NT - 30.04.1985, Page 28

NT - 30.04.1985, Page 28
r % V : :: - ■ w ’SpkRSyQCjHfl 3>6RfSJDQUR HAFNARfM epPRftj'JDO{^ ■HAFHARPi Sfe8S" ^ARiSíO^ hnmAftrt' 'IWSaCKV'í,: hSIÍ1^. H , - V’ ■ Islandsmeistarar FH í handknattleik 1985 ásamt þjálfara og forráðamönnum félagsins. Liðið spilar síðan til úrslita við Víkinga um bikarmeistaratign í kvöld. NT-mynd Svcnir. Guðmundur Magnússon þjálfari FH í viðtali við NT: „si tefni imót rai iði ir aoemstæðumvetri" ■ „Við stefnum ótrauðir að því að vinna bikarinn og gera þetta að eftirminnilegum vetri. Strákarnir hafa aldrei orðið bikarmeistarar í meistaraflokki og þar sem Kristján Arason er að fara frá félaginu mun allt verða lagt í sölurnar í kvöld,“ sagði Guðmundur Magnússon þjálfari FH í handknattleik í samtali við NT. Leikurinn verður örugglega harður, það er mikill heiður að hljóta bikarinn þrátt fyrir það að bæði liðin séu þegar komin í Evrópukeppni." Aðspurður sagði Guðmundur að tapið gegn Val í síðasta leik úrslitakeppninnar hefði vissu- lega sín áhrif. „Það er erfitt að halda uppi tempói í liði þegar leikir eru formsatriði. Þetta var orðið tómt grín og það hljóta allir að vera sammála því að það verði að breyta deildinni næsta keppnistímabil. Landsliðið þarf vissulega að fá aðhlynningu en það má ekki gleyma því að það verða haldn- ar fleiri heimsmeistarakeppnir en í Sviss 1986. Við náum ekki upp öðrunr kjarna toppleik- manna fyrr en eftir mörg ár ef svona verður staðið að málum áfram, það er aðeins hugsað um þessa 16 sem eru í landsliðinu en lítið um hin hundruðin sem stunda handknattleik." Verður þú áfram með FH- liðið? „f>að er óráðið enn. Ég mun fyrst klára þetta keppnistímabil eins og ég réð mig til og síðan er hægt að fara að hugsa um framtíðina. Ég ætla að sjálf- sögðu að ljúka tímabilinu nteð því að vinna bikarinn." Nú er Kristján Arason að fara til Þýskalands. Geta FH- ingar fyllt hans skarð? „Kristján hættir og Sveinn Bragason hættireinnig. Auðvit- að verða þeirra skörð vandfyllt en það ntá segja að það sé kominn tími til að yngri menn fái að spreyta sig. Við munum verða á toppnum áfram, FH-lið- ið kann ekkert annað en að klífa tinda. Það er líka ljóst að hin liðin munu missa sína toppa. Þor- bergur og Viggó hætta hjá Vík- ingum, Páll Olafsson hefur rætt um að fara utan ef tilboð kemur og jafnvel Einar Þorvarðarson. Éinhverjir leikmenn verða að koma í staðinn og eins og ég segi verðum við í toppbaráttu á öllum vígstöðvum áfram.“ ■ „Við ætlum okkur auðvitað ekkert annað en sigur í leiknum. Það eru allir leikmenn hj á okkur heilir og réttast að sýna öllum hverjir eru bestir" sagði Viggó Sigurðsson Víkingur í léttu spjalli við NT í gær um úrslita- leik bikarkeppninnar sem fram fer í kvöld. „Þetta verður minn síðasti leikur með Víkingum og mér finnst réttast að enda á sigurnót- Eggert þriðji ■ Eggert Bogason kringlukastari úr FH varð þriðji í kringlukasti á Drake-leiknum í frjáls- íþróttum sem fram fóru um helgina í Iowa í Bandaríkjunum. Eggert kastaði 56.06 metra. Drake-leikarnir eru mik- ið stórmót, sem haldið hefur verið síðastliðin um það bil hundrað ár. Þar keppti fjöldi frægra frjáls- íþróttamanna sem enn keppa fyrir