NT - 10.05.1985, Síða 7

NT - 10.05.1985, Síða 7
Föstudagur 10. maí 1985 Friðþæging eða fóstbræðralag? Vinstrameginvið miðju Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins: Þú segist vera á móti því þing- ræði, sem „getur af sér pólitíkusa á borð við“ mig. í staðinn viltu kjósa „oddvita ríkisstjórnar“ beint. Skoðanakannanir benda til að formaður Alþýðuflokksins myndi vinna þær kosningar. Það er vandlifað í henni veröld. ■ Kæri Kristófer. Þakka tilskrifið. Það gefur tilefni til eftirfarandi athuga- semda: 1. Þú segir enga „þörf fyrir einn stjórnmálaflokkinn enn". Sammála. BJ erskv. skilgrein- ingu stjórnmálaflokkur (býður fram í kosningum - skiptir sér af stjórnmálum). Að gefnum forsendunt telur þú BJ óþarfan stjórnmálaflokk. Þetta er ná- kvæmlega það sem ég vildi sagt hafa. Jafnaðarmenn eiga að skipa sér í einn stjórnmála- flokk. Snuð? 2. Þú gerir mér upp þá skoðun, að „enginn munur" sé á BJ og Alþýðuflokknum. Það er ekki rétt eftir mér haft. Mér virðist hins vegar skoðanaágreiningur vera svo lítill. að hann réttlæti ekki að jafnaðarmenn dreifi kröftun- um. Það sem sameinar menn í stjórnmálaflokkum eru grund- vallarsjónarmið - lífsskoðanir. En í stórum og lýðræðissinnuð- um fjöldaflokki eru ævinlega skiptar skoðanir um leiðir. Kjarni málsins er sá, að slíkan skoðanaágreining á að útkljá í umræðu - eftir lýðræðislegum leikreglum. Auðvitað er munur á BJ og Alþýðuflokknum, t.d. stærð- armunur. Skv. skoðana- könnunum styður 4ði hver ís- lendingur Alþýðuflokkinn, en aðeins 1 af 20 BJ. Þetta eitt út af fy rir sig er talsverður munur, þar sem markmið stjórnmála- baráttu er að hrin'da stefnumál- um í framkvæmd. Það er ekki nóg að vera á móti kerfinu, ef þú hefur enga burði til að láta verkin tala. Mótmæli mótmælanna vegna verða eins konar friðþæg- ingarhjal (til að friða eigin samvisku), - eins og hjá kommunum. Það er ekki pól- itík - heldur pólitískt snuð. Ópíum handa (mennta)- mönnum. Ef hins vegar samruni jafn- aðarmanna beggja flokka leiddi til þess, að jafnaðar- menn einir yróu stærri flokkúr en Sjálfstæðisflokkurinn, mundi það valda pólitískum umskiptum. Þaðmundi tryggja jafnaðarmönnum stjórnarfor- ystu, og þar með afl þeirra hluta sem gera skal. Drífum í því. Fagrar heyrði ég raddirnar 3. Þú segir að við viljum „þagga niður í“ ykkur. Guð forði mér frá því. Það er þvert á móti. Við viljum málefnalega umræðu, samstarf, samruna, til þess að rödd jafnaðarstefn- unnar megi hljóma með sterk- ari róm í margradda hljóm- kviðu lýðræðislegra skoðana- skipta í landinu. Við spyrjum: Er það ekki fleira, sem sameinar okkur, en sundrar? Svarið er: Jú. • Báðir flokkar hafa lýst sig andvíga sívaxandi ríkisfor- sjá í efnahags- og atvinnu- málum. • Báðir flokkar eru þess al- búnir að sneiða fitulagið af ríkisbákninu. 9 Báðir flokkar vilja tak- marka íhlutunarvald ríkis- báknsins en auka frum- kvæði einstaklingsins og frí- viljugra samtaka. • Báðir flokkar vilja væntan- lega endurreisa tekju- jöfnunarkerfi velferðarrík- isins (skatta- og launakerfi, lífeyrisréttinda- og hús- næðislánakerfi), sem auka jöfnuð og félagslegt öryggi. 9 Báðir flokkar boða byggða- stefnu. sem felur í sér rót- tæka stjórnkerfisbreytingu, valddreifingu. Fjarri sé oss að vilja þagga niður slíkar raddir. 4. Þú segist vilja „gera vinnustaðinn að grunneiningu í kjarabaráttunni". Þetta þykir mér vænt um að heyra. Nú eru tveir áratugir síðan undirritað- ur byrjaði baráttu fyrir slíkum sjónarmiðum. Árið 1964 hélt ég þriggja vikna námskeið á vegum verkalýðsfélaga norðanlands um nauðsyn slíkr- ar kerfisbreytingar. Þú hefur kannske ekici verið byrjaður að fylgjast með þá? S.l. 20 ár hef ég haldið um þetta fleiri ræður og skrifað um þetta fleiri greinar en tölu verður á komið. Lengst af var það fyrir daufum eyrum. Þess vegna fagna ég einlæglega öllum nýj- um liðsmönnum í þessari bar- áttu. Kaupin á eyrinni 5. En svo fer í verra. Þú segist vilja afnema þingræðið. Sennilega er þetta misskilning- ur á stjórnarskrártillögum stofnanda BJ, sem BJ var reyndar stofnað utan um. Að vísu hefur BJ ekki flutt þessa tillögu á þingi - eftir kosningar. Ég hélt að það væri þögul viðurkenning á því, að tillagan gengur ekki upp. Enda sýnist BJ hafa skipt unt skoðun: Boð- ar nú stuðning við landið eitt kjördæmi og jafnan