NT - 23.03.1985, Side 11
l n 7. tbl. mars 1985 10-Blaðll 7. tbl. mars 1985 11 — Blað II
LlL I iiL
■ Álafoss hf. er gamalt og
gróið fyrirtæki í íslenskum
ullariðnaði stofnað árið 1896.
Alls kyns ullarvörur eru fram-
leiddar í verksmiðju þess í
Mosfellssveitinni. Framleiðsla
á gólfteppum hófst þar fyrir
rúmum tuttugu og átta árum
og stendur enn þrátt fyrir
harða samkeppni við innflutt
teppi.
Einar Egilsson er verslunar-
stjóri teppadeildar í Álafoss-
versluninni að Vesturgötu 2
hér í Reykjavík. í greininni
hér á eftir skýrir hann frá
hvernig framleiðslu gólfteppa
er háttað, þróuninni og hvaða
gerðir eru nú á boðstólum í
versluninni. Ennfremur segir
hann sögu þessa merkilega
húss sem verslunin er staðsett
í.
íslensk ull
Framan af voru íslensk gólf-
teppi svo til einráð á mark-
aðnum og höfðu litla sem enga
samkeppni. enda voru fimm
gólfteppaverksmiðjur starf-
andi hér. Fyrir um tólf árum
síðan fór að hefjast verulegur
innflutningur á erlendum gólf-
teppum og þá fór samkeppnin
að harðna.Otlendu teppin voru
úr gervieínum eða gerviefna-
■ Einar Egilsson verslunarstjóri í gólfteppadeildinni
NT-mynd: Sverrir
Séð út um borgarhliðið. Hlaðni veggurinn er hluti af gömlu undirgöngunum.
NT-mynd: Sverrir
blönduð og því mikið ódýrari
en íslensku ullarteppin. í upp-
hafi voru þau ekki talin síðri
en ullarteppin og jafnvel
fremri. Það varð því crfið og
hörð barátta íslensku gólf-
teppafratneliðendanna að
lialda velli. En með tímanum
og reynslu kom í ljós, að
gerviefnateppin virtust ekki
vera svo mikið sterkari sérstak-
lega þegar þau urðu fyrir ntikl-
um ágangi og núningi.
Ullin hefur ýmsa kosti fram
yfir gerviefnin. Hún er lifandi
og ef hún bælist þá réttir hún
sig strax. Viðurkennt er að
auðveldara er að þrífa ullar-
teppi heldur en teppi úr gervi-
efnum. Einnig eru ullarteppi
óneitanlega mikið meira
hlífðarefni, bæði hljóð- og
hitaeinangra betur. Þau standa
nær manninum, honum líður
betur með þessunt náttúrulegu
efnum.
Hjá Álafossi hefur alla tíð
verið notuð ný og hrein ull í
teppaframleiðsluna. Ullin
kemur beint af kindinni í verk-
smiðjuna þar sem hún er
þvegin, þurrkuð, lituð og
spunnin. Ollarbandið er síðan
notað við gólfteppaframleiðsl-
una ásamt öðrum náttúruleg-
um efnum.
Gamlar aðferðir
„Það má segja að samkeppn-
in hafi bara verið okkur til
góðs,“ segir Einar. „Þetta
hafði í för með sér að við
þurftum að breyta ýmsu og
höfum nú jafnað okkur að
mestu. Við höfum alltaf verið
í dýrari klassanum, en ef mið-
að er við sambærileg teppi
erlendis frá, með sama garn-
magn á fermeter og sama
vefnað, þá eru okkar teppi síst
dýrari í dag. En unt leið og
farið er að blanda gerviefnum
þá er hægt að komast neðar í
verði. Einnig ef vefnaðarað-
ferðum er breytt og filt er
samlímt við teppið og fleira.
Við notum gömlu lagning-
araðferðirnar að leggja filt
sér og teppið sér, og síðan er
það strekkt á gaddalista. Það
gefur ýmsa kosti þar sem hin
gerðin er yfirleitt límd niður á
gólfið. Af listunum er hægt að
■ Vesturgata 2 í dag.
taka teppið upp, til dæmis ef
að það blotnar og það er hægt
að færa það milli herbergja.