háskóla, m.a. nokkrir verðlaunahafar frá Óiympíuleikunum í Los Angeles. ■ Guðmundur Magnússon þjálfarí FH tekur hér við litlum bikar úr hendi Jóns Hjaltalín formanns HSÍ. Tekur Guðmundur við Stærri bikar l kvöld? Nl-mynd: Sverrir. Viggó Sigurðsson Víkingur: „Sýnum að við erum bestir“ Valur vann Þról ■ Það verða Valsmenn og Framarar sem mætast í úr- slitaleik Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu þann 7. maí næst komandi. Valsmenn tryggðu sér sætið í þeim leik í gær er þeir. unnu Þrótt með 3 mörkum gegn 2. Framarar unnu hinsvegar Fylki 3-2 á sunnudagskvöld- ið. Valsmenn skoruðu sigur- mark sitt stuttu fyrir leikslok og var Kristinn Björnsson þar að verki. Hann hafði áður jafnað 1-1 eftir að Sigurður Hallvarðsson skoraði fyrír Þrótt í upphafi. Ingvar Guðmundsson kom Val í 2-1 en Sigurður jafnaði örstuttu seinna. Kristinn tryggði svo sætið í úrslita- leiknum. Guðmundur Steinsson gerði þrennu er Fram vann Fylki á sunnudagskvöld Luxarar lagðir í öllum leikjum Allt um þá á bls. 23 og 27 um. Mér hefur tekist að vinna fjfcra bikarmeistaratitla með lið- inu og vonandi bætist sá fimmti í safnið." Aðspurður um hvað tæki við sagði Viggó: „Ég hef mikinn hug á að fara út í einhverskonar þjálfun en það er allt óráðið í þeim efnum ennþá.“ Þýskur handbolti Enskur fótbolti Allt um íþróttir helgarinnar á bls. 23-28. Siggi til Sviss? Sigurður Grétarsson: Fer hann til Sviss? ■ „Eg er búinn að fá tilboð frá svissneska félaginu Luzern um að koma og spila með þeim næsta kcppnistímabil. Hvort ég tek því cr ekki hægt að fullyrða um á þessu stigi. Ég á eftir að spjalla við forráða- menn iraklis og heyra í þeim hljóðið" sagði Sigurður Grét- arsson í stuttu spjalii við NT í gær. Þjálfari svissneska félagsins var áður þjálfari hjá Iraklis og hann hefur boðið Sigurði að koma. Eins og er þá eiga þeir hjá Iraklis enn eftir að ræða við Sigurð um samning fyrir næsta ár. „Ég býst við að þeir hjá Iraklis bjóði mér áfram- haldandi samning og það fer að sjálfsögðu allt eftir því hvernig hann er hvort ég fer eða ekki,“ sagði Sigurður enn- fremur. Lið Sigurðar, Iraklis tapaði um hclgina og datt niður í fímmta sæti í deildinni. Howard Kendall framkvæmdastjóri Everton: „Erum næstum því búnir að vinna Frá Heimi Bergssyni fréttamanni NT í Englandi: ■ „Við erum næstum því bún- ir að vinna deildina," sagði Howard Kendall framkvæmda- stjóri Everton eftir leik Everton og NorwicR um helgina, en þar lék Everton sinn 25. leik í röð án taps. Kendall er skondinn náungi að segja að Everton sé ekki búið að vinna ennþá, því allir vita að nánast ekkert getur komið í veg fyrir að hinn eftir- sótti meistarabikar lendi í her- búðum Everton þetta árið. Everton lék vel að venju við erfiðar aðstæður. Liðið skoraði þrjú mörk, eins og ekkert væri sjálfsagðara. Kendall hafði eftirfarandi að segja um leikinn: „Eftir leikinn gegn Bayern Múnchen hélt ég að mínir menn yrðu ekki upp á marga fiska. En þar skjátlaðist mér. Þeir léku allir mjög vel við afskaplega erfiðar aðstæður, og sérstaklega var seinni hálf- leikurinn sannfærandi." Sjá nánar um ensku knatt- spyrnuna á bls. 24.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.