atkvæðis- rétt.semerhálfraraldargömul kratatillaga. Tillagan var um að kjósa með óbreyttum hætti til þings (áframhaldandi misvægi at- kvæða). En kjósa forsætisráð- herra beinum kosningum (einn maður eitt atkvæði). Þetta hefði ekki leitt til aðskilnaðar löggjafar- og framkvæmda- valds, heldur til áreksturs og lömunar stjórnkerfisins. Á- stæðan: Þingmeirihluti, kosinn með öðrum hætti en forsætis- ráðherra, hefði fengið stöðv- unarvald á allri lagasetningu framkvæmdavaldsins. Þá myndu nú hrossakaupin byrja fyrir alvöru. Franska kerfið gengur upp vegna þess að kosið er með sama hætti til þings ogembætt- is forseta (einmenningskjör- dæmi ítveimur lotum). Höfuð- kostur þess kerfis er, að það neyðir skylda flokka til sameig- inlegra framboða, - sem mér skilst að þú sért andvígur. Ég vona að þú sért ekki á móti þingræðinu af því að það „getur af sér pólitíkusa á borð við" mig? Sé svo, þarftu sýni- lega að hugsa málið betur. Skoðanakannanir að undan- förnu benda nefnilega eindreg- ið til þess, að formaður Al- þýðuflokksins mundi vinna beinar kosningar til oddvita framkvæmdavaldsins. Kannske þetta sé ekki svo galið kerfi - eftir allt saman? Ræðunt málin áfram. Þannig getum við eytt misskilningi og eflt samstöðu um meginmálin. Með bróðurlegum kveðjum Jón Baldvin Málsvari frjalslyndis, samvinnu og félagshyggju Úlgelandi: Nútiminn h.f. Ritslj.: Magnús Ólalsson (ábm). Markaósstj.: Haukur Haraldsson Auglysingastj.: Steingrimur Gislason Innblaösstj: Oddur Ólafsson Tæknistj.: Gunnar Trausti Guöbjornssoo Skrifstofur: Síöumúli 15, Reykjavík. Simi: 686300. Auglýsingasími: 18300 Kvóldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 687695, íþróttir 686495, tæknideiid 686538. Setning og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Blaðaprent h.t. Kvöldsimar: 686387 og 686306 Verð i lausasölu 30 kr. og 35 kr. um helgar. Askrift 330 kr. 10.maí,45árumsíðar ■ Það þýðir ekkert að loka augunum fyrir því að eðli herstöðvarinnar á Keflavík hefur verið að breytast á undanförnum misserum. Stöðin er ekki lengur eingöngu varnar- og eftirlitsstöð heldur liður í kjarnorkuvopna- kerfi Bandaríkjanna. Miklar framkvæmdir standa yfir og eru fyrirhugaðar. Skipt hefur verið um orrustuflugvélar og þeim fjölgað um 50%, eldsneytisrými hefur verið aukið gífurlega,þaðer unnið að hafnargerð, ný stjórnstöð er í undirbúningi, ratsjárstöðvar endurnýjaðar og nýjar reistar á Vestfjörðum og Austurlandi. Stöðin er ekki lengur sú bráðabirgðastöð, sem henni var ætlað að vera. Hugmyndin um að þessi stöð verði lögð niður á friðartímum virðist útdauð og allt þetta hefur gerst án þess að nokkur umræða færi fram hér innanlands. Nú er það svo að nær allir íslendingar vilja vera í varnarsamstarfi með vestrænum þjóðum. Það er í fullu samræmi við menn- ingu okkar, viðskiptahagsmuni og stjórnar- far. En með því seljum við ekki réttinn til þess að ráða því sjálf með hvaða hætti við leggjum þessu samstarfi lið. Og það er alls ekki víst að meirihluti þjóðarinnar vilji að ísland sé óvirkur þolandi þegar spurningin er um hlutverk þess í vígbúnaðarkapphlaupinu. Þvert á móti má ætla að íslendingar vilji leggja sitt af mörkum til friðar í heiminum með því að frysta þá kjarnorkuuppbyggingu sem á sér stað á landi okkar og vera virkir talsmenn þess að þegar verði samið um stöðvun kjarnorkuvígbúnaðarins í heimin- um. Það er kannski full ástæða til að krefjast þess að íslenska verði töluð á fundum NATÓ ef það mætti verða til þess að við gerðum okkur meira gildandi. Það vantar ekki gor- geirinn í leiðarahöfunda Morgunblaðsins og ýmsa forystumenn Sjálfstæðis- og Alþýðu- flokks þegar norrænt samstarf er annars vegar, en svo lyppast þeir niður eins og dauðir fuglar og breytast í ljósritunarvélar þegar um er að ræða varnar- og öryggismál, okkar dýrustu mál. Það sem við þurfum á að halda er hreinskil- in umræða um það hvað við viljum hafa hér mikil hernaðarumsvif og með hvaða hætti íslendingar geta unnið mannlífi gagn með því að vinna að sáttum milli þjóða, og draga úr þeirri tortryggni og þeim ótta sem er orsök vígbúnaðarkapphlaupsins. Þessar hugleiðingar eru settar á blað í tilefni þess að í dag eru 45 ár frá því að breskur her steig hér á land í upphafi mesta blóðbaðs mannkynssögunnar.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.