NT - 11.05.1985, Blaðsíða 21

NT - 11.05.1985, Blaðsíða 21
Laugardagur 11. maí 1985 21 „Nótt blýantanna“ í Argentínu: Skólapiltar pyntaðir Buenos Aires-Reuter ■ Fyrrverandi menntaskóla- nemi skýrði frá því við réttar- höldin yfir níu fyrrveranai leiðtogum hersins í Argentínu að hann hafi verið pyntaður um þriggja ára skeið eftir að hettu- klæddir menn rændu honum í þeirri aðgerð öryggissveitanna sem kölluð var „nótt blýant- anna.“ Pablo Diaz sagði að honum hafi verið rænt ásamt 15 skólafé- lögum sínum árið 1977, er arg- entínski herinn háði sitt „skítuga stríð“ gegn vinstrisinn- um og stjórnarandstæðingum vegna þess að þeir höfðu farið fram á afsláttarfargjöld í strætis- vögnum fyrir stúdenta. Diaz er einn þriggja sem vitað er að lifðu af aðgerð öryggis- sveitanna, en hún hlaut nafn sitt af því að henni var beint gegn námsmönnum í La Plata um 60 km fyrir sunnan Buenos Aires. Hann sagði að hettuklæddu mennirnir sem rændu honum frá heimili sínu árið 1977 hafi sagst vera yfirmenn í hernum. Hann eyddi yfir þremur árum í haldi í fimm mismunandi fanga- búðum og var hvað eftir annað pyntaður. Diaz, sem var 18 ára þegar honum var rænt, var pyntaður með rafmagni, leiddur fyrir af- tökusveit, nögl var plokkuð af tá hans og hann skilinn eftir nakinn í böndum með bundið fyrir augun. Hinir niu fyrrverandi leiðtog- ar, þ.á.m. þrír fyrrverandi for- setar, eru nú sóttir til saka fyrir rán, pyntingar og morð á þús- undum Argentínumanna á meðan herinn var við völd frá 1976 til 1983. Réttarhöldin, sem hafa nú staðið á þriðju viku, voru hafin að skipun Raul Alfonsins for- seta þremur dögum eftir að hann tók við embætti í desem- ber 1983. Olga Koifman de Acha, móð- ir eins námsmannanna sem enn er saknað, sagði að hópur hettu- klæddra manna hafi brotist inn á heimili hennar nótt eina í september 1977 og haft á brott með sér 16 ára gamlan son hennar. Unglingurinn, Claudio, var numinn á brott eftir að faðir hans sagði mönnunum að hann væri nemandi í menntaskólan- um í La Plata. „Nú já, þá verðum við að taka hann af öryggis ástæðum hersins,“ sögðu mannræningj- arnir þá, að sögn de Acha. Konan, sem býr nú í Svíþjóð, sagðist aldrei hafa komist að raun um hvers vegna syni henn- ar var rænt og heldur ekki hvert ■ Menn hurfu unnvörpum og sporlaust í tíð einræðisstjórnar hersins í Argentínu og voru pyntaðir og myrtir, þ.á.m. börn og unglingar. Myndin hér að ofan er frá mótmælaaðgerðum sem argentínskar ömmur stóðu fyrir. Þær kröfðust upplýsinga um afdrif barnabarna sinna. farið var með hann. Acha í fleiri en einum fangabúð- ársins 1977 og síðan er ekkert Diaz segist hafa séð Claudio um. Þeir voru skildir að i lok vitað um afdrif Claudios Acha. Svíþjóð: Verkbann sett til að tæma verkfallssjóðina Frá Guðrúnu Garðarsdóllur, fréttarilara NT komulagSÚtt í VÍnnudeÍlu Opin- ' SviÞjúð berra starfsmanna og ríkisins í ■ Ekkert hefur þokast í sam- Svíþjóð þótt vika sé nú liðin frá Kjarnorkutilraunir Frakka: Frakkarógnaöryggi Kyrrahafsþjóðanna Wellington-Reuter. ■ Frakkar sprengdu