Nú eru erlendir fram-
leiðendur mikið að fara inn á
þessa braut aftur. Það fæst
meiri fjöðrun með þessum
hætti. Það myndast loftpúði
milli teppisins og filtsins og
það gefur meiri mýkt.
Vefnaður
Það má tala um þrjár gerðir
vefnaðar í gólfteppum. Það
sem er viðurkennt vandaðast
er Wilton-vefnaðurinn, en við
hann er notaður vefstóll og
skyttur. Annar er Axminster-
vefnaður sem er svipaður en
einfaldari að gerð. Sá þriðji er
svo kallaður Tufting-vefnaður
en við hann er ekki notaður
vefstóll, heldur er byrjað með
Hessíanstriga og það eru nálar
sem stingast í gegnum hann.
Þetta er því svolítið svipað og
rýateppi. Botn þessara teppa
er límborinn.
Álafoss er með tvær gerðir
vefnaðar, Wilton og Tufting.
Frá upphafi hafa verið fram-
leidd þar Wilton-ofin teppi. í
þeim er garnið tekið niður í
botninn, en ásamt því er botn-
inn úr juta og bómull. Styrk-
leikamunur er á þessum
gerðum, Wilton teppin eru
mun sterkari en Tuftingofnu
teppin. Axminsterteppi hefur
verksmiðjan aldrei framleitt.
Mosateppi
Fyrir um það bil tveim árum
síðan var samkeppnin orðin
ansi hörð við útlendu teppin.
Til þess að gera eitthvað á móti
þvt voru hönnuðTufting-ofin
teppi úr einspunagarni og tölu-
vert minna garnmagni en hafði
verið notað í fyrri Tufting-
teppi. Þessi teppi voru um
þriðjungi ódýrari. Þau voru
alveg frambærileg gólfteppi,
en vissulega var gæðamunur á
þeim og hinum. Viðbrögðin
urðu ekki góð. Fólk tók-frekar
þessi dýrari og efnismeiri til að
vera öruggara. Þess vegna var
dregið úr þessari framleiðslu.
Rætt við Iúinar Egilsson verslnn-
arstjóra I Álafossversluninni
Nýjungar
Nú er í bígerð að koma með
fleiri gerðir af yrjóttum
teppum. En staðreyndin er, að
Ijósu teppin eru alltaf lang-
vinsælust. Nýjung hjá fyrirtæk-
inu er að vera með alullar-
gluggatjöld, áklæði og gólf-
teppi allt í sama lit.
Töluvert hefur verið um að
sérofin hafa verið teppi fyrir
stofnanir og fyrirtæki. Arki-
tektar eru fengnir til að teikna
munstur og velja saman liti
þannig að fyrirtækin fá „sitt“
eigið teppi. Flest stærstu hótel-
in og skemmtistaðirnir hafa
notfært sér þetta.
Á markaðnum eru margar
gerðir af gólfteppum úr ýmsum
efnum. Og það eru ekki allir
sem velja sér endilega vönduð
teppi. Það er hægt að kaupa
teppi sem endast skemur og
eru um leið ódýrari. Þetta er
alltaf spurningin um vörugæði
og verð. En þeir hjá Álafossi
eru stoltir af að geta boðið
fólki íslensk gólfteppi úr góðri
íslenskri ull.
En það eru aðrar nýjungar
hjá Álafossi sem eru merkileg-
ar. Starfsfólkið er nú að verða
meiri þátttakendur í stjórn
fyrirtækisins. Stefnt er að því
að það eignist 20% hlutafjár á
næstu tveim árum.
(Grófinni
Álafossverslunin er að Vest-
urgötu 2 mitt í Grófinni. „Við
erum stolt af því að vera hérna,
hér er upphafsstaður alls
mannlífs á landinu," segir Ein-
ar verslunarstjóri. „Ef ingólfs
ímyndin er rétt, þá á hann að
hafa lent skipi sínu hérna í
Grófinni og farið hér á land
með fólk sitt. Grófin var fram
yfir aldamót aðalathafnasvæð-
ið í bænum.
Verslun Álafoss er í Bryggju-
húsinu, sem svo var kallað.
