NT


NT - 26.07.1985, Síða 1

NT - 26.07.1985, Síða 1
Tilraunir vegna stækkunar Búrfells: Rennandi vatn lát ið grafa skurðinn Landsvirkjun ætlar að spara 100 miilj. kr. ■ Landsvirkjun vinnur nú að tilraunum, sem miða að því að spara liðlega 100 milljónir króna af kostnaði við gerð framræslu- skurðar fyrir væntanlega stækk- un Búrfellsvirkjunar, ef af henni verður. Tilraunin er fólgin í því, að vatni úr Bjarnarlóni er veitt yfir skurðsvæðið, og það látið grafa skurðinn að nokkru leyti. Við skurðgröftinn er áætlað að fjarlægja 2,4 milljónir rúm- metra af jarðvegi. Þar af er talið, að hægt sé að nota vatns- rennslið til að fjarlægja helming. Kostnaðurinn við gröftinn með hefðbundinni vélavinnu mun vera um 120 milljónir króna fyrir helming skurðarins, en kostnaðurinn við að láta vatnið sjá um hinn helminginn er aðeins um 18 milljónir króna. Halldór Jónatansson forstjóri Landsvirkjunar sagði í samtali við NT, að tilraunir þessar hefðu byrjað fyrir 1-2 árum, og hefði vatnið verið látið renna af og til að sumarlagi. „Þetta virðist ætla að verða góður möguleiki til að spara kostnað við endanlega skurðgerð, þegar þar að kæmi. Það er fyrirliggjandi, að það er hægt að grafa með þessu móti á mun ódýrari hátt, ef menn hafa tímann fyrir sér,“ sagði Halldór Jónatansson. ■ „Stryn Musikklag“ lék á Austurvelli í gær. Þetta er lúðrasveit frá Stryn í Sognfylki í Noregi, sem er hér á landi á vegum lúðrasveitar Verkalýðsins, en þetta mun vera fyrsta ferð þeirra félaga til hljómleikahalds utan Noregs, og aðspurðir kváðust þeir ekki annað hafa komið til greina, en „sögueyjan". Þeir leika aftur við Miklagarð kl. 4 í dag. NT-mynd: Árni Bjarna NEWS SUMMARYINENGLISH SEEP.20 RockHudson er með Aids Paris-Reuter ■ Kvikmyndaleikarinn og kvennagullið Rock Hudson er með Aids, ónæmisbæklunina sem engin lækning er við. Blaðafulltrúi Hudson til- kynnti blaðamönnum þetta á fundi í París í gær, en hann er til meðferðar á Pasteur-stofnun- inni þar í borg, en sú stofnun er sérhæfð til leitar að lækningu á Aids. Læknar Pasteur stofnunar- innar sögðu blaðamönnum, að þeir vissu ekki til að Aids-sjúkl- ingur hefði nokkru sinni hlotið lækningu. Rock Hudson var giftur á árunum 1955-1958, en hefur, samkvæmt fréttaskeytum, ekki verið kenndur við kvenmann síðan. Er Gosinn dauður? Verða Hi-C og Svali einráð á markaðnum ■ „Gosinn er steindauð- ur,“ sagði Guðmundur Norðdahl í Kjötmiðstöðinni, þegar NT innti hann eftir breytingum á sölu svala- drykkja eftir að Sól hf. birti niðurstöður Iðntæknistofn- unar á rannsókn svala- drykkja. Guðmundur sagði að salan á Gosa hefði dregist hægt og rólega saman, en honum virt- ist sem rannsóknin hefði gert útslagið, því varan hreyfðist varla í versluninni. í máli hans kom fram að Svalinn hefði alltaf selst ágætlega og staða Hi-C væri ágæt á markaðnum. Sagði hann litlar sem engar breyt- ingar hafa orðið á sölu þess- ara drykkja eftir rannsókn- ina. „Gosinn er á undanhaldi." sagði Jóhann Jóhannsson hjá Hagkaupum. Hann taldi að M.S. hafi aldrei náð þeirri markaðhlutdeild sem þeir hafi ætlað sér í byrjun. Jónas telur að Gosinn sé kominn út úr baráttunni um markaðinn og að nú sé það Hi-C sem ætlaði að ráðast á Svalann. Jónas sagði að ekki hafi orðið miklar breytingar á sölu Svala og Hi-C eftir að niðurstöður rannsóknarinn- ar voru birtar. Árni Björn