NT - 11.05.1985, Blaðsíða 7

NT - 11.05.1985, Blaðsíða 7
UL' Arnað heill Áttræður: Guðmundur P. Valgeirsson Pað er ekki vani minn að skrifa afmælisgreinar. Undan- tekningu geri ég nú vegna þess, að ég tel að saga Guð- mundar P. Valgeirssonar eigi erindi til þjóðarinnar. Sú saga verður að vísu ekki sögð nema að mjög litlu leyti í þessari stuttu grein, en nokkur megin- atriði vil ég freista að draga fram um leið og ég sendi Guðmundi og fjölskyldu hans hugheilar árnaðaróskir. Um ætt Guðmundar læt ég nægja að nefna, að hann er Strandamaður í húð og hár. Að honum standa fjölmennar ættir á Ströndum og víða um land. Pað er fyrst og fremst ævi Guðmundar, störf hans og hugsjón, sem eiga erindi til okkar. Guðmundur hefur alla ævi búið í Árneshreppi á Ströndum. Hann hefur aldrei sóst eftir metorðum, en verið einskonar ókrýndur konungur þeirrar byggðar. Menn hafa metið hans visku og viljað hlýða á hans ráð. Óvíða er byggð afskekktari. búin smærri og veturinn harð- ari en í þessari útvarðarbyggð í norðri. Ég efast þó um, að fólk sé annars staðar ánægðara með lífið. Þarna hefur lífsbar- áttan nánast öll byggst á samhjálp, samvinnu og félags- hyggju, a.m.k. síðan síldar- ævintýrinu lauk. Fyrir nokkrum árum réðust bændur í það að endurbyggja fjárhús og hlöður. Pað var gert fyrir áeggjan Guðmundar. Fróðlegt var að fylgjast með því, hvernig að þessu var staðið. Tveir eða þrír úrvalssmiðir, ættaðir í sveitinni, voru ráðnir til starfsins. Peir, ásamt fjöl- mennum hópi bænda úr hreppnum, gengu síðan á röð- ina og reistu húsin. Vinna var greidd með vinnu og mínút- urnar ekki taldar. { hönd fóru erfiðir tímar með vaxandi dýrtíð, erfiðu ár- ferði og grásleppan næstum hvarf. Eg óttaðist, að lánin yrðu þessum ágætu bændum, eins og svo mörgum öðrum, ofviða. Svo hefur þó ekki farið. Þessir menn hafa staðið í skil- um svo að til fyrirmyndar er. Petta er aðeins eitt dæmi af mörgum, sem nefna mætti. þarna sníða menn sér stakk eftir vexti og skera niður óþarfa þegar að þrengir. Um slík vinnubrögð hefur Guð- mundur P. Valgeirsson ætíð haft forystu. Honum er ljóst, að sameinaðir eru þeir sterkir en sundraðir veikir. Nú kynnu sumir frjáls- hyggjumennirnir að álykta, að þarna hljóti að ríkja hið mesta ófrelsi. Áldrei hef ég orðið var við það. Raunar er ég sann- færður um, að þessir nienn eru sem einstaklingar langtum frjálsari í raun en hinir, sem brjótast um í lífskjarakapp- hlaupi og skuldafjötrum frjáls- hyggjunar. Það eru menn eins og Guð- mundur P. Valgeirsson, sem hafa gert ísland að því sem það er, menn sem ekki heimtuðu daglaun að kvöldi. Við stönd- um í mikilli þakkarskuld við þessa menn. Á okkur hvílir þung ábyrgð, að varðveita og bæta enn það sem þeir hafa byggt upp. Guðmundur býr ásamt konu sinni, Jensínu Óladóttur. hjá syni þeirra, Hjalta, að Bæ í Arneshreppi. Guðmundi, Jensínu og afkomendum þeirra sendi ég hugheilar árn- aðaróskir. Ég þakka ánægjuleg og lærdómsrík kynni. Pað er von mín, að Strandamenn megi enn lengi njóta Guð- mundar og ætíð byggja á þeirri hugsjón, sem einkennt hefur hans störf. Þá mun þeirn vel farnast. Steingrímur Hermannsson. ■ Frá æfíngu Kammermúsikklúbbsins í Bústaðakirkju. NT-mynd: Sverrir er tekin frá hinum alvitra Almustafa og þarfnast í sjálfu sér ekki skýringa. En hún á erindi við okkur nú á tímum þegar dollarmerkin skína úr augum hárra sem lágra og hart og langt er sótt í von um skjótfenginngróða. Ogeflaga- ákvæði hindra athafnamenn- ina þá er þeim breytt af viljug- um þingmönnum. Ef laga- ákvæði hindra sígarettuheild- sala í því að græða fé á kasettu- sjónvarpsstöð, þá er gasprað um frjálst útvarp og listrænar auglýsingar og borin fram frumvörp til að tryggja frelsið og þegar ýmis helstu stórfyrir- tæki þessa lands og í hópi þeirra brennivínsheildsalar og