nýlega risavaxna kjarnorkusprengju á tilraunasvæði sínu á Suður- Kyrrahafi, að sögn jarðskjálfta- fræðinga ný-sjálensku ríkis- stjórnarinnar. Sprengingin, sem talin er hafa numið 150 kílótonnum, var að öllum líkindum sú mesta síðan Frakkar hófu neðanjarðar- sprengingar sínar í frönsku Pól- ynesíu fyrir 10 árum. Sprengingin var svo öflug að hún kom fram á jarðskjálfta- mælum á Nýja-Sjálandi, í um 7.000 kílómetra fjarlægð. Stærsta kjarnorkusprenging Frakka fram að þessu nam 140 kt og var sprengd í júlí 1979. Samkvæmt alþjóðlegu sam- komulagi mega kjarnorku- sprengingar ekki nema yfir 150 kt sem mun - vera jafngildi 150.000 tonna af TNT. Þessi ógnvænlega kjarnorku- sprengjutilraun Frakka fylgdi í kjölfar 10 kt sprengingar þeirra 1. maí síðastliðinn og var sú 69. frá því þeir hófu neðanjarðartil- raunir sínar á Mururoa, í júní 1975. David Lange, forsætisráð- herra Nýja-Sjálands, fordæmdi þessa síðustu sprengingu Frakka og sagði hana jafnframt hörmulega. „ Allar þjóðir sem byggja Suð- ■ David Lange, forsætisráð- herra Nýja-Sjálands, hefur fordæmt ógnvænlegar kjarn- orkutilraunir Frakka á Kyrra- hafi og jafnframt lýst þær hörmulegar. ur-Kyrrahafið eru eindregið andvígar tilraunum með kjarn- orku á þessu svæði og hafa lýst því yfir við ýmis tækifæri,“ sagði Lange í yfirlýsingu sem hann gaf vegna Sprengingarinnar. Lange sagði ennfremur að því yrði ekki unað að Frakkar skuli í gáleysi sínu neita því að taka tillit til mótmæla þessara þjóða. Hann sagði einnig um- fang þessarar síðustu tilraunar mikið áhyggjuefni. Fundust á lífi eftir sex- tán daga hrakninga Tokyo-Reuter ■ Þrír japanskirsjómenn,sem höfðu verið taldir af, fundust á lífi við strendur Sovétríkjanna, 16 dögum eftir að 124 tonna skipi þeirra hvolfdi þann 23. apríl síðastliðinn. Mennirnir voru í gúmmíbát og hafði þá hrakið um 100 kílómetra leið frá staðnum þar sem skip þeirra sökk. Lík tveggja annarra sjómanna voru með þeim í bátnum en alls voru 16 manns með skipinu þegar það sökk. Engir aðrir björguðust úr sjóslysinu og höfðu allir skip- verjar verið taldir af eftir að lík fjögurra manna fundust ásamt braki úr skipinu. því að 20.000 opinberir starfs- menn lögðu niður vinnu. Seint í gærkvöldi benti flest til þess að verkbann myndi skella á um miðnætti þar sem allar sáttatil- raunir sáttasemjara höfðu farið út um þúfur. Olov Palme forsætisráðherra hefur samt sjálfur gagnrýnt notkun verkbanns þar sem hann segir það aðeins auka vald þess valdameiri í vinnudeilum, þ.e. atvinnurekenda sem hafa að- gang að fjölda baráttuaðferða. Verkbannið kemur fyrst og fremst til með að bitna á 55.000 kennurum. En að auki mun það ná til fjölda annarra ríkis- starfsmanna þar sem samtals verða 80.000 starfsmenn settir í verkbann auk þeirra 20.000 sem eru í verkfalli. Verkbannið mun ekki koma niður á atvinnurekstri nema í litlum mæli þar sem því er fyrst og fremst ætlað að tæma verk- fallssjóðina og þvinga forystu- menn verkfallsmanna til að slá af kröfum sínum. Samninga- menn ríkisins virðast telja það