NT - 11.05.1985, Page 1
Rússneska verksmiðjuskipið:
Krafið um700.000
kr. björgunarlaun
- sambandslaust við Moskvu vegna f riðardagsins
■ Áhrifa friðardagsins í
Moskvu gætti á Siglufirði í
gær. í tilefni friðardagsins
var almennt frí í borginni og
hún sambandslaus að mestu.
Skipverjar rússneska verk-
smiðjuskipsins Konstantin
Olshanskiy sem strandaði við
Siglufjarðarhöfn á miðviku-
daginn urðu illilega fyrir
barðinu á sambandsleysinu.
Þeir þurftu að ná til Moskvu
vegna kröfu um tryggingu
fyrir björgunarlaunum, sem
útgerðarfélag togarans
Skjaldar gerði á hendur
Konstantin. Krafan hljóðar
upp á 700.000 krónur vegna
aðstoðar.
Bæjarfógeti Siglufjarðar
Erlingur Oskarsson fór um
borð í skipið með kyrr-
setningarbeiðni og tókst að
gera Rússunum skiljanlegt
hvað um væri að vera þrátt
fyrir nokkra tungumálaerfið-
leika.
Skipstjórinn gerði hvað hann
gat til þess að ná til yfir-
manna sinna, en eins og áður
segir árangurslaust. Lyktir
málsins urðu þær að Kons-
tantin fékk að halda áfram til
ísafjarðar, þar sem málið
verður tekið fyrir ef ekki
tekst að ná sambandi við
Moskvu áður en komið ér til
hafnar. Erlingur Óskarsson
sagði í samtali við NT í gær
að önnur krafa hefði komið
fram á hendur skipinu rúss-
neska, og er hún vegna
skemmda á bátnum Dröfn
sem skall utan í Konstantín,
þegar verið var að aðstoða
skipið. Vonir standa til þess
að hægt verði að ná sambandi
við Moskvu á morgun.
Sendiherrann sovéski gat
ekki reitt fram þá upphæð
sem til þurfti.
Spilakassar Rauða krossins:
39 milljón fimm-
kallar í kassana
- að verðmæti 195 milljónir. Rauði krossinn fékk 16,5%
Verkbann í Svíþjóð?
■ Laust fyrir miðnætti í gærkvöldi frestuðu
sáttasemjarar í Svíþjóð verkbanni á 80.000
opinbera starfsmenn sem þá átti að koma til
framkvæmda, um tvær klukkustundir. Þegar
blaðið fór í prentun var ekki enn Ijóst hvort
af verkbanni yrði þótt flest benti til þess þar
sem mikið greindi á milli.
- sjá erlendar fréttir bls. 21
■ Spilakassar Rauða kross
íslands gáfu félaginu 32,1
milljón króna í tekjur árið
1984. Hannes Hauksson
deildarstjóri fjármáladeildar
Rauða krossins sagði að út-
borgunarhlutfall í hverjum
kassa væri 83,5 prósent. 16,5
prósent verða eftir í kössun-
um. Alls munu því 195 mill-
jónir króna hafa farið í gegn-
um kassana. Sem þýðir að
landinn hefur troðið 39 mill-
jónum af fimm krónu pen-
ingum í spilakassana árið
1984.
NT mældi hversu lengi er
verið að eyða nokkrum tug-
um fimmkalla í spilakassa,
og reyndisi meðaltalið vera í
kringum 15 sekúndur á
pening. Ársverk eru u.þ.b.
1700 klukkustundir (án
kaffitíma). íslendingar hafa
varið um 100 ársverkum við
spilakassana síðasta ár, og
er það meiri starfafjöldi en í
mörgum stórum fyrirtækj-
um.
Nú hefur Rauði krossinn
breytt spilakössunum á
Reykjavíkursvæðinu þannig
að þeir taka nú 10 króna
peninga í stað fimm króna
áður. Hannes Hauksson
deildarstjóri sagði að í sumar
væru væntanlegir spilakassar
frá Finnlandi, sem væru svip-
aðir þeim kössum sem fyrst
voru fluttir til landsins nema
hvað þessir yrðu elektrón-
ískir.