slíkir dáindismenn hafa komið auga á hvað hægt er að græða á bjórnum og hafa náð sér í bjórumboð eins og það heitir þá rjúka hinir síviljugu þing- menn til og samþykkja bjór- frumvarp að sjálfsögðu undir yfirskyni frelsis. Og hálf þjóðin er þegar komin á bjórfyllerí. Tilbúin undir frelsisánauð bjórsins og andlega ánauð þeirrar andlausu moðsuðu sem alþjóðleg og innlend af- þreyingariðja mun ausa yfir landslýð. Þá verður freísið fjötur. Baldur Kristjansson. ■ Verða frjálsir íslendingar öpum líkir á frjálsri fjölmiðlaöld. Laugardagur 11. maí 1985 7 Málsvari frjalslyndis, samvinnu og félagshyggju Utgefandi: Nútiminn h.f. Ritstj: Magnus Ólafsson (ábm) Markaösslj.: Haukur Haraldsson Auglysingastj.: Steingrímur Gíslason Innblaðsstj: Oddur Ólafsson Tæknistj.: Gunnar Trausti Gudbjörnsson Skrifstofur: Siöumúli 15, Reykjavik. Simi: 686300. Auglýsingasími: 18300 Kvöldsimar: Áskrilt og dreifmg 686300, ritstjórn 686392 og 687695, iþróttir 686495, tæknideiid 686538. Setning og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Blaiaprent h.t. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð i lausasölu 30 kr. og 35 kr. um helgar. Askrift 330 kr. Opinberar stofnanir vel varðar fyrir föUuðum ■ Að undirlagi félagsmálaráðuneytisins hefur emb- ætti húsameistara ríkisins í samvinnu við ferilnefnd tekið saman s'kýrslu um húsakost ríkisins með tillliti til fatlaðra. í stuttu máli eru niðurstöður þær að stór hluti húsakosts ríkisins uppfyllir illa þarfir fatlaðra. Hlutu þær húseignir sem úttekt var gerð á, Þjóðleikhúsið, Stjórnarráðið, Alþingishúsið, Tryggingastofnun og Landsbókasafn hrakalega einkunn. Að meðaltali aðeins 3 af 10 mögulegum. Þær eru því fallnar á prófinu. Sjálft stjórnarráðið kemur verst út úr könnuninni og er greinilega ekki ætlast til þess að fatlaðir eigi þangað erindi. Sem betur fer eru þó æðstu ráðamenn þjóðarinnar vel á sig komnir líkamlega, hvað sem segja má um þá sem við þá eiga erindi. Ekki fær Alþingishúsið nriklu betri einkunn. Um það hús segu m.a.: „Aðkoma að útihurð er ekki auðveld. Það eru tröppur upp að aðalinngangi. Rými vantar fyrir framan hurð. Útidyrahurðir eru stórar og þungar... Lyfta er engin... Snyrtingar fyrir fatlaða engar. Húsið er friðlýst í flokki A, þannig að allar breytingar þurfa að fara fyrir húsfriðunarnefnd." Um Arnarhvol segir m.a.: „Bifreiðastæði eru nálægt en engin fyrir fatlaða... Aðkoma er ekki auðveld að inngöngum, sem eru tveir að framan og tveir bakinngangar sem eru ófærir fötluðum... Hurðir eru þungar með þröskuldum... Lyfta er cngin... Engin snyrting er fyrir fatlaða.,, Um leikhús þjóðarinnar segir: „Ekki er hægt að komast leiðar sinnar í hjólastól. Fatlaðir leikhúsgestir komast ekki hjálparlaust inn í húsið. Engar úrbætur hafa verið gerðar með tilliti til þarfa þeirra. Einstaklingar á hjólastólum og blindir hafa komið á leiksýningar. Verður þá að láta vita í tíma svo veita megi aðstoð.“ Pá kemur fram í skýrslunni að Landsbókasafnið er eins og Þjóðleikhúsið, Stjórnarráðið og Arnarhvoll vel varið fyrir fötluðum. Það vantar ekki að við höfum falleg lög í þessum efnum en fylgjum þeim lítt. Lög og reglugerðir frá 1979 og 1981 gera ráð fyrir að öll hús séu sniðin með þarfir hreyfihamlaðra í huga, ekki síst opinberar byggingar. Mikið vantar á að þessum lögum sé fylgt eftir og ekki síður að gömlum byggingum sé breytt. Hlýtur að vera lágmarkskrafa að byggingar, sem hýsa helstu stofnanir lýðveldisins, séu opnar öllu fólki, ekki bara fullhraustum. Friðunarsjónarmið mega ekki breyta þar neinu um. Hús verður einfaldlega að laga að breyttum aðstæðum sé ætlunin að nýta þau. Hvað myndi annars gert ef æðstu ráðamenn þjóðarinnar þyrftu að ferðast um í hjólastól. Myndu augu manna opnast þá?

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.