litlu máli skipta þótt verkbann á 55.000 kennara muni leiða til tímabundins skólaleysis fyrir 300.000 skólabörn. Ekki er vitað með vissu hversu lengi félag ríkisstarfs- manna, sem eru í verkfalli, getur fjármagnað vinnudeiluna. Með því að tæma verkfallssjóð- ina og taka lán þar að auki ættu verkfallsmenn að geta staðið kostnað af a.m.k. nokkurra vikna verkfalli og verkbanni. En ólíklegt er talið að þeir vilji tæma sjóðina alveg. Verkfallsmenn hafa verið ásakaðir af mörgum um að skemma fyrir baráttu stjórn- valda gegn verðbólgunni með aðgerðum sínum. Ríkið neitar með öllu að fallast á kröfu þeirra um 3,1% launahækkun sem myndi þýða að heildar- launahækkanir þeirra yrðu samanlagt meiri en þau fimm prósent sem stjórnin setti sem hámark á seinasta ári. Verkfallið er gífurlegt áfall fyrir stjórn sósíalista og raskar öllum þeirra efnahagsáætlun- um. Margir telja að með því að hindra ríkisstjórnina í að ná efnahagsmarkmiðum sínum stuðli verkfallsmenn að ósigri sósíaldemokrata í komandi kosningum sem verða eftir að- eins fjóra mánuði. ■ Vestur-þýskir lögreglu- þjónar munu standa vörð við fund fjögur hundruð gamalla nasista sem ætla að hittast og rifja upp gamlar minningar nú um helgina. Nasistarnir voru félagar í SS-sveitum nasista. Þeir hafa verið ásakaðir um stríðsglæpi og ofbeldi gagnvart þýskum almenningi á stríðsárunum. Að minnsta kosti einn þeirra sem mætir á þennan endur- fund var upphaflega dæmdur til dauða fyrir stríðsglæpi. Honum var gefið að sök ásamt 73 öðrum stormsveit- armönnum að hafa myrt 71 bandarískan stríðsfanga í árslok 1944. Dauðadómnum var síðar breytt í fangelsis- dóm og að lokum var honum sleppt úr haldi ásamt fleiri nasistum. Nasistarnir munu hittast í Krone-hóteli í þýska smá- bænum Nesselwang bæjarbú- um til mikillar skapraunar. Verkalýðsfélög í bænum hafa boðað til mótmælaað- gerða þar í dag að höfðu samráði við bæjarstjórnina. Nasistarnir gömlu segjast mjög ánægðir yfir því að Reagan Bandaríkjaforseti skyldi nú fyrir nokkrum dög- um heimsækja kirkjugarð þar sem 49 SS-hermenn lágu grafnir auk annarra her- manna. Þeir segja að með þessu hafi Reagan sýnt að SS-hermenn nasista hafi ekki verið frábrugðnir öðrum hermönnum. Gamlir nasistar fá lögregluvernd Nesselwang-Reuler Þrengsli hrjá fanga sem og fangaverðina París-Reuter. ■ Uppþot brutust út í frönsk- um fangelsum í gær, sjötta dag- inn í röð og stóð óeirðalögregl- an vörð um þau fangelsi þar sem þrír fangar hafa látið lífið síðan mótmælin gegn þrengslunum hófust. Fangarnir klifruðu upp á þök, brenndu tuskum og höfðu há- reysti í frammi í Douai og Rouen í norðri og í Nice í Suður- Frakklandi, að sögn fangelsis- yfirvalda. Óeirðalögreglan braust inn í fangelsið í Rouen til þess að berja niður óeirðirnar og sér- stakar sveitir lögreglunnar stóðu vörð fyrir utan sex önnur fangelsi. í fyrradag lést einn af 70 föngum sem mótmæltu aðstæð- um er hann féll ofan af þaki Fresnes fangelsins fyrir sunnan París og braut á sér höfuðkúp- una. Annar fangi hengdi sig í klefa sínum í Le