Það var byggt 1863 af Koch og
Henderson er þá voru umboðs-
menn Sameinaða Gufuskipafé-
lagsins. Seinna eignaðist Fisc-
her það og rak þar mikla
starfsemi, lengdi til dæmis
bryggjuna 1895. Eftir að W.
Fischer lagði upp laupana 1907
keyptifirmaðH.P. Duuseignir
hans og rak með miklum glæsi-
brag fram undir 1928, að það
varð gjaldþrota. Nathan og
Olsen eignuðust þá Bryggju-
húsið og létu þá strax byggja
ofan á það. Verslunarspari-
sjóðurinn kaupir það 1960, þá
Loftleiðir en af þeim keypti
Álafoss 1976.
Margt er merkilegt við
Bryggjuhúsið gamla. Út frá
því gekk aðalbryggjan og þeg-
ar gestir komu til landsins var
gengið í gegnum undirgöng
sem lágu í gegnum húsið.
Þarna var því borgarhlið
bæjarins um tíma. Allar götur
í Reykjavík voru númeraðar
út frá þessu húsi. Þar söfnuðust
oft saman menn, aðallega sjó-
menn seinnihluta dags og segja
má að innanbúðar þar og við
suð-vestur hornið hafi verið
'ein af þrem fréttastofum
bæjarins, þar sem rætt var um
landsins gagn og nauðsynjar
og sagðar fréttir. Á vesturgafli
hússins var veðurmælingar-
tæki, þannig að þarna var líka
veðurathugunarstöð.
Á tímabili þótt mjög reimt í
Grófinni vestan við Bryggju-
húsið. Kvað svo rammt að
þessu, að fólk tók á sig stóran
krók ef það þurfti að fara þar
um. Sáust þaroftþrjár persón-
ur á gangi, tveir karlmenn og
ein kona. En þetta fólk hafði
fyrirfarið sér þarna í fjörunni.
Úm þetta skrifaði Þórbergur
Þórðarson í Ofvitanum.
Inn af teppaversluninni er
sýningarsalur sem nefnist Ból-
virkið, en þar stóð einmitt
bólvirki hér áður fyrr. Einar
segir að lokum: „Það er líka
kannski vel við hæfi að iðnfyr-
irtæki sé á þessum stað. Fyrstu
iðnfyrirtæki landsins, Innrétt-
ingar Skúla Magnússonar fóg-
eta, voru aðeins steinsnar
hérna frá.“
Bryggjuhúsið um 1910. Dökka rákin á húshliðinni sýnir hvar fólk hefur hallað sér upp að og sagt
fréttir. Ljósmynd: Magnús Ólafsson, Ijósmyndasafnið
NT-mynd: Sverrir
En fyrir einu og hálfu ári
síðan var ákveðið að auka
fjölbreytnina í Jtéttofnu Tuft-
ingteppunum. Áðurhöfðu þau
aðeins verið framleidd einlit
og eftirspurn var töluverð eftir
yrjóttum teppum. Því var hafin
framleiðsla á svokölluðum
mosateppum þar sem líkt er
eftir lit og áferð fjögurra ís-
lenskra mosategunda. Guðrún
Gunnarsdóttir hönnuður var
fengin til að samræma liti og
munstur.
Þær mosategundir sem vald-
ar voru til að líkja eftir voru
grámosinn (gamburmosi),
dýjamosi, barnamosi og hadd-
mosi. Þessi teppi hafa gert
lukku þannig að hin Tufting-
teppin eru farin að fá mosa-
nafnið á sig. Samlíkingin við
mosa á vel við, því hann er
afskaplega mjúkur eins og
teppin. Einnig er mosinn nátt-
úrulegt efni eins og ullin.
Svipmytidir
frá
gólfteppa-
verksmiðju
Álafoss
■ Séð yfir verksmiðjusvæð-
Hinn stóri Wiltonteppavefstóll.
NT-mynd: Sverrir.
■ Skyggnst á bakvið Wilton-
tcppavefstólinn.
NT-mynd: Sverrir.
■ Tuftingteppin eru fram-
leidd á þessum grip.
NT-mynd: Sverrir.
■ Menn að störfum við Wil-
tonteppavefstóla.
NT-mynd: Sverrir.