NT - 05.07.1985, Side 8
IlI MlMilna
Steinn Jóhann
Randversson
matsveinn, Ólafsvík
Fæddur 8. ágúst 1936
Dáinn 26. mars 1985
Það hefur ríkt djúp sorg yfir
íbúum Ólafsvíkur síðan fregnin
kom svo snöggt, svo óvænt,
Bervík SH 43 hvarf skyndilega
á heimsiglingunni úr fiskiróðri
með fimm vöskum sjómönnum
á besta aldri innanborðs.
Byggðarlag eins og Ólafsvík,
þar sem öll afkoma íbúanna
hefur ávallt byggst á sjósókn og
aflabrögðum hefur orðið að sjá
á bak fjölda sjómanna á liðnum
áratugum í hafið. Slík blóðtaka
var oft árlegur viðburður þegar
farkosturinn voru litlir opnir
árabátar, en þegar velbúin
traust skip eru komin til sögunn-
ar, er eins og allir séu óviðbúnir
slíkum atburðum, og áhrifin
verða jafnvel cnn sárari.
Sjómenn í Ólafsvík hafa
ávallt verið í fremstu röð, miklir
aflamenn, sem með starfi sínu
hafa lagt grunninn að uppbygg-
ingu byggðarlagsins öðrum
fremur, sem m.a. hefurorðið til
þess að fátæka sjávarplássið
Ólafsvík er nú orðið að myndar-
legum bæ, þar sem velmegun
ríkir.
Að missa heila skipshöfn,
eins og hér hefur gerst er mikið
áfall fyrir byggðarlagið, sem
aldrei verður bætt. Það ríkir því
djúp sorg í Ólafsvík.
f dag eru jarðsettir í Ólafsvík
tveir af þeim vösku sjómönnum
er fórust með m/s Bervík. -
Lík þriggja félaga þeirra fund-
ust skömmu eftir slysið, en lík
þeirra tveggja sern í dag eru
jarðsettir fundust með stuttu
millibili um síðustu helgi. Var
það mikil guðsblessun að lík
allra skipverjanna er fórust í
þessu hörmulega sjóslysi skyldu
finnast, er það mikil harmabót
fyrir alla ástvini og vini hinna
látnu. Leit hefur staðið óslitið
síðan slysið varð, fyrirbænir og
vonin um árangur hefur ræst
sem gerir sorgina léttbærari.
Steinn Jóhann Randversson
var fæddur í Ólafsvík 8. ágúst
1936. Foreldrar hans voru Gyða
Gunnarsdóttir og Randver
Kristjánsson, sjómaður í Ólafsvík
vík. Randver lést af slysförum
er Steinn Jóhann var aðeins 9
mánaða gamall, stóð Gyða þá
ein uppi með 4 ung börn. - Saga
Gyðu Gunnarsdóttur er hetju-
saga, eins og hægt er að segja
um svo margar, ekki síst sjó-
mannskonur á þessu tímaskeiði
þjóðarinnar, þegar fátækt og
atvinnuleysi var allsráðandi. Þá
voru ekki almannatryggingarn-
ar, en Gyða var ung og hraust,
trúði á lífið og var staðráðin í að
komast áfram með barnahóp-
inn. - Elías Þórarinsson, sjó-
maður í Ólafsvík, varð seinni
eiginmaður Gyðu, gekk hann
börnum hennar í föðurstað og
reyndist þeim góður og um-
hyggjusamur í alla staði - ekki
síst hafði hann miklar mætur á
Steini Jóhanni gegnum árin.
Gyða og Elíaseignuðustóbörn.
Þeim tókst með einstökum
dugnaði og samstilltum vilja að
koma þessum stóra barnahópi
upp, sem öll urðu myndarfólk
og traustir þjóðfélagsborgarar.
Elías og Gyða eru látin fyrir
nokkrum árum. Ávallt hefur
verið hlý vinátta og samband
milli þessa stóra systkinahóps
og afkomenda þeirra þótt þau
búi víðsvegar um landið.
