NT

Ulloq

NT - 25.07.1985, Qupperneq 4

NT - 25.07.1985, Qupperneq 4
Hótelrallið á Húsavík Þorsteinn sigrar stórt á heimaslóðum ■ 14 áhafnir luku Hótelrallinu á Húsavík á laugardag af 22 sem hófu keppni á föstudag og var röðin þá gerólík þeirri sem vænta mátti fyrir- fram. Sumir fundu sig ekki við akstur- inn, aðrir töfðust vegna dekkja- sprenginga í kippum eða annarra óhappa á illa förnum leíðunum. Ásgeir Sigurðsson tók strax foryst- una og náði öruggu og góðu tveggja mínútna forskoti á næsta bíl strax eftir 4 leiðir föstudagsins. Annan daginn gátu þeir Bragi því slakað á og gættu þess eins að ekki saxaðist á. Þótt margir reyndu virtist enginn geta náð þeim nema eitthvað kæmi upp á. Það gerðist sannarlega, á 5. leið af 9 seinni daginn endaði rallið hjá þeim félögum í ónýtum bíl. Bíll ók inn á leiðina í veg fyrir þá og til þess að komast fram úr þurftu þeir að fara út í kantinn. Þar leyndist stór steinn í grasinu sem kastaði bílnum á annan stærri og þann þriðja sem henti bíln- um upp í loftið. Hann kom niður á framhornið, endastakkst.lenti á hinu framhorninu, og hafnaði loks á hlið- inni eftir tvær veltur til viðbótar. Svona óhapp á á annað hundrað kílómetra hraða hefði sennilega orðið að slæmu slysi ef ekki væri traust stálbúr, fjögurra punkta beltin sem reyra mennina niður í þrönga stólana og hjáimar, enda meiddist enginn. Við þetta færðist Þorsteinn Ingason upp í fyrsta sætið en hann botnók Toyotunni sinni alla leið eins og vegirnir væru sléttir en ekki grýttirog sleipir. Þeir Sighvatur slökuðu aldrei á eitt augnablik og áttu á endanum næstum sex mínútna forskot á Birgi Bragason í öðru sæti. Slíkur munur er fáheyrður í jafn stuttu ralli og þessu með um 200 kílómetra á sérleiðum, og var enn sætara fyrir Þorstein að vita af öllum 150-250 hestafla bílun- um á eftir sér, meðan 124 hestafla vélin hans er óbreytt. Jafnvel þótt sprungið hefði hjá þeim oftar en einu sinni hefði það ekki kostað þá sigur- inn. Þorsteinn sýndi betra vald á bílnum en nokkru sinni áður, reynslan er farin að skila árangri svo um munar. Birgir Bragason og Gestur mágur hans kláruðu nú öðru sinni í öðru sæti á gömlu Toyotunni, ótrúlegur árang- ur í fyrra skiptið en enn frekar nú. Corollan er í hæsta máta heimasmíð- uð og ekki einn dýr hlutur í henni eins og í milljónabílunum, samt keyrir Birgir þá af sér! Þórhalli Kristjánssyni hefur ekki gengið eins vel og til stóð á 200 ha Talbot Lotusnum sínum, þar til núna að þriðja sætið var örugglega í höfn. Þórhallur er að byrja að finna sig í Talbotnum og á enn eftir að stórauka hraðann, grófu leiðirnar eiga hvorki við hann né bílinn. ÚRSLIT ÁHÖFN BÍLL TÍMI 1. Þorsteinn Ingason Toyota Corolla Sighvatur Sigurðsson GT161600 128,18 2. Birgir Bragason Toyota Corolla GesturFriðjónsson 1600 134,06 3. Þórhallur Kristjánss. Talbot Sunbeam Lotus Sigurður Jensson 2200 134,57 4. Ólafur Sigurjónsson Ford Escort ÞrösturSigurjónsson 2000 135,35 5. Jón R. Ragnarsson Ford Escort Cosworth RúnarJónsson 2000 136,37 6. Bjarmi Sigurgarðarss Talbot Sunbeam Lotus Úlfar Eysteinsson 2200 138.05 7. Óskar Ólafsson Ford Escort RS Árni Óli Friðriksson 2000 143,19 8. Ævar Sigdórsson Subaru Ægir Ármannsson 1600 144,39 9. Hermann E. Herm.s. Ford Escort Ragnar Bárðarson 2000 154,09 10. Guðmundur Jónss. Subaru Justy 4x4 Sæmundur Jónsson 1000 