Skaftason í Miklagarði sagði að eina breytingin væri sú að fólk keypti frekar allar tegundirn- ar þrjár til þess að smakka og gera upp við sig hver væri best. Árni Björn sagðist ekki hafa orðið var við að salan á Gosa og Svala hefði dregist saman eftir að Hi-C kom á markaðinn. Hann taldi að um viðbót á markaðinn væri að ræða. Talsmenn Mjólkursam- sölunnar, en þar er Gosinn framleiddur, vildu ekki láta hafa neitt eftir sér um þetta mál. Aukið framboð á peningum: Meðaljóninn sparar og borgar skuldirnar ■ Hinn íslenski meðaljón er farinn að spara og ekki aðeins það heldur einnig að greiða niður skuldir sínar og hættur að lifa um efni fram. Fréttir NT tvo síðustu daga af auknum innistæð- um í bönkum og biðröðum hjá verðbréfasölum hafa vakið mikla athygli og NT leitaði álits hagfræðinga á þessari þróun í peningamál- um. Ofangreindar skýringar eru meðal þeirra sem hagfræðing- arnir nefndu, en nokkrir þeirra er leitað var til vildu ekki tjá sig um þetta ástand peningamark- aðarins að svo stöddu. „Ég tel fátt annað en vextina geta skýrt aukinn sparnað á þessum tíma,“ sagði Jón Sig- urðsson, forstjóri Þjóðhags- stofnunar. Már Guðmundsson, hagfræð- ingur hjá Seðlabankanum, var- aði við bjartsýni og sagði: „Þetta getur líka þýtt það að þegar fólk er búið að rétta sig svolítið af fjárhagslega, geti allt snúist við með haustinu...“ Þá sagði Már að skýringarinn- peningum dælt í gegnum banka- ar gæti verið að leita í slæmri kerfið, og bætti þannig lausa- stöðu ríkissjóðs að þaðan væri fjárstöðu þess. Sjá nánar bls. 3 Loðnuverðið ákveðið: f - segir— Ánægður miðað 2KL, .« « , « Kristján við aðstæður Ij^on ■ Lágmarksverð á loðnu til bræðslu er 1.175 krónur fyrir hvert tonn, tímabilið 1. ágúst til 30. september. Þar er átt við skiptaverð til sjómanna, heild arverð til útgerðarinnar er 1.798 kr. Þetta verð var ákveðið á fundi yfirnefndar Verðlagsráðs í gær- kvöldi. Það er miðað við 16% fituinnihald og 15% fitufrítt þurrefni. Verðið breytist um 74 krónur til hækkunar eða lækk- unar fyrir hvert prósentustig sem fituinnihaldið breytist frá viðmiðuninni og um 79 krónur fyrir hvert prósentustig sem þurrefnismagnið breytist. Loðnan sem veidd er á þessu tímabili er feit og sé gert ráð fyrir 20% fitu og 15% þurrefni kæmu 1.618 krónur í skiptahlut og útgerðin fengi í allt 2.250 krónur fyrir hvert tonn. Verðið var ákveðið af odda- manni nefndarinnar og fulltrú- um seljenda, gegn atkvæðum kaupenda. í yfirnefndinni áttu sæti Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, sem var oddamaður nefndarinnar, Helgi Laxdal og Kristján Ragnarsson sátu í nefndinni fyrir hönd selj- enda, og Jón Reynir Magnússon og Guðmundur.Kr. Jónsson fyr- ir hönd kaupenda. „Miðað við aðstæður erum við ánægðir,“ sagði Kristján Ragnarsson í samtali við NT. Hann sagði þetta verð sambæri- legt við byrjunarverðið í fyrra, en benti á að frá þeim tíma hefði kostnaður við veiðar og vinnslu stóraukist. „Okkar óskaverð var lægra en þetta, en við verðum ekki með neinn úlfaþyt vegna þessa,“ sagði Jón Reynir Magn- ússon, annar fulltrúi kaupenda í yfirnefndinni. Jón sagði að ekki væri mögu- legt að hafa frjálst verð á loðn- unni, þar sem sjóðakerfið kæmi í veg fyrir að þeir gætu greitt vöruna yfir borðið, eins og tíðk- aðist í öðrum viðskiptum.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.