NT - 11.05.1985, Blaðsíða 11

NT - 11.05.1985, Blaðsíða 11
Skák : :;:k ~n Laugardagur 11. maí 1985 11 Millisvæðamótið í Túnis: Jusupov efstur ■ Undir lok aprílmánaðar hófst í Túnis, nánar tiltekið í höfuðborginni Túnis, eitt þriggja millisvæðamóta þar sem ræðst um þátttakendur í áskorendamót sem fram fer undir lok þessa árs. Það fór víst framhjá undirrituðum að reglum mun hafa verið breytt hvað varðar heimsmeistarakeppnina í skák því nú er aftur stofnað til áskorendamóts en slík mót lögðust niður árið 1962 eftir söguleg ummæli Bobby Fischer þess efnis að Sovétmenn hefðu í frammi svik og pretti til að halda heimsmeistaratitlinum sem lengst. 1962 var haldið áskorendamót með átta þátttakendum sem tefldu fjórfalda umferð en nú er kerfið orðið flóknara. Fjórir efstu menn úr hverju millisvæðamóti komast í áskorendamót þar sem fyrir verða Vasily Smyslov, Viktor Kortsnoj og Zoltan Ribli sem allir unnu a.m.k. eitt einvígi í síðustu kandidatahrinu og þar að auki mun Boris Spasskí fá þátttökurétt, á sögulegum forsendum! Hann er nefnilega sá heimsmeistari sem síðast tapaði einvígi um titilinn og fáanlegur er til keppni, þ.e. ekki er gert ráð fyrir að Fischer mæti til leiks á ný. Mér er ekki kunnugt um hvort tefld verður einföld eða tvöföld umferð i þessu móti en þrír efstu menn komast svo í einvígi þar sem einnjg verður þátttakandi sá sem tapar í heimsmeistaraeinvíginu í haust, Karpov eða Kasparov. Litlar fréttir hafa borist frá mótinu í Túnis en úrslit úr sex fyrstu umferðunum hef ég und- ir höndum en þau urðu á þenn- an veg: 1. umferð Bouaziz-Morovic De Firmian - Nikolic 1:0 Hort-Afifi 1:0 Hmadi-Tschernin 0:1 Gawri kow - J usupow 0:1 Sosonko-Miles Dlugy - Ermenkoff Vv.'h Beljawski-Suba >/i-M Portisch-Zapata '/i:'h 2. umferð Beljawski-Bouaziz 1:0 Miles-Dlugy 'h:'/i Jusupow-Sosonko 1:0 Tschernin - Gawrikow 'h:'h Afifi-Hmadi 1:0 Nikolic-Hort 'h:'h Morovic-DeFirmian 'h: 'h Ermenkoff-Portisch 'h:'h Suba-Zapata Vr.'h 3. umferð Suba-Bouaziz 1:0 Beljawski - De Firmian 1:0 Hort-Morovic 'h:'h Nikolic-Hmadi 1:0 Gawrikow-Afifi 1:0 Sosonko - Tschernin 'h:'h Dlugy-Jusupow 'h:'h Portisch-Miles Vr.'h Zapata - Ermenkoff 'h:'h 4. umferð Suba-Ermenkoff 1:0 Miles-Zapata 0:1 Jusupow-Portisch 1:0 Tschernin-Dlugy 1:0 Afifi-Sosonko 0:1 Nikolic-Gawrikow 'h:'h Morovic-Hmadi 'A:>A Beljawski-Hort 'h:'h Bouaziz - De Fimian 0:1 5. umferð De Firmian-Suba 0:1 Hort-Bouaziz 1:0 Hmadi-Beljawski 0:1 Gawrikow-Morovic h:'h Sosonko - Nikolic 'h:'h Dlugy-Afifi 1:0 Portisch-Tschernin 1:0 Zapata-Jusupow Vr.'h Ermenkoff-Miles Vr.'h 6. umferð Jusupow - Ermenkoff 1:0 Tschernin-Zapata 1:0 Morovic - Sosonko 'h:'h Beljawski - Gawrikow 'h:h Bouaziz-Hmadi 0:1 De Firmian-Hort 1:0 Suba-Miles 0:1 Afifi — Portisch 0:1 Nikolic-Dlugy h:'h Staðan á mótinu eftir sex umferðir var þá þessi: 1. Jusu- pov (Sovétr.) 5 v. 2. Beljavskí (Sovétr.) 4Vi. 3.-4. Tschernin (Sovétr.) og Suba (Rúmeníu) 4 v. 5.-7. Portisch (Ungv.landi), Hort (Tékkó- slóvakíu) og De Firmian (Bandaríkjunum) 3'h v. 8.-14. Dlugy (Bandar.), Gawrikov (Sovétr.), Miles (Englandi), Morovic (Chile), Nikolic (Júgóslavíu), Sosonko (Hol- landi) og Zapata (Kólumbíu) 3 v. 15. Ermenkoff (Búlgaríu) 2 v. 16. Hmadi (Túnis) l'h v. 17. Afifi (Algería) I v. 18. Bouaziz (Túnis) lh v. Frammistaða Sovétmann- anna kemur auðvitað ekki á óvart en ljóst er að Jusupov hefur tekið sig verulega á eftir Reykjavíkurskákmótið í vetur þar sem hann varð í 6.