NT - 11.05.1985, Page 6

NT - 11.05.1985, Page 6
LaugarHagur 11. maí 1985 6 Þorsteinn Guðjónsson Aðdragandi ÁÓB það bii sem veikin kom upp. eins ekki gert sér grein fyrir En síðan hefur lítið frétzt af því enn. Með þessari lævíslegu En það hefur aldrei þótt hæfa fyrr en nú á dögum að það að ganga með sjúkdóm, réttlætti það að koma honum yfir á aðra. ■ Á upptökum og eðli áunn- innar ónæmisbæklunar (ÁÓB) kynvillingasjúkdómsins, sem nú hefur víða heyrst nefndur um skeið, hef ég aðeins séð tvær skýringar. Onnur er hin læknisfræðilega, sem segir að ekki sé annað hægt að gera en rekja ferland eða ferlin, finna veiruna, hvernig hún vex og daínar og veldur sjúkdómnum og við hvaða skilyrði. En um eiginlega frumorsök þess að veikin kom upp er ekki rætt. - Hin skýringin er sú, að „reiði Guðs“ hafi valdið sjúkdómn- um. Hvorug þessara skýringa- nægir mér. Lítum aðeins á ástandið eins og það er núna og eins og það var þegar veiki þessi kont upp. Meðal margra sálrænna faraldra, sem herjað hafa á Vesturlönd og önnur lönd síð- ari árin, var kynvilluíaraldur- inn - það er sjálf kynvillan, áður en veikin kom til - sá sem einna hraðast breiddist út. Vegna rangsnúinna hugmynda um „jafnrétti" og „réttlæti" Itafa áróðursmenn fyrir út- hreiðslu kynvillu átt liinn auð- veldasta leik. í þjóðfélögum þar sem kynvilla hafði heyrt til fremur sjaldgæfra undantekn- inga, urðu nú milljónir manna alteknar þessu fári. Það er ekki vafi á að þessi umbreyting átti sér fjölmiðlarætur. Öll vörn eða varúð gegn slíku var ýmist fordæmd eða spottuð. Allri samúð var beint til manna af þessu tagi, en ekki til fórnar- lamba þeirra. Frá þessarar teg- undar nauðgunar á börnum og unglingum var ekki sagt - til þess að „æsa ekki upp for- dóma". Þannig var þetta í Bandaríkjunum, þannig í Evr- ópu og þannig hvarvetna. Á Norðurlöndum voru jafnvel farnar kröfugöngur gegn ís- lendingum, vegna þess að talið var, að hér hefði þessu enn ekki verið gefinn nógu laus taumurinn. Þetta var rétt um kröfugöngum. Faraldurinn var orðinn svo geystur, að hann hefði sennilega farið „sigurför" um öll lönd, ef náttúran hefði ekki tekið í taumana. Áróður kynvillinga beindist jafnan mest að því að telja sem flestum trú um, að þeir væru sjálfir raunar með sama eðli og kynvillingarnir, en hefðu að- aðferð tókst þeim að ánetja marga. En vissulega ber ekki að neita því að þessi sjúkdóm- ur (kynvillan sjálf) hefur alltaf verið til - misjafnlega út- breiddur þó eftir aldarfari, eins og aðrir sjúkdómar. En það hefur aldrei þótt hæfa fyrr en nú á dögum að það að ganga með sjúkdóma, réttlætti það að reyna að koma honunt yfir á aðra. Væru áróðursöfgarnar ekki jafn ráðandi í þessum efnum og er, þá væri auðvelt að viðurkenna að ýmsir tilburðir og snertur af hneigðum í þessa átt séu tiltölulega lítilsverð at- riði. Það er ekki fyrr en kemur að því sem fræðimenn liafa nefnt hina „rassrænu andstyggð" („anal sodomy"), sem alvara málsins kemur í Ijós. og það er hún sem hefur ómótmælanlega leitt af sér sjúkdóminn ÁÓB, sem nú veldur skelfingu víða. Ég ætla annars að spara mér að setja fram. í þetta sinn, skýringu mína á eiginlegum upptökum sjúkdómsins ÁÓB. En ég legg áherzlu á það að menn eru sammála unt að sjúkdómsins varð fyrst vart þar, sem lengst hafði verið gengið í þessum efnum. Bubbamennskan á íslandi er smámunir hjá þvf sem þar gerðist. Þorsteinn Guðjónsson. ______________________________ Vegna rangsnúinna hugmynda um „jafnrétti“ og „réttlæti11 hafa áróðursmenn fyrir útbreiðslu kynvillu átt hinn auðveldasta leik. í þjóðfélög- um þar sem kynvilla hafði heyrt til