Steinn Jóhann lærði strax sem
drengur að vinnusemi var mikil-
vægust í lífinu, hann kynntist
strax harðri lífsbaráttu og tók
þátt í henni þegar á barnsaldri -
íiann studdi móður sína og syst-
kini af alefli. Hann byrjað að
stunda sjó aðeins 14 ára gamall
síðan nær óslitið til dauðadags.
Hann var með traustustu sjó-
mönnum, jafnvígur á öll störf -
en sérgrein hans var matreiðsla,
var hann oftast matsveinn á
fiskibátum. Þótti hann afbragð
annarra í þessari grein, kunni
að laga sig eftir aðstæðum, vin-
sæll meðal sjómanna, hann var
glaðlyndur og frjálslyndur í
skoðunum, barðist ötullega fyr-
ir réttindamálum verkamanna
og sjómanna, sagði umbúða-
laust skoðun sína á þeim
málum. - Hann var virkur í
verkalýðsfélagi sínu og í Sjó-
mannadagsráði Ólafsvíkur,
sótti fundi, þing og ráðstefnur
um málefni verkalýðs og sjó-
manna og átti traust og vináttu
samferðamanna.
Eiginkona Steins Jóhanns er
Kristjana Kristjónsdóttir frá
Ytri-Bug. Þau stofnuðu heimili
í Ólafsvík í janúar 1956 og giftu
sig 1964. Þau eignuðust 4 börn,
þau eru Guðlaug Jóhanna, gift
Guðmundi Gísla Egilssyni,
Leydi Karen, gift Jóhanni
Magna Sverrissyni, Randver
Ágúst, giftur Kristínu Ingi-
björgu Rögnvaldsdóttur, Ragn-
heiður Guðmunda, sambýiis-
maður Gunnar Björn Gíslason.
Heimili Kristjönu og Steins
Jóhanns hefur ávallt einkennst
af dugnaði þeirra og samstilltum
vilja. Kristjana er hamhleypa til
verka, eiginlega jafnvíg á hvað
sem hún tekur sér fyrir hendur.
Þau hjónin ráku um tímabil
Sjóbúðir h/f í Ólafsvík með
miklum myndarskap.
Steinn Jóhann Randversson
var um margt eftirminnilegur
maður, hann var lífsglaður að
eðlisfari - hann átti til að bera
vináttuþel sem er fágætt, þess-
vegna var svo gott að eiga hann
að vini. Milli okkar var gagn-
kvæmt traust gegnum öll sam-
ferðaárin, ég mætti ávallt glað-
Iegu og hlýju viðmóti sem ég
mat mikils.
Ólafsvík hefur misst mikið
við fráfall Steins Jóhanns og
félaga. Guð blessi minningu
þcirra.
Við hjónin sendum Kristjönu
og börnurn þeirra og öðrum
ástvinum einlægar samúðar-
kveðj ur. Við biðj um góðan Guð
að blessa þeim minninguna um
góðan og traustan vin.
Minningin um Stein Jóhann
mun lifa.
Alexander Stefánsson
Sigurlaug Skaftadóttir
Fædd 17. nóvember 1901
Dáin 30. júní 1985
Okkur er það bæði Ijúft og skylt
að minnast elskulegrar frænku,
Sigurlaugar Skaftadóttur, eða
Sillu frænku, cins og við systkinin
kölluðum hana ætíð.
Silla f.rænka fæddist þann 17.
nóvember árið 1901. Hún var
dóttir hjónanna BcrgljótarSigurð-
ardótlur, Guttormssonar ættaðri
úr Fljótsdal og Skafta Jóhannsson-
ar, Bessasonar frá Skarði í Dals-
mynni, Grýtubakkahreppi.
Silla frænka er sú síðasta af 6
systrum sem kveður þennan heim,
en eini bróðirinn, Jóhann Skafta-
son, fyrrverandi sýslumaður, lifir
systur sínar og býr á Húsavík
ásamt konu sinni Sigríði Jónsdótt-
ur Víðis.
Ung að árum missti hún föður
sinn, og hefur það verið erfitt fyrir
móður hennar að standa ein uppi
með 7 börn. Þar af leiðandi ólst
Silla frænka að mestu upp á Skarði
hjá föðurfólki sínu og átti hún
þaðan kærar minningar.