-7. sæti. Hann virðist öruggur með sæti í áskorendamótinu því hann á alla léttu mennina eftir. Porti- sch byrjaði illa en hefur náð sér á strik og á allgóða mögu- leika á sæti. Jusupov byrjaði mótið með því að vinna landa sinn Gawri- kov og strax á eftir fylgdi fallegur sigur yfir Hollendingn- um Sosonko. í báðum skákun-' um var það atlaga eftir h-lín- unni sem tryggði Sovét- manninum sigurinn: 1. umferð: Hvítt: Gawrikov (Sovétr.) Svart: Jusupov (Sovétr.) Drottningarbragð 1. d4 Rf6 ■ Arthur Jusupov að tafli á afmælismóti Skáksambands íslands í febrúar. Eftir sex umferðir virðist hann næsta öruggur með sæti í áskorendamótinu. 2. Rf3 d5 3. c4 e6 4. Rc3 Be7 5. Bg5 0-0 6. e3 h6 7. Bh4 b6 8. Bd3 Bb7 9. 0-0 Rbd7 10. De2 c5 11. Bg3 Re4 12. Hfdl cxd4 13. exd4 Rxg3 14. hxg3 Rf6 15. Re5 Hc8 (Fram að þessum leik hefur skákin fylgt 1. einvígisskák Simen Agdestein og Margeirs Péturssonar en hér breytir Jusupov út af taflmennsku Margeirs sem lék 15. - a6. Þeirri skák lauk með jafntefli en Margeir var hætt kominn á tímabili.) 16. Hacl dxc4 17. Bxc4 Rd5 18. Bb3 Rxc3 19. bxc3 Hc7 20. Dd3 Bf6 (Svartur hefur jafnað taflið en ekki meira. Það eru fyrst og fremst fálmkenndar tilraunir hvíts til að ná sóknarfærum sem verða þess valdandi að svartur nær frumkvæðinu.) 21. Rg4 h5 22. Re3? (Eftir 22. Rxf6 - er staðan í jafnvægi.) 22. .. Hd7 23. g4? (Og nú opnast h-línan - svört- um í hag!) 23. .. hxg4 24. Rg4 g6 25. Hel Kg7 26. Hcdl Hh8! 27. Dg3 Hh5! 28. Df4 Be7 29. Dcl Bd6 30. Re5 Dh4 31. f3 Dg3! (Það kann að vera að hvítur hafi ætlað að svara þessum leik með 32. Rxd7 en hann verður þá snögglega mátaður: 32. - Hhl-! 33. Kxhl Dh2 mát.) 32. He3 Hd8! - Hljóðlátur og bráðdrepandi leikur. Svartur hótar einfald- lega að tvöfalda á h-línunni og við þeirri áætlun á hvítur enga vörn. Hann gafst því upp. Og strax í næstu umferð fékk Hollendingurinn Genn- adi Sosonko útreið sem hann vill áreiðanlega gleyma sem fyrst. Sosonko hefur um langt skeið verið næst sterkasti skák- rnaður Hollendinga. Hann er eins og Dlugy sem teflir fyrir Bandaríkin fyrrum Sovétþegn: 2. umferð Hvítt: Jusupov (Sovétríkin) Svart: Sosonko (Holland) Drottningarpeðsleikur 1. d4 Rf6 2. RE3 e6 3. e3 d5 4. Bd3g65.b3 Bg7 6. Ba3! Rbd7 7. Rbd2 c5 8.0-0 0-0 9. c4 Da5 10. Bb2 Hd8 11. De2 cxd4 12. Bxd4 Rc5 13. Bc2 Rce4 14. Rxe4 dxe4 15. Re5 Bd7 16. f4 h5 17. Hadl Be8 18. Bbl Da3 19. h3 Hac8 20. Hd2 b6 21. Hfdl De7 22. Df2 b5 23.c5b4 24. Dh4 Hc7 25. g4 hxg4 26. hxg4 Hdc8 27. Rc4 Bc6 28. Be5 Hd7 29. Rd6 Hcd8 30. Hh2 Bd5 31. Kf2 llllll! III IIIIIIIIIIMIII 1 IIIIIIOIlllMilll 1111 QilBil 1111 IDi.ll 1111 11 llllllliEIfil ■ A 0 filllllll 1111 Bl 1 s lil n 1111 - og hér lagði svartur niður vopnin. í þetta skipti er það fyrirhuguð þreföldun á h-lín- unni sem gerir út um taflið. Hugmyndin er 32. Hdhl, Dh8t, Hxh8t og Hlh7 mát. Og það er ekki nokkur leið að koma í veg fyrir að þessi áætlun nái fram að ganga. Helgi Ólafsson skrifar um skák Hjólbarða- þjónusta fyrir allar stærðir og gerðir af bílum, fólksbíla, vörubíla og sendiferðabíla. Höfum mikið magn af kaldsóluðum, heilsóluðum og radíaldekkjum á lager. Öll hjólbarðaþjónusta innanhúss. Komið og reynið viðskiptin í nýju húsnæði okkar. Ath. Gegn framvísun þessarar auglýsingar veitum við 5% kynningarafslátt. Kaldsólunhf. Dugguvogi 2. Simi: 84111 Sama húsi og Ökuskólinn. KjrlUngstad Kjrllingstad Mykjudreifarar Plógar Nýkomnir - Til afgreiðslu strax BÚNADARDI S? SAMBANDS ARMULA3 REYKJAVIK SIMI 38900

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.