NT - 28.03.1985, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 28. mars 1985 21
■ Eþíópskir flóttamenn í Sómalíu. Fjöldi Eþíópíumanna hafa
flúiö þurrkana og hungursneyðina í heimalandi sínu. En nú er
ástandið í nágrannalöndunum engu betra en í Eþíópíu.
Þurrkarnir í Afríku:
Hungursneyðin
mun aukast enn
Ottawa-Reuter:
■ Þróunarráðherra Kanada,
David MacDonald sem hefur
yfirumsjón með aðstoð Kan-
adamanna við önnur ríki, segir
að hungursneyðin í Afríku hafi
ekki enn náð hámarki þótt nú
þegar séu 30 milljón mannslíf í
hættu í álfunni.
MacDonald varaði við öllum
töfum á aðstoð við fólk á
þurrkasvæðunum í skýrslu sem
hann samdi fyrir utanríkisráðu-
neytið í Kanada. A blaða-
mannafundi sem hann boðaði
til fyrr í vikunni sagði hann m.a.
að hungursneyðin í Afríku
myndi líklega ekki ná hámarki
fyrr en eftir fjóra til sex mánuði.
Kanadamenn hafa sent sem
svarar 80 milljón Bandaríkja-
dollurum í neyðaraðstoð til Afr-
íku frá því í nóvember.
Þriðjungur þessarar upphæðar
kom frá einkaaðilum og söfnun-
um meðal almennings.
Nígería fær lán
Lagos-Reutcr ar ísl. kr.) á mjög hagstæðum
■ Efnahagsbandalag Evr- kjörum til 40 ára.
ópu hefur ákveðið að lána Fyrstu tíu árin ber lánið
Nígeríumönnum 200 milljónir aðeins eitt prósent vexti og
Evrópudollara (7,5 milljarð- er afborgunarlaust.
Útlönd
Táningur á krítarkortsheimsreisu
Frankfurl-Reuter
■ Sextán ára gamall vestur-
þýskur piltur fór í heimsreisu og
bjó á dýrustu og fínustu hótel-
um heims eftir að hafa fengið
sent krítarkort í pósti. Honum
tókst að fá krítarkortið með því
að segjast vera 41 árs gamall
læknir, sem ætti fimni hús og
hefði 50.000 marka árstekjur.
Þegar pilturinn náðist hafði
hann ferðast til London, París-
ar, Rio De Janeiro og Ham-
borgar. Hann ntun að minnsta
kosti hafa eytt 40.000 mörkum í
túrnum (um hálf milljón ísl.
kr.) og eru þá flugmiðarnir ckki
taldir með.
Upp komst um piltinn vegna
grunsemda dyravarðar í hóteli í
Hamborg sem fannst ólíklegt
að titillinn „doktor“ á. krítar-
kortinu gæti átt við hann.
Nýbyggingarsam-
dráttur í Svíþjóð
■ Mikill samdráttur er nú í
nýbyggingum í Svíþjóð. Á
síðasta ári var aðeins lokið
við 34.988 íbúðir og einbýlis-
hús sem er 19% samdráttur
frá því 1983 og minni fjöldi
en nokkurn tímann frá því
árið 1942.
Nýbyggðum einbýlishús-
um fækkaði meira en íbúðum
í fjölbýlishúsum. Lokið var
við 17.891 einbýlishús á árinu
sem er 23% samdráttur og
17.097 íbúðir í fjölbýli sem
er 15% samdráttur.
Endurnýjun eldra húsnæð-
is jókst hins vegar mikið á
seinasta ári í Svíþjóð. Lokið
var við endurnýjun 25.681
íbúðar í fjölbýli sem er 34%
aukning frá árinu þar áður. í
mörgum tilvikum voru tvær
eldri íbúðir sameinaðar í
eina þannig að fjöldi íbúð-
anna fyrir endurnýjunina var
28.043.
65% af nýbyggðum íbúð-
um í fjölbýli voru leiguíbúðir
en aðeins 35% eignaríbúðir.
Hlutfall leiguíbúða árið 1983
var 61% og þá voru eignar-
íbúðir 39% af nýbyggðum
fjölbýlisíbúðum.