Milli tvítugs og þrítugs flutti
hún til Reykjavíkur. Þar starfaði
hún lengst af hjá Sambandi ísl.
samvinnufélaga, eða þangað til
hún flutti aftur norður og settist að
á Akureyri fyrir um það bil 40
árum, þar sem hún bjó síðan.
Silla frænka var lengst af ákaf-
lega hraust þangað til fyrir nokkr-
um árum að heilsan brást. Þó vildi
hún aldrei gera neitt úr því og
sagði ætíð að sér liði vel. Það var
svo fyrrihluta s.l. vetrar, að hún
veiktist og varð að leggjast inná
sjúkrahús, sem hafði núskeðáður,
en í þetta sinn átti hún ekki
afturkvæmt og andaðist þar þann
30. júní s.l.
Æskuminninga okkar systkina
verður ekki minnst án þess að Silla
frænka sé í myndinni. Frá því að
við munum eftir okkur, tengjast
minningarnar henni á einn eða
annan hátt. Hún bjóhjáokkurum
tíma og var sá besti heimilisvinur
sem nokkur getur átt, enda voru
þær mamma og hún bestu vinkon-
ur. Það var Silla frænka sem
passaði okkur þegar mamma og
pabbi fóru burt, hvort sem það var
um lengri cða skemmri tíma. Iðu-
lega kom hún beint til okkar úr
vinnunni, var þá kannski með
enskukennslubókina sína með-
ferðis og settist fyrir framan út-
varpið til þess að læra, því að hún
var mjög fróðleiksfús og afburða
vel gefin. Ekki er nú víst að hún
liafi alltaf haft mikinn frið fyrir
sjálfa sig, því að okkur þurfti hún
að svara, öllum mögulegum og
ómögulegum spurningum. Var
hún þá óþreytandi við að leiðbeina
okkur og upplýsa. Þcgar sást til
hcnnar lengst úti á Kaplaskjóls-
vegi, áttum við það til að hrópa:
„Silla frænka er að koma," og
hljóp þá öll hersingin af stað
fagnandi á móti henni.
Engin hátíð var haldin svo, að
Silla frænka yrði ekki að vera með
okkur, og gekk það svo langt að
við vildum eiga einkarétt á henni.
En hún Silla frænka átti fleiri
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær
þurfá að berast a.m.k. tveim dögum fyrir birtingar-
dag. Þær þurfa að vera vélritaðar.
Föstudagur 5. júlí 1985 8
Freyr Hafþór
Guðmundsson
vélstjóri, Ólafsvík
Fæddur 31. julí 1952
Dáinn 26. mars 1985
í dag eru jarðsettir frá Ólafs-
víkurkirkju tveir af þeim sjó-
mönnum sem fórust með m/b
Bervík SH 43 í heimsiglingu úr
fiskiróðri 26. mars s.l. Lík 3ja
félaga þeirra fundust skömmu
eftir slysið, en lík þeirra tveggja
sem í dag eru jarðsett fundust
með stuttu millibili um síðustu
helgi. Var það mikil Guðsbless-
un að lík allra skipverja er
fórust í þessu hörmulega sjóslysi
skyldu finnast, er það mikil
harmabót fyrir alla ástvini og
vini hinna látnu. Leit hefur
staðið óslitið síðan slysið varð.
Fyrirbænir og vonin um árangur
hefur ræst sem léttir sogrina.
Freyr Hafþór Guðmundsson,
vélstjóri, var aðeins 32 ára,
hann fæddist í Ólafsvík 31. júlí
1952. Foreldrar hans voru lijón-
in Magdalena Kristjánsdóttirfrá
Mel í Staðarsveit og Guðmund-
ur Þórarinsson. Freyr Hafþór
ólst upp í foreldrahúsum ásamt
þremur systkinum sínum.
Heimili Magdalenu og Guð-
mundar var með sérstökum
myndarbrag og umhyggja for-
eldra fyrir velferð barnanna í
fyrirrúmi. Voru bræðrabönd
milli Freys Hafþórs og Kristjáns
yngri bróður hans sérstaklega
sterk.