Havre á norður- ströndinni. Dauðsföllin eru þá orðin þrjú síðan óeirðirnar blossuðu upp fyrir sex dögum er fangar í Fleury-Merogis fangelsinu í París náðu einni álmunni á sitt vald og létu greipar sópa um lyfjaskápinn. Tuttugu og tveir fangar voru þá lagðir inn á spítala vegna of stórra lyfjaskammta og annarra meiðsla. Degi síðar lést fangi í Bois D'Arcy fangelsinu fyrir utan París er hann skar sig á púls. Frönsk fangelsi, sem flest eru frá 19. öldinni, eru þau þéttsetn- ustu í Evrópu og búa yfir 45.000 fangar í byggingum sem ætlaðar eru 32.500. Reiði fanganna yfir aðstæð- um sínum hefur aukist af völd- um þeirrar staðreyndar að nær helmingur allra fanganna bíður réttarhalda. Á síðasta ári voru tveir-þriðju þeirra 58 fanga, sem þá frömdu sjálfsmorð, gæslu- varðhalds fangar , en tala þeirra sem frömdu sjálfsmorð það ár sló öll fyrri met. Dómsmálaráðherra Frakk- lands viðurkennir að aðstæður fanganna séu oft fyrir neðan allar hellur og segir að þetta sé niðurlægjandi ástand fyrir Frakkland. Talskona dómsmálaráðu- neytisins sagði að nú væri verið að vinna að því að finna lausnir á þrengslavandamálinu en fjár- skortur gerði erfitt fyrir um úrbætur. Aðstæðurnar í fangelsunum hafa einnig kallað á harkaleg viðbrögð stéttarfélags fanga- varða því þær hafa jafn slæm áhrif á fangaverði sem verða að vinna við versu aðstæður sem hugsast getur. Sprengjuher- ferðir í Delhi Nýja Delhi-Reuter ■ Að minnsta kosti 26 manns létu lífið og sjötíu særðust í sprengjuherferð ungra öfga- sinnaðra sikha í Nýju-Delhi í gær. Sprengjurnar sprungu í strætisvögnum og ein sprakk í hraðlest. Stjórnvöld segjast telja að markmið öfgasinnanna sé að reyna að koma í veg fyrir tilraunir stjórnvalda til að koma á friði í Punjab þar sem meiri- hluti 12 milljóna þeirra sikha, sem búa á Indlandi, á heima. Forsætisráðhérra Indverja, Rajiv Gandhi og forsetinn Zail Singh hafa frestað öllum ferða- lögum sínum innanlands sem utan vegna þessa sprengjufar- aldurs. Harriman fær sovéska orðu Moskva-Reuter ■ Fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu, Averell Harriman, hefur verið sæmdur virðulegri sovéskri stríðsorðu fyrir að hafa stuðlað að samstarfi þjóðanna tveggja á árum seinni heimsstyrjaldarinn- ar. Harriman, sem nú er 93 ára gamall, var sæmdur „Orðu Föðurlandsstríðsins“ í tilefni þess að 40 ár eru nú liðin frá stríðslokum í Evrópu, að sögn Tass fréttastofunnar. Harriman var sendiherra í Moskvu frá október 1943 til febrúar 1946 og heimsótti Moskvu reglulega eftir það. Hann var fulltrúi margra Bandaríkjaforseta í samskipt- um við Sovétmenn og þótti lunkinn samningamaður. Talsmaður bandaríska sendi- ráðsins sagði að orðuveitingin væri viðurkenning á hlutverki Harrimans sem fulltrúa Frank- lin D. Roosevelts fyrrum forseta í umfangsmiklum einkaviðræð- um við sovéska leiðtoga undir forystu Stalíns. I síðustu viku var Sandro Pertini, forseta Italíu, veitt sama orðan fyrir framlag hans til „baráttunnar gegn fasisman- um.“

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.