræðið matarlímsduftið í
dálitlu heitu vatni við lítinn
hita þangað til það er alveg
gagnsætt, bætið þá út í appels-
ínusafanum. Látið standa í
ísskáp þangað til hlaupið er
alveg stíft. Sprautið þeyttum
rjóma yfir og skreytið með
afganginum af marengskökun-
um sem eru skornar í tvennt og
hindberjunum.
hlið. Steikið brauðið á báðum
hliðum í smjöri þangað til það
er vel brúnað og stökkt, setjið
það síðan á heita diska með
kjötinu ofan á. Skreytið með
tómötunum, sveppunum og
gulrótunum, stráið yfir með
saxaðri persillu. Berið strax
fram vel heitt.
í 6 klukkutíma. Fleytið ofan af
ef froða myndast. Bleytið
stykki í köldu vatni og vindið
það. Síið soðið í gegnum
stykkið í annan stóran pott.
Látið út í eggjahvíturnar og
mulda eggjaskurnið, þeytið
rösklega þangað til soðið er
farið að sjóða. Hættið að
þeyta, minnkið hitann og látið
malla í 30 mínútur eða svo
þangað til eggjahvíturnar
mynda lag efst á soðinu. Hreyf-
ið alls ekki við þessu lagi.
Vindið hreint stykki í köldu
vatni og leggið stykkið yfir
sigti. Haldið aftur eggjahvítu-
laginu með sleif á meðan soð-
inu er hellt yfir sigtið. Reynið
um það bil 1 matskeið af soði
eða svo í eggjabikar og látið í
ísskáp í dálítin tíma til þess að
sjá hvort soðið hlaupi. Ef það
hleypur ekki þarf að sjóða það
meira niður til þess að það
hlaupi. Að öðru leyti er farið
eftir uppskriftinni hér að ofan.
Aðalréttur
Fyrir nautasteikur eru
keyptar tvær sneiðar af innan-
lærisvöðva um það bil 5 cm
þykkar. Þurrkið kjötið vel með
röku stykki og snyrtið til ef
með þarf. Kryddið eftir smekk
og grillið kjötið í 5-6 mínútur
á hvorri hlið. Hitið 2 msk. af
koníaki í mjög litlum potti,
fjarlægið kjötið af grillinu og
leggið á mjög heitan disk.
Hellið heitu koníakinu yfir
kjötið og kveikið í því með eld-
spýtu þegar það er borið fram
Búið til grænt salat á
venjulegan hátt með olíu,
ediki og salti og pipar eftir
smekk. Afhýðið 1 kgafgóðum
kartöflum, látið í pott með
frekar litlu vatni ásamt 1-2 tsk
af sítrónusafa, 1 mola af mola-
sykri og smávegis piparmintu.
Sjóðið þar til þær eru meyrar.
Eftirréttir
Jarðarberin eru útbúin
þannig að ef notuð eru frosin
jarðarber eru þau afþídd og
þau þurrkuð varlega með votu
stykki. Ef notuð eru niðursoð-
in ber er safinn sigtaður frá og
þau þurrkuð. Leggið jarðar-
berin á glerdisk, stráið yfir 1
msk af flórsykri og hellið þar
yfir 1 litlu glasi af rauðvíni.
Látið standa í ísskáp í um það
bil 1 klukkustund.
Afmælismatseðill hrúta
Hleypt kjötsoð með ístening-
um
Logandi nautasteik með grænu
salati
Jarðarber í rauðvíni
Vin: Chateau Canternerle
Forréttur
Ódýrasta og fljótlegasta að-
ferðin til að búa til hleypt
kjötsoð með stuttum fyrirvara
er að kaupa dós af kjötsoði af
góðu vörumerki, hita það og
láta það standa í ísskápnum í
12 tíma til að láta það hlaupa.
leggið ísteninga í súpuskál,
látið hleypta kjötsoðið ofan á
og berið strax fram. En svo
kemur hér uppskrift af góðu
soði sem hægt er að hleypa. 1
kg nautakjöt skorið í bita, 1 kg
nautabein söguð í litla bita, 2
grísafætur, 2 lítrar vatn, 2
stórir laukar skornir í tvennt,
afhýðið þá ekki, 3 gulrætur
skornar í tvennt, 3 selleristilk-
ar skornir í tvennt, 1 púrra
skorin í tvennt, 10 piparkorn,
8 negulnaglar, 1 lárviðarlauf, 1
kvistur timian, 2 eggjahvítur
léttþeyttar, 2 eggjaskurn
þurrkuð hrein og mulin.
Setjið allt í stóran súpupott
nema eggjahvíturnar og
eggjaskurnið. Látið suðuna
koma upp, minnkið hitann og
látið malla mjög rólega án loks