Morðsaga úr geimnum:
í íslenska
sjónvarpinu?
■ Aðöllumlíkindummun
íslenka sjónvarpið sýna
breska glæpamynd, „Morð-
sögu úr geimnum“, í ágúst,
ef samningar takast um sýn-
ingarréttinn. Þetta væri
ekki fréttnæmt ef ekki kæmi
til að hér er um verðlauna-
gátu að ræða, síðustu 10
mínútur myndarinnar
verða ekki sýndar fyrr en
nokkrum vikum síðar en
aðalhlutinn og á meðan eiga
sjónvarpsáhorfendur að
spreyta sig á að leysa fjórar
morðgátur, en myndin ger-
ist um borð í geimfari.
Til að fá sýningaréttinn
verður íslenska sjónvarpið
að sýna myndina á nákvæm-
lega sama tíma og breska
sjónvarpsstöðin svo engin
skilaboð berist á milli land-
anna. „Hugmyndin er sú að
stefna verðlaunahöfum
saman í sjónvarpssal þar
sem sitthvað verði til
skemmtunar. Við verðum
þó varla eins rausnarlegir í
verðlaunaveitingum og
Bretarnir sem veita ein 100
verðlaun, þar á meðal 1.
verðlaun sern verða flug
með Konkordþotu til
Bandaríkjanna og heim-
sókn í NASA geimrann-
sóknastofnunina," sagði
Pétur Guðfinnsson frani-
kvæmdastjóri sjónvarpsins
í samtali við NT í gær, en
hann kynnti hugmyndina
fyrir útvarpsráði í gær og
fékk grænt ljós á, að vinna
að framgangi hennar.
Æmtme - HHrÉ' M ' 1« ■ ■ "^SÍ1 öta flj \ WPB1 Vmájl - M§ . 1 gj^HE^HgHS^^H1 ■MHtoMÉjC t r \|jMé 1 ’ mHHL i/ j| : HH ý,'J■.i'-.-'á- : . ,W- HH ■ ■ «
■ Brúsarnir 53 sem gerðir voru upptækir af lögreglu í fyrrinótt. Starfsmenn rannsóknarstofu háskólans taka sýni úr brugginu. NT-mynd: Sverrir. „Stærsta bruggverksmiðja sem ég hef séð!"
1400 lítrar af landa
í vörslu lögreglu innar
■ „Þetta er stærsta bruggverk-
smiðja sem ég hef séð,“ sagði
Arngrímur ísberg fulltrúi lög-
reglustjóra í samtali við NT í
gær. Verksmiðjan sem Arn-
grímur talar um var gerð upp-
tæk í fyrrinótt. Tveir menn á
sextugs aldri hafa verið hand-
teknir og stóðu yfirheyrslur yfir í
gærdag. Alls lagði lögreglan
hald á 53 plastprúsa sem inni-
héldu 25 lítra hver af bruggi. Þá
var eitthvað af bruggi á kolbum
tilbúið til eimingar. Magnið er
því alls um 1400 lítrar.
Af eimuðum spíritus fundust
nokkrar flöskur og reyndist
magnið vera vel yfir 50 lítra.
„Það er greinilegt að
mennirnir hafa soðið í einhvern
tíma og grunur leikur á að þeir
hafi þegar selt umtalsvert magn
af spíritus.“ Arngrímur fsberg
vildi ekki kannast við að fíkni-
efni tengdust málinu.
Starfsmenn rannsóknarstofn-
unar Háskólans voru í óða önn
við að taka sýni úr brugginu og
spíranum í gær í kjallara lög-
reglustöðvarinnar. Ekki vildu
starfsmennirnir viðurkenna að
faglega væri að brugguninni
staðið, en töldu hinsvegar að
magnið bæri vott um vist fag-
manns hugarfar.
Mennirnir hafa verið úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald.