NT - 30.04.1985, Blaðsíða 16
fíí? Þriðjudagur 30. apríl 1985 16
Lil Útvarp — — sjónvavp
Verðir laganna
aftur á skjáinn
■ Nú hefur Derrick runnið
sitt skeið á enda í sjónvapinu,
um sinn a.m.k. , og koma
gamlir kunningjar í hans stað
á þriðjudagskvöldum. Verðir
■ Gamlir kunningjar heilsa
upp á sjónvarpsáhorl'endur í
kvöld, sjálfír verðir laganna.
laganna (Hill Street Blues)
halda nú áfram að sinna störf-
um sínum á lögreglustöð í
skuggahverfi bandarískrar
stórborgar og hefst sýning
fyrsta þáttar í kvöld kl. 21.25.
Með aðalhlutverk fara Dani-
el J. Travanti, Veronica Hamel
og Michael Conrad.
Nokkrir þættir úr þessum
myndaflokki voru sýndir í
sjónvarpinu fyrri tæpu ári og
að þessu sinni eru það átta
þættir sem sýndir verða. Sá
fyrsti kallast Krókódílaveiðar.
Þýðandi er Bogi Arnar Finn-
bogason.
Halldórsson
■ Birgir Sigurðsson, rithöfundur hefur lestur þýðingar sinnar á
„Langferð Jónatans“.
Langferð Jónatans
- ný útvarpssaga
■ Þúsundþjalasmiðurinn Björgvin Halldórs-
son.
■ Svavar Gests verður með
þátt sinn „Með sínu lagi“ á
Rás 2 kl. 15 í dag.
„Ég mun í þessum þætti
taka fyrir söngvarann, laga-
höfundinn og textahöfundinn
Björgvin Halldórsson. Égrek
feril Björgvins eins og frekast
er unnt í klukkutíma þætti,
sérstaklega með það í huga
að hann hefur samið mikið af
góðum lögum, en það eru
ekki allir sem gera sér grein
fyrir því.“
■ 1 kvöld kl. 21.35 hefur
Birgir Sigurðsson rithöfundur
lestur þýðingar sinnar á „Lang-
ferð Jónatans" eftir danska
rithöfundinn Martin A.
Hansen.
Söguhetjan er járnsmiður-
inn sterki, Jónatan, sem var
manna færastur við að herða
og sjóða járn og sótti kirkju
sína jafn dyggilega og krána.
Dag nokkurn ræður sig til hans
vinnupiltur, sem er dverhagur
en kokkálar meistara sinn og
hagar sér þannig að Jónatan
skilur að þarna fer Kölski
sjálfur. Smiðurinn sterki mölv-
ar kirkjuklukkuna, steypir úr
henni flösku og ginnir þann
Ijóta niður í hana. Hann leggur_
síðan í leiðangur mikinn og
makalausan til þess að koma
flöskunni í réttar hendur.
„Langferð Jónatans" hlaut
mikla hylli danskra lesenda og
hefur komið út í mörgum út-
gáfum.
■ Svavar Gests við hljóðnemann.
Sjónvarp kl. 21.25:
Rás 2 kl.
15.00-16.
Svavar Gests
kynnir
Björgvin
Utvarp kl. 21.35:
Sjónvarp kl. 20.40:
Ingvi Hrafn
ræðir við
Kristmund
Bjarnason
■ í þættinum „Heilsað upp á
fólk“ kl. 20.40 ræðir Ingvi
Hrafn Jónsson við Kristmund
Bjarnason á Sjávarborg. Krist-
mundur er skjalavörður við
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga
á Sauðárkróki og er lands-
kunnur fyrir fræðimennsku og
ritstörf, einkum á sviði byggða-
sögu á Norðurlandi.
Sjónva
9.25:
Vinna og
verðmæti
- hagf ræði fyrir byrjendur
■ í kvöld kl. 19.25 hefst í
Sjónvarpinu nýr myndaflokk-
ur fyrir börn á öllum aldri sem
nefnist „Vinna og verðmæti -
hagfræði fyrir byrjendur'V
Myndaflokkurinn er
breskur, í fimm þáttum og
kynnir ýmis undirstöðuatriði
hagfræðinnar á auðskilinn og
lifandi hátt, meðal annars með
teiknimyndum og dæmum úr
daglegu lífi.
Fylgst er með fjölskyldu sem
býr í frumstæðu og einangruðu
þorpi í einskismannslandi.
Fjölskyldan uppgötvar smátt
og smátt, í gegnum tilviljanir
og neyðarástand, grundvallar-
lögmál sem auka framleiðni og
lífsþægindi þorpsbúa.
Þýðandi myndaflokksins er
Guðni Kolbeinsson.
Þriðjudagur
30. apríl
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á
virkum degi. 7.20 Leikfimi. Til-
kynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur
Valdimars Gunnarssonar frá
kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
8.15 Veðurfregnir. Morgunorð -
Ingimar Eydal talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
„Hollenski Jónas" eftir Gabriel
Scott Gyða Ragnarsdóttir endar
lestur þýðingar Sigrúnar Guðjóns-
dóttur (12).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.j.
