NT - 31.05.1985, Blaðsíða 12
Föstudagur 31. maí 1985 12
Rás2
Sumarbúningur Rásar 2
■ „Maðurinnbakviðmynda-
vélina“ nefnist bresk heimild-
armynd um kvikmyndatöku-
manninn Dieter Þlage og'
Mary, konu hans, sem ferðast
heimshorna á rnilli til að taka
dýralífsmyndir, oft við erfið og
jafnvel háskaleg skilyrði.
Hvað veldur því að kvik-
myndatökumenn taka þá
áhættu að láta fíla traðka á sér
eða láta illvíga þjóðflokka
varpa sér í heitar uppsprettur?
Svar Plage hjónanna er á þá
lund að þetta séu aðeins þær
hættur sem fylgja heimsins
skemmtilegasta starfi. Við
erum leidd í sannleikann um
hættur og erfiðleika sem fylgja
þessu starfi og ævintýrin sem
kvikmyndatökumenn lenda í.
Við sjáum tilraun til að
fljúga yfir Everest í eins hreyf-
ils flugvél og lendingu á háska-
legri flugbraut í Himalaya-
fjöllunum. Við sjáum Dieter
synda undir gervifugli til að ná
myndum af pelikönum í Af-
ríku. Mannapar, fílar, ernir -
öll þessi dýr þurfa mismunandi
aðferðir til kvikmyndunar.
■ Dieter Plage býr sig undir að ná myndum af pelikönum.
Sjónvarp
östudag
kl. 21.35
Svona gera menn
dýralífsmyndir
Sjónvarp, föstudag kl. 22.30:
Vogun vinnur vogun tapar
■ Föstudagsmyndin nefnist
„Vogun vinnur, vogun tapar“
(A Song for Europe). Myndin
er bresk-þýsk og byggð á sann-
sögulegum atburðum. Hún
fjallar um háttsettan starfs-
mann lyfsölufyrirtækis í Sviss
sem kærir húsbændur sína fyrir
brot á viðskiptareglum Efna-
hagsbandalagsins. Hann verð-
ur að gjalda þessa uppljóstrun
dýru verði þegar fyrirtækið
hefur gagnsókn.
Með aðalhlutverk fara Da-
vid Suchet og Maria Scneider
en leikstjóri er John
Goldschmidt.
Þýðandi er Kristmann Eiðs-
son.
■ Dagskrá Rásar 2 tekur
nokkrum stakkaskiptum nú
með hækkandi sól. Á laugar-
dag kl. 14.00-16.00 verður nýr
þáttur á dagskrá scm nefnist
Músík og sport. Umsjónarmenn
þessa þáttar eru Jón Ólafsson
sem sér um þáttinn Létta
spretti, Ingólfur Hannesson og
Samúel Örn Erlingsson,
íþróttafréttamenn. Eins og
nafn þáttarins gefur til kynna
verður fjallað um íþróttir, auk
þess sem Iéttri tónlist verður
brugðið undir nálina.
Gunnar Salvarsson færir
Sjónvarp, laugardag kl. 19.25:
Kalli og sælgætisgerðin
■ „Kalli og sælgætisgerðin“
nefnist sænsk teiknimynda
saga í tíu þáttum sem sýnd
verður á laugardaginn kl.
19.25. Þessi teiknimyndasaga
er gerð eftir samnefndri barna-
bók eftir Roald Dahl. Þýðandi
er Jóhanna Jóhannsdóttir en
sögumaður er Karl Ágúst
Úlfsson.
Á myndinni má sjá
eiganda sælgætisgerðarinnar.
Listapopp sitt yfir á Rás 2 og
verður það á dagskrá kl. 16.00-
17.00. Gunnar mun áfram
stjórna þættingum Nú er lag á
miðvikudögum kl. 15.00-
16.00, af sinni alkunnu snilld.
Inger Anna Aikman sér um
stakan dagskrárlið sem nefnist 1
tilefni dagsins. Sá þáttur verð-
ur á laugardaginn kl. 17.00-
18.00. Inger sér aukin-
heldur um þátt sinn Út um
hvippinn og hvappinn á mánu-
dögum kl. 14.00-15.00.