fremur sjaldgæfra undantekninga, urðu nú milljónir manna alteknir þessu fári. Knust der Fuge ■ Sagt er að íbúar Heidel- berg hafi getað stillt klukkur sínar eftir Immanúel Kant, svo regluleg var heilsubótarganga hans á hverjum degi. Og þegar hann fór ekki hjá á réttum tíma dag nokkurn árið 1789 vissu menn að eitthvað meiri háttar hafði hent heimspeking- inn - Kant hafði einmitt borist til eyrna frétt um að bylting hefði brotist út í Frakklandi. Annar stórviðburður, 300 ára afmæli Jóhanns Sebastíans Bach, varð til þess að Kamm- ermúsíkklúbburinn brá af ára- tugavenju sinni að hafa ekki annað í prentaðri tónleikaskrá en knöppustu skil þeirra verka sem flytja skal: Sinnhoffer- kvartettinn frá Múnchen og Ragnar Björnsson organleik- ari fluttu Die Kunst der Fuge í tilefni afmælisins, og í tón- leikaskránni er ekki einasta birt mynd af hinu aldna stór- skáldi, heldur og útlistun ein- stakra kafla verksins með einu prentuðu tóndæmi - svo mikið bókmenntalegt frávik frá fornri venju hefur ekki þekkst síðan menningartímaritið The New Yorker tók upp efnisyfir- lit fyrir fáum árum eftir hálfrar aldar umræður í blaðstjórn- inni. Ekki var þetta þó gert fyrir prjálið, heldur voru hinar ná- kvæmu skýringar til þess gerð- ar að auðvelda áheyrendum að njóta þessa háttatals fúgunnar til fullnustu: Die Kunst der Fuge „sýnir í einu tónverki það fullkomnasta sem gáfa Bachs og lærdómur megnuðu á sviði hins strangasta tónlis- arforms, fúgunnar, eftir- komendum til umhugsunar." Hið prentaða tóndæmi gefur grunnstef tónverksins, sem „gengur aftur" í öllum 16 fúg- um verksins ýmist rétt eða umhverft, með tilbrigðum og ■ Bach. Teikning eftir óþekktan listamann sem gerð er einhverntíma nálægt 1730. samslungið í mismunandi röddum, með ótrúlegri hug- kvæmni og snilli. Sem dæmi má taka skýringu við 9. fúgu: „Fúga um tilbrigði grunnstefs- ins og umhverfu þess í þrenns konar nótnagildum. Fúgan hefst með því, að þriðja rödd leikur grunnstefið. Fyrsta rödd kemur síðan með umhverft grunnstefið í tvöföldum nótna- gildum. Önnur rödd tekur við með umhverfðu grunnstefi í ein- földum nótnagildum. Fjórða rödd rekur lestina með grunn- stefi ífjórföldum nótnagildum'.' Þannig vex Die Kunst der Fuge upp af einu kími rétt eins og hin gilda og limmikla eik af einu akarni, enda sagði Beet- hoven um Bach: „Nicht Bach sonst Meer sollte er heissen," hann ætti að heita haf.en ekki lækur. Die Kunst der Fuge er síð- asta verk Bachs, utan lítils sálmalags sem tengdasonur hans skráði eftir honum á dán- arbeði og flutt var við lok tónleikanna. Bach auðnaðist ekki að ljúka verkinu, en lær- dómsmenn hafa fært að því líkur hvernig það var hugsað. Eins og ýmis sérkennileg verk meistarans, t.d. einleikssam- stæðurnar fyrir knéfiðlu, lá Kunst der Fuge lengi í þagnar- gildi - menn litu á hana sem einhvers konar æfingu. En nú er hún til í ýmsum útgáfum, bæði fyrir hljómborð, hljóm- sveit og strengjakvartett og orgel og í þeirri mynd var verkið frumflutt í heild sinni á íslandi hinn 1. maí í Bústaða- kirkju. Undirritaður hlustaði á æfingu en gat ekki sótt tónleik- ana sjálfa. Af æfingunni, og af ummælum kunningja sem voru á tónleikunum, er Ijóst að þeir tókust afburða vel og að þessi útgáfa Kunst der Fuge er mjög vel heppnuð, því hinar marg- slungnu raddir njóta sín vel í meðferð strengjakvartetts. Með því að standa fyrir þessum flutningi hefur Kamm- ermúsíkklúbburinn ennþá einu sinni sýnt það, að enginn menningarlegur bratti er hon- um ofmikill.aðeins hið besta er nógu gott. Sig. St. „Þannig er um frelsið, þegar það missir fjötra sína verður það