NT - 31.05.1985, Blaðsíða 22
Verða enskir
bannaðir í þrjú ár?
■ Formaður belgíska
knattspyrnusambands-
ins, Louis Wouters, sagði
í gær að hann byggist við
að UEFA (Knattspyrnu-
samband Evrópu) myndi
setja allt að þriggja ára
bann á ensk félög í Evr-
ópukeppnum. Hann tók
einnig fram að hann teldi
líklegt að Liverpool fengi
fímm ára bann frá
Evrópukeppnum. Bönn
þessi koma til vegna sí-
endurtekinna óláta
breskra fótbolta „aðdá-
enda“ sem fylltu mælinn
í Brussel í fyrradag í leik
Liverpool og Juventus.
Talið er að UEFA
muni setja á stofn sér-
staka nefnd til að rann-
saka málið frá öllum
hliðum.
Leikir í kvöld
■ Tveir leikir verða í 1.
deild íslandsmótsins í
knattspyrnu í kvöld. ÍA
og Þróttur eigast við á
Akranesi og Valur og FH
spila að Hlíðarenda. Báð-
ir ieikirnir hefjast kl.
20.00.
Þá léika Selfyssingar
við Grindvíkinga í
Grindavík í 3. deild.
■ Stefán Konráðsson, langefstur í meistarafíokki karla á punktamóti Borðtennissambandsins,
Punktamót Borðtennissambandsins:
Föstudagur 31. maí 1985 22
Klaus Fichtel:
Fertugum er
jú allt fært
■ KlausFichteljátaraðhann,
fertugur maðurinn, hafi ekki
lengur þrek í 90 mínútna langan
knattspyrnuleik í hinni hörðu
keppni 1. deildarinnar í Vestur-
Þýskalandi. En félagið hans er
ekki á sama máli. Fyrir nokkru
lék hann sem „sweeper" með
Schalke gegn Mannheim og var
það 521. leikur hans í deildinni,
nýtt met. Schalke vann leikinn
4-0.
Það er að sönnu að mark-
menn leika stundum fram að
fertugu eða jafnvel lengur, en
slíkt er afar sjaldgæft með úti-
spilara.
Fichtel kom til Schalke frá
Bremen sem aðstoðarþjálfari en
áður en varði var hann kominn
í byrjunarliðið 'vegna meiðsla í
liðinu. Hann lék 23 landsleiki
fyrir þjóð sína á velmektarárum
sínum í kringum 1970 og á þeim
árum lék hann einmitt með
Schalke. Fichtel væri örugglega
kominn vel yfir 600 deildarleiki
ef hann hefði ekki þurft að leika
í 2. deild vegna mútuhneykslis
fyrir 15 árum.
Fichtel leikur í liði með Olaf
Thon, 19 ára gömlum landsliðs-
manni svo það er 21 ár á milli
þeirra. Slíkt er örugglega
sjaldgæft. Reyndar var Thon
ekki fæddur þegar Fichtel lék
sinn fyrsta 1. deildarleik. „Ég
vil helst koma inná sem vara-
rnaður," sagði Fichtel. „Ég hef
ekki lengur púst í heilan leik.
En ég er ánægður með metið,
sértaklega vegna þess að ég hef
sannað að ég get enn staðið í
eldlínunni." •
Heimsmetið í maraþonhlaupi:
Er fullgilt
Stefán langefstur
- í meistaraflokki karla - Ragnhildur missti alla punkta sína í kvennaflokki - mótin ólögleg
■ Punktakeppni Borðtcnnis-
sambandsins fyrir keppnis-
tímabilið 1984-85 er lokið.
Fyrirkomulag punktamóta er
þannig að haldin eru nokkur
mót yfir tímabilið og fær sigur-
vegarinn flesta punkta, sá er
lendir í öðru sæti næstflesta
o.s.frv.