Y
Seldu háskólagráður
Genoa-Reuier. mörg hundruð vottorð um út-
■ Tíu menn hafa verið hand- skrift frá breskum og ítölskum
teknir á Ítalíu fyrir að selja háskólum.
íbúum í Ungverja-
landi fer fækkandi
■ íbúum Ungverjalands
fækkaði um 22 þúsund á sein-
asta ári. Þeir urðu flestir
10,71 milljón árið 1980 en
síðan hefur þeim samtals
fækkað um 56 þúsund.
Sérfræðingar segja höfuð-
ástæðuna fyrir fólksfækkun-
inni vera fáar fæðingar á
sjöunda áratugnum. Konur
sem þá fæddust eru nú á
barneignaaldri en þær eru
það fáar og tíðni fæðinga hjá
þeim svo lág að hún nægir
ekki til að vega upp á móti
fjölgun dauðsfalla.
Þrátt fyrir að meðalæfin
hafi lengst hefur tíðni dauðs-
falla aukist að undanförnu
þar sem þjóðin hefur elst og
stærra hlutfall Ungverja er á
gamals aldri en áður.
Ungversk stjórnvöld hafa
miklar áhyggjur af þessari
þróun og reyna að hvetja
fjölskyldur til að eignast fleiri
börn með því m.a. að greiða
niður menntunarkostnað
barnanna.
Gjaldeyrisforða-
metáTaiwaneyju
Taipei-Reuter.
■ Seðlabankinn á Taiwan hef-
ur skýrt frá því að gjaldeyris-
forðinn í lok febrúar hafi verið
17.37 milljarðar bandarískra
dollara sem er nýtt met. Gjald-
eyrisforðinn á sama tíma í fyrra
var 13.7 milljarðar dollara.
Talsmaður bankans sagði
fréttamönnum að mikil aukning
gjaldeyrisforðans stafaði af
stöðugt auknum vöruskipta-
hagnaði. Vöruskiptahagnaður
Taiwanbúa var tæplega 1,5 mill-
jarðar dollara fyrstu tvo mánuði
þessa árs en 1,17 milljarðar á
sama tímabili á seinasta ári.
Mennirnir mútuðu starfs-
mönnum nokkurra ítalskra há-
skóla til að láta sig fá óútfyllt
útskriftarvottorð skólanna. Síð-
an seldu þeir vottorðin fyrir allt
að 100 milljón lírur (2 milljónir
ísl.kr.).
í skrifstofu ráðgjafarfyrirtæk-
is, sem mennirnir ráku, fundust
einnig óútfyllt vottorð frá Lund-
únaháskóla en ekki er enn vitað
hvort þau voru fölsuð eða hvort
þeir útveguðu sér þau einnig
með því að beita mútum.
27 manns hafa þegar verið
ákærðir fyrir að taka við fölsuð-
um skýrteinum og lögreglan tel-
ur að jafnvel mörg hundruð
manns hafi keypt slík skýrteini.
lögreglan segir að mennirnir
hafi haft samband við nemendur
frá efnmiklum fjölskyldum víðs
vegar á Ítalíu sem skorti annað
hvort hæfileika eða vilja til að
Ijúka háskólanámi.
Við útreikning gjaldeyris-
forðans voru 2,2 milljarðar doll-
arar af erlendum gjaldeyri í
eigu 45 innlendra og erlendra
banka á Taiwan ekki taldir með.
Perúmenn
skulda
milljarð
Lima-Reuter.
■ Perúmenn skulda Sov-
étríkjunum sem svarar um
einunt milljarði banda-
ríkjadala (um 42 milljarð-
ar ísl.kr.) aðallega fyrir
herflugvélar, skriðdrcka
og önnur hergögn. Þeir
hafa nú santið um greiðslu
á 235 milljónum dollara
mcð því að senda Sovét-
mönnum ýntiss konar
varning sem því svarar.