Krydd í tilveruna verður á
sínum stað í dagskránni á
sunnudögum, en nú tekur
Helgi Már Barðason við
þættinum úr hendi Ástu Ragn-
heiðar Jóhannesdóttur. Helgi
mun auk þess sjá um þátt á
miðvikudögum sem hann
nefnir Sumarflugur.
Þriðji maðurinn hefur runn-
ið sitt skeið á enda á fimmtu-
dagskvöldum, að minnsta kosti
að sinni. Gunnlaugur Helga-
son tekur við af Ásgeiri Tómas-
syni með vinsældaíista Rásar
2, bæði á fimmtudögum og
sunnudögum.
Orðaleikur nefnist nýr þátt-
ur í umsjá Andreu Jónsdóttur,
en Andrea hefur séð um þátt-
inn Úr kvennabúrinu í rúmlega
eitt ár.
Já, það er ýmislegt um að
vera á Rás 2.
■ Ingólfur Hannesson og Samúel Örn Erlingsson sjá um þáttinn Músík og
sprettharða Jóni Olafssyni.
Föstudagur
31. maí
07.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á
virkum degi. 7.20 Leikfimi. Til-
kynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur
Sigurðar G. Tómassonar frá kvöld-
inu áður
8.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
8.15 Veðurfregnir Morgunorð
Sigrún Schneider talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
„Börn eru besta fólk“ eftir Stef-
án Jónsson Þórunn Hjartardóttir
les (8)
9.20 Lelkflml. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.)
10.45 „Mér eru fornu minni kær“
Einar Kristjánsson frá Hermundar-
felli sér um þáttinn. (RÚVAK)
11.15 Morguntónleikar
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 „Sælir eru syndugir" eftir
W.D. Valgardson Guðrún Jöru-
ndsdóttir endar lestur þýðingar
sinnar (19).
14.30 Á léttu nótunum Tónlist úr
ýmsum áttum.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir
16.20 Síðdegistónleikar a. Róm-
ansa í f-moll op. 11 eftir Antonín
Dvorák. Salvatore Accardo leikur
á fiðlu með Concertgebouw-hljóm-
sveitinni i Amsterdam; Colin Davis
stjórnar. b. Konsertrapsódía fyrir
selló og hljómsveit rússneska út-
varpsins; höfundurinn stjórnar.
17.00 Fréttir á ensku
17.10 Síðdegisútvarp. Tilkynning-
ar
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins
19.00 Kvöldfréttir. 19.40 Tilkynning-
ar
19.55 Daglegt mál. Valdimar Gunn-
arsson flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins. Þorsteinn
J. Vilhjálmsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Af tröllum og
mönnum Þórey Hannesdóttir
spjaliar um eiginleika trölla og ástir
þeirra og manna. b. Kórsöngur
Liljukórinn syngur undir stjórn Jóns
Ásgeirssonar c. Litið tii liðinnar
tíðar Þorsteinn Matthíasson flytur
frásögn skráða eftir Valgerði
Skarphéðinsdóttur í Grundarfirði
Umsjón Helga Ágústsdóttir.
21.30 Frá tónskáldum Atli Heimir
Sveinsson kynnir „Mors et vita“,
strengjakvartett eftir Jón Leifs.
22.00 Tónlist
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Úr blöndukútnum - Sverrir
Páll Erlendsson. (RÚVAK).
23.15 Á sveitalínunni: Umsjón:
Hilda Torfadóttir. (RÚVAK).
24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Næturút-
varp frá Rás 2 til kl. 03.00.
Laugardagur
1. júní
07.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.20 Leikfimi. Tónleikar Þulur
velur og kynnir 7.20 Leikfimi
Tónleikar
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð -
8.15 Veðurfregnir.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar. 8.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Valdimars Gunnarssonar frá
kvöldinu áður.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir.
10.10 Veöurfregnir.) Óskalög
sjúklinga, frh.
11.20 Umferðarkeppni skólabarna
Umsjón Ragnheiður Davíðsdóttir
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 Hér og nú Fréttaþáttur i viku-
lokin.
15.20 „Fagurt galaði fuglinn sá“
Umsjón Sigurður Einarsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Svanurinn í sögnum og Ijóð-
um Lesari Herdis Björnsdóttir.