10.45 „Man ég það sem löngu leið"
Hagnheiður Viggósdóttir sér um.
þáttinn.
11.15 Við Pollinn Umsjón: Ingimar
Eydal. (RÚVAK)
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.20 Barnagaman Umsjón: Heiðdís
Norðfjörð. (RÚVAK)
13.30 Sheila Chandra, Sade Adú
og Kate Bush syngja
14.00 „Eldraunin" eftir Jón Björns-
son Helgi Þorláksson les (26).
14.30 Miðdegistónleikar Ballettsvíta
nr. 2 eftir Manuel de Falla. Fíladelf-
íuhljómsveitin leikur; Riccardo
Muti stjórnar.
14.45 Upptaktur - Guðmundur
Benediktsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Siðdegistónleikar a. „Was-
hington’s birthday” eftir Charles
Ives. Félagar I Sinfóníuhljómsveit
Oslóborgar leika; William Strick-
land stjórnar. b. Sinfónía nr. 3 I
c-moll op. 78 eftir Camille Saint-
Saéns Fílharmoníusveit Berlínar-
borgar leikur; Herbert von Karajan
stjórnar.
17.10 Siðdegisútvarp-18.00 Fréttir
á ensku. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Sigurður G. Tóm-
asson flytur þáttinn.
20.00 Mörk láðs og lagar - Þáttur
um náttúruvernd.
20.20 Requiem á Munkaþverá.
Steingrimur Sigurðsson flytur.
20.30 Bein lýsing frá leik Víkings og
FH í úrslitum bikarkeppni Hand-
knattleikssambands islands í
karlaflokki - Ingólfur Hannesson
lýsir seinni hálfleik.
21.10 Útvarpssagan “Langferð
Jónatans" eftir Martin A. Han-
sen Birgir Sigurðsson rithöfundur
byrjar lestur þýðingar sínnar.
21.35 Utvarpssagan: „Langferð
Jónatans" eftlr Martin A. Hans-
en Birgir Sigurðsson rithöfundur
byrjar lestur þýðingar sinnar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 Frá kammertónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar íslands i
Gamla biói 5. apríl i fyrra Stjórn-
andi: Jean-Pierre Jacquillat. Ein-
leikari: Joseph Ognibene. a. „Les
Indes galantes", ballettsvíta nr. 2
eftir Jean-philipe Rameau. b.
Hornkonsert nr. 2 i Es-dúr K. 417
eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
c. „Pelléas et Mélisande", svíta
op. 80 eftir Gabriel Fauré. d. Sin-
fónía nr. 1 I D-dúr (klassiska
sinfónían) eftir Sergej Prokofjeff.
Kynnir: Jón Múli Árnason.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Þriðjudagur
30. apríl
10:00-12:00 Morgunþáttur Stjórn-
andi: Páll Þorsteinsson.
14:00-15:00 Vagg og velta Stjórn-
andi: Gisli Sveinn Loftsson
15:00-16:00 Með sínu lagi Lög leikin
af íslenskum hljómplötum. Stjórn-
andi: Svavar Gests
16:00-17:00 Þjóðlagaþáttur Stjórn-
andi: Kristján Sigurjónsson
17:00-18:00 Frístund Unglingaþátt-
ur. Stjórnandi: Eðvarð Ingólfsson.
Þriggja mínútna fréttir klukkan:
11:00, 15:00, 16:00 og 17:00.
Þriðjudagur
30. apríl
19.25 Vinna og verðmæti - hag-
fræði fyrir byrjendur Fyrsti þáttur.
Breskur fræðslumyndaflokkur i
fimm þáttum sem kynnir ýmis
undirstöðuatriði hagfræði á auð-
skilinn og lifandi hátt, meðal ann-
ars með teiknimyndum og dæmum
úr daglegu lifi. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Heilsað upp á fólk 13. Krist-
mundur Bjarnason Kristmundur
Bjarnason á Sjávarborg. skjala-
vörður við Héraðsskjalasafn Skag-
firðinga á Sauðárkróki, er lands-
kunnur fyrir fræðimennsku og
ritstörf, einkum á sviði byggðasögu
á Norðurlandi. I þættinum ræðir
Ingvi Hrafn Jónsson við Kristmund
um hugðarefni hans.
21.25 Verðir laganna(Hill Street
Blues) 1. Krókódilaveiðar Fyrsti
þáttur af átta I nýrri syrpu þessa
bandaríska myndaflokks sem
Sjónvarpið sýndi síðast fyrir tæpu
ári. I þáttunum er fylgst með starf-
inu á lögreglustöð í skuggahverfi
bandarískrar stórborgar. Aðalhlut-
verk: Daniel J. Travanti, Veronica
Hamel og Michael Conrad. Þýö-
andi Bogi Arnar Finnbogason.
22.15 Kastljós Þáttur um erlend mál
efni. Umsjónarmaður Ögmundur
Jónasson.
22.50 Fréttir I dagskrárlok