Sigurvegari í meistaraflokki
karla varö Stefán Snær Kon-
ráðsson úr Stjörnunni. Hann
lék mjög vel í allan vetur og
sigraði í flestum mótum vetrar-
ins og sýndi rnikið öryggi. Haf-
dís Asgeirsdóttir úr K.R. varð
sigurvegari í meistaraflokki
kvenna en þar voru haldin færri
mót cn hjá körlunum. Ragn-
hildur Sigurðardóttir UMSB
sigraði þó í flestum punktamót-
um kvenna en tvö punktamót í
kvennaflokki voru dæmd ólög-
leg og missti hún því punkta
í meistitrafíokki
Lokastaöan
karla.
1. Stefán Snær Konráöss. Stjörnunni 78
2. Tómas Sölvason KR 45
3. Tómas Guðjónsson KR 36
4. Davíð Pálsson Erninum 19
5. Kristinn Már Emilsson KR 15
Gunnar Finnbjörnsson Ö.
Hjálmtýr Hafstcinsson KR og
Jónas Kristjánsson úr Erninum
féllu niður í fyrsta flokk.
Lokastaöan í meistaratlokki
kvenna
1. Hafdís Ásgeirsdóttir KR 9
2. Elísabet Ólafsdóttir KR 4
3. Arna Sif Kærnested Vík 2
Upp úr I. flokki karla koma
þeir Trausti Kristjánsson og
Bjarni Bjarnason frá Víkingi og
Gunnar Birkisson úr Erninum.
Þeir leika því í meistaraflokki
að ári. Upp úr 2. flokki fluttust
Gunnar Valsson Stjörnunni.
Jón Karlsson KR og Hermann
Bárðarson Vík.
■ Hollendingar neita því al-
farið nú að heimsmet Carlos
Lopez í maraþonhlaupi sé ógilt
vegna þess að leiðin sem hlaupin
var hafi verið of stutt.
Lopez hljóp á 2:07,11 klst. í
Rotterdam-maraþonhlaupinu
sem haldið var í síðasta mánuði
og bætti heimsmet Steve Jones
um 54 sekúndur.
Met Lopez var ekki staðfest
vegna þess að grunur lék á að
vegalengdin sem hlaupin var
hafi verið of stutt.
Bart Kappenburg, ritari kon-
unglega hollenska íþróttasam-
bandsins, neitaði því að hann
hafi beðið Alþjóðasamband
Kvennablak:
Heimsmeistararnir
mörðu þær kúbönsku
- á sterku móti í Peking
iþróttakennaraskóli íslands:
Dragbítur á
íþróttalífið
- vegna þröngsýni
skólastjórans
■ Kínverska kvennalandsliðið
í blaki fékk harða mótstöðu á
fjögurra liða móti sem haldið
var í Peking á þriðjudag, mið-
vikudag og í gær. Kínversku
stúlkurnar eru Olympíumeistar-
ar, heimsbikarmeistarar og
heimsmeistarar í íþróttinni svo
þær eru ekki árennilegar.
Úrslitaleikurinn á móti þessu,
sem kallað er „Seagull Cup“
upp á ensku, var milli kínverska
liðsins og þess kúbanska. Kína
vann leikinn 3-2 eftir mikla
orrahríð. Úrslit í hrinunum
voru sem hér segir: 15-3, 14-16,
15-12, 7-15 og 15-7.
Kúba varð í öðru sæti, vann
tvo leiki en tapaði einum,
Sovétríkin lentu í þriðja sæti,
töpuðu tveimur leikjum en
unnu einn og japanska liðið
tapaði öllum Ieikjum sínum.
„Við unnum leikinn vegna
þess að kúbanska liðið gerði
slæm mistök í úrslitahrinunni”
sagði kínverski þjálfarinn Deng
Ruozeng eftir leikinn. Hann
sagði einnig að Kúba og Sovét-
ríkin yrðu erfiðustu andstæðing-
ar Kínverja á heimsbikarmótinu
sem haldið verður í Japan í
desember.