Umsjón Sigurlaug Björnsdóttir
17.00 Fréttir á ensku
17.05 Síðdegistónleikar a. Tríó nr.
4 i B-dúr op. 70 nr. 1. eftir Ludwig
van Beethoven. Wilhelm Kempff,
Henryk Szeryng og Pierre Fournier
leika á píanó, fiðlu og selló. b.
Strengjakvartett í B-dúr op. 67 eftir
Johannes Brahms. Meloskvartett-
inn í Stuttgart leikur.
Tónleikar. Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynning-
ar.
19.35 Þetta er þátturinn Umsjón:
Örn Árnason og Sigurður Sigur-
jónsson.
20.00 Harmonikuþáttur Umsjón Sig-
urður Alfonsson.
20.35 Sjálfstætt fólk f Jökuldals-
heiði og grennd 3. þáttur. Gunn-
ar Valdimarsson tók saman. Les-
arar Guðrún Birna Hannesdóttir,
Hjörtur Pálsson og Klemenz Jóns-
son (Áður útvarpað i júlí 1977).
21.45 Kvöldtónlelkar Þaettir úr sí-
gildum tónverkum.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Uglan hennar Mínervu Sam-
ræða Lúkíans frá Samósata um
einfaldleikann. Umsjón Arthúr
Björgin Bollason. Lesari ásamt
honum Ólafur Sveinn Gíslason.
23.15 Gömlu dansarnir
24.00 Miðnæturtónleikar Umsjón:
Jón Örn Marinósson.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturút-
varp frá Rás 2 til Id. 03.00.
Sunnudagur
2. júní
Sjómannadagurinn
8.00 Morgunandakt Séra Ólafur
Skúlason dómprófastur flytur ritn-
ingarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. forustugr. dagbl.
(útdr.).
8.35 Létt morgunlög Hljómsveit
Alfreds Hause leikur.
9.00 Fréttir
9.05 Morguntónleikar a. „Lofaður
sérstu Drottinn, Guð rninn", kant-
ata nr. 129 á Þrenningarhátíð eftir
Johann Sebastian Bach. Sebasti-
an Henning, René Jacobs og Max
van Egmond syngja með Drengja-
kórnum í Hannover og Kammer-
sveit Gustavs Leonhardts; Gustav
Leonhardt stjórnar. b. Píanókons-
ert nr. 25 i C-dúr K. 503 eftir
Wolfgang Amadeus Mozart.
Daniel Barenboim og Nýja Fíl-
harmóníusveitin í Lundúnum leika;
Otto Klemperer stjórnar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Út og suður Þáttur Friðriks
Páls Jónssonar.
11.00 Messa t Dómklrkjunnl Pétur
Sigurgeirsson biskup prédikar.
Organleikari: Marteinn H. Friöriks-
son.
Hádegistónleikar.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Sjómannalög
14.00 Frá útisamkomu sjómanna-
dagsins við Reykjavíkurhöfn
Fulltrúar frá ríkisstjórninni, útgerð-
armönnum og sjómönnum flytja
ávörp. Aldraðir sjómenn heiðraðir.
15.10 Milli fjalls og fjöru með Finn-
boga Hermannssyni.
16.20 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöur-
fregnir.
16.20 Leikrit „Raddir sem drepa“
eftir Paul Henrik Trampe. Fyrsti
þáttur. Þýðandi Heimir Pálsson.
Leikstjóri Haukur J. Gunnarsson.
Hljóðlist Lárus H. Grimsson.
Leikendur Jóhann Sigurðarson,
Þóra Friðriksdóttir, Anna Kristín
Arngrimsdóttir, Kjartan Bjarg-
mundsson, Gísli Rúnar Jónsson,
Kristin Ólafsdóttir, Jóhannes Ara-
son, Guðbjörg Þorbjarnardóttir,
Andrés Sigurvinsson, Anna
Guðmundsdóttir, Ellert Ingimund-
arson, Erlingur Gíslason, Andri
Örn Clausen, Arnór Benónýsson
og Þórunn Magnea Magnúsdóttir.
17.00 Fréttir á ensku