NT - 28.03.1985, Blaðsíða 24

NT - 28.03.1985, Blaðsíða 24
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddarverða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leiðir til fréttar í blaðinu og 10.000 krónurfyrir ábendingu sem leiðirtil bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsinjgar 18300 Kvöldsimar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495 Húsnæðisstofnun: Aðeins um 600 húsbyggj- endur leitað ráðgjafar „Miklu færri en búist var við,“ segir Grétar Guðmundsson ■ „Hingað til hafa ckki leitað ráðgjafar hjá okkur nema rúm- lega 600 manns, sem er stórum færra en við bjuggumst við og vægast sagt miklu minna en umræðan í þjóðfélaginu gaf til- efni til að ætla. Það var mikil pressa fyrstu dagana og það er fólkið sem hefur komið, en fáir sem pantað hafa viðtal síðan,“ sagði Grétar Guðmundsson hjá ráðgjafarþjónustu Húsnæðis- stofnunar aðspurður um fjölda þeirra er til þeirra hafa leitað í húsnæðisvanda sínum. Af Stór-Reykjavíkursvæðinu sagði Grétar aðeins nokkra tugi eiga eftir að koma í viðtal. Ráðgjafi sé nú á Austurlandi og muni fara á Vesturland í kring- um næstu helgi. Á þeim stöðum hafi eftirsprunin heldur ekki verið slík sem búist var við. Þegar er búið að vinna úr málum þeirra fyrstu, sem leit- uðu til ráðgjafarþjónustunnar, og er nú verið að senda þeim tilkynningar um lánsupphæðir sem þeir: ættu þá að geta sótt í kringum næstu helgi. Þótt margir hafi farið illa út úr misgengi lánskjaravísitölu og launa á árunum 1982-83 og síðan háum vöxtum 1984, sagði Grétar iangt frá hægt að kenna henni um allan vandann. „Það er einfaldlega líka fullt af fólki sem farið hefur allt of hratt í gegn um þetta - hefur farið út í að kaupa allt tipp topp til íbúð- arinnar og er síðan með víxla; frá svo til öllum sem hægt er að fá víxla hjá varðandi húsbygg- ingar, þ.e. fyrir glugga, hurðir, innréttingar, teppi, tæki og hvað eina. Þetta fólk hefur ætlað sér allt of mikið í einu,“ sagði Grétar. Hann kvað og allt of mörg dæmi um að fólk, jafnvel undir þrítugu, hafi farið út í að byggja einbýlishús með sára litl- ar eignir fyrir. Slíkt sé allt of stór biti að kyngja fyrir fólk með venjuleg laun, jafnvel stór biti fyrir mann einn sem kom þrátt fyrir að hafa um milljón í laun. Þá sem enga leið eiga út úr vandanum nema að selja ofan af sér sagði Grétar lítið hlutfall af heildinni og mjög fáa úr hópi þeirra sem kallast geti venjulegt fólk með venjulega íbúð. Oneit- anlega séu það þó nokkuð marg- ir sem eru svo illa staddir að 150 þús. kr. lán frá stofnuninni mundi ekki bjarga nokkrum sköpuðum hlut í þeirra dæmi. í öllum tilfellum sé reynt að taka mjög mannlega á hlutunum og taka t.d. sérstakt tillit til þess þegar um veikindi er að ræða. Landsbyggðina sagði Grétar svo alveg sérstakt vandamál þar sem íbúðaverð sé sums staðar kannski aðeins um helmingur af brunabótamati, ef þá hægt er að selja eitthvað. Grétar sagði alveg ljóst að þörf sé á varanlegri ráðgjafar- þjónustu sem verði opin al- menningi til að leita ráða áður en fólk fer af stað í kaup eða byggingu. Greinilegt sé að margir hafi rennt blint í sjóinn - alls ekki gert sér grein fyrir - burt séð frá allri vísitölu - hvað raunverulega er um mikla byrði að ræða þegar fólk fer í að festa sér íbúð. Illkvittni ígarð verkefnis ■ „Þaö er mál skólastjóra og kennara ef nemendur fá frí dag og dag til að sinna ákveönum verkefnum en fyrirmæli frá ráöuneytinu um að gefa frí fást ekki,“ sagöi Ragnhildur Hclga- dóttir menntamálaráðherra í utandagskráruniræöum i neðri dcild í gær um söfnun framhaldsskólanema til stuðnings baráttunni gegn aöskilnaðarstefnu stjórn- valda í Suöur-Afríku. Steingrímur J. Sigfússon tók málið upp utan dagskrár og deildi harðlega á niennta- málaráðherra fyrir að gefa ekki nemendum sem að verkefninu stæðu frí. Kom fram að hér er einungis um 20% framhaldsskólanem- enda