NT - 11.05.1985, Side 24
Nýja Shellstöðin við Vesturlandsveg er engin venjuleg bensínstöð.
Nýja Shellstöðin er þjónustumiðstöð sem á engan sinn líka.
Allar eldsneytisdælur eru undir þaki. Pað er
jafnt til þæginda fyrir viðskiptavini og starfsfólk
og opnar möguleika til þess að veita bensín- og
olíukaupendum ýmsa þjónustu, sem hvergi fæst
annars staðar.
2
í veitingasölunni eru fullkomnustu grilleldunar-
tæki á Islandi. Þannig er tafarlaust hægt að
afgreiða nýsteiktar kræsingar, svo sem
hamborgara og kjúklinga, í gegnum lúgu beint
í bflinn. Alvöru akið - takið.
Fullkomin þvotta- og þurrkaðstaða, með
háþrýstidælu, ryksugu og fleiru, er fyrir fjölda
bifreiða í senn. Auk þess eru fjölmörg bflastæði
þar sem hægt er að taka lífinu með ró, njóta
veitinga, gera ferðaáætlun, líta í blað eða bara
leggja sig.
Sjoppan er tvímælalaust ein sú besta í bænum.
Starfsfólk Bæjarnestanna er nefnilega búið að
læra fyrir löngu, að til þess að standa sig í
samkeppninni þarf bæði gott vöruúrval og lipra
þjónustu.
Smávöruverslunin er með ótrúlegt vöruúrval -
þar sem jafnter hugsaðum þarfirbíls, bílstjóra
og farþega. Öryggisbúnaður, grill- og
ferðavörur, verkfæri, varahlutir, hreinlætisvörur
og ýmislegt sem kemur þér á óvart.
Það má reikna með ýmsu óvenjulegu við
Vesturlandsveginn um helgina. Þeir sem eru í
strangri megrun, þola ekki blóm eða vilja alls
ekki láta krakkana taka við gjöfum frá
ókunnugum ættu endilega að hugsa sig um
tvisvar áður en þeir koma við!
Skeljungur h.f. Einkaumboð fyrir Shell-vörur á íslandi. Ekki eru allar bensínstöðvar eins - sjáðu bara.