Freyr Hafþór var í sveit hjá
móðurforeldrum sínum á
sumrum. Vandist hann strax í
æsku að meta gildi vinnunnar
jafnt til sjós og lands, var hann
góður verkmaður, laginn og
fylginn sér til flestra starfa. Að
loknu miðskólaprófi í Ólafsvík
1968, stundaði liann ýmiss störf
en fyrst og fremst við fiskverk-
un, þar til hann gerði sjó-
mennsku að sínu lífsstarfi 1973,
hann fékk það orð að vera
afburðagóður sjómaður. Jafn-
vígur á öll störf til sjós. Naut sín
þar vel verklagni hans og lifandi
frændbörn en okkur, og fór svo,
að hún varð að skipta sér á milli
heimilanna. Þannig fengum við
t.d. ekki að hafa hana nema ann-
aðhvort aðfangadagskvöld, en þá
var líka mikið hlakkað til.
Þetta eru allt góðar og dýrmætar
minningar sem við eigum um hana
Sillu frænku, og þær munu geym-
ast í huga okkar með eilífu þakk-
læti.
Eftir að hún fluttist aftur
norður, héldust vináttu- og
tryggðaböndin. Hún kom iðulega
„suður" á meðan heilsa hennar
ieyfði og þegar við áttum leið um
Akureyri, þótti sjálfsagt að gista
hjá henni. Enda var okkur tekið
þar opnum örmum. Nú verða þær
heimsóknir ekki fleiri.
Við minnumst hennar með virð-
ingu og þökk fyrir allt og allt.
Blessuð sé minning hennar.
Systkinin frá Hjallalandi
áhugi fyrir starfinu. Var hann
eftirsóttur til starfa á sjó. Hann
var síðast vélstjóri hjá afla-
manninum Úlfari Kristjónssyni
á Bervík.
Freyr Hafþór bjó yfir fjöl-
breyttum hæfileikum, m.a.
hafði hann mikið yndi af hljóm-
list og lék í hljómsveit í nokkur
ár. Hann hafði lifandi áhuga á
ýmsum félagsmálum og var
traustur félagi sem ávallt var
hægt að leita til, enda vel látinn
í þeim félögum sem hann starf-
aði. Hann var einn af stofnend-
um Kiwanisklúbbsins „Korra“ í
Ólafsvík ogístjórnhanss.l. ár.
Árið 1971 kynntisthanneftir-
lifandi eiginkonu sinni Margréti
Rögnvaldsdóttur frá Víðivöll-
um í Fljótsdal, hófu þau búskap
í Ólafsvík. Hjónaband þeirra
var farsælt og traust. Þau eign-
uðust tvö efnileg börn, Ævar
Rafn f. 30.6.1973 og Hörpu
Dögg f. 19. júní 1976.
Þau byggðu fallegt íbúðarhús
að Hjallabrekku 7 í Ólafsvík.
Voru þau sérstaklega samhent
um að búa sér og börnum sínum
fallegt og hlýlegt heimili. Mar-
grét er af öllum sem henni
kynnast talin vera sérlega vel
gerð og fjölhæf kona. Hefur
hún sýnt aðdáunarverða hæfi-
leika og framkomu þennan
langa sorgartíma, hefur hún
jafnvel getað miðlað öðrum af
styrk sínum og sálarró.
Það orð fór af Frey Hafþóri,
að hugur hans væri ávallt fyrst
og síðast hjá fölskyldunni, enda
leyndi hann því ekki hversu
væntumþykja hans var hlý og
sterk, hann var sérstaklega
barngóður og reyndi ávallt að
haga störfum þannig að hann
gæti samglaðst með börnum sín-
um og systkinabörnum sínum á
hátíðisdögum. Sá tími ársins
sem hann hlakkaði mest til var
júlí-ágúst en þá var reynt að
haga störfum þannig að fjöl-
skyldan öll gæti dvalist fyrir
austan á heimaslóðum Margrét-
ar, hjá afa og ömmu, Rögnvaldi
Erlingssyni og Þórhildi Jónas-
dóttur, Víðivöllum í Fljótsdal.