Sovéski þjálfarinn Vladintir
Patkin sagði að sitt lið hefði
ekki sýnt raunverulega getu.
„Ungu stúlkurnar í liðinu voru
of taugaóstyrkar. Þær eiga eftir
að læra margt“ sagði Patkin.
■ Það er árlegur viðburður
að íþróttakennaraskóli íslands
fái umfjöllun á síðum dagblað-
anna.
Yfirleitt er slíkt talinn
kostur. En það er ekki svo
varðandi ÍKÍ. í langflestum
tilvikum eru fréttir um skólann
neikvæðar og honum ekki til
framdráttar, nema síður sé.
Og hvað er það sem veldur?
Jú, viti ntenn. Það er stjórn
skólans, þ.e.a.s. skólastjórinn.,
Fádæma þröngsýni, óliðlegheit
og fornaldarhugsunarháttur
eru einkennin.
Nýjasta dæmið er ekki eldra
en vikugamalt.
Jón Kr. Gíslason, landsliðs-
maður í körfubolta og einn af
burðarásum liðsins fékk ekki
frí í skólanum til að leika með
landsliðinu, sem stendur nú í
ströngum undirbúningi fyrir
Evrópukeppni, sem fram fer
hér á landi næsta vor. Jón
hefur lagt á sig mikið erfiði til
að geta æft með liðinu, ferðast
■ Jón Kr. fékk ekki frí.
frá Laugarvatni dag eftir dag
til Reykjavíkur eöa Njarðvík-
ur og aftur austur að kveldi til
að mæta í skólann daginn eftir.
Svo fær hann og körfuknatt-
leiksíþróttin það framan í sig
að hann fái ekki frí í skólanum.
Hversu langt er hægt að
ganga?
Nemendur Iþróttakennara-
skólans eru í prófum um þessar
■ Kínverska kvcnnalandsliðið í blaki er ekki árennilegt. Þær
stúlkur eru heimsmeistarar, heimsbikarmeistarar og Olympíumeist-
arar í íþróttinni. Þessi mynd sýnir bandaríska liðið í gólfínu eftir
þrumuskell þeirra kínvcrsku á OL í Los Angeles.
áhugaíþróttamanna að mæla
brautina á ný, og bætti því við
að hollenska sambandið myndi
ekki aðstoða neinn sem óskaði
eftir því að vegalengdin yrði
mæld að nýju.
Leiðin sem hlaupin var, var
rnæld þrisvar sinnum áður en
hlaupið hófst og afrit af skýrslu
mælingamanna hefur verið send
alþjóða áhugamannasamband-
inu og alþjóðasambandi rnara-
þonskipuleggjenda.
Það benda því allar líkur til
þess að met Carlos Lopez verði
staðfest.
mundir en það er engin afsök-
un fyrir því að veita Jóni ekki
leyfið. Eðlileg framkoma af
hálfu skólastjórans hefði verið
að koma til Jóns að fyrra
bragði og bjóða honum að
taka prófín á öðrum tíma.
Það er leiðinlegt að þessi
skóli, sem ætti að öllu réttu að
vera íþróttalífinu í landinu til
framdráttar og styðja við bakið
á íþróttamönnum, skuli í stað-
inn vera dragbítur.
Við höfum dærni úr Há-
skólanum, landsliðsmenn okk-
ar í handknattleik fresta próf-
um vegna keppnisferða, enda
ekkert nema sjálfsagt, ef þeir
vilja leggja það á sig að taka
prófin seinna.
Það er ekki eina skylda
íþróttakennaraskólans að út-
skrifa kennara og skólinn á
ekki að slíta sig úr tengslum
við íþróttalífið í landinu. Það
er og sorgleg staðreynd að
góðir og vel menntaðir kennar-
ar tolla ekki við skólann nema
í hæsta lagi eitt til tvö ár og því
eru sífelldar breytingar á kenn-
araliðinu. Allt er þetta vegna
stífni og þröngsýni skólastjór-
ans.
Gylfi Þorkelsson.