NT - 28.03.1985, Blaðsíða 9

NT - 28.03.1985, Blaðsíða 9
K SKRÁ yfir reykingar Dags. ________________ Timi Þörf Staður/aðstæöur (kl) (1-3) * Færa skal á skrána jafnóöum upplýsingar um hverja sígarettu sem reykt er og vefja örkinni síöan aftur utan um pakkann. Skipt skal “um örk daglega. Gefa skal 1 fyrir þörf ef þér finnst þú ekki geta veriö án þeirrar sígarettu, 2 ef þörfin er ekki eins mikil og 3 ef vel mátti vera án sígarettunnar. Fimmtudagur 28. mars 1985 9 Hættið að reykja með NT ■ Ert þú í liópi þeirra sem lengi hafa hugsað sér að hætta að reykja, en hafa af einhverj- um ástæðum aldrei gert neitt í því. Pað er ekki ótrúlegt, því fæst okkar sem reykjum, ger- um það með þeim ásetningi að halda því áfram ævilangt. Pvert á móti ætlum við að hætta, - en einhvern tíma seinna, allavega ekki alveg strax, ekki í dag. Kannski á morgun - eða hinn. Einhvern tíma þegar betur stendur á. Gallinn er bara sá að það stendur aldrei betur á, - alla vega ekki nógu miklu betur til að við gerum alvoru úr því að hætta. Þannig líða dagar og vikur sem renna saman í mán- uði og ár og jafnvel áratugi án þess að við tökum eftir því. Erfitt eða auðvelt Að sögn fróðra manna er það ákaflega misjafnt hversu erfitt eða auðvelt fólki reynist að hætta reykingum. Flestir munu þó finna til nokkurra fráhvarfseinkenna og þetta merkilega sambland af löngun og vana munu án efa gera okkur lífið leitt a.m.k. fyrstu dagana. En kostirnir við að hætta reykingum eru líka margir og stórir og við verðum sumra þeirra vör ótrúlega fljótt. Þannig hverfur morgunhóstinn á nokkrum dögum. Maturinn tekur allt í einu að bragðast betur og nefið tekur að greina löngu gleymda lykt og við sofum betur. Við, reykingafólkið, búum líka við stöðuga kolsýrings- eitrun, sem hverfur skömmu eftir að við hættum að reykja. Af því leiðir betri svefn og minni þreyta. Við skipuleggjum fyrirfram Eins og áður segir getur það verið talsverðum erfiðleikum bundið að hætta að reykja. Góður undirbúningur og fastur ásetningur eykur hins vegar verulega við líkurnar á því að standast freistingarnar. Fyrir það fyrsta gildir að ákveða hvaða dag við hættum að reykja. Þann dag hættum við síðan og hvorki fyrr né síðar. Námskeið Krabba- meinsfélagsins hefst þriðju- daginn 2. apríl og hér í NT verða birtar daglegar frásagnir af því. Þrjú undirbúningsatriði Hvaða ástæður liggja að baki því að þú vilt hætta að reykja? Skráðu þær vandlega niður og bættu við skrána jafn- Sígarettuneysla og lungnaþemba Hundraðshlutar af Stig lungnaþembu Mjög mlkil / mikil Þeim sem reykja ekki 0,0 Pipu / vindla- reykinga- mönnum 1,2 Sigarettu- reykingamönnum Fjöldi sigaretta á dag: 1 - 19 20 og meira 11,7 19,2 Nokkur / litil 6,2 3,8 ■9 ■KEH 58,8 | Hverfandi WMM 5,2 Engin 90,0 46,5 13,1 0,3 ■ Þessi tafla sýnir niðurstöður sem fengust með því að kryfja lík 1158 karlmanna sem létust á ýmsum sjúkrahúsum í Bandaríkjunum árið 1963-70. Stig lungnaþembu var sérstaklega kannað við krufninguna. Þetta er lungnasjúkdómur sem einkennist af því að veggirnir f hinum litlu lungnablöðrum ónýtast, blöðrurnar vikka út og verða óstarfhæfar. Taflan sýnir að milli 10 og 20% sígarettureykingamanna voru með mikla eða mjög mikla lungnaþembu en enginn þeirra sem reyktu ekki. Tekið er tillit til aldurs við útreikningana og er þvi hægt að bera hundraðstölurnar saman í þessum fjórum hópum. óðum og þér dettur eitthvað nýtt í hug. Þetta er