Þessi þáttur í lífi Freys Hafþórs,
sannar vel manngildi hans, lífs-
mat hans og sterka trú á fjöl-
skyldulíf, sem um aldaraðir hef-
ur dugað best okkar þjóð. Væri
vel ef íslendingar nútímans
kynnu að meta gildi fjölskyld-
unnar eins og Freyr Hafþór.
Við hjónin sendum Margréti
og börnunum, foreldrum og öll-
um ástvinum Freys Hafþórs ein-
lægar samúðarkveðjur og biðj-
um Guð að styrkja þau í sorg
þeirra. Minningin um góðan
dreng, Frey Hafþór, mun lifa.
Guð blessi minningu hans.
Alexander Stefánsson
Dag-
bók
Sumarleyfisferðir
Ferðafélagsins
1. 4.-14. júlí (11 dagar):
Hornvík og nágrenni.
Gönguferðir dagiega frá
tjaldstað m.a. á Hornbjarg,
Hælavíkurbjarg, Látravík og
víðar. Gist í tjöldum. Farar-
stjóri: Vernharður Guðna-
son.
2. 4.-14. júlí (11 dagar):
Hornvík - Reykjafjörður.
Gengið með viðleguútbúnað
frá Hornvík í Reykjafjörð.
Fararstjóri: Jón, Gunnar
Hilmarsson.
3. 5.-14. júlí (10 dagar):
Austurlandshringur. Skipu-
lagðar öku- og gönguferðir
um Hérað og Austfirði. Gist
í svefnpokaplássi. Farar-
stjóri: Sigurður Kristinsson.
4. 5.-10. júlí (6 dagar):
Landmannalaugar
Þórsmörk. Gist í húsum.
Fararstjóri: Vigfús Pálsson.
5. 6.-11. júlí (6 dagar):
Esjufjölt. Gist í húsum.
6. 12.-17. júlí (6 dagar):
Landmannataugar
Þórsmörk. Gist í húsum.
Fararstjóri: Dagbjört Ósk-
arsdóttir.
7. 12.-20. júlí (8 dagar):
Borgarfjörður eystri
Loðmundarfjörður. Gist í
svefnpokaplássi. Fararstjóri:
Tryggvi Halldórsson.
8. 12.-20. júlí (8 dagar):
Borgarfjörður eystri - Seyð-
isfjörður. Gönguferð með
viðleguútbúnað. Fararstjóri:
Hjalti Kristgeirsson.
Pantið tímanlega í sumar-
leyfisferðirnar. Upplýsingar
og farmiðasala á skrifstofu
F.Í., Öldugötu 3.
Ferðafélag íslands
Dagsferðir Ferða-
félagsins, sunnudaginn
7. júlí:
1. kl. 08. Dagsferð í
Þórsmörk. Verð kr. 650.00
2. kl. 09. Þríhyrningur
(Fljótshlíð) Verð kr. 600.00
3. kl. 13. Gengið meðfram
Hengladalaá (Hellisheiði).
Verð kr. 350.
Miðvikudag 10. júlí:
1. kl. 08. Þórsmörk - dags-
ferð og sumarleyfisfarþegar.
2. kl. 20. Bláfjöll
(kvöldferð) farið með stóla-
lyftunni.
Brottför frá Umferðar-
miðstöðinni, austanmegin.
Farmiðar v/bíl. Frítt fyrir
börn í fylgd fullorðinna.
Ferðafélag íslands
Háskólafyrirlestur
■ Sænski rithöfundurinn
og bókmenntafræðingurinn
dr. Olof Lagercrantz, flytur
opinberan fyrirlestur í boði
heimspekideildar Háskóla
íslands mánudaginn 8. júlí
1985 kl. 17.15 í stofu 101 í
Odda, hinu nýja hugvísinda-
húsi Háskólans.
Fyrirlesturinn nefnist „Om
konsten att lasa och skriva“,
og verður fluttur á sænsku.
Dr. Lagercrantz er þekkt-
ur fyrir bókmenntarann-
sóknir sínar og ritstörf og þá
ekki síst fyrir skrif sín um
August Strindberg. Hann er
staddur hér á landi í boði
Norræna hússins og í tilefni
af uppfærslu Stúdentaleik-
hússins á Draumleik
Strindbergs.
Fyrirlesturinn er öllum
opinn.