NT - 10.05.1985, Qupperneq 8
70 sveitarfélög geta lagt
á hlunnindaskatt:
Hann hefði átt að
vera 61 milljón í fyrra
- en 35 sveitarfélög lögðu á
hlunnindaskatt
samtals að upphæð 1 milljón
533 þúsund kr.
■ Samkvæmt upplýsingum
félagsmálaráðuneytisins hafa
um 70 sveitarfélög á landinu
möguleika á að nýta sér tekjur
af hlunnindaskatti og á síðasta
ári er vitað um 35 sveitarfélög
sem nýttu sér heimild laganna
til að leggja á hlunnindaskatt,
samtals að upphæð 1 milljón
533 þúsund krónur. 209 utan-
sveitarmenn voru eigendur
hlunninda í þessum 35 sveitar-
félögum.
Þetta kom fram í svari Alex-
anders Stefánssonar
félagsmálaráðherra við fyrir-
spurn Guðrúnar Agnarsdótt-
ur, Samtökum um kvennalista,
í sameinuðu þingi á þriðjudag
um tekjur sveitarfélaga af
hlunnindaskatti. Kom fram hjá
ráðherra að einungis 48 af
þessum 70 sveitarfélögum sem
hefðu rétt til að leggja á hlunn-
indaskatt hefðu svarað fyrir-
spurnum ráðuneytisins og því
væri upplýsingum mjög ábóta-
vant. Ekki væri skilgreint nægi-
lega vel í ársreikningum þess-
ara sveitarfélaga hvað væru
tekjur af hlunnindum og ættu
að koma fram hærri upphæðir
í skattheimtu af hlunnindum
miðað við fasteignamat þeirra.
Sagði félagsmálaráðherra enn
fremur að þcssi mál væru nú í
endurskoðun.
Guðrún Agnarsdóttir upp-
lýsti að heildarmat hlunninda
á landinu öllu heföi verið 611
milljónir 866 þúsund krónur
en samkvæmt svokallaðri tekju-
aðferð, sem lögbundin var
1978 til að finna út verðgildi
höfuðstóls, ættu því tekjur af
öllum hlunnindum á landinu
að nema um 61 milljón króna
sem er ekki ýkja há tala þegar
tillit er til þess tekið að hér er
um að ræða tekjur af jarð-
varma, lax- og silungsveiði,
dúntekju, malarnámi, rekaviði
og fl. Benti hún á að ekki þyrfti
nema 10 meðalgóðar laxveiði-
ár til að skila af sér 70 milljóna
króna hlunnindatekjum á
veiðitímabili, og væri þá ekki
miðað við hámarksveiði, til að
hafa upp í reiknaðar hlunn-
indatekjur af öllum hlunnind-
um í landinu og því væri ljóst
að þetta dæmi gengi einfald-
lega ekki upp. Virtist því sem
hlunnindi væru mjög vanmetin
sem eign á íslandi og væri
spurning hvort ekki þyrfti að
endurskoða almennt sköttun
þeirra.
Nú liggur fyrir Alþingi frum-
varp um að fella úr lögum
heimild sveitarstjórna til að
leggja 4% skatt á hlunnindi í
eigu utansveitarmanna og eru
rökin fyrir því meðal annars að
skattur þessi mismuni þegnum
eftir búsetu og brjóti þannig í
bága við grundvallarreglu
skattaréttar. Þá er og á það
bent að hlunnindaeigendur
beri gífurlega skattbyrði þar
sem þeir greiði bæði hlunn-
indaskatt og líka tekjuskatt og
útsvar af hlunnindatekjunum í
heimabyggð sinni og geti því
heildargréiðslan farið yfir
100%. Sagði Guðrún að það
virtist því vera mikill baggi
fyrir utansveitarmenn að eiga
hlunnindi í dreifbýlinu og það
væri með eindæmum hve
áfjáðir menn virtust vera í að
eiga og halda hlunnindajörð-
um, ef þeir þyrftu síðan að
borga með sér til að eiga þær !
Borgarnes:
Vegfarendur og verka-
menn taka saman lagið
■ Kór Verkalýðsfélags Borg-
arness og karlakórinn Vegfar-
endur gangast fyrir skemmtun
í Samkomuhúsinu í Borgarnesi
á föstudagskvöld kl. níu. Kór-
arnir munu þar m.a. syngja
þjóðlog frá ýmsum löndum og
eftir ýmsa höfunda. Á dag-
skránni er einnig vísnaþáttur
fluttur af Sveini M. Eiðssyni,
kvikmyndaleikara þekktum úr
myndum Hrafns Gunnlaugs-
sonar. Þá má og nefna samleik
Ingibjargar Þorsteinsdóttur og
Guðnýjar Erlu Guðmunds-
dóttur á píanó.
Sjúkraliðar:
Vilja fá möguleika
til framhaldsnáms
■ Sjúkraliðar telja tímabært
að sjúkraliðanám veröi tekið til
gagngerrar endurskoðunar og
vinna nú markvisst að úrbótum
í þeim efnum, að því er fram
kom á aðalfundi Sjúkraliðafé-
lags íslands sem nýlega var
haldinn.
Nær 20 ár eru liðin frá því
fyrstu sjúkraliðarnir útskrifuð-
ust hér á landi. Þó allverulegar
breytingar hafi orðið á sjúkra-
liðanámi á seinni árum er sú
staðreynd enn sögð blasa við
að sjúkraliðar lokist í námi
sínu í blindgötu og hafi nánast
enga möguleika til framhalds-
menntunar eða sérhæfingar.
Munu þeir nú einbeita sér að
því að fá úr þessu bætt.
í frétt frá Sjúkraliðafélaginu
segir að mikil ánægja hafi kom-
ið fram vegna löggildingar
sjúkraliða á s.l. ári.
Föstudagur 10. maí 1985 8
■ Jóhanna Sveinsdóftir blaðamaður, Haraldur Jónsson, Ingibjörg Hafstað rússneskukennari og Jón Daníelsson
blaðamaður.
■ Jón Múli heilsar
upp á Kosarev
sendiherra.
■ Lenín er hvergi fjarri í húsakynnum sovéska ríkisins.
Hér eru þeir að rabbi Kosarev sendiherra og Ingi R.
Helgason forstjóri. Á milli þeirra er sovéskur túlkur.
NT-myndir: Sverrir.
■ 40 ára afmælis sigursins yfir Þjóöverjum í
heimsstvrjöldinni síðari var minnst í sovéska sendi-
ráöinu í Reykjavík s.l. miðvikudag. Þar voru mekt-
arpcrsónur samankomnar. Meðal gesta voru kaup-
sýslumenn, stjórnmálamenn, félagsmálafrömuðir,
blaðamenn og sérstakir velunnarar Sovétríkjanna.
Sigursins var minnst með glasalyftingum og rabbi og
voru allir glaðir og kátir eins og meðfylgjandi myndir
bera ineð sér.