mikilvægur undirbúningur því þegar freist- ingarnar fara að sækja á þig, áttu þarna heilt forðabúr af röksemdum. Klipptu út eyðublaðið hér á síðunni og færðu skrá yfir reyk- ingavenjur þínar. Þetta hjálpar þér til að skilja hvers konar aðstæður helst þarf að varast svo að freistingarnar verði ekki allt of niikil þolraun. Gerðu líka skrá yfir þá staði og aðstæður þar sem þú reykir aldrei eða mjög sjaldan. Til þessara kringumstæðna getur þú flúið þegar löngunin verður of sterk. Gríptu tækifærið Þetta er nú allt saman gott og blessað, en það stendur kannski ekki rétt vel á fyrir þér núna. Hvarflaði þessi hugsun að þér eða önnur svipuð? Við spyrjum á móti; held- urðu að það komi nokkurn tíma til með að standa betur á? Þegar allt kemur til alls er þetta heldur ekki hin raun- verulega ástæða. Hin raun- verulega ástæða er sú að við erum hrædd við að leggja á okkur það líkamlega erfiði sem því fylgir að hætta að reykja. Við sem byrjum á námskeið- inu hjá Krabbameinsfélaginu þann 2. apríl erum hins vegar staðráðin í að fresta þessu ekki lengur. Við ætlum að sleppa morgunsígarettunni 2. apríl og öllum öðrum sígarettum þann daginn. Gríptu tækifærið og vertu með. Skrá yfir reykingar ■ Allir þátttakendur á námskeiði Krabba- meinsfélagsins fá nokkur eintök af þessu eyðublaði til að skrá reykingar sínar síðustu dagana áður en hætt er. Rétt er að vefja því utan um sígarettupakkann svo aldrei gleym- ist að skrásetja þegar reykt er. Hvað kostar að reykja? Ef þú reykir svomikiðsem þá hefur það kostað þig Á viku Á mán. Á ári. Á 10árum 1/2 pakkaádag 262 1.125 13.687 136.875 1 pakkaádag 525 2.250 27.375 273.750 11/2 pakkaádag 787 3.375 41.062 410.625 2 pakkaádag 1.050 4.500 54.750 543.500 21/2 pakkaádag 1.312 6.525 68.437 684.375 A reykinga- tíma þínum ■ Öll vitum við að sígarettureyking- ar kosta peninga. Við gerum hins vegar sjálfsagt minna af því að reikna nákvæmlega saman hversu miklum fjármunum við höfum varið til þessar- ar niðurrifsstarfsemi gegnum tíðina. En nú, þegar við ætlum að hætta, er kannski ekki úr vegi að líta aðeins á tölurnar. Það er nefnilega ekki að vita nema þær kynnu að staðfesta okkur ögn í trúnni á reyklaust fram- haldslíf. í meðfylgjandi töflu er reiknað með að sígarettupakkinn kosti 75 krónur sem um þessar mutdir mun vera nálægt réttu lagi. Að vísu þykjast margir spara stórfé þessa dagana með því að reykja franskar sígarettur á tombóluverði, en þær eiga eftir að hækka, verið þið viss! í aftasta dálki töflunnar er pláss fyrir þína krónutölu í þessu sam- bandi. Það er einfalt að finna hana. Þú velur þér línu í töflunni, eftir því hversu mikið þú reykir á dag og þá er auðvelt að sjá hversu mikið það kostar á einu ári. Þessa tölu margfald- arðu svo með fjölda þeirra ára sem þú hefur verið sígarettur galeiðuþræll herra Nikótínusar keisara. Hversu mörgum krónum hefur þú svo varið í sígarettur, þegar öll kurl eru saman komin á grafarbarminum? Skrifaðu töluna á réttan stað í aftasta dálkinum og horfðu á hana svolitla stund. Þú hefur örugglega gott af því. Þeir sem vilja geta svo dundað sér við að reikna út vextina; LÁSBY Mykjudæla dráttavélaknúin 3 metrar eða 3,6 metrar Til dreifingar úr mykjuþróm og kjöllurum. Galvaniserað eða lakkað. Yerð frá kr. 75.100.- Hafið samband við sölumenn okkar, sem veita allar nánari upplýsingar Gfobus,f LÁGMÚLI 5, SlMI 81555

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.