sjálft fjötur“ ■ Nú er liðið allt í einu farið að tala um kosningar í haust og eru þar sjálfstæðismenn fremstir í flokki. Þetta virðist vera krónískur sjúkdómur, ekki liður það misseri að topp- menn þar á bæ reifi ekki hug- myndir um kosningar og hlýtur slíkt að hafa ntjög bagaleg áhrif á stjórnun alla. Raunar er ekki að sjá eftir hverju sjálfstæðisménn eru að slægj- ast mcð kosningalöngun sinni því að borin von er að þeir bæti nokkru teljandi við sig í kosn- ingum. Raunar virðist miklu líklegra að þeir tapi. Skal þá fyrst nefna að fyrir kosningar eiga þeir eftir að ganga í gegn um mjög sársaukafullt og erfitt prófkjör hér í Reykjavík og svo hitt að sigurvegarar í næstu kosningunt verða trúlega flokkar jafnaðarmanna. Al- þýðuflokkur Jóns Baldvins og Bandalag jafnaðarntanna með Valgerði Bjarnadóttur í broddi fylkingar. Núverandi stjórn- arilokkar gera örugglega ekki nteira en að halda í horfinu ekki síst ef kosningar verða í október nk. undir kringum- stæðum óróa á vinnuntarkað- inum og óvissu um framtíðina. Sem sagt slæm hugmynd fyrir báða stjórnarflokkanna sent endurspeglar fyrst og fremst hvað ýmsum sjálfstæðismönn- um líður persónulega illa í þessu samstarfi. íslenskan á altari frjálshyggjunnar Það er mikið blóð í þeim manni sem af skáldlegri anda- gift skrifar leiðara Morgun- blaðsins þessadagana. Honum er í meira lagi ljós sú hætta sem steðjar að íslenskri tungu og íslenskri menningu í þeirri andans aumu fjölmiðlabylt- ingu sem fégróðaöflin eru að leiða yfir okkur. En skáldið skyldi átta sig á því að viðvar- anir hans falla dauðar í eyrum þeirra frjálshyggjupostula sem ráða ríkjum í Sjálfstæðisflokki þar sem öll höft og öll ræktun eru talin í ætt við andskotann. Frjálshyggjan spyr ekki hvort að íslensk tunga standist í straumi tímans. Frjálshyggju- hugsunarhátturinn segir að ís- lensk tunga standist sé hún þess virði. Standist hún ekki þá sé það af því að hið frjása fólk velji annað og til þess hafi það allan rétt. Frjálshyggjan hafnar því einnig að fé sé varið til ræktunar. Hver á að ákveða hvað á að rækta og fyrir hvern? Hvaða rétt hafa einhverjir menningarpostular til þess að taka fé úr sameiginlegum sjóði til þess að kenna lýðnunt að tala. Hann ræður því sjálfur hvað hann talar. Það er santa hvernig málið er skoðað, sú stjórnmálastefna sem ritstjór- inn beint og óbeint styður ber um elið í sér dauðann fyrir íslenska tungu og íslenska menningu. Sú stjórnmálast- efna hafnar allri ræktun, öllu sem lýtur að stýringu bæði í menningarlegum og markaðs- legum efnum. Á sama hátt kemst maður ekki hjá því að finna til með skáldinu er hann kremur hjarta sitt yfir eymd Norðmanna, þessarar þjóðar sem átt hefur Grieg og Ibsen að hún skuli tryllast þegar vesturheimskt moðsuðulag vinnur keppni og tclja að sóma Noregs sé borgið. Auðvitað er þetta hylli fánýtisins, hégóm- ans, en alveg í stíl við markaðs- hyggju þjóðfélagið þar sem aldrei er spurt unt önnur verð- mæti en verðmæti markaðar- ins, markaðshyggjuþjóðfélag- ið sem hafnar allri ræktun, sem telur hana andstæðu frelsisins nema þá að ræktunin verði boðin út, einhverjum til ágóða- auka. Annars er það gleðilegt að á Morgunblaðinu skuli finnast skáld sem sér upp úr þokunni, gerir sérgrein fyrir þeirri hættu sem íslenskri menningu er búin á fjölmiðlaöld þar sem heild- sölum í skjóli voldugra stjórn- málaafla verður gerður hinn prýðilegasti gróða vegur með því að flytja okkur lágkúruleg- an erlendan skemmtana- bransa. Sígarettu og brennivinsheildsalar Fyrirsögnin á grein þessari

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.