að ræða og sagði hann að hægt væri að læra af þessu verkefni ekki síður en öðru. Var hann allt að því reiður, eins og hann orðaði það, yfir stífni ráðherra. Ólafur Ragnar Grímsson sagði að gætt hefði illkvittni í garð þessa verkefnis af ráðherra hálfu allt frá fyrstu tíð. Risi Samstarfsnefnd æskulýðsráðs ekki undir nafni, á þessu ári æskunnar, ef hún beitti sér ekki fyrir lausn á málinu. Ólafur Ragnar Grímsson: Járnblendif élagið hagnast vegna lágs orkuverðs ■ Meginástæöan fyrir 132,2 milljón króna hagnaöi íslcnska járnbiendifélagsins á siöasta ári er hið lága orkuverð, sem fyrirtækið greiðir til Lands- virkjunar. Þannig greiðir al- menningur í landinu verulegar útflutningsuppbætur til járn- blendiverksmiðjunnar í gegn- um hið lága orkuverð. Afurðir verksmiðjunnar eru að þessu leyti í sama flokki og ostar og kindakjöt. Þetta kemur frani í frétta- tilkynningu, sem Ólafur Ragn- ar Grímsson stjórnarmaður í Landsvirkjun sendi frá sér í gær, vegna frétta af hagnaði Grundartangaverksmiðjunnar. Ólafur Ragnar bendir á, að íslenska járnblendifélagið greiði um helmingi lægra orku- verð en íslenska álfélagið greiðir nú, samkvæmt samn- ingnum frá í haust, eða 6,6 mill á móti 12,6 mill. Bendir Ólafur Ragnar á, að hefði járnblendiverksmiðjan greitt sama orkuverð og álverið á árinu 1984, eða að meðaltali 9,7 mill, hefði hún þurft að greiða 61,5 milljónum króna meira tii Landsvirkjunar en hún gerði. Þar með hefði hagn- aður járnblendiverksmiðjunn- ar lækkað um helming. Ólafur Ragnar segir það lágmarks- kröfu, að járnblendið greiði hliðstætt verð fyrir orkuna og Isal. Segir hann það nauðsyn- legt, að eignaraðilar lands- virkjunar, ríkið, Reykjavíkur- borg og Akureyri, og stjórn fyrirtækisins beiti sér fyrir því, að teknir verði upp að nýju samningar urn raforkuverð til járnblendiverksmiðjunnar. mm Andlát Kommún- istasamtakanna ■ Kommúnistasamtökin, síð- ustu samtök maóista á íslandi voru lögð niður eftir harðar deilur á síðasta aðalfundi þeirra fyrr í þessum mánuði. Ákvörð- unin um að leggja samtökin niður var tekin með aðeins eins atkvæðis meirihluta. Þegar Kommúnistasamtökin voru lögð niður voru félagar í þeim aðeins 15. Maóistahreyf- ingin á íslandi rekur sögu sína allt til ársins 1971 og þegar félagar í henni voru sem flestir munu þeir hafa verið hart nær tvö hundruð talsins. I fréttatilkynningu frá Kommúnistasamtökunum segir m.a. að marx-lenínistar hafi unnið að athugun á sósíalisma á íslandi með bókarútgáfu í huga síðustu árin. Afrakstur þeirrar vinnu kom að hluta til út í aukariti af Verkalýðsblaðinu í janúar en útgáfa þess hafði þá legið niðri í tvö ár. Meirihluti félaga Kommún- istasamtakanna taldi, sam- kvæmt heimildum NT, rétt að leggja samtökin niður þar sem þau væru orðin hindrun fyrir sósíalísku starfi á öðrum vett- vangi. Einnig er Ijóst að mikill skoðanaágreiningur var innan samtakanna um leið íslands til sósíalisma og baráttuaðferðir. í samtali við NT sagði Ómar Harðarson, einn félagsmanna, að fyrrverandi félagar myndu halda áfram að ræða málefni sósíalismans. Kommúnistasamtökin urðu til við sameiningu einingarsam- taka kommúnista marx-lenín- ista (Eik (m-1)) og Kommúnista- flokks íslands (m-1). Þau fyrr- nefndu áttu uppruna í fylking- unni en þau síðarnefndu í Kommúnistahreyfingunni marxistar-Ienínisfar (KHML) sem síðar var breytt í samtökin KSML. Úr KSML myndaðist einnig hópurinn KSML(b),þ.e. Kommúnistasamtökin marx- lenínistar (byltingarsinnar) en þau lognuðust út af án sérstakr- artilkynningar. Einnig márekja hóp Albaníukommúnista til þessarar hreyfingar. Annríki á þemaviku ■ Það hefur verið anna- samt hjá nemendum í Digranesskóla síðustu viku, vegna þemaviku sem staðið hefur yfír síðustu daga og lýkur nú á laugar- dag með sýningu á vinnu nemenda. NT mynd Ámi Bjurna.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.