159,15 11. Eiríkur Friðriksson Ford Escort RS Þráinn Sverrisson 2000 162,37 12. BrynjólfurJúlíuss. Ford Escort Ólafur Ingi Ólafsson 2000 165,11 13. Steingrímur IngasonDatsun Svafar Gestsson 1600 172,80 14. GuttormurSigurðss Mitsubishi Lancer Einar Guðinundsson 1600 184,09 Fimmtudagur 25. júlí 1985 12 Bræðurnir Ólafur og Þröstur Sig- urjónssynir aka óáberandi Escort á mjög óáberandi hátt, þeir sem horfðu á áttu bágt með að sjá að hraðinn nægði þeim í fjórða sætið. Ólíkt mörgum öðrum sem lakari árangri náðu var bíllinn þeirra líka óskemmdur eftir. Jón R. Ragnarsson ók sitt fyrsta rall á Snæfellsnesi síðast á Toyotunni sem Ómar bróðir hans hafði ekið áður. Það gekk ótrúlega vel, en nú var 250 hestafla Escortinn vígður. Jón byrjaði varlega og skynsamlega, en sótti í sig veðrið þegar á leið, og hefði sennilega náð verðlaunasæti ef ekki hefði komið til fimm mínútna töf þegar annar bíll sat fastur á Hvamms- heiði fyrir framan þá feðga. Dómnefnd vísaði leiðréttingar- beiðni Jóns á bug á þeim forsendum að leiðrétting samkvæmt reglu um útreikning á tímatapi hefði áhrif á röð og aðeins Jón og Rúnar auk Guð- mundar og Sæmundar lentu í þessu. Dómnefnd treysti sér því ekki til að fara eftir reglu sem samin var og samþykkt eftir að svona tilfelli hafði komið illilega upp. Dómnefnd leyfði sér einnig að bæta klausu aftan við til að benda á að Jón hefði breytt rásröð sinni fyrir ieiðina. Það kom til vegna þess að Jón þurfti að nota hluta 15 mín. viðgerðartíma síns á ferjuleið- inni á undan eins og öllum er heimilt og ekkert er við að segja. Fór dómnefndin því frekar eftir ákvæði sem leyfir þeim að skera endanlega úr um vafaatriði en reglu- ákvæðinu, sem samið var fyrir þessi tilfelli. Við skulum vona að það verði í síðasta sinn. Bjarmi Sigurgarðarsson átti ekki góða daga um helgina. Dekk sprungu (einu sinni vegna brotinnar felgu) og grýttar forarslóðir Hvammsheiðar og Reykjaheiðar lögðust illa í þá Úlfar, Bjarmi náði sér ekki á strik nema helst á Vaðlaheiðinni. Ef keppendur eiga áfram að fást í rall verður að sleppa rudda eins og of mikið var af í þessu Húsavíkurralli. Þegarskemmd- ir á bílunum eru farnar að hafa úrslita- áhrif á úrslit er of langt gengið og ekki allir reiðubúnir til að leggja dýra bíla í það. Óskar Ólafsson átti heldur ekki sína bestu spretti nú um helgina. Gamli Escort draugurinn gerði þeim Árna Óla lífið leitt, alternatorvanda- mál og hin sígilda brotna alternator- festing. Þó nokkuð þurftu þeir að aka án viftureimar. Ævar Sigdórsson er sannfærður standardbílisti og keppir alltaf í standardflokki á Subarunum þeirra Ægis. Enginn lagði í að keppa á móti þeim og unnu þeir þann flokk þvf auðveldlega í áttunda sæti þrátt fyrir sprungin dekk. Nýliðarnir Hermann E. Hermannsson og Ragnar Bárðar- son höfðu fyrirtaks Escort RS 2000 en óhöpp og vandræði töfðu þá eins og marga aðra og lentu þeir í 9. sæti. Á eftir þeim komu tvíburarnir Guðmundur og Sæmundur á Kríla litla, óbreyttum Subaru J10 með drifi á öllum árg. ’85. Allur samanburður við Audi Quattro er þó óþarfur því 1000 rúmssm vélin gerði lítið meira en að fleyta honum áfram skíðandi á níðsterkri hlífðarpönnunni. Þeir ■ Þórhallur er að ná betra valdi á Talbotinum, hraðinn að aukast, en grófu kaflarnir fara enn illa í þá.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.