í tilkynningu, sern utan-
ríkisráðuneyti Perú sendi
frá scr nú í vikunni, segir
að Sovétmenn hafi sam-
þykkt að taka við fiskmeti,
fatnaði, byggingarefni,
námum og fleiri vörum
sem greiðslu á 235 milljón-
um dollara sem Perúmenn
áttu að greiða þeim á
þessu ári og því seinasta
en þá stóðu þeir ekki við
skuldbindingar sínar.
Meðal hergagnanna,
semPerúmenn liafa keypt
frá Sovétríkjunum má
nefna 30 Sukhoi-orr-
urstuflugvélar, 270 skrið-
dreka og 60 þyrlur.
Bandaríkin:
Kynhverfir kennarar
halda störfum sínum
Washington-Reuter:
■ Hæstiréttur í Bandaríkj-
unum úrskurðaði í gær að
ríkisreknum skóla sé ekki
heimilt að reka kynhverfa
kennara. Þetta er fyrsta stór-
málið um réttindi kynhverfra
sem kemur fyrir hæstarétt í
nær tvo áratugi.
í máli þessu, sem einnig
felur í sér spurninguna um
málfrelsi, staðfesti hæstirétt-
ur þá niðurstöðu undirrétts
að þau lög Oklahoma ríkis,
sem leyfa ríkisreknum skól-
um að reka kynhverfa
kennara, samræmist ekki
stjórnarskránni.
Kynhverfir tóku mál þetta
upp sem hluta af baráttu
sinni gegn því misrétti sem
þeir telja sig beitta.
Menntamálanefnd Okla-
homa-borgar hélt því fram
að ekki væri óeðlilegt að
málfrelsi kennara, sem eigi
að vera skólabörnum fyrir-
mynd, væri takmarkað. En í
fyrra ógilti áfrýjunarréttur í
Bandaríkjunum lögin á þeim
forsendum að þau afnæmu
rétt kennara til þess að segja
meiningu sína.
Oklahoma-lögin, sem
voru sett árið 1978, voru
afleiðing af baráttu hreyfing-
ar sem barðist gegn kyn-
hverfum Ameríkönum undir
forystu söngkonunnar Anitu
Bryant. Hreyfing þessi vildi
verja skólabörn fyrir þeim
sem viðurkenndu að þeir
væru kynhverfir.
Hýrir baráttumenn hafa
bent á að árið 1978 hafi
Reagan talað gegn lögum
sem fyrirhuguð voru í Kali-
forníu og voru í rauninni
samhljóða Oklahoma-lögun-
um.
Reagan og aðrir gagnrýn-
endur laganna neituðu því
að kynhverfir kennarar
hefðu áhrif á afstöðu nem-
enda sinna til kynlífs og
sögðu að lögin gætu auðveld-
lega orðið til þess að kennar-
ar gætu ekki um frjálst höfuð
strokið á neinu sviði síns
einkalífs.
Stuðningsmenn laganna
héldu því hins vegar fram að
sú skylda ríkisins að skapa
börnunum heilbrigt skóla-
umhverfi vægi upp á móti
frelsi kennara til þess að
hvetja til kynhvarfa utan
skólastofanna.
Auglýs-
ingar
ÍBBC?
“London-Reuter:
■ Breska stjórnin hef-
ur nú til athugunar að
leyfa auglýsingar í sjón-
varpsútsendingum
BBC.
BBC hefur hingað til
byggt tekjur sínar á af-
notagjöldum sem hækk-
uðu í ár úr 45 pundum
á ári upp í 58 pund
(tæpl. 2300 krónur).
Andstæðingar þessarar
hugmyndar segja að
auglýsingar myndu
draga úr gæðum sjón-
varpsins.
Yfirmenn BBC höfðu
farið fram á að fá af-
notagjaldið hækkað
upp í 65 pund og hafa
lýst yfir vonbrigðum
með hvað gjaldið er
lágt. En stjórnvöld
segja að BBC verði að
gera rekstur sinn hag-
kvæmari til að lækka
kostnað.
Finnsku
veggskápasamstæðurnar
vinsælu eru komnar aftur.
Verð 29. 850.- með ljósum.
SKÆÍISSS2KSf5 68 69 00