NT - 30.04.1985, Blaðsíða 14

NT - 30.04.1985, Blaðsíða 14
Þriðjudagur 30. apríl 1985 14 - haldið í Broadway á sunnudaginn ■ Pað var mikil stemmning á Broadway á suntiudagskvöjd- ið, þegar íslandsmeistaramót- ið í vaxtarrækt fór þar fram. Dunandi taktföst tónlist og hnyklaðir vöðvar í takt. Ilver staðan eftir aðra var sýnd, og greinilega mikil átök. Áhorf- endur voru vel með á nótun- unt, klöppuöu í takt við tónlist- ina og vöðvana, og hressilegur kynnir, Páll Þorsteinsson hclt fólki við efnið. Keppt var í 8 flokkum. tveimur unglingaflokkum, tveimur kvennaflokkum, og fjórum karlaflokkum, skipt niður eftir þyng keppenda. Keppcndur í hverjum flokki voru frá einum upp í finnn og mátti þar greinilega sjá orðið bæði gott og efnilegt vaxtarræktarfólk. Fjöldi keppcnda og ýmsir skipulagsþættir keppninnar sýndu þó, hversu ung íþrótt vaxtarræktin cr hér á landi. I'annig fóru lokaatriði keppn- innar nokkuð úrböndum, bíða þurfti heillengi eftir sumum, og þannig komu dauðir punkt- ar í dagskrá sem var nógu löng fyrir. Þá var engin aðstaöa boðin blaðamönnum. Blaöa- ntaöur NT varö að standa við barborð, þar sem útsýni var takmarkað. Takmarkaö útsýni máttu einnig margir áhorfenda þola, þar sem keppnin og dag- skráratriði fóru oft fram allt of innarlega á sviðinu. Meistarar meistaranna voru kosnir Júlfus Ágúst Guö- mundsson, 17 ára Reykvíking- ur, í unglingaflokki, Aldís Arnardóttir 24 ára Akureyring- ur, f kvennaflokki, og Sigurður Gestsson, 27 ára Akureyringur í karlaflokki. Sigurður sýndi ntjög góð tilþrif, cnda hefur hann geysilega vöðva. Keppni í flokkum varspenn- andi á köflum. í karlaflokki, undir 70 kg voru þrír keppcnd- ur. Danícl Olsen Reykjavík sigraði, annað varð Kenneth Jay Bollinger frá Keflavíkur- flugvelli og þriðji Sævar Sím- onarson, Akureyri. ( karlaflokki, undir 80 kg var keppni mjög skemmtileg. Ekki er ofsagt, að þessi flokkur hafi vcrið livað best skipaður flokkanna á niótinu, enda var sigurvegarinn, Sigurður Gests- son meistari meistaranna í karlaflokki. Annar varð Mark L. Crockcr. frá Keflavíkur- flugvelli, og þriðji Gestur Helgason úr Borgarfirði. Keppendur voru alls fimm. Einungis tveir keppendur voru í undir 90 kg flokki, Magnús Óskarsson og Kristinn Ægisson báðir úr Reykjavík. Magnús sigraði. Þá var aðeins einn keppandi í yfir 90 kg flokki, Kári EHertsson. Hann fékk mjög góðar undirtektir, og tókst mjög vel upp. í kvennaflokki undir 52 kg voru tveir keppendur, Ása Kristín Árnadóttir úr Kópa- vogi og Guórún Rcynisdóttir frá Akureyri. Ása sigraði. Fimm keppendur voru hins vegar í flokki 52 kg og yfir. Þar sigraði Aldís Arnardóttir og varð að auki kvennameistari, önnur varö Svandís Grétars- dóttir frá Reykjavík og þriðja Katrfn Gísladóttir frá Selfossi. ívar Hauksson Reykjavík sigraði með glæsibrag í ung- lingaflokki undir 75 kg. Annar varð Einar Guðmann frá Ak- ureyri og þriðji Björn Brodda- son frá Akureyri. Keppendur voru fimrn. ( unglingaflokki, 75 kg og yfir, voru tveir keppendur, Jú- líus Ágúst Guðmundsson Reykjavík ogSigurður Pálsson Akureyri. Júlíus sigraði, og varð að auki unglingameistari. Yfirdómari í keppninni var Lisser Frost Larsen, vaxtar- ræktarmeistari frá Danmörku. Aðrir dómarar voru Finnbogi Helgason, formaður dóm- nefndar, Hjalti Gestsson, Soff- ía Guðmundsdóttir, Gísli Rafnsson, Marta Unnarsdótt- ir, Hrafnhildur Valbjörns og Sveinbjörn Guöjohnscn. Á milli keppnisatriða voru ýmsar uppákomur. Danski meistarinn Kjeld A. Nielsen sýndi við góðar undirtektir, og Jón Páll Sigmarsson fyrrum (slandsmeistari í vaxtarrækt og nú sterkasti maður heims, kom viö sögu. Jón Páll braut reið- lijól mjög snyrtilega santan, blés út hitapoka og sprengdi, og loks lét hann kraftajötuninn Hjalta Úrsus Árnason mölva gangstéttarhellu nteð sleggju á kviðsér. Fór trölliðáköstum. NT-myndir Árni Bjarna, texti Saniúcl Örn ■ 17 ára gamall Reykvíkingur, Jútíus Ágúst Guðmundssnn varð meistari íslandsmeistar- anna í unglingaflokki. Hann sigraði í +75 kg flokki unglinga. ■ Daníel Olsen, 26 ára gamall Reykvíkingur, íslandsn í -70 kg flokki. ■ Smokkablástur á Broadway. Á meðan Jón Páll blés upp hitapoka og sprengdi, blésu 6 gestir upp smokka í kapp við hann. Hvellirnir voru tilkomumiklir.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.